15.12.1969
Neðri deild: 25. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

126. mál, söluskattur

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég skal nú ekki lengja þessar umr. mikið. Ég vildi aðeins í upphafi láta það koma fram, – vegna þess að það var upphaflega borið fram sem ósk af minni hálfu í sambandi við þetta frv. og frv. um nýja tollskrá, – að leitazt yrði við að afgr. þessi frv. áður en jólaleyfi þm. hæfist. Einnig vil ég taka það fram, vegna síðari umr., sem orðið hafa og sérstaklega með hliðsjón af því, að því var mjög varpað fram hér í umr. af hálfu hv. stjórnarandstæðinga, að með þessu væri verið að beita ofríki og ætlast til óeðlilegrar meðferðar mála, að það vakti vitanlega alls ekki fyrir mér, heldur stöfuðu þessi tilmæli beinlínis af því, að gert hafði verið ráð fyrir því, að þingi yrði frestað þangað til að afloknu þingi Norðurlandaráðs, sem verður hér í Reykjavík í byrjun febrúarmánaðar. Það var augljóst mál, að ef ætti að fresta þingi það lengi, þá væri þess enginn kostur að afgr. tollskrána með þeim hætti, að hún gæti komið til framkvæmda 1. marz og að sjálfsögðu þá ekki koma þeirri breytingu fram á söluskattinum, sem hér er gert ráð fyrir, þó að það sé mun einfaldara mál í framkvæmd. Eftir að niðurstaðan varð sú, að þing kæmi saman aftur 12. janúar, þá horfir það mál að sjálfsögðu allt öðruvísi við og ætti að mega vænta þess, að tollskráin og söluskattsfrv. gætu verið afgr. fyrir janúarlok, en það veitir ekki af einum mánuði til þess að prenta tollskrána upp og koma fram þeim leiðbeiningum til innheimtumanna víðs vegar um landið, sem leiðir af þeim breytingum, sem verða á innheimtu aðflutningsgjalda vegna hinnar nýju tollskrár. Þar koma alveg nýir tollskrárliðir, sem greina frá því, hvaðan varan er flutt, sem er algert nýmæli í íslenzkri tollskrá. Þetta vil ég aðeins láta koma hér fram, til þess að það líti ekki þannig út, að það hafi eingöngu verið af of forsi frá minni hendi, að þessi ósk var fram borin. Það ber að skoða þau tilmæli með hliðsjón af því, sem fyrirhugað var um hið langa þinghlé.

Við upphaf 1. umr. söluskattsfrv. flutti hv. 3. þm. Vesturl. ræðu og kom inn á ýmis atriði, sem ég tel nauðsynlegt að gera að umtalsefni. Vissulega voru þau flest öll eða öll efnisleg og þess eðlis, að það er ósköp eðlilegt að á þau sé minnzt og menn velti vöngum yfir því, hvernig á þessu máli skuli taka. Vitanlega kemur til álita ýmislegt af því, sem hann sagði í sinni ræðu og þarf að gera sér fulla grein fyrir því, hvort það horfir í jákvæða eða neikvæða átt. Það er þó efnislega eitt atriði í ræðu hans, sem ég vil taka skýrt fram, að ég tel ekki hafa verið rökréttar niðurstöður af hans máli og það er, að með þessari söluskattsbreytingu sé verið að stuðla að því að leggja álögur á með þeim hætti, að þær séu yfirfærðar af þeim efnameiri yfir á þá efnaminni. Það má vel vera, að það sé hægt að koma söluskatti fyrir með öðrum hætti og hafa t.d. almennan söluskatt hærri og undanþiggja fleiri tegundir nauðsynja. En með þeim ráðstöfunum, sem nú er verið að gera í sambandi við hækkun söluskattsins og þeim kjarabótum, sem veittar eru jafnhliða honum í hækkun fjölskyldubóta og ellilífeyris, þá hefur þessi ákvörðun varðandi söluskattinn engin áhrif í þá átt að rýra aðstöðu fólks að þessu leyti. Tollalækkanirnar koma hinum efnaminni líka stórlega til hagsbóta, því að vitanlega er fatnaður einn þýðingar mesti útgjaldaliður hvers heimilis og þá alveg eins fátækra heimila og barnmargra, en hann ætti með þessum hætti að lækka verulega í verði. Og með hliðsjón af því, að gerðar eru ráðstafanir til þess, að aðalbúvörur hækki ekki í verði, hvorki kjöt né smjör og mjólk að sjálfsögðu ekki heldur, þar sem hún er undanþegin söluskatti, þá verður að telja, að með þessu sé haldið fullkomlega í horfinu í þessu efni, með þessari breytingu út af fyrir sig, ef hún er einangruð.

