28.04.1970
Neðri deild: 88. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í C-deild Alþingistíðinda. (2795)
228. mál, náttúruvernd
Frsm. (Birgir Kjaran):
Herra forseti. Það hefur fallið í minn hlut að fylgja úr hlaði frv. þessu, sem menntmn. flytur að ósk hæstv. menntmrh., frv. til l. um náttúruvernd, sem er 228. mál d. og prentað á þskj. 617. Tildrög málsins eru þessi, sem um getur í grg. frv.:
„Þann 18. apríl 1968 var samþ. á Alþ. eftirfarandi þál. um náttúruvernd, friðun Þingvalla og þjóðgarða:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að láta endurskoða lög nr. 59 1928, um friðun Þingvalla, og lög nr. 48 1956, um náttúruvernd, og semja fyrir næsta reglulegt Alþ. frv. til nýrra l. um náttúruvernd, friðun Þingvalla og þjóðgarða. Endurskoðunin miði að því að auka náttúruvernd og auðvelda almenningi aðgang að heppilegum stöðum til útivistar og náttúruskoðunar. Einnig verði verk- og valdsvið Náttúruverndarráðs og Þingvallanefndar skilgreint sem gleggst“.“
Með bréfi, dags. 28. júní 1968, skipaði menntmrh. n. í tilefni af þál. Í n. voru skipaðir: Birgir Kjaran, formaður, Benedikt Gröndal, Eysteinn Jónsson og Gils Guðmundsson. N. var þegar í upphafi ljóst, að um mikið og vandasamt mál var að fjalla, sökum þess að íslenzk náttúruverndarlöggjöf byggðist á ærið gamalli og að sumu leyti úreltri löggjöf, eða l. um náttúruvernd frá 7. apríl 1956. Þótt þau hafi sem frumsmíð að vísu verið góðra gjalda verð og nokkuð þjónað tilgangi sínum, þá eru þau þó orðin harla úrelt miðað við nýja tíma og staðhætti. Starfstími n. hefur e.t.v. orðið lengri en æskilegt hefði verið, en mér er þó nær að halda, að hún verði ekki sökuð um starfsleysi, heldur hafi frekar valdið, að hún vildi vanda til verksins og afla sem fyllstra gagna og upplýsinga, áður en hún fullmótaði viðhorf sitt í svo veigamiklu máli. Sem formaður n. leyfi ég mér að láta í ljós, að enda þótt ég sé ekki sérlega þingreyndur maður, þá hef ég ekki unnið önnur störf ánægjulegri á vegum þessarar stofnunar eða notið meiri samhugar nm., þótt úr öðrum flokkum væri, en einmitt við samningu þessa frv., og vil ég þakka það.
Þar sem um mjög sérhæfa löggjöf var að fjalla, taldi n. þegar í upphafi nauðsynlegt að afla sér aðstoðar kunnáttumanna, og ég hygg, að þar hafi sérlega vel til tekizt. Sem ritara, framkvæmdastjóra og fræðilegan ráðunaut réð hún dr. Guðmund Sigvaldason jarðfræðing, sem trúlega á einna mestan þátt í efnislegri meðferð málsins og hugmyndamótun. Sem lögfræðilegan ráðunaut réð n. Ragnar Jónsson lögfræðing, sem þegar hafði áður haft töluverða reynslu í réttarstöðu náttúruverndarmála hér á landi sem málsvari Náttúruverndarráðs Íslands í nokkrum ágreinings- og samningamálum. Störf n. fólust í gagnasöfnun og úrvinnslu erlendrar löggjafar, viðræðum og fundum við íslenzk almannasamtök, sem láta sig þessi mál nokkru skipta, og viðræðum við íslenzka sérfræðinga á þeim fjölmörgu sviðum, sem þetta mál kemur beint og óbeint við. Í svo veigamiklu máli sem þessu er því ekki annað eðlilegra en skoðanir í einni n. geti verið deildar um einstök atriði, en leitazt var jafnan við að finna þann meðalveg, sem samstaða tækist um. Enginn nm. kann því að vera alls kostar ánægður með sameiginlega niðurstöðu í smáatriðum, og hverjum frjálst að bera fram sínar brtt. Þá var og n. það ljóst, að þessi mál koma svo víða við hagsmuni og ólíkar hugmyndir manna, að ekki er æskilegt að rasa um ráð fram með samþykkt þeirra, heldur skynsamlegra, að þm. gefist nokkur tími til að skoða þau og ráðfæra sig við umbjóðendur sína um efni frv. Ný náttúruverndarlöggjöf er nefnilega nokkurs konar stjórnarskrárfrumvarp um forvöltun landsins, sem þessi þjóð byggir.
