10.11.1969
Neðri deild: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í C-deild Alþingistíðinda. (2404)

54. mál, læknalög

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að segja fáein orð í sambandi við frv. það, sem hér er til umr., og það mikla vandamál, sem því er ætlað að ráða nokkra bót á.

Ég átti núna ekki alls fyrir löngu tal við héraðslækni nokkurn og spurði hann álits á meginákvæði þessa frv. Hann taldi það ótvírætt spor í rétta átt, og að sínum dómi væri reyndar engin goðgá, þótt gerður væri helmingi lengri skyldutími ungra lækna úti í héruðunum en hér er lagt til, þ. e. a. s. að hann yrði ekki aðeins 6 mán. heldur 12, eða heilt ár. Með þessu væri ekki ætlazt til annars en að hinir ungu læknar sýndu þjóð sinni sjálfsagða hollustu, veittu henni, eða þeim hluta hennar, sem úti í dreifbýlinu býr, hjálp í miklum erfiðleikum, og maður, sem væri að upplagi sannur læknir, gæti ekki brugðizt illa við slíku.

Þessi læknir, sem ég ræddi við og á að baki sér langa reynslu sem héraðslæknir, taldi, að það væri mjög hættulegt fyrir þjóð eins og okkur, sem búum í tiltölulega stóru og erfiðu landi, að ala lækna okkar, eins og hann sagði, eingöngu upp á sjúkrahúsunum hérna í Reykjavík, eins og nú hefur viðgengizt um langt skeið. Þetta veldur því, að þegar þessir ungu menn koma til starfa út í dreifbýlið, hrökkva þeir við. Það liggur við, að þeir fái hroll, segir þessi reyndi læknir, og þeir snúa við fyrsta tækifæri aftur í það skjól í þéttbýlinu, sem einhverra hluta vegna virðist orðið svo mörgum Íslendingum einna eftirsóknarverðast í lífinu. Og þarna er að finna eina helztu ástæðuna til þess, hve erfitt er að fá lækna til þess að setjast að úti á landsbyggðinni.

Ef þjálfun við störf í dreifbýlinu væri ófrávíkjanlegur þáttur í undirbúningi hinna ungu lækna undir lífsstarfið, væri mikil von til þess, að þeir fengjust frekar til þess að setjast að úti á landsbyggðinni. Þau nánu kynni, sem þeir fengju þar af mannlífinu sjálfu í öllum sínum margbreytileik, kynni, sem hætt er við að verði harla lítil á hinum stóru sjúkrahúsum höfuðstaðarins, þar sem sjúklingar greinast oft á tíðum í augum læknanna frekar eftir heiti þess sjúkdóms, sem að þeim gengur, heldur en af þeim persónum, sem þeir hafa að geyma — að dómi hins reynda læknis, hlytu þessi kynni að verða hverjum manni, eða a. m. k. hverjum þeim manni, sem að upplagi væri sannur læknir, mikils virði, vekja hjá honum áhuga og löngun til þess að viðhalda þessum kynnum, eða m. ö. o. að setjast að úti á landsbyggðinni, þrátt fyrir aðstöðumun og margvíslega erfiðleika, sem þar er við að etja fyrir lækna umfram það, sem gerist í skjóli þéttbýlisins.

Kennarastóll í almennum lækningum, taldi hann líka, þessi læknir, að væri spor í rétta átt. Það hefði reyndar verið fróðlegt að heyra, hvað því máli líður, en hæstv. menntmrh. er því miður ekki staddur í salnum. Stórt spor í rétta átt taldi hann líka vera þær læknamiðstöðvar, sem nú eru á döfinni og eiga að draga mjög úr erfiðleikum lækna úti á landsbyggðinni. En hann var mér sammála um það, þessi læknir, að kennarastóll í almennum læknavísindum og læknamiðstöðvar væru í sjálfu sér engin trygging fyrir því, að ungir læknar fengjust til að setjast að úti á landsbyggðinni. Til þess þyrfti jafnframt að verða hugarfarsbreyting hjá þessum læknum. Þeir þyrftu að læra að meta þá ánægju, þá lífsfyllingu, sem fengist af því að starfa úti á landsbyggðinni í nánum tengslum við fólkið sjálft, en ekki bara ópersónuleg sjúkdómsheiti. Þegar læknarnir hefðu lært þetta, þá myndu læknamiðstöðvarnar ná tilgangi sínum. Þá yrðu engin vandræði að fá unga lækna til að starfa við þær. Og það er einn höfuðkosturinn við þetta frv., sem hér er til umr., að meginákvæði þess felur í sér tilraun til þess að kenna ungum læknum þessa þýðingarmiklu lexíu.

Ég lýsi sem sé yfir eindregnum stuðningi við þetta frv.

Fyrir Alþ. liggja svo tvö önnur mál, sem einnig er ætlað eins og þessu að ráða nokkra bót á því öngþveiti, sem ríkir vegna læknaskortsins í heilbrigðismálum landsbyggðarinnar, þ. e. a. s. till. á þskj. 69 um bætta læknisþjónustu í strjálbýli og till. til bál. á þskj. 77 um endurskoðun læknaskipunarlaga. Ég held, að þessi síðari till. sé góðra gjalda verð, en ég get ekki, eins og hv. 1. flm. þessa frv., sem hér er til umr., mælt með hinni fyrrnefndu, þ. e. a. s. till. á þskj. 69 um læknisþjónustu í strjálbýli, þar sem gert er ráð fyrir, að „ríkisstj. athugi möguleika á því að fá lækna frá nálægum löndum, og þá fyrst og fremst frá hinum Norðurlöndunum, til þess að gegna um lengri eða skemmri tíma læknisþjónustu í einstökum læknishéruðum hér á landi, sem nú eru læknislaus.“ Ég verð að segja um þessa till., að mér virðist hún ekki aðeins óraunhæf, heldur harla óviðkunnanleg, og mér kemur það mjög á óvart, ég er satt að segja hissa á, að maður með jafn heilbrigt hugarfar og 1. þm. Vestf. skuli hafa gerzt 2. flm. hennar. Og í till. eða grg. þeirri, sem fylgir henni, felst líka svo alvarleg aðdróttun í garð læknastéttarinnar íslenzku, en þar segir, með leyfi hæstv. forseta: „Vitað er, að bæði í Noregi og Svíþjóð hafa læknar tekið að sér þjónustu í afskekktum héruðum um takmarkaðan tíma einungis í mannúðarskyni.“ Er það þá skoðun hv. flm., að slíka mannúð sé alls ekki að finna hér heima hjá okkur sjálfum, meðal okkar eigin lækna? Ef svo er, þá sýnist það vera spurning, hvort ekki væri rétt að breyta titlinum á þessari till. þeirra og láta hana heldur heita: „Till. til þál. um að flytja inn mannúð frá Noregi og Svíþjóð.“