17.03.1970
Neðri deild: 61. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í C-deild Alþingistíðinda. (2448)

182. mál, útvarpslög

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Gildandi lög um útvarpsrekstur ríkisins, eða um ríkisútvarpið, eru orðin margra áratuga gömul. Þau eru að verulegu leyti frá árinu 1934. Fyrstu lög, sem sett voru um útvarpið, voru hins vegar sett árið 1924, eða 10 árum áður. Ýmiss konar breyt. hafa verið gerðar síðan 1934 á l. um ríkisútvarp, sérstaklega að því er varðar kosningu í útvarpsráð og um ýmis fjárhagsatriði. Enn fremur voru gerðar nauðsynlegar breytingar á útvarpsl., þegar sjónvarpsreksturinn hófst, en menntmrn. úrskurðaði á sínum tíma, þegar sjónvarpið var í undirbúningi, að sjónvarpsrekstur skyldi vera í verkahring ríkisútvarpsins, að sjónvarpsrekstur væri útvarpsrekstur eins og hljóðvarps, sem búið var að starfrækja hér á Íslandi í áratugi.

Þótt sjónvarpsrekstur væri hafinn og þar með yrði mjög mikil breyting á starfsháttum og starfsrekstri ríkisútvarpsins, þótti samt sem áður ekki rétt að gera till. um það, að sett yrði ný útvarpslöggjöf. Eðlilegra var talið, og lét ég þess getið hér á Alþ. í sambandi við umræður um fjármál ríkisútvarpsins og fsp., sem fram voru bornar, að ríkisstj. taldi eðlilegt að bíða með setningu nýrra útvarpsl. þangað til nokkur reynsla væri fengin af sjónvarpsrekstrinum. Á s. l. ári þótti hins vegar svo komið, að tímabært væri orðið að efna til allsherjar endurskoðunar á gildandi l. um ríkisútvarpsrekstur á Íslandi.

Í júlí í fyrra skipaði menntmrn. þess vegna 3 manna n. til þess að endurskoða gildandi l. og reglugerðir um ríkisútvarpið. Í n. voru skipaðir Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, dr. Þórður Eyjólfsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, og Benedikt Gröndal, formaður útvarpsráðs, sem jafnframt var skipaður formaður n. Það var sérstaklega tekið fram í skipunarbréfi menntmrn., að þess væri óskað, að n. endurskoðaði allar reglur, sem settar hefðu verið um flutning dagskrár og frétta, og gerði till. um nýjar, ef nauðsynlegt yrði talið, þannig að hægt væri að gera ráð fyrir því, að frá og með tilteknum degi tækju gildi, ekki aðeins ný lög frá Alþ, um útvarpsreksturinn, heldur einnig nýjar reglugerðir og nýjar reglur um þá þætti útvarpsrekstrarins, sem nauðsynlegt er, að séu sem skýrastar reglur um, t. d. um flutning frétta og birtingu auglýsinga bæði í hljóðvarpi og sjónvarpi. Þeir þremenningarnir, sem í n. völdust, unnu ágætt starf og mjög skjótlega, unnu í raun og veru hraðar en maður á að venjast af n., sem falið er vandasamt verk, og skiluðu fyrir fáeinum vikum frv. að nýjum útvarpsl. til ríkisstj. og jafnframt fullgerðum frumdrögum fyrir ríkisútvarpið, reglum um fréttaflutning útvarpsins og um birtingu auglýsinga í hljóðvarpi og sjónvarpi. Eru þessi reglugerðardrög og reglnadrög birt sem fskj. með þessu frv., til þess að hv. alþm. gefist kostur á að kynna sér út í æsar, hvernig menntmrn. hugsar sér að framkvæma þann lagabálk, sem hér er lagður fyrir hið háa Alþ. til meðferðar. Ef n. þingsins óska eftir því að koma á framfæri brtt. við ákvæði í reglugerð eða reglur um fréttaflutning eða birtingu auglýsinga, þá mun rn. að sjálfsögðu taka þær ábendingar til athugunar, þó að þm. geti að sjálfsögðu gert beinar till. við meðferð þingsins um breytingar á þessum skjölum.

