17.04.1970
Neðri deild: 77. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í C-deild Alþingistíðinda. (2775)
211. mál, siglingalög
Tómas Árnason:
Herra forseti. Ég hef nú ekki kynnt mér þetta mál sérstaklega, en er dálítið kunnugur þessum málum vegna míns starfs og hef flutt mörg björgunarmál af ýmsu tagi og mér sýnist, að í þessu efni vakni þarna kannske einhverjar spurningar, t.d. í fyrsta lagi, hvort það sé skilyrðislaust rétt stefna að akveða það í l., að áhafnir á skipum, sem ríkissjóður eða ríkisstofnanir eiga, eigi ekki rétt á björgunarlaunum í samræmi við það, sem kallað er almennar reglur, heldur aðeins í þeim tilfellum, þegar um stórkostlega neyð sé að ræða. Ég tel þetta dálítið vafasamt og ekki í samræmi við þær reglur, sem gilda í þessum efnum meðal flestra siglingaþjóða.
Mig hefði langað til þess að spyrjast fyrir um það, hvort fyrir lægi samanburður á sjóréttarreglum t.d. grannþjóðanna og þessum reglum, sem ætlað er að taka upp með þessari breyt., því að vitanlega verður að hafa það í huga, að sjórétturinn er alþjóðaréttur, og það getur verið spurning um það, hvort rétt sé, að aðrar reglur gildi hér á landi í þessum efnum en meðal annarra siglingaþjóða. Við skulum t.d. hugsa okkur afmarkað tilfelli. Við skulum hugsa okkur, að tvö skip væru stödd í sjávarháska. Annað væri íslenzkt og háð þeim reglum, sem hér er lagt til, að verði lögfestar. Hins vegar væri erlent skip, sem væri háð allt öðrum reglum, þannig að þar kæmu til stórkostlegar bætur. Það er hætt við, að menn mundu hafa í huga þessa hluti, þegar menn veldu um það, hvort skipið það væri, sem menn vildu leggja sig sérstaklega fram um að bjarga. Í þessu frv. eru nokkur hugtök, sem eru nokkuð óákveðin, eins og t.d. „stórkostleg neyð“, það er ekki skilgreint nánar, né að aðstæður séu „óvenjulega hættulegar“.
Dómstólarnir hafa túlkað l. í þessum efnum, og þeir hafa breytt um stefnu í þessum málum á seinni árum, t.d. Hæstiréttur. Hann hefur t.d. nú upp á síðkastið dæmt lægri björgunarlaun í þeim tilfellum, þegar skip hafa orðið fyrir því að fá veiðarfæri í skrúfuna, svo að nokkuð miklu nemur. Á þessu hefur orðið veruleg breyting, þannig að ég er ekki viss um það, að það sé skynsamlegt að fara miklu lengra í þessum efnum, þegar á allt er litið, og teldi æskilegt, að það væri örugglega borið saman, hvort þessar reglur, sem ætlað er að lögfesta með þessu frv., séu frábrugðnar þeim reglum, sem gilda í þessum efnum, sérstaklega meðal grannþjóða okkar.