21.04.1970
Neðri deild: 79. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í C-deild Alþingistíðinda. (2636)

93. mál, lögsagnarumdæmi Húsavíkurkaupstaðar

Frsm. minni hl. (Friðjón Þórðarson) :

Herra forseti. Á það má að sjálfsögðu fallast með hv. síðasta ræðumanni, að til þess að um mannlegt samfélag geti verið að ræða, þurfi bæði land og fólk. Á hinn bóginn verður þó að viðhafa alla gát í þessu efni, þegar um svo viðkvæmt mál er að ræða, sem sérstaklega snertir heimamenn. Þess vegna álít ég, að það sé mikilvægast að hlusta á raddir heimamanna, og þær hafa komið fram í þessu máli, ótvírætt. Forystumenn Flateyinga mættu á fundi hjá sýslunefnd Suður-Þingeyjarsýslu og lýstu yfir því, að þeir óskuðu þess eindregið, að hreppurinn yrði ekki nú sameinaður öðrum hreppum, heldur yrði beðið með að taka ákvarðanir um framtíðarráðstöfun hans, meðan málin varðandi búsetu í Flatey væru að skýrast. Þetta, held ég einmitt, að sé rétt, og samkv. nýlegum upplýsingum frá oddvita sýslunefndar á Húsavík eru hinir raunverulegu íbúar Flateyjar þegar komnir út í eyjuna núna. Þeir fara þangað snemma á vorin eða á útmánuðum, í marzmánuði, og eru þar í húsum sínum við þjóðnýt störf þangað til seint á haustin. Það er því alls ekki endanlega séð, að eyjan leggist í auðn. En á hinn bóginn get ég mjög vel fallizt á það með hv. 1. þm. Norðurl. e., að hæstv. forseti fresti umr., meðan þetta mál er athugað betur á þessu stigi.