Það er eingöngu lagafrv. sjálft, sem er til formlegrar meðferðar í Alþ., en ég endurtek, að rn. mun taka vinsamlega við öllum ábendingum, sem fram kunna að koma um breytingar á þessum plöggum. Einmitt í því skyni, að slíkt verði mögulegt, hefur verið ákveðið að birta það sem fskj. með sjálfu lagafrv. Frv. fylgir svo ítarleg grg., að ég sé ekki ástæðu til annars en að láta mér nægja að rekja helztu efnisbreytingar, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Fyrst og fremst er hér um að ræða það, að öll gildandi lagaákvæði um útvarpsrekstur ríkisins eru samræmd og færð í einn lagabálk. Það er ekki um það að ræða, að gagngerðar breytingar séu gerðar á skipulagi útvarpsins, hlutverki þess eða stöðu í íslenzku þjóðfélagi. En öll gildandi ákvæði eru færð til einnar heildar, en þó gerðar breytingar á gildandi ákvæðum á nokkrum sviðum, og þeirra breytinga skal ég geta hér í sem stytztu máli.

Ríkisútvarpið er með þessu frv., ef að lögum verður, gert að sjálfstæðri stofnun í eign íslenzka ríkisins. Er þetta í samræmi við þá stefnu, sem ríkir yfirleitt varðandi reksturs útvarps og sjónvarps í nálægum löndum, að æskilegt er talið, að jafn áhrifamikil menningarstofnun og ríkisútvarp hlýtur að vera sé sem sjálfstæðust og sem minnst háð venjulegum sviptivindum þjóðmálanna, sem eiga með eðlilegum hætti rót sína að rekja til stjórnmálaátaka, eins og þau eru eðlileg og nauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi. Þó ríkisútvarpið hljóti að sjálfsögðu að lúta yfirstjórn þess ríkisvalds, sem Alþ. kýs á hverjum tíma, þá er æskilegt, að útvarpið sé sem sjálfstæðast og geti tekið ákvarðanir án þess að vera í störfum sínum háð afskiptum ríkisvalds. Það er þessi stefna, sem undirstrikuð er og lögð áherzla á með því ákvæði í frv., að útvarpið skuli vera sjálfstæð stofnun í eign íslenzka ríkisins. Hér er í raun og veru fyrst og fremst um að ræða stefnumörkun en ekki lagabreytingu, sem hafi verulega grundvallarþýðingu í reynd fyrir réttarstöðu ríkisútvarpsins. En ég er n. sammála um, að æskilegt sé, að þetta komi skýrt fram — að til þess er ætlazt, að staða ríkisútvarpsins sé sem sjálfstæðust og óháðust pólitískum yfirmönnum sínum á hverjum tíma.

Þá er gert ráð fyrir því að ríkisútvarpið sjálft fái einkarétt á útvarpi, þann einkarétt, sem ríkisstj. hefur samkvæmt gildandi l. og er það skilgreint mun nánar en áður er gert, hvað í einkaréttinum felst. Þetta er í rauninni í samræmi við fyrsta atriðið, sem ég nefndi. Fyrst ríkisútvarpið er gert að sjálfstæðri stofnun í eign íslenzka ríkisins, þá er stofnuninni sjálfri falinn einkarétturinn en ekki ríkisstj.

Í gildandi lagaákvæðum eru ekki skýr ákvæði um það, hvert sé hlutverk ríkisútvarpsins, en slík ákvæði eru tekin upp í þetta frv., og vona ég, að ekki þurfi að koma til ágreinings um það, hvort hlutverk ríkisútvarpsins sé vel og skilmerkilega og skynsamlega afmarkað í ákvæðum frv.

Þá eru gerðar nokkrar breyt. á varðandi kjör útvarpsráðs. Eftir sem áður á það að vera kjörið til 4 ára, og í því eiga sæti 7 menn kjörnir af Alþ., eins og nú á sér stað. Samkvæmt gildandi l., þá er hverju nýkjörnu Alþ. ætlað að kjósa útvarpsráð. Í þessu frv.er hins vegar gert ráð fyrir því, að útvarpsráð sé kosið til 4 ára og sitji út 4 ára tímabilið, jafnvel þó að kosningar eigi sér stað á starfstíma útvarpsráðsins, og þær kosningar hafi í för með sér breyttan pólitískan meiri hl. á Alþ.

