25.04.1970
Neðri deild: 82. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í C-deild Alþingistíðinda. (2466)

232. mál, námslán og námsstyrkir

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Eins og hv. frsm. n. hefur tekið fram, þá voru nm., sem mættir voru, einhuga um að mæla með þessu frv. En ég lét þess getið þá, og ég vil endurtaka það hér, að ég tel, að það þurfi að gefa því gætur, að með því að fjölga þeim nemendum, sem eiga að hafa rétt til námslána, þá leiðir af sjálfu sér, að það verður að hækka framlagið í heild, sem til þess fer í landinu. Þó að hér sé um lítilfjörlega fjölgun að ræða, þá er það samt fjölgun, og að öllu öðru óbreyttu þrengir það kosti þeirra, sem fyrir eru, ef ekki verður aukið framlagið til námslánanna. Það er alkunnugt, hversu bágborinn fjárhagur íslenzkra nemenda erlendis er, og höfum við verið rækilega minntir á það á undanförnum dögum. En þetta frv. er ein röksemdin enn til viðbótar því, að hér verður að bæta úr. Ég vil auk þess minna á það, að fjárhagsmöguleikar nemenda hér innanlands eru sannarlega alvarlegir líka. Þessi vandamál eru samofin. Það er óneitanlega hart til þess að hugsa, að íslenzkir nemendur erlendis þurfi jafnvel að hætta námi vegna fjárskorts. En það er líka óviðunandi, að æskufólk, sem hyggur á framhaldsnám hér innanlands, verði jafnvel að neita sér um það af sömu ástæðu. Ég vil því nota þetta tækifæri til þess að hvetja hæstv. menntmrh. til þess að leggja sig fram um það að leita ráða fyrir næsta þing um lausn þessara vandamála beggja. Þau eru það alvarleg, að það er ekki hægt að una við þetta öllu lengur. Ég endurtek svo hitt, að ég er sammála nm. um að mæla með þessu frv. óbreyttu, eins og það er lagt fram.