18.12.1969
Sameinað þing: 26. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í D-deild Alþingistíðinda. (2950)
117. mál, aðild Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu
Frsm. 1. minni hl. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Í þessum umr. hefur að vonum margsinnis borið á góma almenn viðhorf um viðskiptastefnur. Menn hafa rætt um gagnsemi fríverzlunar, og það er ástæða til að taka undir það sjónarmið. Vaxandi og frjáls verzlun er ákaflega mikilvægur þáttur í samskiptum ríkja í heiminum, og það er ekki nokkur vafi á því, að það eflir bæði efnahag þjóða og pólitíska samvinnu að tryggja sem greiðust viðskipti þjóða um heim allan. Hins vegar skulum við gera okkur það ljóst, að þær viðskiptaheildir í Evrópu, sem við ræðum um, hafa öldungis ekki þennan tilgang. Tilgangur þeirra er að auðvelda takmörkuð viðskipti milli þeirra landa, sem eru aðilar að þessum viðskiptaheildum, en takmarka á sama tíma viðskipti við aðra. Efnahagsbandalag Evrópu á að auka mikillega efnahagslega samvinnu þeirra ríkja, sem þar eru, en það hleður jafnframt upp múra gagnvart öðrum löndum. Slíkt hið sama er einkenni EFTA að nokkru leyti: Þar kemur til tollaafnám innbyrðis milli ríkja á því svæði, en hins vegar aðrar reglur, sem gilda gagnvart ríkjum utan þeirra. Þetta eru sem sé ekki bandalög, sem stuðla að almennri fríverzlun í heiminum, heldur þvert á móti. Og við skulum gera okkur það ljóst, að þau ríki, sem utan standa, t.d. nýfrjáls ríki, líta á þessar viðskiptaheildir báðar sem eins konar klúbba ríkra og tiltölulega háþróaðra þjóða, sem reyna að halda yfirburðum sínum gagnvart öðrum með þessari samvinnu.
Þetta er grundvallareðli þessara samvinnuheilda, og það þurfa menn að gera sér ljóst, þegar um þetta er rætt. Þess vegna er það í sjálfu sér misskilningur, þegar sumir menn segja hér, að þeir séu fylgjandi fríverzlun og þess vegna í eðli sínu samþykkir inngöngu í EFTA, þeir telji hins vegar, að Ísland sé ekki undir það búið. Þarna er ekki um að ræða neina almenna fríverzlun, heldur takmarkaða fríverzlun, sem þýðir um leið vissa skerðingu á verzlun við aðra aðila. Þetta er sérstakt umhugsunarefni fyrir okkur Íslendinga, einmitt vegna þess að útflutningsviðskipti okkar hafa að verulegum hluta verið til ríkja utan EFTA.
Það hefur einnig verið rætt hér um framtíð þessara samstarfsheilda. Ég held, að það sé rétt, að menn geri sér það ljóst einnig, að þessi bandalög eru engin framtíðarfyrirbæri. Við skulum ekki ímynda okkur, að þau standi um alla framtíð; því fer vafalaust víðs fjarri. Raunar er það þegar ljóst um EFTA og hefur verið það lengi, að þau samtök hafa að verulegu leyti lokið ætlunarverki sínu. EFTA varð sem kunnugt er til af hálfgerðri tilviljun: Efnahagsbandalagið var upphaflega stofnað, og þau ríki, sem síðan stofnuðu EFTA, urðu utangarðs, þegar samið var um Efnahagsbandalagið. Þau ríki, sem í EFTA eru, vildu ekki taka þátt í Efnahagsbandalaginu af ýmsum ástæðum og mynduðu svo EFTA, þegar þau lentu utan við. Þess vegna er EFTA, eins og allir vita, einkennileg samtök; samstæðasta heildin þar eru nú Norðurlönd, svo Bretland að sínu leytinu, en hin ríkin þrjú hafa ákaflega lausleg tengsl við önnur EFTA-ríki. EFTA varð til sem viðbrögð við Efnahagsbandalaginu fyrst og fremst. Megintilgangurinn með EFTA var raunar að fella niður tolla á iðnvarningi milli þessara ríkja. En í EFTA felast hins vegar ákaflega lítil ákvæði um frekari efnahagslega samvinnu. Það hefur verið reynt að taka þau mál upp innan EFTA, en árangur hefur enginn orðið.
Það hefur verið ljóst í mörg ár, að EFTA er í rauninni stofnað sem sjálfstæð stofnun. Afleiðingin hefur orðið sú, að nokkur EFTAríki hafa keppt mjög eftir því að komast inn í Efnahagsbandalag Evrópu, þar sem er miklu nánari efnahagssamvinna, og þau mál eru nú enn einu sinni mjög á dagskrá. Önnur afleiðing hefur orðið sú, að Norðurlönd, sem voru óánægð með það, hvað efnahagssamvinnan innan EFTA var takmörkuð, hafa hafið um það umræður að stofna sérstakt efnahagsbandalag Norðurlanda. Og það mál er komið mjög langt á rekspöl, eins og menn vita, og kunna að verða teknar um það ákvarðanir á næsta ári. Þess vegna eru þessi mál, eins og sakir standa, í mjög mikilli óvissu.
