24.11.1969
Neðri deild: 17. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í C-deild Alþingistíðinda. (2625)

93. mál, lögsagnarumdæmi Húsavíkurkaupstaðar

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs fyrir nokkru, á meðan flm. málsins var að tala, vegna þess að ég kunni því illa, að málið færi til 2. umr., án þess að aths. væru gerðar í því sambandi. Nú hefur hv. 11. landsk. skýrt þetta mál nokkuð í framhaldi af ræðu hv. flm., og ég skal ekki vera langorður.

Þetta frv. er um það, að Flatey í Flateyjarhreppi í Suður-Þingeyjarsýslu skuli lögð undir lögsagnarumdæmi Húsavíkurkaupstaðar, sem mér skilst, að þýði það, að eyjan eigi að verða hluti af Húsavíkurkaupstað. Hins vegar er í frv. ekkert um það rætt, hvað gera skuli við aðra hluta Flateyjarhrepps, en hv. flm. vék að því, að með reglugerð mætti sameina þann hluta hreppsins, sem er á landi, þ. e. a. s. Flateyjardal, Hálshreppi. En í grg. stendur, að þetta landssvæði, Flateyjardalur, sem nú er í eyði, hafi verið nýtt sem afréttarland af íbúum Háls- og Grýtubakkahrepps. Ég hefði kunnað því betur, ef Flatey væri með l. sameinuð Húsavíkurkaupstað, að þá yrði jafnframt í þeim sömu l. ákvæði um það, hvernig fara skuli um aðra hluta hreppsins, þó að vel megi vera, að það sé rétt, að hægt sé að ráðstafa þeim með reglugerð án lagasetningar.

Þetta frv. er, eins og hv. 11. landsk. þm. tók fram, ekki flutt eftir ósk sýslunefndar S-Þingeyjarsýslu, ekki eftir ósk Flateyjarhrepps eða þeirra, sem hafa fyrirsvar fyrir hann, og ekki eftir ósk bæjarstjórnarinnar á Húsavík, heldur er það eiginlega flutt að frumkvæði svokallaðrar sameiningarnefndar sveitarfélaga, sem þó hefur ekki talið sér fært að óska eftir því við ríkisstj., að hún flytji frv. af ástæðum, sem nánar eru tilgreindar. Hins vegar hefur sameiningarnefndin leitað umsagnar um frv. frá bæjarstjórn Húsavíkur og sýslunefnd S.-Þingeyjarsýslu, og þær umsagnir liggja hér fyrir. Bæjarstjórn Húsavíkur hefur lýst yfir því, að hún vilji samþykkja till. um sameiningu, þ. e. a. s. hún er reiðubúin til þess að taka á móti Flatey, ef ákveðið sé í l., að svo skuli vera, og taka við framfærslu þurfamanna, að því leyti, sem gert er ráð fyrir í frv., en lýsir því jafnframt yfir, að hún telur eignir og skuldir Flateyjarhafnar sér að öllu óviðkomandi. Sýslunefndin í S.-Þingeyjarsýslu hefur hins vegar á fundi, 14. maí s. l., samþykkt svohljóðandi ályktun, með leyfi hæstv. forseta:

„Sýslunefndin lýsir sig andvíga þeirri hugmynd, að Flatey eða aðrir hlutar Flateyjarhrepps verði sameinaðir öðru sveitarfélagi, meðan allt er jafnóljóst og nú er, hvernig ræðst um not þeirra landa í framtíðinni. Nefndin telur því rétt og óskar þess, að sýslumanni Þingeyjarsýslu verði falin umsjón Flateyjarhrepps og meðferð eigna hans næstu 5 ár, nema búseta aukist þar til muna á þeim tíma.“

Hv. 11. landsk. þm. drap á það, sem getið er um í bréfi sýslumannsins á Húsavík, að ástæðan til þess, að þær fjölskyldur, sem heima áttu í Flatey til skamms tíma, fluttust til Húsavíkur, hafi verið sú, að þær hafi ekki getað fengið þangað barnakennara, þ. e. a. s. að fræðslumálastjórnin hafi ekki talið sér fært að stuðla að því, að þar væri haldið uppi kennslu á einhvern hátt. Nú vil ég leyfa mér að beina því til hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, að hún leiti nánari umsagna, bæði frá bæjarstjórn Húsavíkur og frá sýslunefnd S: Þingeyjarsýslu, í tilefni af þeim umsögnum, sem þegar liggja fyrir. T. d. mundi ég vilja spyrjast fyrir um það hjá bæjarstjórn Húsavíkur, hvort hún vilji stuðla að því, ef eyjan verður sameinuð kaupstaðnum, að áfram haldist byggð í eynni, því að það skiptir auðvitað miklu máli, hvort Húsavíkurkaupstaður vill stuðla að því, að þar verði áfram byggð.

Ég minnist þess, að fyrir örfáum árum, ég held, að það hafi verið 1960 eða þar á eftir, átti hundrað manns heima í Flatey. Allmörg núverandi hreppsfélög hafa færri íbúa en 100 manns. Eins og hér hefur verið upplýst, þá eru þarna góð afkomuskilyrði. Því hefur þegar verið lýst, hvernig þeim hefur verið háttað bæði á sjó og landi. Það sýnist í raun og veru ekki ólíklegt, að þarna gæti aftur orðið byggð, ef stuðlað væri að því. Og þarna er nýbúið að leggja allmikið fé í hafnargerð, og á þessari hafnargerð, sem þarna hefur verið lagt í, hvílir allmikil skuld, sem einhvern veginn þarf að kveða á um, hvort sem Flateyjarhreppur verður lagður niður eða ekki, annaðhvort með því að fella hana niður eða að einhver verði til þess að greiða hana. Hins vegar mundi ég vilja fræðast um það, hjá sýslunefnd S.-Þingeyjarsýslu, hvernig hún hugsar sér þetta fyrirkomulag í einstökum atriðum, þar sem hún stingur upp á, að sýslumanni verði falin umsjón Flateyjarhrepps og meðferð eigna næstu 5 ár. Ég vil sem sagt beina því til hv. n., að hún leiti nánari umsagna hjá þessum aðilum, sem hér er um að ræða, og þá ef til vill einnig hjá þeim mönnum, sem hér virðast enn vera í fyrirsvari fyrir Flateyjarhrepp, sem eru sýslunefndarmaður og oddviti, sem kjörnir hafa verið í síðustu sveitarstjórnarkosningum og mætt hafa á þeim sýslunefndarfundi, sem hér er greint frá.