Hins vegar er því ekki að leyna, að þjóðinni má vera töluverður metnaður í, að slíkt frv. skuli vera lagt fyrir Alþ. einmitt á árinu 1970, sem Evrópuráð hefur helgað náttúruvernd í öllum löndum Evrópu eða flestum undir kjörorðinu „maðurinn og náttúran“. Er mér persónulega kunnugt um, að vinna við þetta frv. hefur þegar vakið athygli víða um lönd, og með framgangi málsins er fylgzt af áhuga — af framámönnum vísinda og stjórnmála, ekki einungis í Evrópu, heldur í flestum heimsálfum, ekki sízt vegna þess, að fjölmargar aðrar þjóðir standa nú í sömu sporum og við um að endurskoða löggjöf sína um náttúruvernd og umhverfi mannsins. Og þeir, sem nasasjón hafa fengið af frv. okkar, telja það um margt geta verið þeim stoð í sínu starfi.
Um gerð frv. skal ég ekki fjölyrða. Það skiptist efnislega í 8 kapítula, 38 greinar. Kann að mega um það deila, hvort ekki hefði verið hægt að móta þessa löggjöf í styttra máli, en nm. reyndist það ekki gerlegt, ekki sízt vegna þess, að þeir töldu sér bera skyldu til þess, ekki einungis að benda á það, hvað vernda bæri og hvernig, heldur og að ekki væri ábyrgt að varpa fram slíku stórmáli að þeirra dómi, án þess að einhver ábending væri um það gefin, hvernig tekna skyldi aflað til þess að standa straum af þeim kostnaði, sem af nýbreytninni mundi óhjákvæmilega hljótast.
Það skal þó fúslega játað, að n. gekk hvað erfiðast við að finna tekjustofna til þess að standa undir þessum kostnaði, svo mjög sem allar slíkar lindir hafa áður verið grandskoðaðar og tæmdar af kunnáttumönnum á því sviði. N. er því sá þáttur till. ekkert kappsmál. Aðalatriðið að hennar mati er, að nauðsynlegra fjármuna, sem hún telur sig hafa áætlað mjög varlega, sé aflað með einu eða öðru móti.
Skal þá efni frv. rakið í stórum dráttum. Með vilja er hugtakið náttúruvernd ekki sérlega skilgreint í frv., sökum þess að það er nokkuð almennt í þróun í heiminum. Þó er í grg. frv. gerð tilraun til að skýra það í stórum dráttum, og að einhverju verður reynt hér í þessari framsöguræðu að bæta þar við til frekari glöggvunar.
Í 1. gr. segir svo um hlutverk náttúruverndar: „Tilgangur þessara I. er að stuðla að samskiptum manns og náttúru, þannig að ekki spillist að óþörfu líf eða land, né mengist sjór, vatn eða andrúmsloft. L. eiga að tryggja eftir föngum þróun íslenzkrar náttúru eftir eigin lögmálum, en verndun þess, sem þar er sérstætt eða sögulegt. L. eiga að auðvelda þjóðinni umgengni við náttúru landsins og auka kynni af henni.“
Í 2. gr. er yfirstjórn náttúruverndarmála falin menntmrn. Er það svo sem verið hefur, enda þótt sum mál, sem skyld eru náttúruvernd, séu og verði eftirleiðis, þó að þetta frv. verði að l., verksvið annarra rn. af gildum ástæðum í bili. Þó er það persónuleg skoðun mín, að stefna beri að því að sameina sem flest þessara verkefna undir Náttúruverndarráð, ef því verður ætlað það valdsvið, sem frv. gerir ráð fyrir.
