18.12.1969
Sameinað þing: 26. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í D-deild Alþingistíðinda. (2949)
117. mál, aðild Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu
Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):
Herra forseti. Utanrmn. Alþ. hefur haft til meðferðar till. til þál. um aðild Íslands að Fríverzlunarsamtökum Evrópu. Hefur n. rætt málið á tveim fundum. Fundina sátu auk nm. hæstv. viðskmrh., Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri, Einar Benediktsson deildarstjóri og ritari n., Pétur Thorsteinsson ráðuneytisstjóri. Þótt fleiri nefndarfundir hafi ekki verið haldnir um málið, held ég, að enginn nm. hafi sakazt um það, sökum þess að fulltrúum allra flokka hafði verið gefinn kostur á að fylgjast með gangi málsins allt frá upphafi, enda óskaði enginn nm. eftir frekari fundahöldum um málið. Að lokum hlaut málið þá afgreiðslu í n., að meiri hl. leggur til, að till. verði samþ. óbreytt. Fulltrúar Framsfl. vilja vísa till. frá, eins og fram kemur á þskj. 209, með rökstuddri dagskrá, sem felur í sér frestun málsins. Og fulltrúi Alþb. leggur til á þskj. 207, að þjóðaratkvgr. fari fram um aðild Íslands að Fríverzlunarsamtökunum, ella verði till. felld.
Rökstuðningur meiri hl. liggur fyrir í grg. þeirri, sem í nál. felst, en þar sem um svo veigamikið mál er að ræða og því miður mál, sem almenningi hefur e.t.v. ekki verið kynnt nægilega vel, sé ég ástæðu til þess að rekja sögu þess og efni nokkru nánar.
Undanfarinn áratug hefur afstaða okkar Íslendinga til markaðsbandalaganna í Evrópu oft verið til umr. Við eigum nálægt 60% utanríkisviðskipta okkar við þjóðir Vestur-Evrópu, en þeirra á meðal eru þau ríki, sem Ísland hefur, og hlýtur að vilja hafa, nánust tengsl og samvinnu við. Vestur-Evrópa er nú klofin í tvö viðskiptahandalög, eins og kunnugt er, og hefur það torveldað ákvörðun um afstöðu okkar Íslendinga. Framan af þessum áratug var efnahagsástandið hér á landi slíkt, að mönnum þótti síður brýnt mál en nú, að Ísland ætti aðild að frjálsum markaði. En þegar sú staðreynd blasir við annars vegar, að fiskistofnar í Norður-Atlantshafi eru almennt ofveiddir, og hins vegar, að vinnufæru fólki hér á landi mun fjölga mjög ört og örar en sem nemur hugsanlegum vexti í fiskveiðum og vinnslu eða landbúnaði, hafa viðhorfin tekið að breytast, og huga verður að nýjum útflutningsatvinnuvegum, Íslendingum er það nú beinlínis lífsnauðsyn, að framleiðsla til útflutnings geti verið mikil, fjölbreytt og vaxandi. Það hefur t.d. verið reiknað, að ef raunvirði þjóðarframleiðslunnar á mann eigi að vaxa um 3–4% á ári, þurfi útflutningurinn að aukast um 6–7%. Slíkum árangri verður ekki náð, nema því aðeins að Ísland sé aðili að stórum, tollfrjálsum markaði. Þó ber ekki að skilja þetta svo, að slík bætt markaðsaðstaða tryggi sjálfkrafa hagstæða lausn vandamálanna í heild. En lausnin verður þó auðveldari með þeim hætti. Það, sem einkum ræður hér úrslitum, er, hvernig fríverzlunin kemur til með að vera í framkvæmd, og hvernig við Íslendingar notfærum okkur þau tækifæri, sem hún kann að skapa. Lítum því fordómalaust á niðurstöðu þeirra samninga, sem ríkisstj. hefur gert um aðild að Fríverzlunarsamtökum Evrópu.