Ef við göngum í EFTA núna, vitum við í rauninni ekki, hvert við erum að fara. Við vitum ekki, hvort afleiðingin verður sú, að aðild að Efnahagsbandalaginu komist óhjákvæmilega á dagskrá á næstunni. Og í sambandi við NORDEK hafa þau einkennilegu tíðindi gerzt, að ríkisstj. Íslands hefur ekki tekið tilboði annarra Norðurlandaþjóða um að taka þátt í viðræðum um stofnun þessa norræna efnahagshandalags. Við áttum kost á því að leggja þar til sérfræðinga, eins og við værum menn til, taka þátt í undirbúningi, kanna að hve miklu leyti áformin um NORDEK kynnu að vera okkur hliðholl og hvar við kynnum að þurfa að gera fyrirvara. En þessi könnun hefur alls ekki farið fram. Af hálfu ríkisstj. Íslands hefur ekkert verið að því unnið að kanna hugsanlega aðild okkar að NORDEK, ef það bandalag skyldi verða stofnað.
Í sjálfu sér er það býsna einkennilegt að mæla með því að við göngum í EFTA við þessar aðstæður. Af því gæti t.d. hlotizt eftir tiltölulega skamman tíma, ef Norðurlönd stofna efnahagsbandalag sitt, að við værum komnir í sérstaka samvinnu við önnur EFTA-ríki en Norðurlönd, og ég á dálítið erfitt að sjá fyrir slíka framtíð.
Nú hefur hæstv. forsrh. að vísu sagt hér, að leiðin inn í NORDEK væri að ganga í EFTA. Hins vegar hefur hann ekki gert neina grein fyrir því, af hverju það ætti að vera nauðsynlegt. Og ef við eigum að ganga inn í EFTA fyrst og fremst til þess að halda áfram inn í NORDEK, þá er það sjálfsagður undirbúningur að vita nú þegar, hvað í NORDEK kynni að felast fyrir okkur, hvort við gætum orðið þar aðilar og á hvaða forsendum, með hvaða fyrirvörum o.s.frv. En ekkert slíkt er vitað, eins og alkunnugt er.
Þetta er dæmi um það, hvað undirbúningur þessa máls hefur verið takmarkaður. Menn tala vissulega um það, að þetta mál hafi verið mjög nákvæmlega undirbúið, og ég get fallizt á það á vissan hátt. Það hefur verið unnið mikið að því að kanna sérstaklega í hverju full aðild að EFTA væri fólgin. Hins vegar hefur þessi könnun verið ákaflega einhliða. Hún hefur einvörðungu snúizt um þetta atriði. Þau plögg, sem hér hafa verið lögð fyrir, eru að nokkru leyti hrein áróðursplögg í samræmi við þetta markmið. Hins vegar hefur ekki verið lögð í það vinna að leggja fyrir alþm. valkosti í þessu sambandi. Auðvitað eru til fleiri kostir, ef við viljum auðvelda viðskiptatengsl okkar við önnur ríki eða ríkjabandalög. Það voru til fleiri kostir en aðild. Það er einnig hægt að gera viðskiptasamninga við slíkar ríkjaheildir og einstök ríki, en það mál hefur ekkert verið kannað. Í staðinn koma menn hér með ákaflega fáránlegar staðhæfingar, eins og þegar hæstv. viðskmrh. segir, bæði hér á þingi og annars staðar, að ef menn vilji iðnvæðingu á Íslandi, verðum við að ganga í EFTA, og ef menn vilja ekki ganga í EFTA, þá vilji þeir ekki iðnvæðingu; eins og enginn markaður sé til í veröldinni nema EFTA. Þetta er auðvitað barnaskapur, sem þessum hæstv. ráðh. er ekki sæmandi að flytja fram sem rök af sinni hálfu.
Menn hafa í þessu sambandi oftsinnis talað um það, að við megum ekki einangra okkur, Íslendingar. Því er ég fyllilega sammála og geri ráð fyrir, að það séu allir menn hér inni. Bent hefur verið réttilega á það í þessum umr., að því fer ákaflega fjarri, að Íslendingar hafi reynt að einangra sig. Það höfum við alls ekki gert. Við höfum ákaflega víðtæk viðskiptasambönd og menningarsambönd við ýmsar ríkjaheildir. Og ég tel, að þessi víðtæku tengsl okkar við önnur ríki séu okkur ákaflega mikilvæg. Það er t.d. ákaflega athyglisvert, að þó við höfum í áratug staðið utan þessara heilda í Evrópu, fer því mjög fjarri, að við höfum einangrazt frá ríkjunum innan þeirra. Viðskipti okkar hafa aukizt við þessi ríki og menningartengsl okkar einnig. Þar hefur ekki verið um neina einangrun að ræða, og það er engin hætta á neinni slíkri einangrun, eins og nú standa sakir, ekki nokkur. Á hinu kynni að vera hætta, ef við göngum í EFTA, að það geti stuðlað að einangrun, vegna þess að þar með erum við að mismuna viðskiptaríkjum okkar eftir því, hvort þau eru með okkur í þessum samtökum eða ekki. Slíkt kann að hafa áhrif á viðskipti okkar við aðila utan EFTA, og það þurfum við einnig að horfast í augu við af fullu raunsæi. En að tala um, að við séum að einangra okkur, eru blekkingar, um slíkt er ekki að ræða.