3., 4, og 5. gr. fela í sér gerbreytingu á skipun Náttúruverndarráðs og skipulagningu náttúruverndarmála í landinu í heild. Sérstaklega ber þar að nefna tilkomu náttúruverndarþinga, og allur andi þessara gr. er í senn að gera almenning virkari og áhrifameiri í náttúruverndarmálum en verið hefur, sem og að hafa sem bezta samvinnu við þá embættismenn, stofnanir og félagssamtök, sem ýmist fjalla um rannsóknir landsins, þar með talinn gróður þess, jarðfræði, loftslag, vatnsföll, hafið og landgrunnið, frá líffræðilegum sjónarmiðum og efnahagslegum og fjárhagslegu sjónarmiði þjóðarinnar almennt, því að eiginlega mætti segja, einfaldlega frá mannlegum sjónarmiðum.
Um einstakar gr. frv. mætti fjölyrða. En þær eru svo ítarlega skýrðar í grg., að ég mun reyna að fara svo fljótt yfir sögu sem auðið verður. Eitt meginatriði frv. er þó það að gera Náttúruverndarráð að fastmótaðri stofnun en verið hefur, skapa því betur skilgreind verksvið en gömlu l. gerðu og sjá því fyrir tekjum, sem hrökkva til að standa undir þessum breytingum. Eins og sakir standa er Náttúruverndarráð nánast húsvillt olnbogabarn, sem rekið er af áhugamönnum þóknunarlítið. Frumskilyrði þess, að náttúruverndarmál hér komist eitthvað áleiðis, er, að til þeirra verði veitt meiri fjármunum. Að þeirri hlið málsins verður síðar vikið. En strax má þó geta þess, að hér á landi er aðeins varið broti úr hundraðshluta ríkistekna til náttúruverndar, þar sem í öðrum löndum nemur framlag ríkisins sums staðar í einu eða öðru formi allt frá 3–5%. Auk þess sem víða um lönd koma drjúg fjárframlög frá einstaklingum og meiri háttar fyrirtækjum. Í þessum till. er ekki farið fram á neitt bruðl eða ofrausn, aðeins óskað eftir föstum tekjustofni, sem geri Náttúruverndarráði fært að koma sér fyrir með starfsemi sína í hóflegum húsakynnum, t.d. tveimur til þremur herbergjum, ráða framkvæmdastjóra, skrifstofustúlku eða mann og greiða nauðsynlegan ferðakostnað fyrir framkvæmdastjóra eða aðra fagmenn til athugunar á nauðsynlegum náttúruverndarmálum og stöðum, og þá greiðslu til þjóðgarðsvarða þeirra, er stofnað kann að verða til og faldir verða stjórn Náttúruverndarráðs.
Það er öfgalaust sagt íslenzku þjóðfélagi hneisa, hvernig nú er búið að stjórn íslenzkrar náttúruverndar. Samastað á hún engan, en hefur fengið að halda fundi sína í þröngum húsakynnum Náttúrufræðistofnunarinnar. Bréfaskriftir, innlendar og erlendar, sem eru miklar, hafa verið unnar í sjálfboðavinnu. Nýlega hefur að vísu verið myndazt við að koma sér upp skjalasafni, keyptur skjalaskápur fyrir allmerkilegt skjala- og bréfasafn stofnunarinnar. Móttaka og leiðsaga og risna í sambandi við komu erlendra gesta, fræðimanna og áhrifamanna í alþjóðlegum náttúruverndarstofnunum, svo sem Náttúruverndarráðs Evrópu, „World Wild Life Fund“ og heimsfrægra sérfræðinga, svo sem Peter Scott og Rippleys, hefur ýmist verið greidd úr pyngju nm. sjálfra eða verið leyst með góðviljaðri aðstoð fyrirtækja svo sem flugfélaganna o.fl. Í slíku er ekki hægt að ætla mönnum að standa til lengdar, þó að hugsjónamenn séu á þessu sviði, enda ekki eðlilegt. Nægilegt er, að þeir eyði drjúgum vinnutíma sínum til þessara verka kauplaust eða — lítið, þótt þeir þurfi ekki að borga með sér.