Ísland fær tækifæri til hægfara aðlögunar að fríverzluninni með 10 ára aðlögunartímabili til afnáms tolla og 5 ára til afnáms þeirra fáu hafta, sem enn eru fyrir hendi. Þýðingarmikið er, að eftir nokkuð ríflega tollalækkun í byrjun verður hlé á í fjögur ár á lækkun verðtollanna. Þennan tíma mun nettóvernd iðnaðarins verða mikið til óbreytt, því að ríkisstj. leggur til í sérstöku tollafrv., að tollar á iðnaðarhráefnum og vélum lækki meir en verndartollarnir. Strax við inngöngu í bandalagið njótum við hins vegar tollfrelsis fyrir útflutning okkar, sem EFTA-samningurinn nær til. Á þessum fjórum árum, sem vernd iðnaðarins helzt mikið til óbreytt, fær hann til ráðstöfunar í uppbyggingarskyni stofnfé Norræna iðnþróunarsjóðsins, sem nemur rúmlega 1200 millj. kr. Við bindum verulegar vonir við starfsemi þessa sjóðs, sem frændþjóðir okkar leggja til af mikilli rausn.
Þau atriði, sem ég hef lýst hér, tel ég hagkvæma lausn okkar mála, sem gefi góðar vonir um árangur á iðnaðarsviðinu, þar sem Íslendingar hafa verið og verða í vaxandi mæli að hasla sér nýjan völl.
Þá eru áhrifin á hina hefðbundnu höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar, sjávarútveg og landbúnað, einvörðungu hagstæð, að því er bezt verður séð. Svo sem kunnugt er, hefur samizt við Breta um lágmarksverðkerfi fyrir freðfisk á brezka markaðinum, og leysir það af hólmi fyrra fyrirkomulag um innflutning freðfisks í Bretlandi. Samkv. þessu samkomulagi mun Ísland sem aðili að Fríverzlunarsamtökunum fá tollfrjálsan og haftalausan aðgang að þessum markaði, og mun það vafalaust hafa framtíðarþýðingu fyrir útflutninginn. Hitt er ekki ómerkara atriði, að með þessu samkomulagi er stuðlað að hækkandi og stöðugra verðlagi á þessari framleiðslu á heimsmarkaðinum almennt. Það er kunnugt, að við sem aðrar freðfisksframleiðendaþjóðir biðum tilfinnanlegt tjón af verðfallinu, sem varð árið 1966, og hefur raunar áður skeð. Auk tollfrelsis fyrir freðfisk mundi sjávarútvegurinn njóta tollfrelsis fyrir lýsi og mjöl, svo og niðursoðnar og niðurlagðar sjávarafurðir, auk frystrar rækju og hvalafurða, ef Ísland gerist aðili að Fríverzlunarsamtökunum.
Þá er þess og að geta, að við höldum óskertu núverandi fyrirkomulagi á sölu til landanna í Austur-Evrópu, en þar er fyrst og fremst um að ræða sjávarafurðir, því að okkur er heimilað að beina kaupum okkur á olíum og benzíni til þessara landa, eins og áður hefur verið, og þá fyrst og fremst til Sovétríkjanna.
Hvað íslenzkan landbúnað snertir, er það að segja, að aðstaða hans til sölu á búvörum á íslenzka markaðinum breytist ekki við þessa samningsgerð. Hins vegar hafa verið gerðir samningar við öll Norðurlöndin um sölu á kindakjöti, sem hingað til hefur mætt hindrunum við innflutning til þessara landa. Fæst með þessu móti mun hærra verð fyrir þennan útflutning okkar.