Í þessum umr. hefur margsinnis verið vikið að Iðnþróunarsjóðnum, þar sem lögð er fram veruleg upphæð, 1232 millj. kr., einkanlega af öðrum Norðurlöndum. Þetta er vissulega há upphæð. En við skulum muna eftir því í þessu sambandi, að það er ekki ýkjalangt síðan okkur Íslendingum áskotnuðust óhemjumiklar tekjur umfram það, sem gerist í venjulegum árum. Á árabilinu 1963–1966 nutum við bæði óhemjulega mikils afla og hækkandi verðlags á erlendum mörkuðum. Það hefur verið reiknað út, að aðeins á þessum árum hafi heildartekjur þjóðarbúsins af viðskiptum við önnur lönd orðið 20 milljörðum meiri en ef verið hefðu meðalár. Ég held, að við eigum að minnast þess, að þessa upphæð hefðum við átt að nota til þess að efla atvinnuvegi okkar. Þarna hafði hæstv. ríkisstj. mjög gott tækifæri til þess að hagnýta okkar eigið fé til þess að styrkja atvinnuvegina. Raunin hefur hins vegar orðið þveröfug, þessir peningar voru ekki notaðir í þessu skyni. Þeir voru m.a. notaðir til þess að auka yfirbyggingu, sem hefur gert þjóðfélag okkar mun valtara. Og þess vegna gerðust þau tíðindi, að hæstv. ríkisstj. þurfti að snúa sér til annarra Norðurlanda með beiðni um efnahagslega aðstoð. Þessi aðstoð annarra Norðurlanda er áreiðanlega veitt af góðum hug.
Ég er algerlega ósammála þeim ummælum, sem stóðu hér í haust í blaði Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, þar sem það var hrópað af forsíðu, að hér væri um að ræða mútufé. Það var á þeim tíma, þegar þessi samtök virtust hafa þó nokkuð mikið aðra stefnu en núna; þau hafa hringsnúizt í þessu máli eins og býsna mörgum öðrum. En þar var sagt að þetta væri mútufé af hálfu Norðurlanda til þess að kaupa okkur til þess að taka ákvarðanir, sem ekki væru í samræmi við hagsmuni þjóðarinnar. Þetta er auðvitað ekki rétt. En við skulum einnig muna það, hvað það er, sem rétt er í þessu máli. Það voru ekki önnur Norðurlandaríki, sem buðu fram þessa upphæð okkur til aðstoðar. Það var hæstv. ríkisstj. Íslands, sem fór og bað um þessa fjármuni. Frá því er greint í grg. með þáltill. á bls. 10. Þar segir svo m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Í sambandi við aðlögun iðnaðarins að markaði Fríverzlunarsamtakanna og eflingu iðnþróunarinnar þurfa Íslendingar á verulegu fjármagni að halda. Ákvað ríkisstj. að stinga upp á því við ríkisstjórnir annarra norrænna þjóða, að öll Norðurlöndin kæmu upp iðnþróunarsjóði á Íslandi í þessu skyni. Var þessi hugmynd fyrst borin fram af forsrh., Bjarna Benediktssyni, á forsætisráðherrafundi Norðurlanda í Stokkhólmi í febrúar 1969 og síðan rædd frekar af viðskmrh., Gylfa Þ. Gíslasyni, við norræna ráðh. á ársfundi OECD í París síðar í sama mánuði.
Ríkisstjórnir annars staðar á Norðurlöndum tóku þessari málaleitan mjög vel.“
Sem sagt, það er íslenzka ríkisstj., sem biður aðrar norrænar þjóðir um að leggja okkur til þessa fjárhagsaðstoð, og við skulum gera okkur það ljóst, að hér er um annarlega beiðni að ræða. Hér er verið að biðja um fjármuni, sem eru vaxtalausir í 25 ár. Ég held, að það sé ákaflega hæpið og raunar ósæmilegt af íslenzkum stjórnarvöldum að fara fram á slíka fjárhagsaðstoð frá öðrum, jafnvel þó þarna eigi í hlut þjóðir eins og Norðurlandaþjóðir, þjóðir, sem við eigum nánasta samvinnu við. Ég tel, að þetta sé ósæmilegt, og ég tel, að þetta sé gersamlega óþarft einnig. Ég held að það hefði verið algerlega fullnægjandi að fara fram á venjuleg lán frá þessum þjóðum, að við greiddum venjulega vexti af þessari upphæð, en færum ekki fram á hreina efnahagsaðstoð, eins og í þessu felst.
