12.03.1970
Efri deild: 54. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 174 í C-deild Alþingistíðinda. (2357)
152. mál, verkfall opinberra starfsmanna
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Vegna þess að ég hef nú dálítið undanfarna tvo áratugi komið við sögu samtaka opinberra starfsmanna, þá þykir mér hlýða með fáeinum orðum að lýsa afstöðu minni til þessa máls, sem hér liggur fyrir. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja er nú nær 30 ára gamalt, og ég held, að ég hafi setið á öllum þingum þess nema einu eða tveimur. Á flestum þessum þingum hafa verið bornar fram till. um það og áskoranir til Alþ. og ríkisstj. að afnema l. frá 1915, um bann við verkfalli opinberra starfsmanna, og ég dreg enga dul á það, að í flest ef ekki öll þau skipti, sem ég hef átt sæti á þeim þingum, sem um þetta mál hafa fjallað, þá hef ég rétt upp höndina með slíkri till. Nú er það auðvitað svo, að menn hafa rétt til þess að skipta um skoðun. En ég vil bæta því við, að grundvallarviðhorf mín til þessara mála eru óbreytt frá því, sem þá var.
Ég vil benda á tvö atriði því til stuðnings, að óeðlilegt sé, að þessi lög gildi í óbreyttri mynd frá því, sem verið hefur. Í fyrsta lagi, eins og frsm. fyrir þessu frv., hv. 6. þm. Sunnl., réttilega tók fram, að lög þessi eru nú orðin meira en hálfrar aldar gömul og eru frá tíma, þegar hugsunarháttur í þessum efnum var töluvert annar heldur en hann er nú. Hins vegar höfum við vinnulöggjöfina frá 1938, og það er athyglisvert, ef maður ber saman þessa tvenns konar löggjöf og miðar þar við nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndum, að hvað snertir opinbera starfsmenn, þá er í gildi hér á landi miklu viðtækara bann við vinnustöðvunum þeirra heldur en þekkist annars staðar á Norðurlöndunum. Þar hafa opinberir starfsmenn meiri eða minni verkfallsrétt, að vísu takmarkaðan, en hér er þetta bann alveg undantekningarlaust. Ef maður hins vegar ber hina almennu vinnulöggjöf saman við það, sem er á hinum Norðurlöndunum, þá er hún yfirleitt rýmri heldur en þar tíðkast, og virðist, sem það sjónarmið liggi í miklu ríkara mæli að baki hinni almennu íslenzku vinnulöggjöf, að það beri að setja sem minnstar hindranir fyrir því, að til vinnustöðvana sé boðað. En þetta er yfirleitt, eftir því sem ég þekki til, þrengra á hinum Norðurlöndunum, þó að ég reki það ekki nánar.
Annað meginatriðið í þessu efni frá mínu sjónarmiði er, að það er ekki vafi á því, að þetta verkfallsbann opinberra starfsmanna hefur verið misnotað, þannig að oft á tíðum hefur það átt sinn þátt í því, að launakjör opinberra starfsmanna hafa dregizt aftur úr miðað við aðrar sambærilegar launastéttir. Hv. 6. þm. Sunnl. nefndi ýmis dæmi um það í sinni framsöguræðu„ en við það get ég m. a. bætt því frá minni eigin reynslu, að um það bil, sem ég fyrir rúmum 20 árum síðan gerðist formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja — en þeirri stöðu gegndi ég nærfellt áratug — en það var árið 1948, þá stóð þetta tafl þannig, að árið 1945 höfðu að vísu verið samþ. launalög, sem veittu opinberum starfsmönnum töluverðar kjarabætur miðað við það, sem áður hafði verið, og hafa þau laun, sem þeim voru þá ákveðin, fyrst og fremst verið miðuð við hinn almenna vinnumarkað. En á þriggja ára tímabilinu frá 1945–1948 voru ekki minna en þrjár almennar grunnkaupshækkanir á vinnumarkaðinum, og sú fjórða var þá yfirvofandi, eins og reynslan leiddi líka í ljós árið 1949. Að vísu nutu opinberir starfsmenn vísitöluuppbóta eftir svipuðum reglum og áður, en á þessu tímabili var þeim það ekki til svo mikillar ánægju, því að vísitalan var yfirleitt fest á þessum tíma. En þarna voru orðnar þrjár grunnkaupshækkanir, og sú fjórða í aðsigi, án þess að opinberir starfsmenn hefðu þá fengið nokkrar réttarbætur í þessu efni. Á næstu 1–2 árum fengu opinberir starfsmenn að vísu nokkra réttingu mála sinna, en fljótlega vildi síga í sama horfið og áður var, að þeir drógust aftur úr. Á þessi tvö atriði má í fyrsta lagi benda.
