16.12.1969
Neðri deild: 26. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í B-deild Alþingistíðinda. (268)

126. mál, söluskattur

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Hæstv. ráðh. hafa endurtekið það í þeim umr., sem hér hafa farið fram á undanförnum dögum, að tollalækkun sú, sem væntanleg er, standist á við hækkun söluskattsins, sem hér er ráðgerð. Og á þingmannafundinum í sjónvarpinu í gærkvöld orðaði hæstv. viðskrh. þetta enn og fullyrti, að tollalækkunin næmi jafnmiklu og söluskattshækkunin og af því leiddi, að engin hækkun yrði á framfærslukostnaði í landinu. Þetta ætla ég að menn hafi heyrt greinilega í gærkvöld.

Ég á erfitt með að skilja þessa fullyrðingu og þarf ekki annað en að vitna í upplýsingar, sem hæstv. ráðh. hafa sjálfir gefið í þessum umr., sem hér hafa farið fram. Ég held að ég muni það rétt, að þeir hafi skýrt svo frá, að tollalækkanirnar nemi rúmum 400, kannske 450 millj. kr., en að söluskattshækkunin skapi ríkissjóði tekjur, sem nemi 220 millj. kr. fyrir hverja einingu, sem söluskatturinn hækkar um og þá hljóta það að vera 770 millj. alls. Nú skal ég játa, að ég er ekki alveg viss um, hvort í þessari upphæð er hlutur sveitarfélaga eða ekki. Ef hlutur sveitarfélaga er ekki inni í þessari upphæð, þá er það sjálfsagt á 9. hundrað millj. kr., sem söluskatturinn hlýtur að hækka um. Það er mér algerlega ofvaxið að skilja, hvernig það má verða, að 400–500 millj. kr. tollalækkun geti þurrkað út 770–800 millj. kr. söluskattshækkun. Ef hæstv. ríkisstj. getur þannig þurrkað út 300–350 millj. eða látið þær alveg gufa upp, án þess að það komi við framfærslukostnað í landinu, þá eru þeir meiri spekingar heldur en ég hef álitið og þá hefði þeim vafalaust verið óhætt að hækka söluskattinn miklu meira en þetta og afla sér þannig tekna til þess að koma af stað ýmsum framkvæmdum, sem við erum allir sammála um. Ef þeir geta látið 300–350 millj. kr. hverfa, án þess að það komi við framfærslukostnaðinn í landinu, þá er það mér óskiljanlegt.

Ég vil beina því sérstaklega til hv. fjhn., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar, að hún athugi þessa hlið málsins. Er það rétt, að framfærslukostnaður í landinu hækki ekkert, þó að söluskatturinn hækki svo miklu meira en tollalækkunum nemur? Hins vegar er ekkert um það að villast, að söluskattur kemur ákaflega mikið við framfærslukostnað manna og þá ekki sízt við verðlag á matvælum. En matvælin eru viðkvæm fyrir alla láglaunamenn og barnmargar fjölskyldur, eins og mönnum er kunnugt. Matarkaupin eiga menn örðugt með að skera niður, þó að þeir vildu svo. Því er ljóst , að söluskattshækkanir, sem valda verðhækkunum á matvælum, eru ákaflega alvarlegur hlutur.