Ríkisstj. okkar hefur raunar áður lotið að lágu í þessum efnum og stundum í hreinum minni háttar atriðum, eins og þegar hæstv. forsrh., — ég veit ekki hvort það var við sama tækifæri, — fór fram á það við sænsk stjórnarvöld, að þau bættu upp íslenzkum stúdentum, hvað við veitum þeim laklega styrki. Ég held, að ef við ætlum að stunda samvinnu við önnur ríki, verði menn að gera það með svolítið öðru hugarfari en þessu. Í þessu eru ekki aðeins fólgin fjárhagsatriði, heldur líka sá metnaður, sem hver þjóð verður að hafa, ef hún á að geta staðið fyrir sínu í samskiptum við aðra.
Í sambandi við þáltill. um aðild Íslands að Fríverzlunarsamtökum Evrópu hefur margsinnis verið á það bent, að það ástand, sem núna er í viðskiptum Íslendinga, er engin rök fyrir því, að við þurfum að taka þessa ákvörðun, eins og sakir standa. Seinustu árin hafa þeir tollmúrar, sem um er að ræða gagnvart okkur í ríkjum EFTA, verið tiltölulega mjög smáir. Þarna er um að ræða upphæðir, sem eru á milli 10 og 40 millj. á ári, eða eitthvað þess háttar og er í sjálfu sér afar lítið vandamál. Það, sem máli skiptir hins vegar í þessu sambandi, er það, að þetta gæti orðið vandamál, ef við hæfum að framleiða vörur, sem hægt yrði að selja á EFTA-markaði og tollur er á. Um þetta hefur verið rætt frá upphafi vega, og það hefur verið lögð á það áherzla, að ef við vildum taka ákvörðun um inngöngu í EFTA, yrði að liggja fyrir vitneskja um það, hvaða iðnaður það væri, sem við ætluðum að byggja upp og þarna fengi hagkvæmari markað en við fengjum með öðru móti. Um þetta var spurt mjög mikið í fyrra, þegar ákveðið var að senda aðildarumsókn. Þá voru engin svör veitt, en sagt, að að þessu væri verið að vinna. Niðurstöður vinnunnar komu svo í ljós fyrir nokkrum vikum, örfáum dögum áður en þessi till. var lögð fyrir Alþ. Niðurstaðan reyndist vera skýrsla frá Guðmundi Magnússyni prófessor, og hún er meginuppistaðan í grg. með þáltill.
Skýrsla Guðmundar Magnússonar prófessors byrjar á bls. 54 og endar á bls. 175. Hún er 121 síða; þetta er mikið lesmál. En af þessari 121 síðu eru 120 síður lýsing á ástandi iðnaðarins eins og það er núna. Í þessu er mikinn fróðleik að finna. Þarna er dregin saman mikil vitneskja. Ég þykist vera miklu fróðari eftir að hafa lesið þetta. En um það, sem spurt var, um framtíðina, um það er tæp ein síða. Og þessi tæpa eina síða er ekkert annað en almennar staðhæfingar, sem hver einasti maður hefði getað hrist út úr erminni á nokkrum klukkutímum. Þarna er enga vitneskju að fá um þá framtíðarþróun, sem á þó að vera aðalréttlætingin fyrir því, að við göngum í EFTA. Það er augljóst, að hæstv. ríkisstj. hefur gert sér grein fyrir þessu, því þegar Guðmundur Magnússon prófessor var búinn með verk sitt, var hlaupið í það að fá 3 menn í viðbót: Jón Sigurðsson hagfræðing, Pétur Eiríksson hagfræðing og dr. Vilhjálm Lúðvíksson efnafræðing, til þess að bæta úr þessari veilu og auka við sérstökum kafla um framtíðina. Ritgerð þeirra er prentuð sér og er 20 síður.
En eins og allir sjá, sem hafa lesið þetta, er þar ekki heldur neina nýja vitneskju að finna og ekkert umfram almennar staðhæfingar, sem hver einasti maður, sem hefur eitthvað hugsað um þessi mál, getur samið á tiltölulega skömmum tíma. Enn þá vantar algjörlega það, sem beðið var um í upphafi, fasta iðnþróunarstefnu af hálfu hæstv. ríkisstj. Það vantar áætlun af hennar hálfu um það, hvernig hægt sé að þróa slíkan útflutningsiðnað nýjan, og það vantar till. um ákvarðanir til þess að hefja slíka þróun. Auðvitað er slík iðnþróunarstefna forsenda þess, að nokkurt vit sé í því að velja markað. Markaðurinn hlýtur að fara eftir því, hvað við ætlum að framleiða. Það eru öfugmæli að velja fyrst markaðinn og segja síðan, að við hljótum að geta framleitt eitthvað fyrir þennan markað. Þannig er ekki hægt að vinna. Röksemdafærsla af þessu tagi er vægast sagt fáránleg.
