06.04.1970
Neðri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í C-deild Alþingistíðinda. (2674)
155. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Umr. um frv., sem hér liggur fyrir til 1. umr., sem að því er upplýst var áðan, hófust fyrir rúmum mánuði, er fram haldið nú. Ég ætla ekki að fjölyrða mikið um þetta mál, en þó get ég ekki látið hjá líða þegar að lýsa yfir því, að ég er í meginatriðum samþykkur þessu frv., þótt ég vilji gera ýmsar frekari breyt. á l. um Fiskveiðasjóð og ganga lengra í sambandi við breytingu á stjórninni en hv. flm. þessa frv.
Eins og fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni, hv. 10. landsk. þm., þá var l. um Fiskveiðasjóð breytt 1966, og þar var gerð sú höfuðbreyting, að Fiskveiðasjóður og Stofnlánasjóður voru sameinaðir í Fiskveiðasjóð Íslands, og stjórn sjóðsins var breytt á þann veg, að tveir viðskiptabankarnir, Landsbankinn og Útvegsbankinn, tilnefna sína tvo mennina hvor í stjórn sjóðsins og Seðlabanki Íslands einn, en áður var stjórn sjóðsins skipuð bankastjórn Útvegsbanka Íslands. Ég tel, að það þurfi að endurskoða l. um Fiskveiðasjóð miklu nánar en kemur fram í frv. hv. 3. þm. Norðurl. v. og þá sérstaklega með það fyrir augum, að Fiskveiðasjóður eigi að verða algerlega sjálfstæð lánastofnun og ekki háð öðrum bönkum. Þetta er sjálfstæð stofnun, og reynslan af þessari stjórn Fiskveiðasjóðs, frá því að l. voru sett 1966, hefur fært mér heim sanninn um það, að ég tel það ekki vera mikils virði og hafi ekki orðið þessari lánastofnun neitt til góðs að setja þar í stjórn fimm bankastjóra. Ég gæti nefnt fjölmörg dæmi þess, að þetta hafi verið rangt að marka þessa stefnu, og samskiptin við sjóðinn hafa ekki orðið til þess að bæta um, frá því sem áður var, hvað þetta snertir. Og ég get ekki verið sammála mínum ágæta vini, sem var að ljúka máli sínu hér áðan, um það, að það þurfi að vera bankastjórar í stjórn þessa sjóðs til þess að tala máli viðskiptamanna sinna á stjórnarfundum þar. Ég held, að samkomulag á milli stjórnmálamanna, milli stjórnmálaflokkanna, hér á Alþ. sé mun betra en samkomulagið á milli ríkisbankanna. Ég ætla ekki á þessu stigi að fara út í þessa sálma, en ég get gert það. Ég sé enga ástæðu til þess, að menn þurfi að ganga inn í Landsbanka eða inn í Útvegsbanka, ef þeir ætla að byggja bát, og biðja tvo bankastjóra þess banka að tala sínu máli innan þessa stofnlánasjóðs sjávarútvegsins. Ég tel miklu frekar þörf á því, að fulltrúar sjávarútvegsins eigi sæti í stjórn þessa sjóðs, og ég hef alls ekki og síður en svo á móti því, að fulltrúar sjómannasamtakanna eigi þar einn mann í stjórninni. Ég tel fullkomlega eðlilegt, að Alþ. Íslendinga kjósi meiri hl. stjórnarmanna, og ég sé enga ástæðu til þess, — og það er auðvitað af alkunnri hógværð flm. frv. að vera að halda því fram, — að Seðlabankinn eigi mann í þessari stjórn, ég sé enga ástæðu til þess. Ég treysti miklu betur hinum þjóðkjörnu fulltrúum að ákvarða hverju sinni, hverjir eigi sæti meirihluta stjórnar í þessum stofnlánasjóði og svo aftur atvinnustéttunum að tilnefna menn, sem geta fylgzt með og gefið upplýsingar í hagsmunasamtökum sínum.
Mig furðar líka á því, að í l., sem samþ. eru og sett 3. maí 1966, segir í 24. gr., að sjútvmrh. geti með reglugerð sett nánari ákvæði um starfsemi Fiskveiðasjóðs. Engin slík reglugerð hefur enn þá verið sett. Ég hélt, að þessi l. um Fiskveiðasjóð hefðu sannarlega þurft á því að halda eins og flest önnur l., að sett yrði reglugerð, sem kvæði nánar á um starfsemi sjóðsins. En það bólar ekki á því. Það er margt á huldu um, hvaða ákvarðanir eru þar teknar, og menn verða oft á tíðum að toga út með töngum, hvað á að gera og hvernig á að fara að í sambandi við afgreiðslu einstakra mála.
Ég endurtek það svo, að ég tel, að þetta frv. sem hér liggur fyrir, sé spor í rétta átt, en gangi engan veginn nógu langt og það þurfi að endurskoða l. um Fiskveiðasjóð alveg frá grunni með það fyrir augum, að þetta verði gert að sjálfstæðri stofnun, sem verði í framtíðinni undir stjórn þeirra, sem hagsmuna hafa að gæta, útvegsmanna og sjómanna, en Alþ. Íslendinga kjósi hverju sinni meiri hl. stjórnarmanna. Ég hygg, að bankastjórar hafi alveg nóg með sínar eigin stofnanir að gera, þó að þeir séu ekki að sullast í sjóðum og stjórnum, sem þeir eiga ekkert erindi í.