07.04.1970
Neðri deild: 69. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í C-deild Alþingistíðinda. (2491)
8. mál, Seyðisfjarðarkaupstaður
Frsm. minni hl. (Jón Kjartansson) :
Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu hv. síðasta alþm., sem var frsm. meiri hl. n., þá var heilbr- og félmn. ekki sammála um afgreiðslu þessa máls og við tveir í minni hl., Hannibal Valdimarsson og ég, leggjum til að þetta mál verði afgr. með rökstuddri dagskrá, sem hljóðar svo, með leyfi herra forseta:
„Með því að eigi þykir rétt að stofna til þeirra breytinga á umdæmistakmörkum N.-Múlasýslu, sem 1. gr. frv. gerir ráð fyrir, án þess að sýslunefndinni sé veittur kostur þess að tjá sig um efni gr., tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
Rökstuðningur okkar fyrir þessari dagskrá er einfaldlega sá, að við teljum réttara, að fyrir liggi hjá Alþ. ákveðið álit sýslun. um þetta frv. Að vísu er það rétt, að hér hefur verið vitnað í samþykkt sýslunefndar N.-Múlasýslu um þetta mál, en í þeirri samþykkt er ekki vitnað neitt í þetta frv. og ekki endilega samþykkt að sameina Loðmundarfjörð Seyðisfirði. Ég vil upplýsa það, að það hefur verið boðaður sýslufundur í N.-Múlasýslu 25. þ. m., og með því að allar líkur benda til, að Alþ. verði ekki lokið, þegar að þeim degi kemur, þá ætti að vera hægt að leysa þetta mál með því að fresta málinu, og ég segi fyrir mitt leyti, að ef sýslunefndin samþykkir það einróma, að þetta skuli sameinast á þann veg, sem frv. gerir ráð fyrir, þá mundi ég verða því fylgjandi. Ég og við báðir, sem flytjum þessa rökstuddu dagskrá, erum í prinsippinu á móti því, að breytingar fari fram á umdæmismörkum sýslna, án þess að fyrir liggi skýr ákvæði sýslunefndanna um vilja þeirra í þeim efnum.