02.04.1970
Neðri deild: 67. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í C-deild Alþingistíðinda. (2727)

185. mál, almannatryggingar

Bragi Sigurjónsson:

Herra forseti. Ég vildi bara vekja athygli þd. á, að það er ekki nein smávægileg orðalagsbreyting, sem hér er lögð til. Eins og allir vita, sem hafa fjallað um almannatryggingar og eitthvað við þær starfað, þá hefur það verið frá upphafi svo, að fæðingarstyrkurinn hefur verið greiddur til kvenna, sem börn ala, hvort sem það er í heimahúsum eða á sjúkrahúsi. En sökum breyttra tíma þá hefur það alltaf farið meira og meira í þá átt, að konan hefur kosið að ala barn sitt fremur á sjúkrahúsi en í heimahúsum. Till. Hannibals fjallar í raun og veru um það, að sjúkrasamlögin greiði kostnaðinn á sjúkrahúsunum og fæðingarstyrkurinn sé greiddur að auki áfram. Þetta þýðir 30–35 millj. kr. aukin útgjöld hjá tryggingunum á ári. Og það er ekkert í frv., sem bendir á það, á hvern hátt flm. hugsar sér, að þessum auknu útgjöldum sé mætt.

Svona löguð frv. á enginn þm. að leyfa sér að bera fram, þegar búið er að ganga frá fjárl. Þetta er eintóm sýndarmennska, sem menn eiga ekki að leyfa sér.

Annað, sem ég vildi vekja athygli á, sem var blekkjandi í málflutningi flm. Það var, að fávitar væru undanskildir því að fá greiðslu, ef þeir færu inn á sjúkrahús. Þetta er tekið fram í tryggingunum, vegna þess að áður voru þeir undir ríkisframfærslunni, en hún hefur verið nú með breyttum almannatryggingal. tekin einnig undir almannatryggingarnar. Ég vil, að það komi skýrt fram, að auðvitað fái fávitar eins og aðrir, sem þurfa að dveljast á sjúkrahúsi nú, greitt af hálfu hins opinbera, þ. e. a. s. nú í gegnum tryggingarnar, áður var þetta í gegnum ríkisframfærslu.