Það er alveg rétt, sem hv. frsm. meiri hl. sagði hér áðan, að til þess að hefja iðnþróun þarf miklu meira en markað, og það er mergurinn málsins. Það þarf að tryggja fjármagn, og það þarf að taka ákvarðanir um það, hvernig á að hagnýta það fjármagn. Það þarf að taka upp skipulag, fast skipulag í stað þess glundroða, sem hefur einkennt alla iðnaðarþróun á Íslandi og er ein meginástæða þess, hve iðnþróun hefur gengið hægt hér á landi. Við vitum það ósköp vel, að fjölmörg örsmá fyrirtæki hafa í sífellu grafið hvert undan öðru. Og reynslan verið sú, að þegar allt er komið í óefni, hefur verið gripið til efnahagsráðstafana til þess að bjarga þeim í stað þess að taka upp skipulag sem dygði. Og auk fjármagns og skipulags þarf menntun. Það er ekki nokkur vafi á því, að það sjónarmið er algjörlega rétt, að ef við ætlum að hefja iðnþróun á Íslandi, þurfum við að gerbreyta öllu menntakerfi okkar. Á það var bent í ágætri blaðagrein fyrir nokkrum dögum af skólastjóra Tækniskólans, að m.a.s. iðnnámið á Íslandi væri forneskjulegt og ekki í neinu samræmi við þarfir atvinnuveganna. Og sama er að segja um allt menntakerfi okkar. En að þessu hefur ekki heldur verið neitt unnið. Samt er það svo, að ef við ætlum að hefja iðnvæðingu með því að stofna m.a. fyrirtæki, sem vinna úr erlendum hráefnum, getum við því aðeins gert það, að við verðum menn til þess að hefja útflutning á verkmenningu og hugviti. Við getum ekki unnið úr erlendum hráefnum með neinum ábata fyrir þjóðarbúið, nema við getum unnið þau á þann hátt, að meginandvirði fyrir vöruna, sem við flytjum út, sé greiðsla fyrir verkmenningu okkar og hugvit. Og þá er menntakerfi okkar algert undirstöðuatriði. En það vita allir, hvernig ástatt er í menntamálum Íslendinga. Þar hefur verið sívaxandi glundroði að undanförnu. Meira að segja er kerfi það, sem við höfum látið duga okkur á undanförnum árum, að bresta ag ákaflega fjarri því, að þar verði enn þá vart þeirrar breytingar, sem óhjákvæmileg er, ef við ætlum að hefja stórfelldar nýjungar í framleiðsluháttum.
Í sambandi við það, sem ég hef sagt um nauðsyn iðnþróunarstefnu og nauðsyn tiltekinna tillagna um það efni, lét hv. frsm. meiri hl. sér nægja að lýsa yfir því, að hann teldi, að áætlunargerð hefði ekki borið þann árangur, að menn ættu að vera sérlega ginnkeyptir fyrir henni. Þetta held ég, að sé mikill misskilningur hjá þessum hv. þm., og hlýtur að stafa af því, að hann hefur ekki fylgzt nógu vel með því, sem verið hefur að gerast á þessum sviðum á undanförnum árum og áratugum. Staðreyndin er sú, að einmitt áætlunarvinnubrögð hafa verið í sókn hvarvetna um heim að undanförnu, og slík vinnubrögð hafa ekki sízt verið í sókn hjá þeim auðfélögum, sem ég veit, að þessi hv. þm. hefur mikið álit á. Það eru engin fyrirtæki til, sem gera eins nákvæmar áætlanir og eins langt fram í tímann eins og fyrirtæki af því tagi. Þetta stafar að sjálfsögðu af því, að vitneskja manna hefur aukizt ákaflega mikið á undanförnum árum, og ef menn ætla að ná valdi á viðfangsefnum sínum, beita þeir að sjálfsögðu vaxandi vitneskju. Menn láta ekki kylfu ráða kasti. Einmitt þess vegna hlýtur áætlunargerð að fara vaxandi og gerir það. Og við verðum að vera menn til að taka upp þessi vinnubrögð einnig. En við getum því aðeins gert það í okkar smáa þjóðfélagi, að sjálft ríkisvaldið hafi forustu fyrir slíkri áætlunargerð, sjálft ríkisvaldið taki þátt í því að skipuleggja atvinnuvegina til slíkra afkasta.
