02.04.1970
Neðri deild: 67. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í C-deild Alþingistíðinda. (2700)
171. mál, sauðfjárbaðanir
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Frv. þetta er flutt af tveimur helztu búnaðarfrömuðum þingsins, svo að það er víst betra að tala varlega, en þess skal þó getið, að samkv. l. nr. 19 frá 1938 varð sérhver sauðfjáreigandi skyldugur til þess að baða sauðfé sitt árlega á tímabilinu frá 1. nóvember til 15. janúar. Samkv. l. nr. 23 frá 1959, sem nú gilda, var þessu breytt á þann veg, að heimilt var að baða aðeins annað hvert ár, en á tímabilinu 15. október til 1. marz. Þetta olli allmiklum skoðanaskiptum á þinginu 1959, og komu umsagnir úr ýmsum áttum. Þó var fallizt á að slaka til að þessu leyti og heimila að baða aðeins annað hvert ár, en þó jafnframt með það í huga að fylgja því fastar eftir og einnig að fylgja því eftir, að sauðfjáreigendur böðuðu á þessum ákveðna tíma, því að það er eitt af nauðsynlegum skilyrðum, sem þarf að fullnægja, ef þetta á að bera tilætlaðan árangur, að menn, a. m. k. nágrannar, baði nokkurn veginn á sama tíma, en ekki bara, þegar þeim sýnist.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, gengur í þá átt að losa enn um þessi ákvæði, þ. e. a. s. að baðað verði aðeins, eða heimild verði veitt til þess, að baða aðeins þriðja hvert ár og þá á tímabilinu frá 1. nóv. til 1. maí. Frv. þessu fylgir allítarleg grg., glögg, eins og vera ber, og þar er réttilega bent á, að ullariðnaður fari ört vaxandi og sé með álitlegustu iðngreinum. Þar með er auðvitað sagt, að það skipti nokkru máli að hirða ullina og að bændur fái sem mest af henni. En það hef ég heyrt marga bændur segja, að þó að fyrirhafnarsamt sé, kostnaðarsamt og erfitt, að baða árlega, þá borgi það sig, því að það komi aftur í meiri og betri afurðum af kindinni.
Þá verð ég að segja, að mér finnst það sæta nokkurri nýlundu, að það sé betra að baða eftir því, sem nær dregur sauðburði. Þetta er alveg nýtt fyrir mig.
Þá er hér niðurlag grg., sem segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Rétt er að geta þess, að atriði þessi hafa verið rædd við yfirdýralækni og búnaðarmála-
stjóra, og hefur okkur skilizt, að þeir álíti þessar breytingar til bóta.“
Hér er um allþokukennt niðurlag að ræða og vafasamt, þannig að ég vil a. m. k. óska þess, að sú n., sem fær mál þetta til meðferðar, afli ítarlegra umsagna frá þeim aðilum, sem þarna eru nefndir.