06.04.1970
Neðri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 457 í C-deild Alþingistíðinda. (2748)
190. mál, útsvars- og skattfrádráttur aldraðs fólks
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, ábendingar til hv. n., sem ég vil koma á framfæri. Þetta frv. er sýnilega flutt af góðum hug í garð gamla fólksins, og engum er skyldara en mér, sem elztur er í þessari stofnun, að virða það, sem gert er vel í garð þessa fólks, en það er niðurlagið á 1. gr. í þessu frv., sem ég vil gera að umtalsefni. Þar stendur: „Ákvæði þetta gildir ekki um þá, sem hafa með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur.“ Ég tel vafasamt að fara út í þessa sálma að gera mun á þeim, sem reka eitthvert sjálfstætt fyrirtæki og öðrum, hvað þetta snertir. Ég held, að þjóðfélagið hljóti að geta látið hið sama yfir alla ganga, og margir þeirra, sem reka sjálfstæðan atvinnurekstur, eru ekki neinir sérstakir burgeisar, að ég ætla. Ég veit, að hv. þm. munu þekkja marga, sem hafa smáiðnað, smáverkstæði, smáverzlun með höndum, að ég ekki tali um bændur þessa lands, sem eru sjálfstæðir atvinnurekendur og hafa engan lífeyrissjóð. Þeir mundu ekki falla undir þetta frv., en eru þó lægst launaða stéttin í þjóðfélaginu. Ég vil biðja hv. n., sem athugar þetta frv., að gefa því gætur, hvort það sé nauðsynlegt að hafa þetta ákvæði í frv., hvort ekki muni vera fært að láta þetta gilda um alla, sem náð hafa þessu aldursmarki og ekki eru aðilar að lífeyrissjóðum.
Ég býst ekki við, að þetta frv., hvað tekjuskattinn snertir, skipti miklu fyrir allan fjölda þessa fólks, vegna þess að þeir, sem ekkert hafa nema ellilaun eða örorkulífeyri, komast að sjálfsögðu ekki í tekjuskatt, svo að það er enginn ávinningur fyrir þá, sem ekki hafa aðrar tekjur. Það getur verið aftur á móti, að þetta snerti útsvörin hjá því fólki, að það ráði einhverju um það. En aftur á móti nær það til allra annarra, sem hafa aðrar tekjur, svo að þeir geta komizt í skatt.
Það er aðeins þetta, sem ég vil benda þeirri n. á, sem fær málið til meðferðar, hvort ástæða sé til þess að vera að undanskilja þá menn, sem hafa sjálfstæðan atvinnurekstur. Það væri a. m. k. skemmtilegra að láta eitt yfir alla ganga.