Það hefur lengi verið svo, að menn hafa talað um að eðlilegast væri að haga tollheimtu með þeim hætti að hafa mismunandi tolla, eftir því, hvað vörurnar væru nauðsynlegar og þess vegna hafa verið til svokallaðar hátollavörur og aðrar lágtollavörur, jafnvel undanþegnar tolli. Nú hefur viðhorfið í þessum efnum að sjálfsögðu breytzt mikið á síðari áru og þó að nú hafi þrengt að fólki um stundarsakir, þá var það svo, þegar vísitalan var innleidd, sú sem er við miðað, að það kom í ljós, að neyzlu venjur fólks voru með allt öðrum hætti en verið hafði og fjölmargar vörur, sem áður höfðu verið hátollavörur og taldar lúxusvörur, voru orðnar nauðsynjavörur hjá öllum þorra almennings. En það var skoðun manna fyrir tveim árum, þegar hin nýja vísitala var innleidd, sú sem nú er miðað við, að hún væri eðlilegur viðmiðunargrundvöllur.

Jafnframt þessu kom til endurmats á hinum svokölluðu hátollavörum og það hefur verið stefnt að því lengi, eða allt frá 1960, að lækka hina hæstu tolla. Þeir eru núna 100%, en komust á tímabili í 300%, sem voru vitanlega brjálæðislega háir tollar og leiddu í ýmsum tilfellum af sér mjög óeðlilega viðskiptahætti og smygl. Í mörgum tilfellum hafa tollar verið lækkaðir til þess að koma í veg fyrir ólöglega sölu á vörum, t.d. nefni ég í því sambandi, að á sínum tíma, þegar tollar á nælonsokkum voru lækkaðir stórlega, — en þá voru þeir taldir óþarfavara, sem ég býst varla við að neinn telji í dag, a.m.k. ekki kvenfólkið, – þá kom á daginn, að innflutningur á þessari vöru og tekjur af þeim innflutningi jukust stórlega eftir tollalækkunina, vegna þess hve þessari vöru hafði verið smyglað í stórum stíl.

Og þannig er það með ýmsar aðrar hátollavörur, að þó það hljómi vel að segja, að þarna séu munaðarvörur, sem ber að hafa í hátollaflokki, þá skilar þetta sér á engan hátt eins og skyldi.

Nú er sannleikurinn líka sá, að það hefur verið meginstefna hjá öllum okkar frændþjóðum á Norðurlöndum og er að verða í æ fleiri löndum að taka upp sem tekjuöflun svokallaðan söluskatt eða virðisaukaskatt, sem leggst með jöfnum þunga á meginhluta af öllum neyzluvörum almennings. Það eru að vísu til viss undantekningarákvæði, en ég tel rétt að það komi greinilega fram hér, – og það hefur komið í ljós, að undanþágur frá söluskatti hér á Íslandi eru nú mun meiri heldur en þær eru á Norðurlöndunum, – að á það hefur verið bent, að mjög slæmt sé að hafa nokkra teljandi undanþágu frá þessum skatti. Jafnframt hefur þróunin í þessum löndum verið svo og m.a. er það orsök þess, að Norðmenn stefna nú að mjög háum virðisaukaskatti, en að lækka mjög verulega beina skatta. Vitanlega má segja, að þetta stefni í þá átt, að það séu ekki skattlagðar eins háar tekjur og það hefur nú jafnvel hér á hinu háa Alþ. komið fram till. um það, að það væri ósanngjarnt að skattleggja tekjur manna af aukavinnu, – þó að hún hafi auðvitað oft valdið því, að þeir hafa komizt í háar tekjur, – það væri ómaklegt að skattleggja tekjur af því, sem menn sérstaklega leggja á sig umfram venjulegan vinnutíma. Þróunin hefur þess vegna verið þannig, einnig hér á Íslandi, að þetta hefur stefnt í þá átt, að beinar tekjur hafa minnkað og óbeinar tekjur hafa vaxið og sannast sagna erum við miklu lengra komnir í því heldur en aðrar þjóðir. En ég efast um, að uppi séu hér í dag þær skoðanir, að það beri að þyngja hina beinu skatta. A.m.k. hefur legið hér fyrir þinginu frv., sem miðar í þá átt að festa reglur um skattvísitölu, sem mundi leiða til stórfelldrar lækkunar beinna skatta og þá beinlínis til lækkunar beinna skatta hjá þeim, sem hæstar tekjur hafa.

Ef menn samtímis vilja halda því fram, að með söluskatts hækkuninni sé verið að ganga á hlut hinna efnaminni og deila jafnframt á stjórnvöld eða fjmrh. fyrir að hafa ekki gengið lengra í hækkun persónu frádráttar í sambandi við skattvísitölu, þá fá þær fullyrðingar ekki samrýmzt hvor annarri, því að þar stefnir í þveröfuga átt, eftir því hvorri kenningunni er fram haldið.