Ég hef vikið að því, að viðskiptaástandið nú getur ekki verið ástæðan fyrir því, að menn vilja ólmir, að við tökum ákvörðun um að ganga í EFTA þegar fyrir þessi jól. En hver er þá ástæðan? Hver er hin raunverulega ástæða? Hvað er það, sem gerir það að verkum, að hæstv. ríkisstj. leggur á þetta slíkt ofurkapp einmitt nú? Ég er ekki í nokkrum vafa um það að meginástæðan af hálfu hæstv. ríkisstj. er sú efnahagsstefna, sem felst í sjálfum EFTA-samningnum. EFTA-samningurinn fjallar ekki einvörðungu um viðskipti. Í EFTA-samningnum eru tiltekin ákvæði um það, hvað okkur er heimilt að gera í efnahagsmálum og hvað okkur er ekki heimilt að gera. Með því að ganga í EFTA skrifum við undir skuldbindingar um það, hvernig við eigum að haga málum eins og innflutningstollum, fjáröflunartollum, innlendum álögum, útflutningstollum, takmörkun á innflutningi og útflutningi, ríkisstyrkjum, skipan verðlagsmála o.s.frv. Með því að ganga í EFTA erum við að undirrita það, að við ætlum að fylgja tilteknum stefnumiðum á öllum þessum sviðum. Og við skulum gera okkur það ljóst, að sú stefna, sem mörkuð er í EFTA-samningnum, er í mjög nánu samræmi við þá viðreisnarstefnu, sem hæstv. ríkisstj. hefur verið að burðast við að reyna að framkvæma hér á Íslandi undanfarin 10 ár. Með aðild að EFTA er verið að taka ákvörðun m.a. um ýmis mjög stórfelld deilumál, sem flokka hér á Alþ. hefur greint mjög á um. Og það er enginn vafi á því, að þessi festing viðreisnarstefnunnar er einn megintilgangur hæstv. ríkisstj. Einmitt þess vegna kom mér það mjög á óvart, þegar ég heyrði formann Framsfl., hv. þm. Ólaf Jóhannesson, segja hér í umr. á dögunum, að hann liti svo á, að aðild að EFTA væri ekki flokkspólitískt mál. Ef hún er ekki flokkspólitískt mál, hefur Framsfl. ekki verið mikil alvara með sum þau mál, sem hann hefur flutt hér á þingi, vegna þess að í aðild að EFTA felst sú skuldbinding að framkvæma ekki ýmis af þeim málum. Þetta hefur verið ljóst mjög lengi.
Ég man eftir því, að þegar við ræddum þetta mál hér á Alþ. í fyrra, flutti hv. þm. Ólafur Björnsson hagfræðiprófessor mjög fróðlega ræðu um EFTA. Ræðan fjallaði einvörðungu um eitt atriði. Hann sagðist vilja ganga í EFTA einmitt vegna þessara skuldbindinga, sem í henni fælust um okkar eigin hagstjórnaraðferðir. Hv. þm. komst þannig að orði, með leyfi hæstv. forseta:
„Með aðild að slíkum samtökum mundum við skuldbinda okkur til þess að beita ekki nema í hófi verzlunarhömlum í mynd hárra tolla og alls ekki beinum innflutningshömlum nema þá í einstökum undantekningartilfellum, sem yrði að semja um við önnur aðildarríki. Ég tel þetta æskilegt, ef ekki nauðsynlegt, með tilliti til þess, að við höfum um 30 ára skeið fyrir 1960 búið við þá skipan efnahagsmála, að innflutningshöft og hliðstæðar hömlur á öðrum sviðum voru aðalhagstjórnartækið, sem beitt var. Þá tel ég, að það sé æskilegt, ef ekki nauðsynlegt, að við veitum sjálfum okkur aðhald með því að skuldbinda okkur þannig til þess að fylgja reglum siðmenningarþjóða í viðskiptum. Ég held, að það sé ekki sízt þörf nú með tilliti til þess, að stjórnarandstæðingar hafa mjög látið í það skína, að leiðin út úr efnahagsvandanum sé sú, að hverfa aftur að gamla haftafyrirkomulaginu, þó að þeir forðist að vísu að segja það berum orðum.“
Þessi skilgreining hv. þm. Ólafs Björnssonar var afar fróðleg. Þegar undan eru skilin áróðursorð eins og höft og hömlur, segir hann berum orðum, að með aðild að EFTA skuldbindum við okkur til þess að framkvæma áfram þá viðreisnarstefnu, sem upp var tekin 1960. Hann segir, að með aðild að EFTA fáum við ekki lengur að taka upp félagslega stefnu, ekki skipulega stjórn á efnahagsmálum okkar, ekki sérstaka aðstoð við íslenzkar atvinnugreinar, sem lenda í erfiðleikum og við viljum ekki án vera. Hvaða ríkisstj. sem settist að völdum á Íslandi yrði að mati hv. þm. Ólafs Björnssonar að fylgja viðreisnarstefnunni, reglum siðmenningarþjóða í viðskiptum, eins og hann orðar það, á meðan við erum í EFTA. Og það er einmitt þess vegna, sem svona mikið liggur á. Hæstv. ríkisstj. vill skuldbinda okkur með milliríkjasamningi til þess að halda við meginatriðum viðreisnarstefnunnar.
Þau áhrif, sem í þessum skuldbindingum felast, koma þegar til framkvæmda á næstu mánuðum. 1. marz n.k. á að hefja niðurfellingu tolla, og í tollskrárfrv. er bent á þá staðreynd, sem ég tel að menn eigi að muna einnig, að ástandið á þessu sviði er mjög frábrugðið hér á Íslandi og í nágrannalöndum okkar. Hæstv. ríkisstj. bendir á í þessu frv., að tollar séu yfir 30% af tekjum ríkissjóðs, — er þá búið að draga frá ýmsa tolla, sem ætlaðir eru til sérstakra þarfa, — yfir 30%, en í nágrannalöndum okkar 2–3%. Með því að breyta þessari skipan er verið að raska ákaflega mikið fjárhagsgrundvellinum á Íslandi. Við skulum muna eftir því, að þessir tollar eru ekki einvörðungu verndartollar, eins og menn tala um. Þessir tollar voru ekki settir á nándar nærri allir, og kannske fæstir þeirra, til að vernda einhverjar íslenzkar iðngreinar. Þetta voru að verulegu leyti fjáröflunartollar. Þetta var aðferð til tekjuöflunar og leið til þess að takmarka innflutning á vörum, sem menn töldu miður nauðsynlegar, þegar hörgull var á gjaldeyri.
