15.01.1970
Neðri deild: 37. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (2440)
139. mál, meðferð opinberra mála
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein) :
Herra forseti. Eins og greinir í aths. við þetta lagafrv., er það í raun og veru fylgifrv. með því frv., sem við áðan vorum að ræða, og þarf ég ekki að hafa mörg orð til skýringar á því. Það er að mestu leyti breyting, sem leiðir af því, að rannsóknarstjóri kemur inn í staðinn fyrir sakadómara eða yfirsakadómara á ýmsum stöðum í l. um meðferð opinberra mála. Þetta er bein afleiðing af því frv., sem áðan var gerð grein fyrir, og þarf að koma til framkvæmda, ef það verður samþ., en að sjálfsögðu ekki nema það verði samþ. Þess vegna þyrfti að hafa þann hátt á að láta þessi frv. fylgjast að og fyrst hið fyrra frv., sem nú var tekið fyrir einnig á undan þessu frv.
Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.