Hv. 3. þm. Vesturl. vitnaði til umr., sem hafa farið fram áður hér í þinginu um frv., sem hann flutti, þar sem var rætt um það, hvort hugsanlegt væri að undanþiggja fleiri tegundir vara söluskatti. Vitanlega er hægt að hugsa sér að undanþiggja fleiri tegundir vara söluskatti, en niðurstaðan verður þá sú, að þær vörur, sem eftir eru, beri miklu þyngri söluskatt. Mismunandi söluskattur er ekki hugsanlegur og það verður þá að vera almennur söluskattur með svo og svo miklum undanþágum og ég vil þá segja um leið: með svo og svo miklum vandkvæðum varðandi innheimtu, sem ég veit að við erum í rauninni allir sammála um, að megi ekki eiga sér stað. En sé farið að undanþiggja margar vörutegundir og þjónustu söluskatti, – og það er þegar gert of mikið að því, – þá skapar það erfiðleika á eftirliti með innheimtu söluskatts, hefur þegar gert það og mundi gera í vaxandi mæli með fleiri undanþágum. Með þessu er ég ekki að segja, að það eigi alls ekki að undanþiggja neinar vörur innheimtu söluskatts. Það er mál, sem sjálfsagt er að skoða. En ég bendi aðeins á það, að þessi er þróunin, að innleiða söluskatt eða virðisaukaskatt með þeim hætti, að hann lendi almennt á neyzluvörum. Síðan sé aftur á móti reynt að bæta hinum efnaminni það upp með tryggingabótum. Og það er rétt, sem hv. þm. sagði í því efni, að það er gert á Norðurlöndunum. Í ýmsum greinum má kannske segja, að við séum ekki alveg eins langt komnir og Norðurlöndin, þó eru okkar tryggingabætur í mörgum greinum mjög sómasamlegar, þó að vafalaust megi segja, að þær mættu vera hærri. En það er nú svo með tryggingabætur eins og annað, þar þarf líka að vera hóf á hlutunum ef þær eiga að verka með eðlilegum og heilbrigðum hætti.

Í sambandi við þá bráðabirgðabreytingu, sem nú er verið að gera á söluskattinum, – ég segi bráðabirgðabreytingu, vegna þess að ég álít, að þetta kerfi þurfi að taka til endurskoðunar, – hef ég áður lýst því yfir, að nú þegar hafi verið sett í gang endurskoðun á þessu kerfi með hliðsjón af því að athuga reynslu Norðurlandaþjóðanna af virðisaukaskattinum og ég hef hugsað mér það, að, að þessu máli yrði unnið með þeim hætti, að á næsta þingi gæti þetta mál komið til heildarathugunar og lægi þá fyrir grg. um virðisaukaskattinn, þannig að menn gætu tekið afstöðu til hans. En á meðan svo er ekki, þá tel ég mjög óheppilegt að fara að hagga þeim reglum, sem nú gilda um söluskattinn, undanþiggja einhverjar fleiri vörur innheimtu söluskatts eða gera aðrar víðtækari breytingar í því efni. Það ættum við ekki að gera nú, einmitt með hliðsjón af því, sem ég áðan sagði, að það hefur verið reynt að létta þær byrðar, sem söluskatturinn að sjálfsögðu leggur á fólk, með því að undanþiggja eða gera ráðstafanir til þess að ekki hækkuðu ýmsar brýnustu nauðsynjar, svo sem mönnum er kunnugt um.

Þetta er í rauninni það, sem ég vildi koma á framfæri hér í tilefni af ræðu hv. þm., án þess að ég að öðru leyti ætli að fara að deila á þær kenningar, sem hann flutti þar. Það er allt álitamál og þarf að skoðast mjög vendilega, en á þessu stigi sé ég enga ástæðu til þess að breyta, – og hef ekki hugsað mér það, jafnvel þó að kostur gæfist á því með frestun þessa máls fram yfir áramót, – þeim grundvelli, sem hér er byggt á. Ég tel, að það væri óheppilegt, heldur ætti að miða að því, að málið væri tekið til heildarendurskoðunar á næsta þingi.

Því hefur mjög verið haldið fram í umr. um söluskattinn, að það sé verið að innheimta miklum mun hærri söluskatt heldur en þörf er á. Ég held, að það muni koma í ljós, þegar fjárl. verða hér til 3. umr., að því fer víðs fjarri, að um það sé að ræða. Fremur er það svo, að varðandi árið 1970 er hér stefnt í mikla tvísýnu með afkomu ríkissjóðs, nema því aðeins að innheimtu söluskattsins verði breytt mjög verulega, annars mundu ekki skila sér nema tveir ársfjórðungar og yrði þá mjög verulegur sjóðshalli hjá ríkissjóði um áramótin, með öllum þeim afleiðingum, sem því fylgja og ég þykist vita, að enginn óski eftir því að stefna í þá átt, því að það hefur jafnvel komið fram í ræðum manna, og einmitt í þeirri ræðu, sem ég hef gert hér að umtalsefni, hjá hv. 3. þm. Vesturl., að það sé auðvitað óviðunandi að afkoma ríkissjóðs sé ekki betri en raun er á.

Ég vildi mega vænta þess, að menn geti sameinazt um að samþ. þá nauðsynlegu tekjuöflun, sem hér er um að ræða. Ég sé svo ekki ástæðu til, herra forseti, að orðlengja frekar um málið. Ég óska eftir því, hvort sem það verður í dag eða síðar í vikunni, að umr. verði haldið áfram þannig að frv. geti komizt til n. og verið þar til athugunar fram yfir áramótin, hvort sem hv. nm. kysu að vinna að því áður en þing kemur saman eða ekki, en ég tel, að það væri mjög óæskilegt, að málið gæti ekki fengið þá meðferð að komast í nefnd.