Ríkisstj. taldi rétt að flytja frv., eins og n. gekk frá því, og þar á meðal að hafa þetta ákvæði í frv., eins og n. hafði óskað eftir, að það væri. En ég vildi vekja athygli hv. alþm. og þá sérstaklega þeirrar n., sem fær málið til meðferðar, væntanlega hv. menntmn., á þessu ákvæði. Hér er í raun og veru um að ræða eina ákvæðið, sem ég persónulega hef ekki gert upp endanlega afstöðu mína til. Mér sýnist margt benda til þess, að æskilegt gæti verið að halda því skipulagi, sem nú er varðandi þetta efni, þó að ég skilji hins vegar vel það sjónarmið, sem fyrir nm. hefur vakað með brtt., en það er að koma sem mestri festu á störf útvarpsráðs. Hins vegar er því ekki að leyna, að það eru líka veigamikil rök, sem liggja til þeirrar skipunar, sem nú er á um þetta efni, að nýkjörinn meiri hl. á Alþ. skuli eiga kost á því að kjósa stjórn jafn veigamikillar stofnunar og ríkisútvarpið er. Það gæti haft í för með sér óþægindi fyrir báða aðila, bæði fyrir yfirstjórn ríkisútvarpsins, þ. e. a. s. yfirstjórn dagskrár þess, útvarpsráðið, annars vegar, og fyrir nýja ríkisstj. hins vegar, ef ólíkur pólitískur meiri hl. stendur að baki hvorri stofnuninni um sig. Sérstaklega vildi ég benda á, að það getur verið óþægilegt fyrir formann útvarpsráðs, sem skipaður hefur verið af menntmrh., sem kann að vera kominn frá völdum, ef hann á að halda sæti sínu, eftir að nýr menntmrh. er kominn til valda, sem tilheyrir öðrum pólitískum meiri hl. á Alþ. en sá, sem áður var skipaður. Ég geri mér algerlega ljósa kosti og galla hvors kerfisins um sig, og skal á þessu stigi ekki láta í ljósi endanlega skoðun mína á þessu atriði. Ég veit, að um þetta getur mönnum sýnst sitt hverjum, og fer sá ágreiningur áreiðanlega ekki eftir skipun manna í flokka, heldur mótast af öðrum ástæðum. En ég vildi beina því til hv. n., að hún ræði þetta atriði sérstaklega, og er fyrir mitt leyti fús til viðræðna við n. um þetta atriði eins og raunar frv. allt, ef n. kynni að óska eftir því. Hins vegar er það tvímælalaust til bóta, að nú er gert ráð fyrir að lögfesta, að ákvarðanir útvarpsráðs um útvarpsefni séu endanlegar. Þetta er eitt með öðru, sem bendir í þá átt, að með þessum nýju l. yrði stefnt að því að gera útvarpið enn þá óháðara og enn þá sjálfstæðara en það hefur verið fram til þessa.

Þá eru enn fremur sett ákvæði, sem ekki eru í gildandi l. um skipulag ríkisútvarpsins, og komið á fót framkvæmdastjórn innan stofnunarinnar. Í reynd hefur slíkri framkvæmdastjórn verið komið á með reglugerðarbreytingu og skipun starfsmanna í embætti, en fullkomlega eðlilegt er að setja um þetta skýr ákvæði í væntanleg útvarpslög sjálf.

