27.10.1969
Neðri deild: 6. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í C-deild Alþingistíðinda. (2522)
28. mál, þingsköp Alþingis
Birgir Finnsson:
Herra forseti. Það er að sjálfsögðu ljóst, að þegar hv. Alþ. tekur vinnubrögð sín til endurskoðunar, þá veltur á miklu, hvernig til tekst um endurskoðun gildandi þingskapa. Það frv., sem hér liggur fyrir, er, eins og fram hefur komið, árangur af starfi mþn., þar sem allir flokkar áttu fulltrúa, og, eins og gengur og gerist, er um ýmis atriði í þessu frv. um milliveg að ræða. Þarna hefur verið farin samkomulagsleið, sem að sjálfsögðu þýðir það, að ýmsar breytingar, sem menn hefðu kunnað að óska eftir, ná ekki að öllu leyti fram að ganga. Ég fyrir mitt leyti tel þó, að flest atriði frv. stefni í rétta átt og séu til bóta. Það, sem ég býst við, að menn greini einna mest á um í frv., er tilhögun útvarpsumr. og fréttaflutning í fjölmiðlunartækjum frá þinginu. Ég tel þó, að það, sem lagt er til í frv. varðandi þetta, þó að það fullnægi ekki því, sem sumir hefðu viljað fá fram, sé einnig spor í rétta átt. Ég get samt vel ímyndað mér það, að áður en langt um líður, komist þetta í það horf, að það verði látið á vald fjölmiðlunartækjanna sjálfra og þeirra stofnana, sem stjórna þeim, að ákveða, hversu mikið fréttaefni þeir flytja frá þinginu, en að sjálfsögðu þó að höfðu samráði við þingforseta og formenn þingflokka.
Ég stóð ekki upp til þess að ræða þessi atriði fyrst og fremst. Það, sem ég vildi aðallega segja hér við þessa umr. málsins, er í sambandi við 9. gr. frv., sem fjallar um fsp. í Sþ.
Eins og hv. alþm. vita, hefur það viljað við brenna, að umr. um fsp. hafa farið úr böndunum. Það má að sjálfsögðu að einhverju leyti skrifa það á reikning þingforseta, en þó hygg ég, að ef menn líta á málið með sanngirni, verði að mestu leyti að skrifa þetta á reikning alþm. sjálfra. Eins og núgildandi ákvæði eru um fsp., er að sjálfsögðu ætlazt til þess, að þær séu hnitmiðaðar og alls ekki til þess að koma af stað almennum umr., heldur til þess, að hv. þm. gefist kostur á að fá fram ýmsar upplýsingar hjá ráðh. á fljótvirkan og skjótan hátt. Slíkar upplýsingar, sem framkallaðar eru með fsp., eiga svo hv. alþm. að geta notfært sér síðar í þingstörfunum, þegar þeir þingfesta mál, annaðhvort sem þáltill. eða frv., eða notfært sér það, sem fram hefur komið í upplýsingunum, í grg. með nál. Þetta tel ég sem sé, að sé aðaltilgangur fsp. Hjá okkur hefur þetta farið talsvert á annan veg, þannig að um fsp. hafa oft skapazt í Sþ. eins konar málfundafélagsumræður, ef svo mætti að orði kveða. Þar með er fsp.-tíminn að mínum dómi kominn út fyrir sín takmörk og orðinn til þess að sóa tíma þingsins í staðinn fyrir, að fsp. er ætlað að spara tíma þingsins.
Í þeim breytingum, sem fyrir liggja í 9. gr. þessa frv. um þau ákvæði, er gilda um fsp., er leitazt við að bæta nokkuð úr þessu, bæði með því að gera ráð fyrir því, að ráðh. gefi skriflegar skýrslur um mál, og þá einkanlega um þau mál, sem ekki er hægt að svara stutt og laggott, og svo í öðru lagi með því, að takmarka ræðutíma ráðh. við 10 mínútur, en ræðutími þeirra er nú ótakmarkaður. En ég hygg þó, að það sé hægt að ná alveg tilgangi fsp. með því að ganga enn þá lengra í þessu efni. Af þeirri reynslu, sem ég hef haft af þessu, er ég kominn á þá skoðun, að æskilegasta fyrirkomulag fsp. sé það, að um hverja fsp. tali aðeins viðkomandi fyrirspyrjandi og sá ráðh., sem fyrir svörum verður. Með því móti yrði fyrir það girt, að tíma Alþ. væri sóað í óþarfa umr. á vettvangi, sem ekki er ætlaður fyrir umr., og spurningarnar yrðu hnitmiðaðri og sömuleiðis svörin, og það væri hægt að afgreiða margfalt fleiri fsp. En það álít ég einmitt, að sé mikið atriði fyrir hv. þm., að geta fengið fram upplýsingar með þessu móti, og ég tel, að ef þessi háttur væri hafður á um fsp., yrðu fsp. og svör gagnlegri fyrir hv. alþm. og þingið í heild. Ég hef rætt þetta við ýmsa hv. þm. úr öllum flokkum, og margir, sem ég hef talað við, hafa tekið vel í þessa hugmynd mína um fyrirkomulag fsp. Þess vegna vildi ég koma henni á framfæri við þessa umr. málsins, og beina því til hv. allshn., sem fær málið til athugunar, að hún taki upp þessa hugmynd við afgreiðslu sína á málinu. En að öðrum kosti áskil ég mér rétt til að flytja brtt. við frv. á síðara stigi.