20.04.1970
Efri deild: 74. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2362)
152. mál, verkfall opinberra starfsmanna
Frsm. minni hl. (Kristján Thorlacius) :
Herra forseti. N. varð ekki sammála um afgreiðslu þessa frv. Meiri hl. vill vísa því til ríkisstj., en minni hl. n., Karl Guðjónsson, Björn Fr. Björnsson og ég, leggur til, að frv. verði samþ. með þeim breytingum, sem ég skal koma að síðar.
Þetta frv. er um afnám l. frá 1915 um bann við verkföllum opinberra starfsmanna. Eins og nú er komið málum, verður það að teljast algert misrétti að leggja bann við verkföllum opinberra starfsmanna. Með vinnulöggjöfinni, sem sett var á árinu 1938, var viðurkenndur verkfallsréttur annarra launþega hér á landi, og um þann rétt gilda síðan reglur, sem þau lög ákveða. Þau lög, sem frv. gerir ráð fyrir, að felld verði úr gildi, voru sett við allt aðrar þjóðfélagsaðstæður en nú eru. Einnig er hugsunarháttur manna í þessum efnum gjörbreyttur frá því, sem þá var. Við nútíma aðstæður fer þýðing starfa fyrir þjóðfélagið ekki eftir því, hvort starfið er unnið á vegum ríkis eða bæjarfélaga eða á vegum félaga einstaklinga. Sannleikurinn er sá, að ýmis störf í þjóðfélaginu, bæði hjá hinu opinbera og einkaaðilum, eru þannig vaxin, að tjón getur af hlotizt, ef vinna er stöðvuð um lengri tíma. Þessi staðreynd hefur verið viðurkennd af þeim stéttarfélögum, sem framkvæma verkfallsréttinn, og í framkvæmd er framfylgt óskráðum lögum, sem gilt hafa um slík störf í verkföllum, og þó að í vinnulöggjöfinni gildi ekki neinar sérreglur um þau störf, sem viðkvæmust eru að þessu leyti, þá hefur þetta ekki komið að sök. Til þess að girða fyrir, að tjón hljótist af verkföllum þeirra opinberra starfsmanna, sem sinna öryggisþjónustu í víðri merkingu þess orðs, gera flm. frv. ráð fyrir, að ef frv. verður að lögum, verði jafnframt lögfest sérstök ákvæði í samráði við samtök opinberra starfsmanna um samningsrétt þessara starfsmanna. Er þetta í samræmi við yfirlýsta stefnu samtaka opinberra starfsmanna.
Þegar lög um bann við verkföllum opinberra starfsmanna voru sett á árinu 1915, var verkalýðsbaráttan í mótun. Þá var hörð andstaða gegn verkföllum almennt, og átökin snerust þá einmitt fyrst og fremst um sjálfan verkfallsréttinn. Ef dregið verður lengi að setja löggjöf, er heimili verkföll opinberra starfsmanna, gæti svo farið, að einstakir hópar opinberra starfsmanna tækju sér þennan rétt. Ég tel æskilegra, að ekki þurfi að koma til slíks frekar en orðið er, heldur verði sett frjálslynd löggjöf um þetta efni á sama hátt og gert hefur verið hjá frændþjóðum okkar í Noregi og Svíþjóð. Á það verður að líta, að þróunin í þá átt, að einstakar stéttir opinberra starfsmanna taki sér verkfallsrétt þrátt fyrir bann í lögum er þegar hafin. Segja má, að læknastéttin hafi í reynd tekið sér verkfallsrétt, og svipuðu máli gegnir í fleiri starfsgreinum.
