27.04.1970
Neðri deild: 85. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2378)
74. mál, skattfrelsi heiðursverðlauna
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Þetta litla frv. hefur tvívegis legið fyrir Alþ., og mér hefði fundizt þetta vandamál ekki stærra en svo, að það hefði ekki átt að vera ofverk hv. n. að komast að niðurstöðu um það, hvort það orðalag, sem ég er með, nægði, eða hvort þyrfti að breyta því. N. hefði getað fengið einhvern sérfróðan mann til þess að vinna það verk fyrir sig. Að þessu hefur samt ekki verið unnið þannig, en í staðinn lýsir n. yfir efnislegum stuðningi við frv., en leggur til, að hæstv. ríkisstj. verði falið að vinna verkið, þannig, að um þetta verði lögð endanleg till. fyrir næsta þing. Ég get í sjálfu sér fallizt á þá afgreiðslu.