Mikið er nú rætt um íslenzk ferðamál, og hyggja sumir, að þar muni verða um arðvænlegan atvinnuveg að ræða. Er þar mest rætt um farkosti, þjónustu og hótel. Ekki skal lítið úr neinu af þessu gert. En ferðamannastraumur til Íslands verður skammvinn tekjulind, ef ferðalangarnir fá ekki óskir sínar uppfylltar, en þær eru ekki einungis sæmilegur gistiaðbúnaður, heldur öllu fremur að sjá óspillt eyland, eins og Ísland er. Að undanförnu hefur straumur Norður-,Evrópubúa og Ameríkumanna legið mjög til suðlægra landa, Mallorca, Kanaríeyja, Kýpur og landanna fyrir botni Miðjarðarhafs, svo að nokkuð sé nefnt. Nú hafa flestar ferðaskrifstofur þá sögu að segja, að þessi markaður sé allmettaður og hugur ferðalanganna hafi snúizt til norðurs. Ofarlega séu á baugi Ísland, Grænland, Alaska og jafnvel Færeyjar og eyjaklasarnir við norðurstrendur Bretlands. Því er þessum ferðamálum hér skotið inn í, að það er trú mín, að með skynsamlegum hætti megi gera Ísland að ferðamannalandi, og sú tekjulind kunni að geta orðið jafnarðbær og ýmiss konar stóriðja, en stofnkostnaður og fjárfesting minni, en á hinn bóginn launatekjur almennings meiri og jafndreifðari um landið en af ýmsum staðbundnum stórfyrirtækjum, að þeim ólöstuðum.
En undirstaða þess, að Ísland verði í bráð og lengd ferðamannaland, er náttúra og náttúrufegurð landsins, og þar er náttúruverndin bezta haldreipið. Ég legg því ekki eingöngu áherzlu á náttúruvernd í þessu frv. og alls ekki sem neitt tilfinninga- eða hégómamál, heldur engu að síður sem beint efnahagsmál. Og raunar snerta náttúruverndarmálin flesta þætti mannleg lífs. Þar gætir ekki einungis fagurfræðilegra og efnahagslegra sjónarmiða, heldur engu síður félagslegra, sálrænna, vísindalegra, heilbrigðislegra, menningarlegra, uppeldislegra, þjóðlegra og jafnvel pólitískra sjónarmiða, því að það þarf að vernda náttúruna fyrir manninn og fyrir manninum, ekki aðeins vegna okkar, sem lifum í dag, heldur kannske öllu fremur vegna komandi kynslóða.
Náttúruvernd er alþjóðlegt viðfangsefni og mörgum erfiðara en okkur ætti að vera að vinna þar að. Að sögn fjölgar mannfólkinu í heiminum um 200 þúsund á sólarhring. Íbúatala jarðar var áætluð árið 1950 2300 milljónir, 1965 var hún áætluð eða talin 3100 millj., og árið 2000 er gizkað á, að jarðarbúar verði 7400 millj. Íslendingar eru frjósöm þjóð, og fæðingarprósenta hér er ein hin hæsta í Evrópu, eða til jafnaðar 2–2.6%. Þá mun og dánartala vera hin lægsta eða ein hin lægsta, 0.7%. Íslendingum fjölgar því jafnaðarlega árlega um 2000–2500 manns, ef ekki er tekið tillit til útflutnings eða innflutnings fólks. Því er það ekki ósennilegt, að með svipaðri þróun geti tala landsmanna árið 2000 verið komin upp í 375 þús., e.t.v. 400 þús. Að þessu styður og, að meðalaldur fólks lengist hér mjög, mun nú vera um 72–73 ár. Aukinn fólksfjöldi, bættar samgöngur og skemmri vinnuvika beina góðu heilli fleira fólki út í náttúruna til hvíldar og afþreyingar. Náttúran og sú lífsnautn, sem hún getur veitt, verður því í æ ríkara mæli almenningseign. En til þess að svo megi verða, þarf að vernda hana, halda henni óspilltri og kenna almenningi að umgangast hana og virða. Þetta er þess vegna stærra og meira aðkallandi mál en margur heldur. Þess vegna hefur og náttúruverndarhugtakið og hugsjónin víkkað og stækkað með árunum.
