24.11.1969
Neðri deild: 17. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í C-deild Alþingistíðinda. (2623)

93. mál, lögsagnarumdæmi Húsavíkurkaupstaðar

Flm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er á ferðinni, er samið af sameiningarnefnd sveitarfélaga og sent bæjarstjórn Húsavíkur til umsagnar og sýslunefnd Suður-Þingeyjarsýslu. Umsagnir fóru nokkuð sitt á hvað. Húsavíkurkaupstaður lagði til, að frv. væri samþ., en sýslunefnd Suður-Þingeyjarsýslu lagði til, að ákvörðun um lögsagnarumdæmi eyjarinnar, Flatey á Skjálfanda, yrði frestað um 5 ára skeið og eyjan sett undir bráðabirgðastjórn sýslumannsins í Suður-Þingeyjarsýslu. Ástæðan til þess, að hér er rætt um þetta mál, er sú, að nú hafa allir, sem áður höfðu fasta búsetu í Flatey á Skjálfanda, hætt henni. Það eru að vísu, eins og þjóðskráin segir til, miðað við 1. desember s. l., 8 íbúar í Flatey, en kunnugir segja, að þeir séu í raun og veru ekki lengur nema 5, þar af 4 vistmenn á Kópavogshæli og einn á Kristneshæli. Ég vil þó ekki alveg fullyrða, að sú tala sé rétt, sem stendur hér í grg., en þeir eru milli 5 og 8, og um fleiri er ekki þarna að ræða.

Nú gefur það auga leið, að á vori komanda verður ekki hægt að kjósa hreppsnefnd í Flateyjarhreppi. Þar er enginn maður með fastri búsetu, og því virðist kjörin leið að grípa nú tækifærið og sameina eyjuna lögsagnarumdæmi Húsavíkur, en eins og hér segir í grg., mundi vera eðlilegt að sá hluti hreppsins, sem á landi liggur, en það er Flateyjardalur, verði með reglugerð lagður undir Hálshrepp, en til forna laut Flateyjardalur og raunar Flatey líka undir Hálshrepp.

Einhver kann að segja, að réttara væri, eins og sýslunefndin leggur til, að bíða átekta, en flestir munu þó sjá, að þarna geta ekki orðið nema tiltölulega fáir íbúar, ef byggð hæfist að nýju, aldrei meira en svona eins og nú hefur verið flest, allt upp í 110 manns, og eins og sveitarstjórnarmálum er háttað nú, er það of lítið hreppsfélag til að standa undir þeim kvöðum og skyldum, sem á sveitarfélög eru nú lagðar. Þess vegna virðist kjörið tækifæri til þess að vinna að því núna, að Flatey verði lögð undir annað sveitarstjórnarumdæmi, og liggur þá beinast við, að það sé, eins og hér er lagt til, Húsavík, því að allar samgöngur til Flateyjar voru og hafa verið um Húsavíkurhöfn, og eins áttu þeir þangað læknis að vitja. Póst höfðu þeir um Húsavíkurhöfn og talsamband er í land um Húsavík. Það, sem veldur því, að t. d. Húsavík og reyndar fleiri sveitarfélög óttast það að hafa Flatey utan ákveðins lögsagnarumdæmis, er það, að menn kynnu að taka sér þar búsetu og telja sig eiga þar heima og komast þannig fram hjá því að greiða verulegar skyldur sveitarfélags, losna sem sagt við útsvör og önnur opinber gjöld með sýndarbúsetu.

Ég held, að ég þurfi í raun og veru ekki að skýra þetta frekar. Eyjan er sem sagt án nokkurra íbúa, sem þar dveljast, og virðist kjörið tækifæri til að leggja hana undir lögsagnarumdæmi Húsavíkur, og þess vegna er þetta mál hér flutt.

Ég legg svo til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn.