06.11.1969
Neðri deild: 11. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (2532)
35. mál, fjárhagsaðstoð ríkisins til að jafna aðstöðu barna og ungmenna til skólagöngu
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Ég verð nú að játa það, að ég er ekki tilbúinn til þess að taka algera afstöðu til gerðar þessa frv., sem hér liggur fyrir, því að mér sýnist fljótt á litið, að á því kunni að vera ýmsir annmarkar, og kannske er það nú nokkuð snöggsoðið til þess að vera grundvöllur undir það yfirgripsmikla mál, sem hér er til umr. En hins vegar vil ég segja það um efni málsins, að það hefur verið lengi áhugamál mitt og það hefur verið baráttumál mitt og það hefur verið baráttumál margra okkar framsóknarmanna á þingi undanfarin ár, í herrans mörg ár, að það verði rækilega undirbúin löggjöf um þetta efni, þ. e. a. s. um fjárhagslegan stuðning við nemendur, sem verða að vista sig utan heimila sinna vegna skólagöngu, því að það eru orðin, eins og ég segi, mörg ár, síðan við fórum að vekja máls á þessu hér, nokkrir þm. Framsfl., og bentum við þá á það, að hér væri raunverulega um stórmál að ræða og kannske eitt hið stærsta mál, sem við væri að glíma í menntamálum þjóðarinnar og hagsmunamálum þess fólks, sem byggir þær dreifðu byggðir. Þess vegna verð ég að segja það, að ég út af fyrir sig er ákaflega ánægður með þær umr. á flestan hátt, eins og þær hafa orðið hér í dag. Það hefur verið ákaflega ánægjulegt, m. a., að hlusta hér á hæstv. menntmrh. nefna þetta nú stórmál, sem nauðsynlegt sé að finna lausn á, og það þurfi helzt að gera á þessu ári og þessu þingi. En eins og ég sagði, þá hefur þetta mál verið hér fyrir þinginu nú um mörg undanfarin ár. Það kom fyrst fyrir þingið í tillögubúningi árið 1965. Það var flutt 1966, 1967 og 1968. Og þar er í þessari till., eins og hún var upphaflega samin, fortakslaust gert ráð fyrir því, að sú stefna sé upp tekin, að „till. séu gerðar um fjárhagslegan stuðning við nemendur á skyldunáms- og framhaldsskólastigum, sem óhjákvæmilega verða að vista sig til langs tíma utan heimila sinna vegna skólagöngu,“ eins og segir í texta till. frá því í fyrra, og hún er samhljóða því, sem var á fyrrverandi þingum.
Um afgreiðslu og meðferð þessa máls hér í þinginu er það að segja, að það var jafnan tekið til umr. Ég hélt mína framsöguræðu hér a. m. k. fjórum sinnum, og málið fór til n., en það var aldrei afgr. úr n. fyrr en í fyrra. Þá tók, að ég hygg, allshn. Sþ., sem hafði málið til meðferðar, þetta mál til vinsamlegrar athugunar, mjög vinsamlegrar athugunar, og sú varð niðurstaðan, að n. lagði til, að þessi till. yrði samþ., þó með verulegum breyt., sérstaklega með nokkuð miklum efnisbreytingum, vegna þess, að eins og till. var orðuð eftir breytingar n., þá er ekki um jafnfortakslausa stefnu í þessu máli að ræða, eins og var í þeirri till., sem við framsóknarmenn höfðum flutt þá í fjögur ár.
Mig langar einmitt að gefnu tilefni frá hæstv. ráðh., sem gaf þær upplýsingar hér áðan, að þetta stórmál hefði verið til athugunar í ráðun. á s. l. sumri, til að bæta við þessi orð hæstv. ráðh. Ég veit, að þetta er alveg rétt. Þetta hefur auðvitað verið til athugunar hjá rn. í sumar, en mig langar einmitt í þessu tilefni að minnast á, að upphafið að þessari athugun er einmitt samþykkt þessarar ályktunar Alþ. frá því í vor, en þar segir:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að gera yfirlit yfir kostnað ríkisins við skyldunám og framhaldsskóla. Skal á yfirlitinu mega sjá, hver hann er, a) við heimavistarskóla, b) við aðra skóla. Einnig komi fram á yfirlitinu, hver aðstöðumunur nemenda er, sem verða að vista sig langtímum saman utan heimila sinna við nám, og hinna, sem sækja skóla frá heimilum sínum og hafa þar alla vist. Stefnt verði að því, að yfirlit þetta verði lagt fyrir næsta reglulegt Alþ., og síðan verði fyrirsögninni breytt í samræmi við þessar efnisbreytingar, sem urðu á till:“
Þessi till. allshn. var sem sagt samþ. sem ályktun Alþ. í apríl eða maí s. l. og það er þessi ályktun, sem varð til þess, að þetta mál var tekið til sérstakrar athugunar í rn. og þá kannaðar þær staðreyndir, sem varða þetta mál, eins og hæstv. ráðh. orðaði það. Þetta vildi ég nú til upplýsingar um málið taka fram og benda á, að hér er engan veginn um nýtt þingmál að ræða. Það er búið að reyna að leiða athygli hv. þm. að þessu máli og hæstv. ríkisstj. nú í hálfan áratug.
