13.04.1970
Efri deild: 68. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í C-deild Alþingistíðinda. (2920)

207. mál, Seðlabanki Íslands

Flm. (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Enda þótt þetta frv. á þskj. 502 sé ekki langt, aðeins í rauninni ein tiltölulega stutt gr., þá er það býsna efnismikið og gefur vissulega tilefni til þess að ræða um ýmis atriði í sambandi við þróun verðlags og peningamála og raunar stjórnmálaþróunina yfirleitt á allmörgum undanförnum árum. En með tilliti til þess, að með frv. fylgir allítarleg grg., þá tel ég, að ég geti nú stytt mál mitt nokkuð, en þó sé ég ástæðu til að víkja að ýmsum forsendum þess, að ég flyt þetta frv.

Það er ljóst, hvað í þessu frv. felst. Það er í stuttu máli að flytja ákvörðunarvald um stofngengi íslenzkrar krónu gagnvart erlendum gjaldeyri frá Seðlabanka Íslands og til Alþ., þar sem þetta vald var lengst af. Flutningur þessa máls gefur, eins og ég áðan sagði, tilefni til þess að rifja upp, hvernig ástatt var hér í íslenzku þjóðfélagi, þegar Seðlabankanum var fengið þetta vald í hendur, og með hvaða hætti það gerðist.

Það muna margir, að á árinu 1959, — því ári, sem segja má, að væri undanfari þess stjórnarsamstarfs, sem hófst 1960 og staðið hefur alla tíð síðan, — var framkvæmd stöðvun kaupgjalds og verðlags af þeirri ríkisstjórn, sem þá sat, og jafnframt var á því ári framkvæmd allnokkur launaskerðing. Síðan, eftir að núverandi ríkisstjórn hafði séð dagsins ljós, fór hér fram stórfelld gengisfelling ,snemma árs 1960. Eins og jafnan, þegar um mikilsháttar gengisfellingar hefur verið að ræða, þá hækkaði verðlag allt í kjölfar þessarar gengisfellingar, og það var talið, að á árinu 1959 og 1960 hefði orðið um að ræða a.m.k. 25% launaskerðingu almennings. Launastéttirnar voru þó að segja mátti býsna rólegar á þessum tímum og töldu rétt, að það kæmi rækilega f ljós, hver áhrif gengisfellingarinnar 1960 yrðu, og þar með fengist nokkur reynsla af þeirri stjórnarstefnu, sem þá hafði verið upp tekin og kennd var við viðreisn. Það var ekki fyrr en vorið 1961, að verkalýðshreyfingin ákvað að hefjast handa og freista þess að rétta hlut sinn, eftir að alþýðustéttirnar höfðu á árunum 1959 og 1960 orðið fyrir launaskerðingu, sem nam um 25%, eins og ég áður sagði.

Það fór svo, að samningar náðust ekki milli verkalýðsfélaga og atvinnurekenda, og almenn verkföll hófust í maímánuði þetta ár. Þá gerist það, eftir að verkföll hafa staðið stuttan tíma, sem þótti verulegum tíðindum sæta, að tvær sterkustu félagsmálahreyfingarnar, hreyfingar almennings hér á landi, samvinnuhreyfingin og verkalýðshreyfingin, báru þá gæfu til þess að taka upp samvinnu í sambandi við lausn kjaramálanna, og snemma í júnímánuði, eftir að verkfall hafði staðið í stuttan tíma, semja Vinnumálasamband Sambands Ísl. samvinnufélaga og ýmis kaupfélög, þar á meðal Kaupfélag Eyfirðinga, við verkalýðsfélögin á viðkomandi stöðum um 10–13% kauphækkun, um 6% orlof og um ýmsar fleiri réttarbætur félögum i verkalýðshreyfingunni til handa, þar á meðal um 1% af útborguðum vinnulaunum í sjúkrasjóði verkalýðsfélaga.

Þetta samkomulag þessara aðila, samvinnuhreyfingarinnar og verkalýðshreyfingarinnar, var í rauninni stórtíðindi, og ýmsir vonuðu, að önnur og meiri mundu á eftir fara. Það var vissulega atburður, sem hlaut að vekja athygli, þegar þessar tvær langstærstu og öflugustu almannahreyfingar tóku þarna höndum saman til þess að leysa mjög víðtækt verkfall vorið 1961. Í rauninni var þetta stórpólitískur viðburður, og hefði betur farið, ef framhald hefði orðið á því heillavænlega samstarfi, sem þarna var hafið. En eftir að samvinnuhreyfingin og verkalýðshreyfingin höfðu samið og eftir að verkföllum hafði verið aflýst á Norðurlandi og að nokkru leyti hér á Suðurlandi við samvinnuhreyfinguna, þá héldu enn .þá áfram verkföll, vegna þess að þeir atvinnurekendur, sem voru í Vinnuveitendafélaginu, harðneituðu að semja. Þessi deila stóð lengi, eða um það bil mánuð, og harðast og lengst var deilt um sjúkrasjóðina og yfirráðin yfir þeim. Þessu mikla verkfalli lauk svo hinn 29. júní, eftir að það hafði staðið um mánaðartíma eða þar um bil.