Eins og nú er ástatt er ríkjandi mjög mikil óánægja hjá opinberum starfsmönnum með launakjörin, og það sannarlega ekki að ástæðulausu. Menn telja, að sú skipan, sem lögfest var 1962, að kjaradómur úrskurði launakjör opinberra starfsmanna, ef samningar takast ekki, hafi gefið miður góða raun. Ástandið var orðið þannig, áður en kjarasamningalögin voru sett 1962, að alveg var komið að því að sjóða upp úr. Ef þá hefði ekki verið sett löggjöfin um samningsrétt opinberra starfsmanna er óhætt að fullyrða, að uppsagnir hefðu hafizt í stórum stíl hjá hinu opinbera. Til stuðnings þessu vil ég benda á, að á þeim tíma lágu fyrir skriflegar uppsagnir frá um 90% af kennurum við barnaskóla og gagnfræðaskóla, og hefðu þær uppsagnir vafalaust verið lagðar fram, ef ekki hefði verið komið til móts við opinbera starfsmenn með setningu l. um kjarasamninga. Launakjörin voru verulega lagfærð í fyrstu kjarasamningunum 1963, en sú lagfæring entist ekki nema skamma hríð, og síðustu árin hefur sigið mjög á ógæfuhlið í kjaramálum opinberra starfsmanna. Áður en frv. um kjarasamninga opinberra starfsmanna var lagt fyrir Alþ. á árinu 1962, var leitað álits stjórnar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Það var álit stjórnarinnar, að slík lagasetning væri skref fram á við og væri þess verð að reyna þetta fyrirkomulag. Jafnframt var lögð áherzla á, að samtökin viðurkenndu ekki réttmæti þess, að kjör launþega væru ákveðin með lögskipuðum gerðardómi. Var og talið sjálfsagt og því lýst yfir við ríkisstj. í sambandi við undirbúning málsins, að unnið yrði áfram að því lokamarki, að opinberir starfsmenn njóti sama samningsréttar og aðrir launþegar búa við.
Eins og ég gat um, þótti fyrsta framkvæmd kjarasamningalaganna frá 1962 takast allvel og lofa góðu um það fyrirkomulag, sem þar var upp tekið. En framkvæmdin eftir það hefur valdið miklum vonbrigðum hjá opinberum starfsmönnum. Standa menn nú fastar saman en nokkru sinni um þá réttmætu kröfu, að opinberir starfsmenn fái sama samningsrétt og aðrar stéttir. Það hefur sýnt sig, að í framkvæmd eru kjarasamningalögin ekki mikið annað en réttur til málflutnings fyrir gerðardómi eða kjaradómi, eins og hann er nefndur í kjarasamningal. Þetta stafar einkum af þeirri tilhneigingu ríkisvaldsins og forsvarsmanna sveitarfélaga að vilja fremur skjóta ágreiningsmálum til dómstóla en semja um þau. Þess vegna telja samtök opin berra starfsmanna núverandi fyrirkomulag ófull nægjandi og raunar með öllu óviðunandi. Samtökin voru frá byrjun uggandi vegna dómsákvæðanna, og reynslan hefur sýnt, að sá ótti var engan veginn ástæðulaus.
Mér finnst full ástæða til, að í þessu máli sé litið til þeirrar þróunar, sem orðið hefur hjá frændum okkar á Norðurlöndum. Árið 1958 voru sett lög í Noregi um samningsrétt opinberra starfsmanna. Samkv. þeim lögum er opinberum starfsmönnum þar í landi veittur verkfallsréttur, þó með undantekningum — um öryggisþjónustu og tiltekna embættismenn. Einnig er sá fyrirvari um verkfallsréttinn, að heimilt er að skylda starfsmenn til að gegna störfum sínum í þrjá mánuði, ef talið er, að brottför þeirra úr starfi stofni í hættu mikilvægum þáttum þjóðarhagsmuna. Í Svíþjóð var opinberum starfsmönnum veittur verkfallsréttur með l. á árinu 1966. Hvorki í Finnlandi né Danmörku munu vera nein lög, sem banna verkföll opinberra starfsmanna. Í þessum löndum telja samtök opinberra starfsmanna sig hafa verkfallsrétt, og í báðum löndunum hafa hópar starfsmanna gert verkföll á undanförnum árum án þess, að ákærur hafi átt sér stað.