Fyrir 4 árum fór fram neyzlurannsókn og samkvæmt henni var grundvöllur framfærsluvísitölunnar bundinn 1965. Í þeirri neyzlurannsókn geta menn séð, — og það hafa þm. í sínum fórum, — hvað matvörurnar hjá fjögurra manna fjölskyldu kostuðu þá yfir árið og ef þeir líta á þróun verðlagsins í landinu, þá geta þeir líka séð, hvað matvörur kostuðu fyrir t.d. 10 árum og hvað þær kosta núna handa fjögurra manna fjölskyldu yfir árið. Ég hef athugað þetta og sé, að ef fjögurra manna fjölskylda notar jafnmikið af matvörum og fram kom í þessari neyzluvörurannsókn 1965, þá mundu þessar matvörur hafa kostað rúmar 25 þús. kr. fyrir 10 árum, eða í nóv. 1959. En hvað kosta þær núna? Það ætti hv. þm. að vera kunnugt, þeir fylgjast sjálfsagt með skýrslum Hagstofunnar: Þessi matvæli kosta núna rúmar 100 þús. kr., í nóv. 1969. Verðið á matvælunum hefur fjórfaldazt á þessu 10 ára tímabili. Hækkunin á þessum útgjaldalið manna er því hvorki meira né minna en 75 þús. kr. á tímabilinu, og af þessum 75 þús. kr. eru 33 þús. einungis hækkunin á 2 síðustu árum. Frá því í nóv. 1967 þar til í nóv. núna í haust hækkuðu matvælin hjá 4 manna fjölskyldu um 33 þús. kr. Þetta geta menn sjálfsagt fengið staðfest, ef þeir athuga skýrslur Hagstofunnar um þessi efni. En þegar slíkar hækkanir verða á þessum útgjaldalið hjá 4 manna fjölskyldu, hvað halda menn þá, að hækkanirnar nemi miklu hjá hjónum með 5—6 börn, þegar fjölskyldan er orðin 7–8 manns? Á þessum sama tíma hefur kaupgjald að vísu hækkað og tímakaup verkamanns samkvæmt 2. taxta Dagsbrúnar, en eftir þeim taxta vinna tiltölulega flestir af verkamönnum. Það tímakaup var núna í nóvember kr. 64,70 í dagvinnu. Það munu vera eitthvað í kringum 2.200 dagvinnutímar hjá verkamanni á árinu. Reiknast mér þá svo til, að árskaup slíks verkamanns sé um 142 þús. kr., hafi hann engar aðrar tekjur en af dagvinnunni einni, en vinni þó alla virka daga fullan vinnudag, –142 þús. kr. Ef 4 manna fjölskylda vill nú veita sér svipað mataræði og fyrir 4 árum, þá kostar það rúmar 100 þús. kr. Þá eru ekki eftir nema rúmar 42 þús. kr. af árstekjum mannsins. Af þessum 42 þús. kr. verður hann svo, samkvæmt þeim skýrslum sem fyrir liggja, að borga í kringum 11 þús. kr. í almannatryggingar, sjúkrasamlag og þess háttar gjöld og um 14 þús. kr. í rafmagn og hita. Þessir tveir liðir eru um 25 þús. kr. miðað við núverandi verðlag. Þá er nú ekki orðið ýkjamikið eftir af árskaupinu, eða um 17 þús. kr. Það fer til þess að fá húsnæði leigt handa fjölskyldunni, ef það kostar ekki nema 1400 kr. á mánuði, en það má ekki kosta meira. Og svo blasir nú reyndar við hækkun á rafmagninu, að okkur er tjáð og hún allveruleg og ofan á þá hækkun, eftir áramótin, bætist svo söluskattshækkunin, svo að þetta verður allt kostnaðarsamara, þegar kemur fram á árið.

Ég held, að menn sjái á þessu, við hvers konar kjör þessir láglaunamenn búa og hvaða þýðingu það muni hafa, ef nú koma verulegar verðhækkanir á lífsnauðsynjar þeirra. Slíkur fjölskyldufaðir sem ég nefndi hér áðan getur ekki veitt sér það að kaupa fatnað á fjölskylduna. Það eru að vísu ótaldar fjölskyldubæturnar, sem í hans hlut munu falla, í kringum 8.700 kr. með 2 börnum. Þær duga nú ekki fyrir 1/5 hluta af þeim fatnaði, sem slík fjölskylda notaði fyrir fjórum árum. Þá er ekkert eftir til annarra þarfa, ekkert í hreinlætisvörur, ekkert í læknishjálp, ekkert í búsáhöld, ekkert í ferðalög, ekki einu sinni í strætisvagninn, engin bók, ekkert blað, ekkert útvarp, ekkert sjónvarp, enginn sími, engin póstgjöld, – ekkert af þessu tagi. Og þó er hér gert ráð fyrir, að hann fái húsnæði fyrir 1.400 kr. á mánuði. Svona eru kjörin hjá þessu fólki núna. Og á það svo að fá hækkun á lífsnauðsynjarnar með hækkuðum söluskatti?

