27.10.1969
Efri deild: 6. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í C-deild Alþingistíðinda. (2803)
31. mál, rannsóknarstofnun skólamála
Flm. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Ég hef nú út af fyrir sig ekki miklu við það að bæta, sem ég sagði hér í framsöguræðu minni. Mér er það vissulega ljóst og hefur verið frá því, að ég fór að hugleiða þessi mál, að það er hægt að skipa þeim með ýmsu móti, og sú hefur raunin á orðið hér, að sveitarfélögin hafa almennt tekið að sér sálfræðiþjónustuna í skólunum. En við þurfum ekki annað en fara yfir það í huganum, hvar þessi sálfræðiþjónusta er framkvæmd í skólahéruðum og fræðsluhéruðum okkar lands, til þess að sjá það, að þetta fyrirkomulag er ekki fullnægjandi. Með því fyrirkomulagi, sem hér hefur viðgengizt, hefur sálfræðiþjónusta átt sér stað í Reykjavík, og ég er búinn að lýsa henni með orðum forstöðumanns skólarannsóknardeildarinnar, hversu fullkomin hún er, og það er verið að byrja á því í Reykjaneskjördæmi, að einn sálfræðingur ferðast á milli skólanna þar til þess að inna þessa þjónustu af höndum. Hæstv. menntmrh. bætti því við, að fyrir nokkrum árum hefði verið skólaþjónusta í Kópavogi. Það er sjálfsagt að gleyma því ekki. En annars staðar á landinu er þessi þjónusta ekki til, og ég tel, að það sýni það alveg glöggt, svo að varla verði um deilt, að með því að fela sveitarfélögum þetta verkefni, án þess að ríkissjóður taki með einhverju móti þátt í því, þá verður engin sálfræðiþjónusta í fjölmörgum skólum hér á landi frekar en nú er, einfaldlega vegna þess að fræðsluhéraðið hefur ekki bolmagn til þess að standa undir henni. Það er alveg rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að skólakostnaðarlögin gera ekki ráð fyrir því, að sálfræðiþjónustan sé kostuð af ríkinu. M.a. þess vegna er nauðsyn á frv. eins og þessu, og jafnvel þó að fjármagn sé nú veitt til sálfræðiþjónustunnar í tilteknum fræðsluhéruðum, eins og þó hefur verið gert í Reykjavík, þá kvarta forstöðumennirnir og starfsmennirnir undan því, að réttarstaða þeirra sé ekki nægilega tryggð. Þeir segja, að þetta hvíli á örfáum setningum í fræðslusamþykkt Reykjavíkurborgar. Og þeir kvarta undan því, að bæði foreldrar og nemendur taki ekki eins mikið tillit til þeirra og þurfi, vegna þess að það vanti þá opinberu viðurkenningu, sem þetta frv. er að fara fram á. Vitanlega er ég sammála hæstv. menntmrh. um það, að það má koma þessum málum fyrir á ýmsan veg. Og það getur hugsazt, ég er ekki að segja það, það getur vel hugsazt, að sú leið, sem fara ætti, væri frekar sú að taka sálfræðiþjónustu í skólum, utan stærstu fræðsluhéraðanna a.m.k., inn á skólakostnaðarlög, þannig að framkvæmdin væri í höndum fræðsluhéraðanna. En ég hygg þó, að það verði hagkvæmast að koma þessu fyrir eitthvað svipað því og það frv., sem ég var hér að mæla fyrir, gerir ráð fyrir.
Í grg., hygg ég, að ég hafi talað um það sem möguleika og möguleika, sem ég vonaðist til þess, að yrði veruleiki líka, að fræðsluhéruðin héldu áfram uppi sálfræðiþjónustu í svo ríkum mæli, sem þörf kallar á. Það er síður en svo verið að útiloka það með þessu frv. Hér er aðeins verið að tala um það, að það þurfi að vera ráðgefandi stofnun, sem skólahéruðin geta leitað til og sem þeir starfandi sálfræðingar, sem fyrir kunna að vera á vegum skólastjórnanna, geti leitað til. Og svo er það að athuga í þessu máli líka, að það þarf að gera meira en að benda á veilurnar. Það þarf að vera unnt að ráða bót á þeim. Og ég hygg, að einn skólasálfræðingur, sem starfar í víðlendu héraði á vegum margra skólahéraða og fræðsluyfirvalda, hafi tæpast tök á því að gera meira en að finna veilurnar, og þarf þá ekki einmitt að vera til einhver stofnun, sem getur tekið við og bætt úr þeim veilum, sem þessir menn finna í sínu starfi? Ég held það.
Annars endurtek ég það, að ég tel ekki, að við flm. höfum fundið þá einu réttu lausn á þessu máli, sem engin önnur geti komið til greina. Því fer víðs fjarri. Við erum áreiðanlega allir, ég hygg, að ég megi tala fyrir munn okkar allra, mjög fúsir til samstarfs um þessi mál og til breytinga á þessu frv., sem til bóta kunna að leiða. En aðalatriðið er, að þetta mál verður að taka fastari tökum en gert hefur verið.
Ég skal svo láta þessum orðum lokið. Ég fagna því, að skólarannsóknir eiga ekki að falla niður, þó að Andri Ísaksson hafi þurft að fullnuma sig eitthvað frekar. Ég er mjög ánægður með það, að t.d. náttúrufræðikennslan verði tekin til athugunar, svo að það þurfi ekki að endurtaka sig, sem einn skólamaður sagði mér um daginn, að bæði í barnaskólanum og neðri deild unglingaskólans hefði verið sama spurningin í náttúrufræðinni: Hvorum megin er andagatið á svarta sniglinum?