27.11.1969
Neðri deild: 19. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (2393)
102. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Pálmi Jónsson) :
Herra forseti. Með frv. því, sem ég flyt hér ásamt hv. 10. þm. Reykv., um breyt. á l. um tekju- og eignarskatt er lagt til, að einstæðum mæðrum með barn eða börn á framfæri, sé veittur réttur til, að frá séu dregin 50% af tekjum þeirra, áður en skattgjald er á þær lagt. Er það til samræmis við rétt giftra kvenna, hvað þetta snertir, en þeim er með lögum heimilað, að frá séu dregin 50% af tekjum þeirra, áður en skattgjald er lagt á tekjur hjónanna, enda hafi konan ekki aflað tekna þessara hjá fyrirtæki, sem hjónin, annað hvort eða bæði eða ófjárráða börn þeirra, eiga eða reka að verulegu leyti. Sé um það að ræða, gilda önnur ákvæði.
Augljóst má telja, að einstæðum mæðrum sé ekki síður þörf á því en giftum konum að fá rétt til þessa frádráttar af tekjum sínum, áður en þær eru reiknaðar til skatts, því að miklum mun er aðstaða flestra þeirra lakari við að koma upp börnum sínum og sjá fyrir heimili sínu en hinna, sem í því efni njóta að miklu leyti forsjár eiginmannsins. Það er því skoðun okkar flm., að í l., eins og þau eru, felist misrétti, sem þörf sé á að leiðrétta. Þetta misrétti er e. t. v. gleggst að sýna fram á með því að taka dæmi, með líkum hætti og gert er í grg. frv.
Sé um að ræða gifta konu, sem á börn og vinnur utan heimilis og aflar með þeim hætti ásamt manni sínum tekna til sameiginlegra þarfa fjölskyldunnar, fær hún helming tekna sinna frádreginn á skattframtali þeirra hjóna. Ef maður hennar deyr og hún þarf þar með ein að annast framfærslu heimilisins, fær hún ekki lengur hinn fyrrnefnda frádrátt af tekjum sínum, heldur eru þær skattskyldar að fullu. Þetta augljósa misræmi mun að öllum líkindum komið inn í l. fyrir vangá. Þegar ákvæði um hinn fyrrnefnda frádrátt giftra kvenna voru tekin í lög, munu fyrst og fremst önnur atriði hafa verið höfð í huga en framfærslubyrðin. Má þar annars vegar nefna, að áður en sú breyting var gerð, verkuðu skattalög sem verulegur hemill á að fólk stofnaði til hjúskapar, ef bæði hjónaefnin unnu fyrir einhverjum tekjum að marki. Á hinn bóginn vildi brenna við, að örðugt væri að fá giftar konur til starfa utan heimilis, jafnvel þó að mikið lægi við, t. d. þegar svo stóð á að bjarga þurfti verðmætum í verstöðvum, ef aflahrotur gerði.
Nú er það ljóst, að framfærslubyrðin er einnig og ekki síður mikilsverður þáttur, og það er snertandi þann þáttinn, sem misrétti er í gildandi skattalögum milli giftra kvenna og einstæðra mæðra, misrétti, sem stefnt er að að bæta úr með flutningi þessa frv. Rétt er að gera sér nokkra grein fyrir þeirri aðstoð, sem einstæðar mæður hljóta samkv. l. um almannatryggingar. Eftir upplýsingum Tryggingastofnunar ríkisins er barnalífeyrir á hvert barn kr. 1573 á mánuði eða kr. 18.876 á ári. Mæðralaun eru með 1. barni kr. 315 á mánuði eða kr. 3.780 á ári. Mæðralaun hækka að vísu verulega með 2. barni eða í kr. 1.708 á mánuði og þar með í kr. 20.496 á ári og með þrem börnum eða fleiri í 3.416 á mánuði og kr. 40.992 á ári. Hér eru þó ekki taldar ekkjubætur, sem vara mjög takmarkaðan tíma; né heldur fjölskyldubætur, sem greiddar eru með öllum börnum.
Hér er vissulega um mikilsverða aðstoð að ræða, sem hinar einstæðu mæður hljóta, en það er eigi að síður einsætt, að slíkar fjárhæðir hrökkva skammt þeim og börnum þeirra til framfæris. Séu báðir þessir póstar dregnir saman, barnalífeyririnn og mæðralaunin, þá fær kona með 1 barn á framfæri samtals úr þeim liðum kr. 1.888 á mánuði eða kr. 22.656 á ári sér til styrktar. Það er því augljóst, að konur þessar þurfa að vinna fullan vinnudag og mun í mörgum tilfellum ekki af veita, nema í þeim einstöku tilvikum, sem um það er að ræða, að þær geti stuðzt við verulegar eignir, sem fágætt mun vera. Þá má enn vitna til þess, að í ýmsum tilvikum fylgir vinnu þessara kvenna utan heimilis aukinn kostnaður vegna gæzlu barna þeirra. Það er því í hæsta máta óréttmætt, að þær séu settar skör lægra um réttindi til frádráttar við álagningu skatta en stallsystur þeirra, sem giftar eru, og bæði hjónin vinna sameiginlega að öflun tekna til heimilisins. Hér er því um réttlætismál að ræða, sem ætla verður, að fái góðan byr hér á hv. Alþ.
Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að rökstyðja þetta mál öllu frekar. Aðeins skal á það drepið, að í frv. þessu er ekki gerður greinarmunur á því, hvernig teknanna er aflað, heldur gildi einu, hvort hinar einstæðu mæður afla tekna sinna hjá atvinnufyrirtækjum, sem þær sjálfar eða ófjárráða börn þeirra eiga að meira eða minna leyti eða með öðrum hætti. En eins og fyrr er að vikið, gilda önnur ákvæði um skattafrádrátt giftra kvenna, þegar svo stendur á. Ég fjölyrði þetta svo ekki frekar, en legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.