Fyrir einni öld, þegar því var fyrst hreyft, fólst aðeins í því vilji til þess að vernda sérstæð náttúrufyrirbæri og einstaka staði. Nú miðast það meira að alhliða samræmingu á viðskiptum manns og lands, samvinnu, en ekki stríði. Maðurinn hefur stært sig af að geta beizlað náttúruöflin sér til aukinna lífsþæginda. En maðurinn má ekki eyðileggja náttúruna sér til tortímingar, því að náttúruvernd er í sjálfu sér fyrst og fremst mannvernd, lífsvernd manneskjunnar sjálfrar. Þess vegna eru náttúruverndarsamtök að sínu leyti nokkurs konar slysavarnarsamtök manna í almennum skilningi.
Við erum vissulega í háska á fleiri en einu sviði, og ef við viljum lifa sæmilegu lífi, ekki aðeins af skaplegu dagkaupi, heldur og hvað heilsu og lífsnautn snertir, megum við ekki eyðileggja umhverfi okkar. Þess vegna er náttúruvernd hagsmunamál, sem kemur bæði þér og mér og okkur öllum við, mengun lofts og lagar, landeyðing, örfok, sorp og rusl á berangri og við bæjardyr, allt eru þetta atriði, sem áhrif hafa á líf okkar og heilsu. Eftir fáeina áratugi kann svo að fara, að skortur verði á góðu neyzluvatni, andrúmsloftið verði blandið eitruðum efnum og jafnvel matvælin líka og byggðinni þannig hagað, að menn geti hvergi leitað sér athvarfs í frjálsri náttúru. Þegar svo er komið, skiptir það í sjálfu sér sáralitlu máli, hvort menn lifa í svokölluðum þjóðfélögum, sem kenna sig við menningu, eða ekki, og raunar aukaatriði, hvers konar þjóðfélag það er, beri heiti lýðræðis eða einræðis, og á þessi vandi jafnt við í vestri sem austri. Allt er þetta alvarlegra og meira aðkallandi nú en fyrr, því að maðurinn hefur nú yfir þeirri tækni að ráða, að hann getur gerbreytt umhverfi sínu og ummótað náttúruna á skemmri tíma en áður og með örlagaríkari afleiðingum. Við megum ekki fórna náttúrunni á altari lífsþægindanna.
Lítum á söguna. Mörg menningarþjóðfélög hafa einmitt liðið undir lok sökum þess, að þau rofnuðu úr sambandi við náttúruna. Söm verða örlög menningar okkar, ef við förum ekki að með aðgát. Ef við rótslítum okkur frá íslenzkri náttúru og verðum bara börn malbiks, ísskápa og hrærivéla, þá fer ekki vel. Hér er ekki verið með neinar hrakspár. Þessi mál hafa verið vísindalega könnuð, og staðreyndir liggja fyrir víða um þá miklu hættu, sem mannkynið er þegar í. Tökum t.d. andrúmsloftið. Árið 1952 varð eitrað andrúmsloft í Bretlandi 4000 manns að bana á fáum dögum. Hundrað tegundir spendýra og álíka margar tegundir fugla hafa dáið út á síðustu öldum, og talið er nú, að 250 tegundir spendýra séu í verulegri hættu. Og menn kunna að segja, að fuglinum færra eða fleira, það skipti ekki öllu, en allt er þetta nú þó það, sem við köllum, að prýða megi náttúruna og umhverfið.