Síðan l. um bann við verkföllum opinberra starfsmanna voru sett 1915, hafa orðið stórfelldar þjóðfélagsbreytingar. Á þeim tíma voru örfáir starfsmenn í þjónustu ríkis og bæjarfélaga. Nú starfa hjá ríki og bæjum milli 8 og 9 þús. starfsmenn. Af þessum hópi eru um 7 þús. í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Um flesta þessa starfsmenn gildir það, að engin ástæða er til frá þjóðhagslegu sjónarmiði, að þeir búi við aðrar reglur en aðrir launþegar, að því er tekur til samningsréttar og verkfallsréttar.
Eins og tekið var fram við 1. umr. þessa máls, líta flm. frv. á það sem stefnumarkandi mál um það, hvort starfsmenn hins opinbera eigi að hafa samningsrétt með svipuðum hætti og aðrir launþegar í landinu eða ekki. Okkur er það ljóst, að ef þetta frv. verður að l., þarf að ákveða nánar, hvaða störf skuli teljast til öryggisþjónustu, og hvaða reglur um þau gilda. Við gerðum ráð fyrir, að þau atriði yrðu rædd samhliða þessu frv. í n. Nú höfum við flutt brtt. um, að l. öðlist gildi um næstu áramót, til þess að tími vinnist á næsta þingi til þess, ef frv. verður að l., að setja lagaákvæði um þau sérstöku atriði, sem þarf að setja reglur um, svo sem ég vék að áðan.
Meiri hl. allshn. vill vísa þessu máli til ríkisstj., og rökin fyrir þeirri till. eru þau, að áður en ákvörðun verður um það tekin, að veita opinberum starfsmönnum verkfallsrétt, þurfi að kanna tiltekin atriði, sem upp eru talin í áliti meiri hl. n.
Við, sem minni hl. skipum í n., erum sammála meiri hl. um, að hér er um stórt mál að ræða. En málið er ekki nýtt og hefur allmikið verið rætt á undanförnum árum. Að minnsta kosti tveir af þeim hv. þm., sem skipa meiri hl. n., eru þaulkunnugir þessu máli, annar þeirra, hv. 12. þm. Reykv., sem fyrrv. form. BSRB um margra ára skeið og hinn, hv. 3. landsk. þm., frsm. meiri hl., var um nokkur ár einn aðalsamningamaður ríkisins um kjaramál opinberra starfsmanna og hefur því fylgzt náið með þessum málum og gangi þeirra. Það hefði því vel mátt gera þær athuganir, sem um er rætt í áliti meiri hl. n., í þingn. En ef svo skyldi fara móti von okkar, sem stöndum að áliti minni hl., að málinu verði vísað til ríkisstj., er þess að vænta, að sú athugun, sem gert er ráð fyrir í áliti meiri hl. n., verði látin fram fara hið allra fyrsta, og ég vil leyfa mér að vænta þess, að þessi athugun verði látin fara fram, þannig að málið geti af hálfu hæstv. ríkisstj. komið á ný fyrir næsta þing.
Sú afstaða meiri hl. n., að vísa þessu máli til ríkisstj. með þeim röksemdum, sem í nál. greinir, er út af fyrir sig fagnaðarefni. Þar með er málið ekki í þetta skipti svæft í n., og auknar líkur fyrir því, að það verði ekki fellt. Þetta sýnir, að þróunin gengur í þá átt, að menn telja ekki stætt á því öllu lengur að synja opinberum starfsmönnum um sama samningsrétt í kjaramálum og aðrir hafa búið við í marga áratugi.
Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar, en við í minni hl. allshn, leggjum sem sagt til, að frv. verði samþ. með þeirri breytingu, sem grein hefur verið gerð fyrir.