15.12.1969
Neðri deild: 25. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (266)

126. mál, söluskattur

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er, eins og hefur komið fram hér fyrr í umr., að meginstofni til í raun og veru bein afleiðing af EFTA–aðildarmálinu. Ég sé nú ekki ástæðu til þess að ræða þetta á þann hátt, sem ég kannske hefði gert, ef hefði átt að knýja málið fram nú. Ég vonast til þess, að þetta mál verði allt athugað á framhaldsþinginu, en þó vil ég ekki láta það óátalið, sem hæstv. fjmrh. sagði hér áðan. Hann sagði, að það væri ekki nein breyting á þessari innheimtu í þá átt, að hún bitnaði í vaxandi mæli á þeim, sem eru verr settir í þjóðfélaginu. Efnislega var það þetta, sem ráðh. sagði.

Það hefur verið gefið fyrirheit um að auka fjölskyldubæturnar, miðað við verðlagsvísitölu. En við vitum alveg, hvernig þessi kaupgjaldsvísitala er byggð upp. Hún var reiknuð út meðan tekjur manna voru hér mestar, þær voru með óeðlilegum hætti og nauðþurftirnar spila ákaflega lítið inn í þessa vísitölu, miðað við það, sem áður var og miðað við það, sem er nú, þegar meginhlutinn af tekjum láglaunastéttanna fer aðeins til nauðþurfta. Þó að fjölskyldubætur yrðu hækkaðar, miðað við verðlagsvísitölu, þá væri það alls ekki nema að einhverju leyti, sem þetta fengist bætt með þeim hætti.

Ef menn athuga svolítið tollskrána og svo aftur söluskattinn, þá kemur það í raun og veru mjög glögglega fram, hvernig landbúnaðurinn út af fyrir sig fer út úr þessu breytta innheimtufyrirkomulagi. Eftir því, sem mér sýnist, eru það aðeins vélarnar, dráttarvélarnar, sem lítið hækka. Þær hækka þó, eins og síðasti hv. þm. sagði, um 1/2%, en allt, sem til þeirra þarf, allir varahlutir, allur annar rekstrarkostnaður, hækkar sem söluskattshækkuninni nemur. Og þannig er þetta að öllu öðru leyti.

Það er sýnilegt, að um leið og tollarnir lækka, þannig að það lækkar verð á ýmsum innfluttum iðnaðarvarningi, þá breytist samkeppnisaðstaða landbúnaðarins hér innanlands mjög til hins verra. Og ég get ekki betur séð, ef farið verður eftir þessari stefnu, en verið sé að knýja fram neyzlu breytingu á þann hátt, sem er mjög háskalegur fyrir landbúnaðinn og í raun og veru alla þá, sem framleiða hér fyrir innanlandsmarkaðinn. Ég sé heldur ekki, að það sé æskilegt frá þjóðhagslegu sjónarmiði.

Þetta kom allt saman mjög vel fram á aukafundi Stéttarsambands bænda, sem haldinn var s.l. fimmtudag. Þetta var rætt þar og hv. þm. hafa nú séð þær samþykktir, sem þar voru gerðar og þann rökstuðning, sem fyrir þeim er hafður. Það kemur þar glögglega fram, að bændurnir hafa einmitt mjög mikinn beyg af þessari breyttu tekjuöflun ríkissjóðs fyrir sína samkeppnisaðstöðu. Ég held, að það sé ýmislegt, sem við þurfum að athuga í þessu sambandi og það var gleðilegt að heyra það hjá fjmrh., að hann sagði eitthvað á þá leið, að það væri vitanlega hægt að hugsa sér að fella niður söluskatt af ýmsum vörum. Ég held einmitt, að það sé nauðsynlegt að fella niður söluskatt af innlendri matvöruframleiðslu, eftir því sem hægt er og það einmitt mundi koma í veg fyrir þá þróun, sem ég var að tala um áðan, að breyta þessari neyzlu venju.

Hv. 5. þm. Austf. gat um stálgrindahúsin. Þau hækka um það, sem söluskatturinn hækkar. En nú er mikil breyting á döfinni í landinu, sérstaklega í sambandi við landbúnaðinn. Það er í vaxandi mæli farið að byggja gripahús og geymslur úr þessum stálgrindahúsum. Það er ekki lengur talið skynsamlegt að byggja úr steinsteypu. Það eru svo örar breytingar á ýmsum sviðum og erfitt er að breyta steyptum húsum til þess að koma við fullkomnari tækni, sem tíminn krefst hverju sinni og af því leiðir, að gera má ráð fyrir því, að einmitt gripahús og geymslur verði í sveitum og víðar í vaxandi mæli byggð úr stálgrindum. Ég held því, að það þurfi mjög að athuga einmitt þennan lið.

Það er líka eitt, sem hefur ekki komið fram nema að litlu leyti og það er, hvernig innheimtan verður á þessum söluskatti. Þó að láglaunastéttirnar og sérhver þegn í þjóðfélaginu verði að borga þennan söluskatt þá er ekki þar með sagt, að hann komi allur í ríkiskassann. Ég held, að það þurfi þá í sambandi við þessa breytingu að reyna að koma betri skipan á innheimtuna heldur en hefur verið hingað til. Það er ein stétt í þjóðfélaginu, því er ekki að leyna, sem er mjög kampakát yfir þessari nýju stefnu viðreisnarinnar. Það er verzlunarstéttin. Lækkun tollanna gerir það að verkum, að hún þarf á minna rekstrarfé að halda, og með hækkun söluskattsins líka fær hún aukið rekstrarfé í gegnum sínar hendur. Ég man ekki betur en hæstv. fjmrh. viðurkenndi það hér á dögunum, að það mundi nú kannske ekki allt koma í ríkiskassann, sem frá verzluninni ætti að koma. Og ég geri ráð fyrir því, að eftir því sem þessi söluskattur hækkar, eftir því verði tilhneigingin meiri til að skjóta honum undan.

En bæði í sambandi við tollskrána og þetta mál þarf það mjög að ákveða og ég legg ríka áherzlu á það, að kannað verði, hvort ekki sé hugsanlegt að fella söluskatt alveg niður af landbúnaðarvörum og fiski, því að annars sé ég ekki betur en það sé enn verið að þrengja hlut landbúnaðarins og þrengja hlut láglaunafólksins í landinu, enda kemur það sjálfsagt á daginn, ef þessi frv. verða samþ. óbreytt, að þetta verður til þess að ýta undir vaxandi kaupkröfur í landinu. Það getur ekki verkað á annan hátt.