Augu heimsins eru að opnast fyrir náttúruverndarmálunum. Þau eru nú á alþjóðavettvangi talin meðal höfuðverkefna. Sameinuðu þjóðirnar ræða þau og Evrópuráð hefur gegnt sérlegu forystuhlutverki, einmitt á þessu sviði. Það situr sízt á mér að vera með úrtalssemi varðandi atvinnuframkvæmdir á Íslandi og tilraunir til þess að gera íslenzka atvinnuvegi fjölbreyttari og árvissari, orkulindir virkjaðar og iðnvæðing aukin. En við megum bara ekki reikna alla tilveru okkar og tilvist þjóðarinnar í krónum og aurum. Sem betur fer er megnið af orkulindum landsins enn óvirkjað. Virkjun og nýting þeirra kann að vísu að vera dálítið mismunandi dýr, en við megum ekki einblína á þá hlið málsins eina. Sumir eru þeirrar skoðunar, að nokkur þúsund heiðagæsir í Þjórsárverum, hálfur stofn þeirrar tegundar í heiminum, sé jafnt kominn dauður sem lifandi, eða eitt fjölbreyttasta fuglalíf í Evrópu, a.m.k. margbreytilegasta, safn andategunda við Mývatn, megi svo sem fara sína leið, án þess að til stórtíðinda teljist. Þessu er bara ekki þannig varið að dómi síðmenntaðra þjóða. Ég er hræddur um, að síðari kynslóðir mundu fella þungan dóm yfir okkur, ef við yrðum slíku valdandi. Sem betur fer er vaxandi skilningur á meðal Íslendinga á þessum málum. T.d. held ég, að þeir séu nú orðnir tiltölulega fáir, sem ekki þætti það sjónarsviptir, ef þeir 40–50 hafernir, sem enn eru lifandi hér á landi, væru strádrepnir í einu vetfangi. Og mér er spurn: Hver þeirra manna, sem nú situr á hv. Alþ., vildi hafa verið banamaður síðustu geirfuglanna í heiminum, þegar það skeði fyrir einni öld síðan? Og mér er spurn: Við leggjum á okkur, borgara landsins, ýmsan aukakostnað til þess að jafna lífskjörin milli stétta og landshluta. Hví ættum við ekki alveg eins að geta tekið á okkur einhvers konar kostnaðarauka til að vernda náttúru landsins okkar?
Hitt get ég fúslega fallizt á, að rannsakað sé hverju sinni, hvort slíkar verklegar framkvæmdir þurfi að hafa þau áhrif, sem ég og fleiri leikmenn og lærðir óttumst stundum, eða hvort ótti okkar sé ekki á rökum byggður. Því miður hefur sá háttur fram til þessa oftast verið hafður á hér á landi við stórframkvæmdir, að þegar í þær hefur verið ráðizt, hefur ekki verið höfð minnsta hliðsjón eða athugun farið fram á þeim líffræðilegu (bíólógísku) afleiðingum, sem þær geta haft. Sem betur fer virðist nú nokkur breyting vera að verða á þeim hugsunarhætti, og hefur það komið þegar fram í athugunum, sem gerðar hafa verið um Þjórsárver, og sennilega er að vænta skýrslu um, eftir því sem mér skilst.
Svo sem von er til, eða eins og ég gat hér í ræðu minni, er búið að huga betur og lengur að náttúruverndarmálum í flestum löndum Evrópu og ekki síður í Bandaríkjunum en hér á landi. Yrði of langt mál að rekja það hér. En til þess gefst mér svigrúm síðar og á öðrum vettvangi. Þó vil ég aðeins minnast á fáein atriði rétt til minnis fyrir hv. alþm. og umhugsunar.