Þá er að geta um það ákvæði, sem kannske er merkasta nýmælið í frv., en það er, að gert er ráð fyrir, að 5% afnotagjalda hljóðvarps og sjónvarps renni í framkvæmdasjóð til þess að tryggja stofnuninni viðunandi húsnæði og húsakost. Því er ekki að leyna, að ríkisútvarpið í heild, bæði hljóðvarp og sjónvarp, hafa átt við húsnæðisvandræði að stríða. Vöxtur stofnunarinnar og starfsemi hennar hefur verið svo gífurlegur, að erfitt hefði verið að sjá fyrir húsnæði, sem væri við hæfi, ef miðað er við þann gífurlega vöxt rekstrar, sem átt hefur sér stað. Það hefur aldrei tekizt að afla fjár til byggingar yfir ríkisútvarpið, vegna þess að ríkisstj. hver á fætur annarri hafa hikað við að hækka afnotagjöldin í þeim mæli, sem nauðsynlegt væri, til þess að unnt væri að byggja yfir ríkisútvarpið jafnmyndarlega og æskilegt væri. Hér er hins vegar lagt til, að lögákveðið verði, að 5% afnotagjaldanna af bæði hljóðvarpi og sjónvarpi skuli renna í framkvæmdasjóð til þess að byggja yfir þessa mikilvægu stofnun. Ég vil taka það skýrt fram þegar við þessa 1. umr., að ef þetta lagaákvæði yrði samþ., mundi í því felast fyrirmæli Alþ. um að hækka afnotagjöld af útvarpi og sjónvarpi um 5%, það, sem þessu nemur, þar eð ekki er hægt að draga úr rekstrarfé ríkisútvarpsins vegna þessa ákvæðis og minnka rekstrarfé þess þannig um 5% til þess að leggja í framkvæmdasjóð. Ég vildi, að það kæmi alveg skýrt fram, hvað ég teldi í samþykkt þessa ákvæðis frv. felast.

Þá eru gerðar veigamiklar breytingar til hagræðingar á innheimtu afnotagjalda fyrir sjónvarp og ákveðið að ríkisútvarpið skuli fá lögveð í sérhverju sjónvarpstæki og innheimtustjóri fá fógetavald. Hér er tvímælalaust um bætta stjórnhætti að ræða, sem munu leiða til sparnaðar og auka raunverulegar tekjur ríkisútvarpsins. Þá er felld niður umdeild heimild starfsmanna ríkisútvarpsins til þess að fara inn á heimili manna til eftirlits með útvarpsnotum. Þessi heimild, sem er í gildandi lögum, hefur sársjaldan verið notuð, og hvorki yfirmenn útvarpsins né rn. hafa talið rétt að beita henni nema í ýtrustu neyðartilfellum, ef svo mætti segja. Þessi heimild hefur verið mjög gagnrýnd, og nú er talið rétt að fella hana niður.

Síðasta nýmælið, sem í frv. er og ég vil segja, að sé annað merkasta nýmælið í þessum frv. bálki, er, að sett eru í frv. ákvæði um ábyrgð á útvarpsefni, en hingað til hafa engin ákvæði verið í gildandi l. um það, hver beri ábyrgð á því efni, sem útvarpið flytur, ef t. d. reynist vera um meiðyrði að ræða, villandi upplýsingar, sem geta valdið fjárhagsábyrgð eða því um líkt. Þetta atriði er mjög vandmeðfarið í löggjöf. Ýmis nágrannalönd hafa sett lagaákvæði um þetta efni, t. d. Svíar, og ég tel það vera til mikilla bóta, að ýtarleg ákvæði skulu um þetta efni sett hér í heilum kafla frv., IV. kaflanum.

Herra forseti. Ég get látið þessi orð nægja sem framsöguræðu fyrir þessu frv. til útvarpslaga. Ég á ekki von á því, að í því felist ákvæði, sem séu líkleg til þess að valda neinum verulegum deilum hér á hinu háa Alþ. Ég vona, að allir flokkar telji það orðið tímabært að setja heildarlöggjöf um jafn víðtækan rekstur og rekstur hljóðvarps og sjónvarps er orðinn í íslenzku þjóðfélagi, Þetta frv. hefur verið unnið mjög vandlega. Að baki því liggur mjög vandaður undirbúningur, og ég vona, að það auðveldi hv. þm. að átta sig á málinu frá öllum hliðum, að hugsanleg reglugerð og hugsanlegar reglur um fréttaflutning og birtingu auglýsinga eru birtar sem fskj. með þessu frv.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að málinu verði að lokinni 1. umr. vísað til 2, umr. og hv. menntmn.