Við skulum minnast þess, að þjóðarbúskapur okkar Íslendinga er mjög viðkvæmur. Við getum átt von á ýmiss konar örðugleikum svo að segja á ári hverju, vegna þess að við erum mjög háðir aflamagni og við erum mjög háðir verði á erlendum mörkuðum. Það er ekkert óeðlilegt, að þjóðfélag eins og þetta geti þurft að grípa til ráðstafana eins og tolla á miður nauðsynlegum vörum um skeið til þess að jafna slík met, þegar gjaldeyri skortir, eða grípa til tímabundinna innflutningshamla. Um þetta geta ekki gilt nein algild lögmál. Þetta verður að ráðast eftir aðstæðum hverju sinni. En með aðild að EFTA er verið að banna okkur að leysa vandamál okkar eftir þessum leiðum, því að aðild að EFTA breytir auðvitað engan veginn þessum vandamálum. Hún takmarkar aðeins þau hagstjórnartæki, sem okkur er heimilt að beita til þess að leysa slík vandamál. Hún leysir ekki vandamálin, hún bindur aðeins hendur okkar við ákveðin verkefni.
Einnig þetta er viðurkennt í grg. fyrir till. Þar er lögð áherzla á það, að þau hagstjórnartæki, sem við megum beita, verði miklu takmarkaðri en þau hafa verið, og bent á, að eftirleiðis, ef við göngum í EFTA, hljóti þau viðbrögð, sem við beitum fyrst og fremst gegn örðugleikum af þessu tagi, að vera gengislækkanir. Ég vil vitna í grg. á nokkrum stöðum þessu máli til sönnunar, vegna þess að ég tel, að þetta sé mjög veigamikið atriði. Á bls. 14 í riti Guðmundar Magnússonar prófessors er komizt svo að orði, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef tollprósentur falla niður sem hagstjórnartæki, reynir meira á gengið í þeim skilningi, að því verður e.t.v. að breyta oftar, ef ná á tilteknu markmiði eða markmiðum.“
Sem sé fleiri gengislækkanir en þær, sem við höfum orðið að þola að undanförnu, og hélt ég nú, að mörgum hefði þótt, að þær væru nægar. (Dómsmrh.: Eða gengishækkanir.) Jú, jú. Það er fræðilega rétt, en ég hef ekki mikla trú á því, að íslenzk stjórnarvöld þurfi að líta á þá möguleika báða. Á bls. 26–27 segir svo:
„Séu tollar felldir niður, kemur eitt raunverulegt gengi til með að ráða, og það er eftir sem áður hægt að veita atvinnuvegunum gengisvernd, eða réttara sagt gengið verður að vera rétt skráð, svo að atvinnuvegirnir verði samkeppnisfærir bæði heima og erlendis. Það hlýtur einnig að verða svo, að þeim mun veigameiri þáttur atvinnulífsins, sem iðnaðurinn verður, því meir verður gengi íslenzku krónunnar að miðast við afkomu hans.“
Á bls. 47 segir svo:
„Breytist heimsmarkaðsverð bæði á neyzlu- og fjárfestingarvörum, er einfaldast að þurrka út áhrifin á markmiðin með því að breyta genginu. Sé gengið óhagganlegt (t.d. vegna alþjóðlegs samkomulags) má ná sömu niðurstöðu með því að breyta tollum og útflutningsuppbótum. Með tilliti til EFTA-aðildar hverfur síðari möguleikinn úr sögunni. Þess vegna verður að breyta genginu, ef vinna á á móti áhrifum breytinga á heimsmarkaðsverði og hagþróunina innanlands. Gengið hefur stærst áhrif af hagstjórnartækjum. Má beita því við t.d. launabreytingar eigi síður en breytingu á heimsmarkaðsverði. En í flestum tilfellum þarf þó að grípa jafnframt til hliðarráðstafana til að tryggja, að öll markmið náist.“
M.ö.o.: þarna er lögð á það áherzla, að gengisbreytingar hljóti að verða aðalhagstjórnartækið, vegna þess að með EFTA-aðildinni sé bannað að beita öðrum tilteknum ráðstöfunum. Og það er talað um að beita gengislækkunum bæði ef breytingar verða á erlendum mörkuðum, sem hafa áhrif á atvinnuvegi okkar, og einnig ef það verða slíkar kaupbreytingar. Þarna er það boðað, að kaupbreytingum, sem atvinnurekendur eða stjórnarvöld sætta sig ekki við, verði svarað með gengislækkunum. Þetta tel ég vera ákaflega alvarlega stefnu. Á því er ekki nokkur vafi, að gengislækkanaskriðan, sem gengið hefur yfir Ísland, hefur haft ákaflega háskaleg áhrif. Hún hefur haft ákaflega háskaleg áhrif á atvinnuvegi okkar, hún hefur haft ákaflega háskaleg áhrif á viðhorf og skoðanir landsmanna og trú landsmanna á því, að hægt væri að halda hér uppi sjálfstæðu þjóðfélagi. Ég held, að ein meginnauðsyn okkar hefði verið sú að reyna að tryggja einhverja þá samstöðu í þjóðfélaginu, sem gæti komið í veg fyrir slíka gengislækkanaskriðu, í stað þess að leggja nú á ráðin um kerfi, sem sagt er, að muni leiða til þess, að gengisbreytingar verði enn örari en þær hafa verið að undanförnu. Þetta er afleiðing af því, að með aðild að EFTA er verið að takmarka hagstjórnartæki okkar á þennan hátt. Og þetta tel ég, að hv. framsóknarmenn ættu að hugleiða alveg sérstaklega, áður en þeir taka undir þá skoðun formanns síns, að þetta sé ekki flokkspólitískt mál.
