13.11.1969
Neðri deild: 14. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í C-deild Alþingistíðinda. (2572)

63. mál, söluskattur

Flm. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Ég gat nú jafnvel búizt við því, að hæstv. fjmrh. hefði ýmislegt við það að athuga, þegar átti að draga úr tekjum ríkissjóðs, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir, þar sem hann tók mig hraustlegar í gegn en hann hefur nokkurn tíma gert áður, þegar ég lagði til að reyna að auka tekjur ríkissjóðs, eins og gert var hér með frv. um skatteftirlitið.

En út af því, sem fram kom í ræðu hæstv. fjmrh., vil ég segja það í fyrsta lagi, að ég hef þá komizt klaufalega að orði, ef skilja má orð mín þannig, að ég geri ráð fyrir því að hafa mismunandi söluskatt á þeim vörum, sem söluskattur er lagður á. Það var ekki hugsun mín, heldur sagði ég það eða ætlaði að segja það, að ég vildi heldur þá láta hækka söluskattinn almennt á þeim vörum, sem hann væri lagður á, ef þessar væru undanþegnar. Þetta vildi ég leiðrétta. Í öðru lagi varðandi þá tölu, sem ég gaf hér upp sem tekjutap ríkissjóðs af völdum þessa frv., þá hef ég hana frá Hagstofu Íslands, en ég hygg, að tölur þær, sem hæstv. ráðh. vitnaði í, séu bundnar því frv., sem við fluttum hér í fyrra, en nú höfum við breytt frv., þar sem alveg er takmarkað, hvaða vörutegundir er átt við nú, en þar var tekið fram, að það væru innlend matvæli, og ég hygg, að þar í liggi mismunurinn, enda eru það svipaðar tölur, sem ég hef frá Hagstofunni þar um.

Í sambandi við þetta mál vil ég svo að öðru leyti segja það, að mér er það auðvitað ljóst, að ríkissjóður getur ekki misst þessar tekjur, án þess að það komi við, og fyrir því verður að sjá á einn eða annan hátt, eins og ég gat um hér áðan. En ég tel það hins vegar mjög áríðandi, ekki sízt ef söluskattur yrði hækkaður, að undanþiggja verulegan hluta af þessum vörutegundum. Ég gæti hins vegar t. d. gengið inn á það að falla frá einhverju, sem þarna er talið upp, t. d. unnum kjötvörum. Ég gæti hugsað mér að sleppa þeim, ef kjötið, eins og það er selt óunnið, væri undanskilið. Ég álít, að það sé mjög mikið atriði einmitt, að kjöt sé undanskilið söluskatti. Sama finnst mér um smjör, skyr og ost. Og ég hef ekki trú á því, að það valdi neinum erfiðleikum í framkvæmd, þó að þessar vörur væru algerlega undanskildar söluskatti. Og ég er alveg til samstarfs um það, að dregið yrði eitthvað úr þessu, ef t. d. fyrst og fremst þessar vörur og fiskur væru undanskilin, þessar allra nauðsynlegustu matvörur. Það er ekki eins mikið atriði, þó það skipti verulegu máli, með gasolíu til heimilisnotkunar og sölu rafmagns og hitaveitu. Þetta skiptir allt máli fyrir neytendur, en ég legg þó ekki eins mikið upp úr því og íslenzkum landbúnaðarvörum, sem ég tel mjög áriðandi, að verði undanskildar söluskatti. Og ég legg megináherzlu á það, ekki sízt ef að því ráði yrði horfið að hækka söluskattinn, að þetta yrði gert áður. Ég held, að það sé afskaplega auðvelt að finna leið, til þess að þetta þurfi ekki að skapa nein vandræði í innheimtu söluskatts, og er hægt að fá samstarf um þann hluta málsins, enda vil ég nú taka undir það með hæstv. fjmrh., að ég tel það mikils um vert, að innheimtan sé í lagi og vil ekki standa að því að gera hana erfiðari. En ég held, að það megi úr þessu frv. a. m. k. einangra þá hluti eða þær vörutegundir þannig, að það væri auðvelt í framkvæmd. Og ég vil svo undirstrika það, að það er ekki mín hugsun, að það verði mismunandi söluskattur, heldur að vörutegundirnar verði alveg undanþegnar söluskatti.