Nú er það alkunna, að ríkisstjórnin, viðreisnarstjórnin, sem þá var á öðru ári stjórnarferils síns, undi þessum úrslitum ákaflega illa, enda þótt hér væri ekki um annað að ræða en það, að verkalýðshreyfingin hafði náð samningum um 10 –13% kjarabætur eftir að hafa orðið að taka á sig kjaraskerðingu, sem nam um 25% á tveimur undanförnum árum. En þessu vildi ríkisstjórnin ekki una, og það mun hafa verið vegna þess, að ríkisstjórnin gat ekki eða taldi sig ekki geta unað því, að verkalýðshreyfingin næði þessum kjarabótum, að farið var að hugsa til þess, á hvern hátt þeim yrði náð aftur af launastéttunum. Og það mun hafa verið nokkur fyrirstaða, að því er ég hygg, meðal stjórnarliða, að því er snertir að ná þeim aftur með einu pennastriki, með gengisfellingu. En þá er það sem hæstv. ríkisstjórn og ráðunautar hennar í fjármálum taka upp á því snjallræði frá sínu sjónarmiði séð að taka með brbl. gengisákvörðunarvaldið af Alþ., sem hafði haft þetta vald, og flytja það yfir til Seðlabankans. Þetta var gert með brbl. frá 1. ágúst 1961, og gengislækkun var síðan ákveðin af Seðlabankanum hinn 4. ágúst um rúmlega 13%. Þessi gengisfelling í ágústmánuði 1961 með þeim atvikum, sem hún varð, og þá sérstaklega um að flytja valdið til gengisbreytinga olli miklum deilum, sem ég mun ekki rifja upp hér, en vísa til þess, sem segir um það efni í grg. þessa frv.

Ég skal aðeins á það minna, að í sambandi við forsendur brbl. frá 1961 er sérstaklega lögð áherzla á, að það sé handhægara, eins og það mun hafa verið orðað í umr., og einfaldara að hafa gengisskráningarvaldið í höndum Seðlabankans en að verða að leita til Alþ. hverju sinni til að koma fram gengisbreytingu. Ég lít svo á, að hér sé síður en svo um að ræða meðmæli með því fyrirkomulagi, að Seðlabankastjórn og þá ríkisstjórn hafi þetta mikilvæga vald með höndum, en Alþ. .eigi þar ekki um að fjalla.

Ég skal ekki fara mörgum orðum, eins og ég áðan sagði, um þær deilur, sem uppi voru 1961, um það, hvort sú ákvörðun að flytja gengisskráningarvaldið með brbl. hafi verið rétt stjórnvaldaathöfn samkv. stjskr. eða stjórnarskrárbrot. Um þetta var deilt, og ekki get ég annað sagt en að mér virðist, að full rök hafi verið færð að því, að þetta stappaði a.m.k. mjög nærri brotum á ákveðinni gr. stjskr., hafi það ekki verið beint stjórnarskrárbrot. En um þetta efni skal ég að öðru leyti vísa til grg. fyrir frv., sem fjallar nokkru nánar um þetta atriði.

Það þarf ekki um það að fjölyrða, að rétturinn til þess að ákvarða gengi felur í sér ákaflega mikið vald, og sá aðili, sem hefur slíkt vald, getur svo að segja á einni dagsstund flutt til fjármuni í þjóðfélaginu milli einstaklinga og starfshópa, svo að hundruðum milljóna og jafnvel milljörðum króna skiptir. Með slíku valdi er vissulega hægt að raska verulega þeirri tekjuskiptingu, sem samið hefur verið um í frjálsum samningum, og sömuleiðis má með slíku valdi raska verulega ýmsum beinum ákvörðunum Alþ., ef ekki fara saman skoðanir Alþ. og þeirra, sem með ákvörðunarvaldið í gengismálum fara.

Ég lít þannig á, að slíkt vald sem þetta eigi hvergi að vera nema í höndum Al,þ. Ég tel, að það séu einmitt þungvæg rök fyrir því, að Alþ. eigi að hafa þetta vald, en ekki Seðlabankinn, að það á ekki að vera neitt þægilegt verk eða fljótlegt eða létt að breyta genginu. Það á ekki að vera hægt að nota slíkt vald, eins og hefur borið á, að gert hafi verið, sem hótun, t.a.m. hótun gagnvart verkalýðshreyfingunni um það, að ef hún nái fram við atvinnurekendur i frjálsum samningum þeim kjörum, sem handhafar gengisskráningarvaldsins vilja ekki una, að þá sé hægt með einu pennastriki að raska öllum samningum og breyta öllum hlutföllum með því einungis að fella gengið. Þetta á að mínum dómi ekki að vera hægt að gera. Slíkt sverð á ekki að hanga yfir þeim aðilum, sem ganga til frjálsra samninga um kaup og kjör, að hægt sé á einni dagsstund að ómerkja að meira eða minna leyti niðurstöður af því, sem um kann að semjast.