Þetta eru e.t.v. aðalatriðin í aðildarsamningsgerðinni, sem nú liggur fyrir Alþ. Meiri hl. utanrmn. er meðmæltur því, að Ísland gerist aðili að Fríverzlunarsamtökum Evrópu með þessum kjörum, sem við teljum í senn hagstæð og hentug í alla staði. Í þessu sambandi vil ég taka fram, að ég tel ekki, eins og kemur fram hjá andstæðingum aðildar að Fríverzlunarsamtökunum, að til viðbótar við þau skilyrði, sem sett voru af Íslands hálfu og gengið var að af Fríverzlunarsamtökunum, hefðu þurft að koma til ákvæði um fyrirvara gagnvart því, sem í 16. gr. stofnsamningsins stendur og lýtur að atvinnurekstri og atvinnuréttindum, því að með þeim lagabreytingum, sem ríkisstj. leggur til, að gerðar séu á lögum um iðju og iðnað og verzlunaratvinnu, er fyllilega tryggt og tryggilega frá því gengið, að íslenzk stjórnvöld hafa það algerlega í sinni hendi, hvaða aðilar stundi atvinnurekstur hér á landi. Það er í sjálfu sér skiljanlegt, að hjá þjóð sem okkur Íslendingum geti gætt tortryggni í garð útlendinga, og ég tala ekki um stórvelda, og samstarfs við þá. En víst er um það, að við höfum sérstöðu sem lítil þjóð. En slíkur hugsunarháttur má ekki leiða menn í þær öfgar, að við einangrum okkur og útilokum okkur sjálfir frá samstarfi, sem er gagnlegt, en felur engar slíkar hættur í sér. Í þessu sambandi má minnast þess, að sumir vildu á sínum tíma halda því fram, að Íslendingar mundu glata sjálfstæði sínu við að þiggja Marshall-aðstoðina frá Bandaríkjunum, sem og aðrar þjóðir Evrópu þáðu á sínum tíma. Þá var það líka sagt hér áður fyrr, að með sambandslagasamningnum mundu íslenzk atvinnufyrirtæki að verulegu leyti lenda í eigu Dana. Hvort tveggja þetta reyndist alrangt. Íslendingar geta síður en aðrar þjóðir búið við einangrun. Með þátttöku í Fríverzlunarsamtökunum hygg ég, að við getum einmitt aflað okkur ýmissar þeirrar kunnáttu af öðrum, sem er nauðsynleg, ef frekari atvinnuuppbygging á að eiga sér stað í þessu landi og inn á nýjar brautir farið.
Aðild að Fríverzlunarsamtökunum er ekki hvað sízt þýðingarmikil vegna þess, að með henni treysta Íslendingar bönd sín við hin Norðurlöndin til mikilla muna. Menn mega ekki gleyma því, að Norðurlandasamstarfið hefur hin síðari árin einkum verið á viðskipta- og efnahagssviðinu vegna þátttöku Norðurlandanna fjögurra í Fríverzlunarsamtökunum. Þetta samstarf þeirra hefur valdið því, að Ísland hefur að vissu leyti á þessu sviði fjarlægzt Norðurlönd. Ég á satt að segja býsna erfitt með að skilja þá afstöðu, sem hefur komið fram hjá sumum hv. stjórnarandstæðingum, að Ísland eigi að nálgast Norðurlandasamstarfið sem mest, en þó ekki að ganga í Fríverzlunarsamtökin. En það er einmitt á þeim, sem þetta samstarf grundvallast í vaxandi mæli. Ef Ísland gerist aðili að Fríverzlunarsamtökunum yrði að vísu að taka til yfirvegunar afstöðu okkar til norræna tollabandalagsins, NORDEKs, ef af þeirri stofnun verður. En það er annað mál og bíður síns tíma.