Svíar standa framarlega á sviði náttúruverndar. Þar er m.a. tekið sérstakt tillit til landslagsins og þeirra breytinga, sem mannvirkjagerð kann að valda á því. Einnig eru þar ströng ákvæði um efnistöku og kvaðir um fjarlægingu hrörlegra og ónýtra mannvirkja, sem valda truflun á fegurð umhverfisins. Þar hafa og m.a. farið fram víðtækar skoðanakannanir á viðhorfum almennings til náttúruverndar, og í því velferðarríki kom fram, að meira en helmingur aðspurðra viðurkenndi, að til þess gæti þurft að koma, að Svíar yrðu að draga úr hagvexti og jafnvel skerða lífskjör sín, ef ekki ætti að verða til tjóns fyrir náttúruna í landinu. Þá var allstór hundraðshluti andvígur auknum vatnsvirkjunum og vildi, að aðrar leiðir væru farnar í orkuvinnslu, m.a. með kjarnorkunotkun og sólarorku við framleiðslu rafmagns. Og mikill meiri hluti þeirra, sem skoðun lét í ljós, sagðist að jafnaði lesa blaðagreinar um náttúruvernd og horfa og hlusta á umr. og fyrirlestra í sjónvarpi og útvarpi um þessi efni. Mál þessi eru og vel skipulögð þar í landi. Í Svíþjóð er starfandi stofnun, sem heitir Statens Naturvårdsverk eða nokkurs konar náttúruverndarstofnun, og að þeirri stofnun starfa hvorki fleiri né færri en 350 manns og þar af mestur hluti sérfræðingar. Geta má þess, að Svíar hafa bannað notkun ýmissa eiturefna við jarðrækt og aðra starfsemi, svo sem t.d. DDT. Mikla áherzlu hafa þeir og lagt á að vernda fjörur sínar og hina löngu strandlengju, að þeim sé ekki spillt með rusli, olíu og öðru slíku.
Finnar hafa lagt mikla áherzlu á að friðlýsa strendur vatna og sjávar, og lagt hefur verið fram frv. um, að mannvirkjagerð sé ekki leyfð nær fjöruborði eða ströndum vatna en 300 metra utan þorpa og borga.
Bretar voru seinir til náttúruverndar, en stigu sporin því stærri, er til kom, og óvíða munu almannasamtök vinna meira að þessum málum en þar í landi. Áætlanir þeirra um aðgerðir á náttúruverndarárinu munu vera einna fjölbreytilegastar allra, a.m.k., sem ég hef séð skýrslur yfir. Brezk náttúruvernd er mjög svo borin uppi af einstaklingum, enda þótt ríkið leggi mikið af mörkum. Við vísindalegar undirstöðurannsóknir að náttúruvernd vinna þar um 300 manns á mismunandi vísindastofnunum. Írar standa framarlega í fuglavernd. Skotar hafa gert langtímaáætlun um náttúruvernd og leggja sérstaka áherzlu á þjálfun manna til náttúruverndarstarfa með námskeiðum og skólahaldi.
Þjóðverjar standa með þeim fremstu í flokki um náttúruvernd, enda var höfundur náttúruverndarhugsjónarinnar, Hugo Wilhelm Conventz, Þjóðverji. Þar í landi eru þessi mál jöfnum höndum verksvið alríkisins, einstakra ríkja, sveitar- og bæjarstjórna og áhugamannasamtaka. Þar í landi eru 950 algerlega friðlýst svæði, sem munu vera að stærð um 1000 hektarar. Leggja þeir ekki aðeins áherzlu á náttúruvernd, Naturschutz, eins og þeir nefna það, heldur og aðhlynningu að náttúrunni eða það, sem þeir nefna Landschaftspflege. Er þar sennilega átt við sandgræðslu og það, sem unnið er gegn uppblæstri og annað slíkt.
Danmörk og Holland, sem eru svo þéttbýl, að hver ekra, og segja má hver þumlungur lands, er fullnýttur, reyna þó að friðlýsa svæði og stofna til þjóðgarða. Í Hollandi eru t.d. 50 fuglafriðunarsvæði.
Í Noregi er öflug frjáls náttúruverndarhreyfing, og vígorð Norðmanna er: „Náttúran er þjóðarsameign“. Þar er gert ráð fyrir, að um allar meiri háttar mannvirkjagerðir sé ráðgazt við náttúruverndaraðila, ef þau efni, sem þar kann að vera um að ræða, að einhverju leyti snerta náttúruna. Í lögum þeirra og reglugerðum eru ýmiss konar ákvæði, m.a. um akstur utan þjóðvega, bílakirkjugarða, auglýsingar í dreifbýli og ótal margt annað, sem kannske virðist ekki stórvægilegt, en hefur þó veruleg áhrif á mótun landslagsins.