Í öðru lagi er það auðvitað auðsætt, að þó menn séu sammála um það, og það kemur fram í grg. fyrir þessu frv., að það er flm. ljóst, að ýmsar takmarkanir verður að setja verkfallsrétti opinberra starfsmanna, sem ekki gilda almennt, þá verður þó að gera sér ljóst, að verkfallsbönnin geta aldrei skapað hvorki almenningi né stjórnvöldum fullkomið öryggi í þessum efnum. Verði óánægjan með launakjör nægilega útbreidd, þá er ekki hægt að koma í veg fyrir það, að farið verði í kringum verkfallsbannið með því að stofna til heildaruppsagna, eins og oftar en einu sinni hefur skeð hjá ríkinu. Nú má vel vera, að lagalega séð sé slíkt ekki löglegt, þannig að þarna sé verið að fara í kringum lög og megi þá lögsækja þá, sem tekið hafa í slíku þátt. En þetta hefur nú skeð oftar en einu sinni. Læknar, kennarar og ýmsir fleiri eru þar dæmi um, og þekki ég þess engin dæmi, að hafizt hafi verið handa um það að draga menn á þessum grundvelli fyrir lög og dóm, enda óframkvæmanlegt, ef samtökin eru nægilega viðtæk. Fyrir getur það komið, að það sé ekki farin svo viðamikil leið eins og sú, að allir segi upp störfum sínum. Einhverjir hv. þdm. minnast þess e. t. v., að fyrir nokkrum árum var þess getið í blöðum, að 600 lögregluþjónar í Stokkhólmi, sem óánægðir voru með launakjör sín, fengu allir kvef sama daginn og forfölluðust frá störfum, og var þó ekki kunnugt um, að neitt kvef eða inflúensa væri að ganga þar í borg á þessum tíma. Nú er það vafalaust þannig í Svíþjóð, eins og annars staðar í siðmenningarlöndum, að hvað sem verkfallsrétti líður, þá er lögreglunni óheimilt að stofna til vinnustöðvana, en ekki fara sögur af því, að neinn þessara lögregluþjóna hafi verið dreginn fyrir lög og dóm á þessum grundvelli.
Þetta allt ber að hafa hugfast, og ég er fyllilega sammála flm. þessa frv. um það, að þessi lög frá 1915 séu nú úrelt. Hitt er svo annað mál, að ég teldi það nálgast að vera óábyrga afstöðu af hv. Alþ. að samþykkja niðurfall þessara l. án þess að gera sér grein fyrir því, hvað kemur í staðinn, og á þeim grundvelli mun ég ekki treystast til að styðja þetta frv. í þeirri mynd, sem það er borið fram. Það kemur og ljóslega fram í grg. fyrir frv., að hv. flm. hugsa sér ekki, enda hefur það aldrei mér vitanlega, hvað sem öllu öðru líður, verið krafa opinberra starfsmanna, að þeir fengju algerlega ótakmarkaðan verkfallsrétt. Störf þeirra eru þess eðlis, að slíkt kemur ekki til greina. En þá finnst mér, að jafnhliða því, að sett væru lög um þetta, yrði að gera sér grein fyrir því, hvernig þessum málum ætti þá að skipa á nýjum grundvelli. Það er að vísu talað um það í grg. fyrir frv., að jafnhliða þurfi að setja lög í samráði við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, sem komi í veg fyrir það, að mikilvægasta öryggisþjónustan verði felld niður o. s. frv. En hvernig þeim málum verður skipað, verður að liggja fyrir um leið og tekin er afstaða til máls eins og þessa.
