06.04.1970
Neðri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 458 í C-deild Alþingistíðinda. (2749)
190. mál, útsvars- og skattfrádráttur aldraðs fólks
Flm. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Þessi aths. hv. 1. þm. Vestf. er meira en réttmæt, og ég var nú aðeins að minnast á, að þetta kynni að vera vafasamt að hafa þetta ákvæði. En stundum eru nú krókavegir hugsananna og kannske tillagnanna nokkuð einkennilegir, því að svo vill til, að þegar ég var að undirbúa þetta mál eða hugsa þetta mál í fyrravetur, þá gekk ég einmitt á fund þessa aldursforseta okkar og margreynda manns, og það var að nokkru og líklega aðallega fyrir hans áeggjan og eftir nokkrar umr. um þetta efni, að ég setti þennan varnagla í frv.
En eftir stendur náttúrlega höfuðatriði þessa máls, sem felst í meginmáli 1. gr. Það er síður en svo, að ég leggi neina höfuðáherzlu á þetta síðasta ákvæði, vegna þess að það getur orkað stórlega tvímælis, og ég vona einmitt, að ef hv. heilbr.- og félmn. fær þetta mál til umr. og vill ræða það af einlægni, þá muni hún komast að því, að hér er um allmikilsvert mál almennt talað að ræða, alveg án tillits til þess, hvað varðar síðustu gr. frv. eða síðasta málsl. 1. gr., og skal ég ekki ræða það frekar.