Eins og ég tók fram í upphafi, hefur klofningur V.-Evrópu í tvær viðskiptaheildir torveldað ákvarðanir okkar í þessum málum undanfarin ár. Enn á ný er stækkun Efnahagsbandalags Evrópu á döfinni, en öllum má vera fullljóst, að engin vissa getur verið fyrir því, að Bretar og aðrir gangi í Efnahagsbandalagið. Færi engu að síður svo, mundi það án efa taka allmörg ár fyrir þessi ríki að verða virkir þátttakendur, því að sjálf aðlögunin mundi taka verulegan tíma, — og yrði þá ekki, spyr ég, heppilegra fyrir Ísland, ef til þessa kæmi, að hafa þegar gert þennan fríverzlunarsamning við allmörg væntanleg þátttökuríki stækkaðs Efnahagsbandalags, og hafa von um hugsanlega efnislega fyrirmynd?
Um þetta mál má endalaust bollaleggja, því að ekkert ákveðið liggur fyrir um þessa bandalangsmyndun. Öll umr. um það efni byggist meira og minna á ótraustum forsendum. Tvímælalaust er, að Íslendingar eiga ekki að halda áfram að slá ákvörðun sinni á frest um að ganga í EFTA vegna óvissunnar um framtíð Efnahagsbandalagsins. Svo sem ég gat um í upphafi máls míns, er nú og verður meginmarkmið í stefnu okkar í efnahagsmálum að byggja upp iðnað í landinu, sem geti orðið ný útflutningsgrein. Um þetta held ég, að sé ekki ágreiningur milli flokka. Liggur beinast við að hagnýta til fullnustu íslenzk hráefni og nota það hagræði, sem felst í ódýrri orku úr fallvötnum landsins. Þá verður að leita fanga víðar og virðist margt koma til greina, og ákvarðanir þar að lútandi eru sjálfsagt ekki vandalausar.
Þessi mál eru rædd í tveimur skýrslum sérfræðinga, sem lagðar eru fram sem fskj. með þáltill. ríkisstj. Sú gagnrýni hefur að vísu komið fram varðandi þessi mál, sem mér finnst á engan hátt sanngjörn, að hinu opinbera hafi borið til þess skylda að gera einhvers konar nákvæma áætlun um iðnþróun komandi ára með tilliti til hugsanlegrar aðildar að Fríverzlunarsamtökunum. Mér virðist þetta nánast fjarstæða, því að þar með ættu embættismenn að taka ákvarðanir langt fram í tímann um þróun atvinnurekstrarins í landinu. Slíkt hefur að vísu tíðkast í sumum löndum, en ég hygg, að reynsla þeirra af áætlunarbúskap hafi ekki verið slík, að hún beinlínis örvi okkur eða aðra til að fylgja því fordæmi.
Við hljótum að keppa að því að búa atvinnurekstrinum í landinu sem hagstæðust skilyrði. Það þjónar hagsmunum allrar þjóðarinnar bezt, en einstaklingarnir og viðbrögð þeirra, hinn mannlegi þáttur, sem aldrei verður gerð nein áætlun um, verður síðan að skera úr um sjálfar framkvæmdirnar. Það er sannfæring mín, að aðild að Fríverzlunarsamtökum Evrópu auki einmitt tækifæri einstaklingsins og þar með hamingju hans og velferð á ókomnum árum, treysti stoðir þjóðfélagsins og sjálfstæði sé fremur tryggt. Ég er því meðmæltur þáltill. ríkisstj. um aðild Íslands að Fríverzlunarsamtökum Evrópu, og meiri hluti utanrmn. leggur til, að till. um aðild Íslands að Fríverzlunarsamtökunum verði samþ. óbreytt, sökum þess að hún sé Íslendingum hagstæð og í samræmi við hefðbundna utanríkisstefnu Íslands, að eiga sem nánasta samleið með þeim þjóðum, sem kjósa sem frjálsust viðskipti og stjórnarhætti. Með því sé á engan hátt af okkar hálfu verið að skjóta neinni loku fyrir eðlileg viðskipti við þjóðir, sem annað þjóðfélagsviðhorf kunni að hafa. Því leggur meiri hl. n. til, að þessi till. verði samþ. óbreytt.