Í öðru lagi koma spurningar um það, hvaða merkingu á að leggja í það, ef l. eru felld niður. Þýðir það, að opinberir starfsmenn fái þá ótakmarkaðan verkfallsrétt, og hvað skeður þá með l. um kjarasamninga opinberra starfsmanna, sem ekki er gert ráð fyrir í þessum l., að falli niður? Gildi þau áfram, þá takmarka þau út af fyrir sig — þó að það sé e. t. v. túlkunaratriði — rétt opinberra starfsmanna til þess að gera verkföll. Sé þannig litið á, að slíkt bann sé í gildi með þeim l., mundi ekki vera svo ýkja mikið unnið við það að mínu áliti að afnema l. um verkfallsbann frá 1915. Þessi mál þarf að taka upp til endurskoðunar og nýskipunar í heild, þannig að tryggt sé, að opinberir starfsmenn búi við svipaðan rétt eða svipaða möguleika og aðrir til þess að tryggja sér kjör, sem á hverjum tíma eru í samræmi við önnur laun í þjóðfélaginu og getu þjóðarbúsins. En það er auðvitað miklu stærra mál en svo, að það verði leyst með því einu að afnema verkfallsbannlögin frá 1915.
Auðvitað var það bætt réttarstaða út af fyrir sig, þegar l. um kjarasamninga frá 1962 tóku gildi, og fólst það út af fyrir sig ekki svo mjög í því, að opinberir starfsmenn fengju með þeim l. samningsrétt, eins og það hefur verið kallað, því að þó að sá samningsréttur eða réttur til viðræðna við ríkisvaldið væri ekki nema að takmörkuðu leyti löghelgaður fram að þeim tíma, þá hafði það nú verið þannig um alllangt skeið, að ákvarðanir um launamálin voru ekki teknar nema í samráði við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Slíkur viðræðuréttur hafði raunverulega verið viðurkenndur og verið fyrir hendi, þannig að í hvert skipti, sem ný launalög höfðu verið undirbúin, voru skipaðar til þess nefndir, þar sem bandalagið átti að jafnaði jafnmarga fulltrúa eins og ríkisstj. En réttarbótin með l. frá 1962 fólst í því, að ef samkomulag náðist ekki í þeim n., sem undirbúa áttu launalög, þá var það ríkisvaldið eða vinnuveitandi hins opinbera, sem einhliða ákvað þá kjörin. En með lögunum er þessu skotið til gerðardóms, sem á að vera hlutlaus og óháður. Það er ekki vafi á því, að fyrsti kjaradómur, sem felldur var, þýddi mjög verulegar hagsbætur fyrir opinbera starfsmenn. En síðan hefur á ýmsu gengið í samskiptum kjaradóms og opinberra starfsmanna„ sem ég fer ekki út í hér. En svo mikið er víst, eins og kom raunar fram í framsöguræðu hv. 6. þm. Sunnl., að því fer fjarri, að nein óblandin ánægja sé hjá opinberum starfsmönnum með starfsemi kjaradóms, svo að öll þau mál þurfa endurskoðunar við.
