17.03.1970
Neðri deild: 61. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í C-deild Alþingistíðinda. (2455)
182. mál, útvarpslög
Jónas Pétursson:
Herra forseti. Ég vil aðeins láta koma fram við þessa 1. umr. málsins afstöðu mína til þess atriðis sem hæstv. menntmrh. var einmitt sérstaklega að ræða núna, en það er innheimta útvarpsgjaldanna. Ég hef fyrir nokkru komizt á þá skoðun, sem hér hefur komið fram, en sem ekki er fylgt í þessu frv., að innheimta útvarpsgjöldin sem nefskatt, og á ég þá við af hinu gamla útvarpi en ekki sjónvarpsgjöldin. Það gildir að sjálfsögðu, eins og hæstv. menntmrh. var að lýsa, annað um þau, enn þá a. m. k., en það kann að verða, að innan tíðar verði sjónvarpið orðið jafn almennt og útvarpið er orðið nú. Það er ekki vegna þess, að ég viðurkenni ekki, að það sé hægt að finna dæmi þess, að það væri ranglátt að innheimta útvarpsgjaldið sem nefskatt. Mér dettur ekki í hug að neita því. En ég hef fyrir löngu gert mér grein fyrir því í sambandi við skattamál, sem ég kannske hélt einu sinni að væri hægt, að hægt væri að beita fullkomnu réttlæti. Ég er búinn að sjá það fyrir löngu, að það er alger barnaskapur. Það, sem við þurfum að reyna í skattamálunum, er að framkvæma sem minnst ranglæti, og ég held, að við næðum þessu bezt með því nú orðið að gera þetta útvarpsgjald að nefskatti.
En þetta er ekki aðalatriði málsins, heldur hitt, að það hefur setzt meira og meira að í minni vitund, að þessi fjölbreytta skattheimta og aðferðirnar, sem notaðar eru, sé að vissu leyti mesti klækjaskóli, sem haldið er uppi í þjóðfélaginu. Ykkur kann að finnast þetta gróft orð, en ég vænti samt, að þið áttið ykkur á, hvað ég á við með þessu. Og einmitt það, að ég held, að það skipti mestu máli, að með því að færa innheimtu afnotagjalda útvarpstækjanna inn á hina venjulegu gjaldseðla sem nefskatt, þá sé komizt hjá öllu þessu, a. m. k. að mestu leyti, sem gefur tilefni til þess að reyna að komast fram hjá gjöldunum.
Ég var einmitt að renna hér augunum yfir 16. gr. — allar þær skyldur, sem lagðar eru á eigendur hljóðvarpsviðtækja, eins og það er nefnt. Það má segja, að það sé kannske ekki stórsaknæmt, sem þar er um að ræða, en það er ósköp hætt við, að þar verði mikið vanrækt. Það er þetta, sem ég vil vekja athygli á. Mér dettur ekki í hug að neita því, að það sé hægt að benda á dæmi þess, — og ég hef sjálfur komið auga á þau, er ég hef verið að veita þessu máli fyrir mér, að það geti komið dálítið illa niður og ósanngjarnlega, að mönnum virðist, með því að taka gjaldið sem nefskatt, en gallarnir, sem fylgja núverandi aðferð, eru að mínu viti margfaldir. Þess vegna vil ég mjög beina því til þeirrar n., sem fær þetta til athugunar, að athuga þennan þátt enn þá nánar.