Í grg. þessa frv., sem ég mæli nú fyrir, er skýrt frá því og vitnað til nokkurra dæma um það, að annar stjórnarflokkurinn, Alþfl., hafi lengi verið þess sinnis, að Alþ. ætti að hafa þetta vald, en ekki Seðlabanki eða Landsbanki. Árið 1950, eftir gengisfellingu, sem þá var gerð, þá töldu þáverandi stjórnarflokkar rétt að flytja þetta gengisskráningarvald frá Alþ. til Landsbankans, sem þá hafði jafnframt seðlaútgáfuréttinn. Gegn þessu risu ýmsir, og þ. á m. Alþfl. allur og það mjög eindregið og ákveðið, og það voru einmitt forystumenn Alþfl., sem þá lögðu á það mjög ríka áherzlu, að við það væri ekki unandi, að bankavaldið í landinu gæti notað gengisskráningarvaldið til þess að hóta eða ógna verkalýðshreyfingu og atvinnurekendum og frjálsum samningsrétti þeirra með því að breyta nýgerðum samningum með gengisbreytingu, eins og raunverulega var gert sumarið 1961.

Ég hef talið rétt, að flytja þetta frv. nú og láta á það reyna, hver er vilji a.m.k. þessarar hv. d. í sambandi við þetta mál. Ég geri það ekki sízt vegna þess, að nú að undanförnu hafa verkalýðsfélögin almennt verið að segja upp samningum, og það er vitað, að almennir kjarasamningar hljóta að fara fram nú í vor. Það er viðurkennt, að ég vil segja, af flestum eða öllum, þar á meðal af ýmsum áhrifamönnum í liði stjórnarflokkanna, að svo mikil hafi kjaraskerðing undanfarinna ára verið, að því er snertir allan almenning í landinu, að hann hljóti að eiga rétt á því að fá hag sinn eitthvað bættan við samningagerð nú, og það er einnig viðurkennt, að hagur atvinnuveganna hafi batnað svo mikið, að þetta sé kleift, að vissu marki a.m.k. Hitt verður svo trúlega, eins og oftast áður, deiluefni, hversu sem til tekst að leysa slíkar deilur, hvað atvinnuvegirnir væru taldir þola miklar kauphækkanir nú. Ég geri ráð fyrir, að um það verði skoðanir skiptar, eins og oft áður, enda þótt ekki liggi nú fyrir neitt ákveðið um það.

Ég legg áherzlu á, að það verður að teljast óeðlileg samningsaðstaða, ef viðsemjendur um kaup og kjör og frjálsa samninga eiga það stöðugt á hættu, að Seðlabankastjórn og ríkisstjórn komi að samningum loknum og segi: „Þessir samningar, sem þið hafið gert, herrar mínir, atvinnurekendur og verkalýðsfélög, eru á þann veg, að við erum ekki ánægðir með þá, og þess vegna ætlum við að breyta niðurstöðum þeirra og við gerum það með gengisbreytingum.“ Það er óneitanlega örðugt að ganga til samningsgerðar undir slíkum kringumstæðum.

Nú má að vísu segja, að þó að valdið til gengisskráningar verði aftur fært til Alþ., þá sé það engin trygging fyrir því, að þessu mikla valdi verði ekki einhvern tíma beitt, án þess að knýjandi nauðsyn beri til. Þetta er að vísu rétt, en þó held ég, að hitt megi teljast alveg ótvírætt, að með því að fela Alþ. þetta mikla vald á nýjan leik, þ.e.a.s., að ákvarða gengisskráningu með l., þá geri það gengisbreytingar heldur erfiðari viðfangs, heldur viðurhlutameiri en ella, og að menn hugsi sig e.t.v. tvisvar um, áður en út í slíkt er farið. Það tel ég vissulega kost, en ekki löst, því að hvað sem öðru líður, þá held ég, að menn ættu að geta orðið nokkuð almennt sammála um það, að gengisbreyting, án þess að mjög brýn og knýjandi nauðsyn sé fyrir hendi, sé jafnan af hinu illa, og þó verst, þegar þannig er ástatt, að hún sé knúin fram með offorsi og jafnvel í reiðikasti án sérstaks og knýjandi tilefnis, eins og ég tel og margir fleiri, að orðið hafi sumarið 1961 sællar minningar.

Herra forseti. Ég skal svo ekki hafa þessi orð öllu fleiri, en æski þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og væntanlega hv. fjhn.