En á því má vekja athygli, að þó opinberir starfsmenn hafi vissulega oft með réttu kvartað um það, að launakjör þeirra hafi dregizt aftur úr því, sem gildir annars staðar í þjóðfélaginu, — ég get ekki stillt mig um, að það komi hér fram, vegna þess að þar er um mjög þýðingarmikið atriði að ræða — þá er þetta ekki einvörðungu skilningsleysi stjórnvalda á gildi þessara starfa að kenna, þó að slíks skilningsleysis hafi vitanlega oft gætt. Þar er líka annað ljón á veginum, eins og mjög skýrt kom fram einmitt eftir kjarasamningana 1963, en það eru þær hugmyndir, sem almenningur hefur um það, hver séu hin réttu launahlutföll. Strax eftir að kjaradómur var fallinn, var efnt til mjög víðtækra vinnudeilna á hinum almenna launamarkaði. — Það væri ekki ástæða til þess að nefna þetta og rifja upp í sambandi við umr. um launakjör opinberra starfsmanna, ef þessar launadeilur, sem risu seinni part ársins 1963, hefðu verið alveg óháðar kjaradómi. Ef verkalýðurinn hefði þá sagt: Afkoma atvinnulífsins er það góð, að það er á þeim grundvelli möguleiki á kjarabótum eða: Við getum ekki lifað á laununum o. s. frv. — En rökstuðningurinn var ekki þessi, heldur var það blátt áfram þannig, að þær kröfur, sem þá voru gerðar, voru einvörðungu miðaðar við þær kauphækkanir, sem opinberir starfsmenn höfðu fengið. Sú skoðun kom fram hjá Alþýðusambandi Íslands og félögum þess yfirleitt, að það hefði verið fullt launajafnvægi fyrir kjaradóm, og verkalýðsstéttirnar ættu siðferðilegan rétt á jafnmikilli launahækkun og opinberir starfsmenn höfðu fengið, m. ö. o. þessi launahlutföll máttu ekki breytast að dómi þessara aðila. Hið almenna kaupgjald hækkaði að vísu ekki nema um hluta af því, sem kaup opinberra starfsmanna hafði þá hækkað, svo að hlutfallið breyttist þrátt fyrir allt opinberum starfsmönnum í vil. Síðan fóru opinberir starfsmenn fram á það, að þeir fengju samsvarandi launahækkun og orðið hefði á hinum almenna vinnumarkaði, því að telja mætti víst, að kjaradómur hefði miðað við launin, eins og þau voru á hinum almenna launamarkaði, þegar hann kvað upp sinn úrskurð. Það fékkst að vísu ekki, og vakti allmikla óánægju meðal opinberra starfsmanna.
Ég tel einmitt mjög þýðingarmikið, þegar þessi mál eru til umr., að vekja athygli á því, að það væri ekki nóg jafnvel þó að fullur skilningur væri á þörfum og sanngjörnum kröfum opinberra starfsmanna í þessum efnum, að ríkisvaldið féllist á það. Almenningsálitið í landinu verður líka að vera því hagstætt, og á meðan því skilyrði er ekki fullnægt, verða allar þær leiðréttingar, sem opinberir starfsmenn fá á sínum launahlutföllum, aðeins um stundarsakir. Ég álít mjög þýðingarmikið, að einmitt þetta atriði komi fram, og vilji einhver hv. dm. véfengja það, sem ég hef nú sagt, sem mér kæmi raunar á óvart, ef væri, þá vil ég vísa þeim og hinum sama t. d. til Alþingistíðinda frá þessum tíma, þegar frv. um nokkurra vikna frestun á vinnustöðvunum var til umr., og raunar til þess, sem sagt var í dagblöðum og annars staðar á opinberum vettvangi um þetta leyti. Þar kom það alveg skýrt fram, að kröfurnar voru fyrst og fremst byggðar á samanburði við það, hvað opinberir starfsmenn höfðu fengið. Annað bar lítt eða ekki á góma í því sambandi.