Bandaríki Norður-Ameríku urðu einna fyrst til að koma á virkri náttúruvernd með stofnun þjóðgarða. Þjóðgarðurinn í Arkansas var opnaður 1832 og 40 árum síðar, 1872, hinn heimskunni Yellowstonegarður, sem nær yfir hvorki meira né minna en 9 þús. ferkm. Nýverið hefur Nixon forseti lýst yfir, að iðnaðarþjóðirnar ættu ekkert stórvandamál sameiginlegt, sem væri þýðingarmeira en að gera mönnum á þessari öld mögulegt að lifa í samræmi og sátt við umhverfi sitt, að gera manninum fært að móta hinn nýja heim þannig, að lifandi væri í honum hamingjusömu lífi í sátt við umhverfi sitt og náttúruna.
Mér er tjáð, að í Rússlandi sé unnið ötullega að náttúruvernd. Hins vegar get ég því miður ekki greint nánar frá þeim aðgerðum, því að þau gögn, sem n. bárust um þau efni, voru öll á rússnesku, en á hana voru nm. því miður ekki læsir.
Þetta handahófsyfirlit er auðvitað hvergi nærri tæmandi um þetta umfangsmilda mál, sem nú hefur verið sett á oddinn hjá Evrópuráðinu, sem efndi til fundar um það í febrúar s.l. í Strassburg. Þann fund sátu 17 ríki Evrópuráðsins og 10 önnur Evrópuríki að auki, 54 alþjóðlegar stofnanir og samtök áttu þar fulltrúa. Fyrir Íslands hönd sótti Eyþór Einarsson náttúrufræðingur fundinn, og hefur hann gefið Náttúruverndarráði skýrslu um það, sem þar fór fram. Fundurinn samþykkti ályktun, sem þýdd hefur verið á íslenzku, en því miður hefur ekki gefizt tími til að prenta hana og láta alþm. eða fréttastofnunum í té, en það mun verða gert fljótlega. Er þetta enn sem komið er aðeins óbindandi stefnuyfirlýsing, sem samþ. var samhljóða, en ekki er ólíklegt, að hún eigi eftir fyrr eða síðar að koma fram á löggjafarsamkundum þjóðanna.
Hér á landi hefur þau 13 ár, sem Náttúruverndarráð hefur starfað, nokkuð verið unnið að náttúruvernd og fáein svæði verið friðlýst, svo sem Eldey vegna súlubyggðarinnar, sem er sú stærsta í heimi, Hveravellir vegna hinna fögru hvera, Helgafell í Vestmannaeyjum, Grábrók í Borgarfirði, Rauðhólar, þótt um seinan væri, Surtsey og svo náttúrufyrirbæri, svo sem dropasteinar í hellum og 25 tegundir sjaldgæfra íslenzkra jurta. Ýmsir fuglar, haförn, fálki, æðarfugl og fleiri, hafa verið alfriðaðir. Viðhald hreindýrastofnsins, sem mun vera um 2000–2500 dýr, hefur verið tryggður með takmörkuðum veiðum. Merkir áfangar í íslenzkri náttúruvernd eru og stofnun þjóðgarðsins á Þingvöllum 1930 og kaupin á Skaftafelli í Öræfum á sínum tíma með aðstoð Wild Life Fund. Öll er þessi starfsemi hér á landi þó enn á byrjunarstigi, en þó er þjóðinni að verða æ ljósara, að samskipti mannsins við náttúruna eru mikilsverð, og menn þurfa í senn að nýta landið, að rækta landið, að græða landið, að klæða landið og vernda náttúru þess. Að því síðast talda á þetta frv. um náttúruvernd að stefna. Þar sem frv. þetta er flutt og unnið af mþn., tel ég ástæðu til og nauðsynlegt, að því verði að þessum umr. loknum vísað til 2. umr. og menntmn. d.
Varðandi fyrri hluta verksins, sem þessari mþn. var ætlað, sem var löggjöf eða frv. um þjóðgarðinn á Þingvöllum, þá mun verða unnið að því seinni part sumars og vonandi hægt að leggja hér fram frv. á komandi hausti.