Í sambandi við þetta frv., sem liggur hér fyrir, sagði ég áðan, að ég væri ekki tilbúinn til þess að taka afstöðu til gerðar þess, vegna þess, að mér sýnist það á margan hátt ekki nægilega undirbúið. Og það skýrðist kannske enn betur fyrir mér, þegar ég heyrði hv. framsögumann og flm. frv. nefna tölur í þessu sambandi. Hann gerir ráð fyrir því, að 25 þús. kr. verði veittar úr ríkissjóði til hvers nemanda á þessum ákveðnu skólastigum, sem hann nefnir í frv. sínu, og síðan sagði hann hér í ræðu sinni áðan, að það mætti ætla, að kannske 5–10 millj. kr. þurfi úr ríkiskassanum í þessu skyni. Ég held, að þetta dæmi sé ákaflega skakkt reiknað hjá hv. flm. Ég er alveg sannfærður um, að þetta er miklu stærra mál en svo, miklu stærra fjárhagsmál en það, að það séu 5–10 millj. Ef svo væri, þá er þetta nákvæmlega ekki neitt. Þessa tölu má áreiðanlega tífalda og miklu meira en það. Ég hygg, að til þess að gera eitthvert verulegt átak í þessu máli, þurfum við að verja úr ríkissjóði kannske 100, 150–200 millj. kr. á ári, ef nokkurt verulegt gagn á að verða að þessu.
Þetta vildi ég nú segja um frv. á þessu stigi. Ég saknaði þess að vísu í ræðu hæstv. ráðh. áðan, sem var ítarleg, þar sem hann kom víða við, og var að sumu leyti þannig, að það kom ekki beint þessu máli við, að hann skyldi ekki geta gefið okkur nú nákvæma tölu þeirra, sem í heimavist búa, ég meina nákvæma tölu. Fyrst í ræðu sinni kvaðst ráðh. ekki ætla að gefa neinar upplýsingar á þessu stigi. Ég veit nú ekki af hverju það var. Það var helzt vegna þess, að það hefur komið fram fsp. frá einum stjórnarþm. um, hvað liði athugun á þessu máli, og síðar gefur hæstv. ráðh. upp tölur, 3063 og líklega 2235, held ég, þannig að þetta eru u. þ. b. rúmlega 5000 manns, sem þarna er um að ræða. (Gripið fram í.) Já, það er einmitt það, mér er ekki ljóst, hvað þetta er í rauninni stórt dæmi, hvað það eru margir, sem þarna er um að ræða. Í þessari tölu, 2235. (Gripið fram í.) Já, en það er einmitt þetta, sem skiptir svo miklu máli, að hafa þessar tölur alveg nákvæmar og gera sér fyllilega grein fyrir því, hvað þetta dæmi er stórt. Ég hef reynt að gera mér grein fyrir því, hvað þetta muni vera stórt eftir hinum ófullkomnu upplýsingum, sem ég hef þó reynt að afla mér á opinberum stöðum. Ég hef fengið mjög óljósar upplýsingar um þetta, en þó fengið í hendur skýrslur, sem ég reyndi að vinna eins vel upp úr og mér var unnt, og áætla og gera mér grein fyrir, hvað það mundu vera margir nemendur, sem dveldust utan heimila, og ég þóttist komast að þeirri niðurstöðu, að þarna mundu tæplega vera undir 6–7 þús. manns. Það má vel vera, að þetta sé rangt áætlað hjá mér, og ég viðurkenni, að forsendurnar, sem ég geng út frá, kunna að vera skakkar að nokkru leyti. En sem sagt, hér er um verulega stórt fjárhagslegt mál að ræða, og ég hygg, að það muni kosta fremur hundruð milljóna en tugi að koma þessu svo fyrir, að vel fari. Þess vegna er rétt, að hv. Alþ. geri sér alveg grein fyrir því, að hér er raunverulega um stórmál að ræða, hvernig sem á það er litið, en þó er það þess eðlis, jafnvel þótt það sýnist vera stórt fjárhagsmál, að við verðum að leysa það. Og ég vil geta þess í sambandi við þetta mál allt saman, að við Íslendingar stöndum áreiðanlega mjög að baki öðrum þjóðum, sem búa við svipaðar aðstæður og á sama menningarstigi, hvað snertir stuðning við skólanemendur, bæði skólanemendur almennt og þó sérstaklega þá, sem í dreifbýli búa. Ég hygg, að t. d., ef menn kynna sér þær reglur, sem gilda um þessi efni á Norðurlöndum, a. m. k. í Noregi og Svíþjóð, þá muni það ljóst verða, að þarna stöndum við þeim mjög að baki. Það eru stórar upphæðir, sem Norðmenn veita í þessu skyni, og þeir gera mikið til þess að draga úr þessum aðstöðumun, sem dreifbýlisunglingarnir verða að þola í sambandi við skólagöngu sína.
Ég skal nú ekki taka að öðru leyti neinn þátt í þessum almennu umr., sem orðið hafa. Ég ætla aðeins að benda á þessi atriði, sem ég hef gert, því að þau kunna að vera upplýsandi fyrir málið ekki síður en ýmislegt annað, sem hér hefur fram komið.