Annars stoðar lítið að vitna í vísitölu framfærslukostnaðar, vegna þess að þeir, sem aðeins geta keypt dýrustu nauðsynjarnar, – en það eru matvælin, þau hafa hækkað mest af öllu á undanförnum árum, — þeir búa við miklu hærri framfærsluvísitölu heldur en aðrir menn. Þeir sem ekki hafa efni á því að kaupa annað, svo að segja lítið annað en matvæli, þeirra framfærsluvísitala er miklu hærri en hinna, sem geta veitt sér allar þær nauðsynjar, sem reiknað var með fyrir 4 árum. Þess vegna er núverandi framfærsluvísitala ekki raunhæf nema fyrir þá menn, sem geta keypt sér allar þær nauðsynjar, sem reiknað er með í grundvelli vísitölunnar. Annars sýnir hún algerlega ranga mynd af þeim kjörum, sem fólk býr við.

Það þykir kannske ótrúleg saga, en ég trúi henni samt, sem mér hefur borizt til eyrna, að til séu fjölskyldur hér í borg, sem hafi gripið til þess ráðs að borða aðeins eina máltíð á dag. Sagan þykir kannske ótrúleg, en mér finnst hún mjög trúleg, því að ef 5—7 manna fjölskylda á að greiða 6—7 þús. kr. í húsnæðiskostnað á mánuði, um 3 þús. kr. í rafmagn, hita og opinber gjöld, en hefur svo ekki nema 12 þús. kr. mánaðartekjur, þá verður húsbóndinn að grípa til örþrifaráða, ef hann á að komast af á nokkurn hátt.

Mér finnst að alþm. verði að gefa því gætur, þó að þeim sjálfum líði vel fjárhagslega, að þeir verði ekki sljóir fyrir því, sem er að gerast í kringum þá. Ég hef dregið fram þessi atriði í kjörum láglaunamanna fyrst og fremst til að beina því til hv. fjhn., sem fær þetta frv. sennilega til meðferðar. Það má svo sem nefna það í þessu sambandi, að fjölskyldubætur áttu á sínum tíma að vera til stuðnings þessu fólki, barnmörgu fjölskyldunum. En á sama 10 ára tímabili, sem matvörur hafa hækkað í verði um nær 300%, þá hafa fjölskyldubæturnar hækkað um 64%. Þannig var hugsað um mál þeirra barnmörgu. Annars held ég, að það væri réttast og hyggilegast að hætta að borga niður vöruverð og hætta að greiða fjölskyldubætur til hálaunamanna, en nota þetta fjármagn eingöngu til hækkunar á fjölskyldubótum til láglaunamannanna og til hækkunar tryggingabóta handa óvinnufæru fólki, hvort sem það er af elli eða sjúkdómum. Þetta eru þeir einstaklingar í þjóðfélaginu, sem mest ríður á að hjálpa nú og þá á að gera það. Það er að mínum dómi lítil nauðsyn á að borga niður kjöt, mjólk og smjör handa mönnum með 400–700 þús. kr. árstekjur. Ég sé enga nauðsyn á því. Og ég sé heldur enga nauðsyn á því að vera að borga fjölskyldubætur til þessara sömu manna. Þeir þurfa þeirra ekki með. Fjárhagsleg afkoma þeirra er svo gerólík hinna, sem hafa fyrir mörgum að sjá og eru tiltölulega lágt launaðir.

Ég endurtek tilmæli mín til hv. n., sem fjallar um þetta frv., að taka það rækilega til athugunar. Hún hefur nógan tíma til þess, þar sem það verður ekki afgr. endanlega fyrr en einhvern tíma seint í janúar.