Að lokum vil ég svo aðeins segja það til að fyrirbyggja allan misskilning, að þó að ég sé þannig sammála flm. þessa frv. um það, að löggjöfin frá 1915 sé úrelt og hana beri fyrr en seinna að afnema, þá felst ekki í því sú skoðun, að verkföll séu hin æskilegasta leið til þess að leysa ágreining um kaup og kjör. Og einmitt í því sambandi má benda á það, að samanburður við Norðurlönd í þessum efnum verður meira eða minna hæpinn. Að vísu er það svo á hinum Norðurlöndunum, eins og ég þegar hef sagt og hv. 6. þm. Sunnl. gerði einmitt allýtarlega grein fyrir, að verkfallsréttur opinberra starfsmanna þar er allmiklu rýmri en hér. En þá ber að hafa það hugfast, að Norðurlandabúar eru komnir lengra áleiðis heldur en við í því að nota leiðir, sem betur samsvara kröfum tímans en verkfallsleiðin til þess að leysa vinnudeilur. En það, sem ég á við með því, eru þeir allsherjarsamningar, sem gerðir eru venjulega þar til tveggja eða þriggja ára á milli samtaka vinnuveitenda og samtaka launþega með meiri eða minni aðstoð ríkisvaldsins. En þessir samningar eru byggðir á mjög ýtarlegum upplýsingum um möguleikana, sem fyrir hendi eru á hverjum tíma til þess að hækka kaupgjald, án þess að það þurfi að koma fram í samsvarandi hækkun vöruverðs, þannig að launþegarnir séu látnir greiða sér sjálfir þær kjarabætur, sem þeir fá, sem allt of mikið hefur kveðið að og kveður enn að hér á landi. Þessir samningar takast að jafnaði, og svo hefur verið um langt skeið, án þess að til vinnustöðvana hafi komið. Þetta þýðir ekki það, að vinnustöðvanir séu bannaðar eða réttur launþeganna til að stofna til vinnustöðvunar hafi að nokkru leyti verið skertur. Þetta vopn er bara ekki notað nærri því eins mikið þar og hér. Auðvitað skeður það endrum og eins að til verkfalla komi. Venjulega eru það fámennir hópar, en að það komi fyrir ár eftir ár, að skemmri eða lengri allsherjarvinnustöðvun eigi sér stað, eins og hér, það þekkist yfirleitt ekki þar.
Vinnustöðvanir hafa marga og augljósa ágalla sem tæki til þess að leysa þessi mál. Þær eru dýrar, bæði fyrir þjóðfélagsheildina og þá, sem í þeim standa, og þar að auki er það fráleitur mælikvarði á gildi hinna mismunandi starfa, hve mikið öngþveiti viðkomandi kynnu að geta skapað með því að segja upp störfum sínum eða stofna til vinnustöðvana. Við vitum — án þess að ég nefni nú um það dæmi, en allir vita, hvað ég er að fara í því efni — að ef við tökum t. d. langskólagengna menn hér á landi, þá er orðið mjög gífurlegt misræmi í launakjörum þeirra, þannig að vissir aðilar, sem eru taldir ómissandi, hafa fengið kjör, sem eru ósambærilega miklu betri við þau, sem aðrir, sem hafa alveg hliðstæða menntun og e. t. v. hliðstæða ábyrgð í störfum, njóta, annað hvort af því að þeir hafa ekki getað eða viljað fara þá leið, því að það er nú einu sinni þannig með verkfallsréttinn, að hann er mjög misjafnlega biturt vopn í hendi hinna einstöku starfshópa. Í höndum sumra starfshópa er þetta vissulega það biturt vopn, að til stórvandræða horfir, ef vinnustöðvanir þeirra standa lengi. Og aðrir geta stofnað til langvarandi vinnustöðvana, án þess að þjóðarbúskapurinn haggist við það. Það skeði t. d. fyrir nokkrum árum í Danmörku, að prentarar voru hálft ár samfleytt í verkfalli, og er ekki vitað til þess, að þjóðarbúskapur Dana hafi beðið neitt afhroð vegna þess. Þar með er síður en svo verið að segja, að fyrir þjóðfélagið geti störf prentaranna ekki haft alveg jafnmikið gildi eins og margra annarra. Undir mörgum kringumstæðum er það mjög ósanngjarnt að launakjörin eða launahlutföllin fari fyrst og fremst eftir þessu. Þetta er auðvitað eitt af fleiri sjónarmiðum, sem taka ber til athugunar, þegar launahlutföll eru ákveðin, en að gera það einhlítt er fjarri öllu lagi. Um það vænti ég, að hv. dm. yfirleitt séu sammála. En hér er um að ræða stærri og flóknari vandamál en svo, að þau verði hægt að leysa í sambandi við þær umr. og afgreiðslu þessa máls, og læt ég því staðar numið að sinni.