Í stað þeirrar tollalækkunar, sem á að koma til framkvæmda, kemur sem kunnugt er hækkun á söluskatti. Og fyrst að því er komið, þykir mér ástæða til að vekja hér athygli á ummælum hæstv. viðskmrh, í útvarpsumr. fyrir nokkrum dögum. Hæstv. viðskmrh. leyfði sér að segja þar í áheyrn alþjóðar, að tollalækkanir og söluskattshækkun vegi hvor aðra upp, þetta væri sama upphæðin. Og hæstv. ráðh. deplaði ekki auga, þegar hann sagði þetta. Hann staðhæfði um leið, að vísitalan mundi ekkert breytast, vegna þess að þetta vægi hvort annað upp. Það er algerlega ósæmilegt að fara með vísvitandi ósannindi af þessu tagi í opinberum umr., og ég tel ástæðu til þess að víta það hér úr ræðustóli Alþ., að hæstv. ráðh. skuli leyfa sér slíkt.
Við vorum í gær að samþykkja fjárlög, og þar er frá því greint, að tollalækkanirnar verði 430 millj., en söluskattshækkunin 760 millj. Það munar 330 millj., sem hæstv. ráðh. sagði ósatt um vitandi vits. (Menntmrh.: Þetta er rangt.) Hæstv. ráðh. sagði, að það væri sama talan, og um það eru til fleiri vitni en nokkurn tíma hafa fylgzt með þessum hæstv. ráðh. (Gripið fram í.) Við skulum koma að því dálítið síðar, hæstv. ráðh. Þessar tölur, sem ég nefni, eru fyrir næsta ár, þ.e. fyrir 10 mánuði, vegna þess að þarna er um að ræða áhrifin frá 1. marz. Söluskattshækkun miðað við eitt ár verður hins vegar yfir 900 millj., þ.e. tekjurnar, sem af henni koma. Álögurnar verða vafalaust snöggtum hærri, því að það er mál kunnugra manna, að um 10% af álögðum söluskatti komi aldrei til skila í ríkissjóð. Ef það mat er rétt, eru þessar nýju söluskattsálögur 1000 millj. kr., 1 milljarður. Og ef þessi áætlun ér rétt, að 10% renni í vasa þeirra manna, sem eiga að innheimta hann, er sá hlutur hvorki meira né minna en 100 millj. kr.
En hæstv. ráðh. var að tala um vísitölu í þessu sambandi, og hann sagðist hafa sagt, að hún mundi haldast óbreytt. Nú vil ég biðja hæstv. ráðh, að gera grein fyrir því, hvort þetta er rétt. Getur það verið rétt, að vísitalan haldist óbreytt, þegar tollar lækka um 430 millj. á næsta ári, ef söluskattur hækkar um 760 millj.? (Menntmrh.: Ég sagði þetta aldrei.) Ef þetta er rétt, er þetta vísitölukerfi hreint fölsunarkerfi. Þetta getur ekki heldur staðizt. Einnig þetta hljóta að vera vísvitandi ósannindi hjá hæstv. ráðh.
Það er raunar viðurkennt af hæstv. ríkisstj. einnig, að söluskattsinnheimta er, eins og ýmsir hafa bent á hér á þinginu, afar ranglát innheimtuaðferð. Með þessari breytingu á að lækka ýmis gjöld á ýmsum hátollavarningi, sem almenningur á þess mjög takmarkaðan
kost að kaupa, en leggja í staðinn stórhækkaðan söluskatt á vörur, sem enginn maður kemst hjá að kaupa. Þannig er verið að færa álögur frá mönnum, sem hafa rýmri peningaráð, til þeirra, sem hafa þrengri peningaráð. Og fyrir þessu er raunar gerð afar fróðleg grein í aths. við tollskrárfrv. Þar er komizt svo að orði, með leyfi hæstv. forseta:
„Fyrir ríkissjóð veldur þessi stefnubreyting ekki miklu í svip. Tekjuöfluninni er víxlað milli greina óbeinnar skattlagningar. Þegar til lengdar lætur má ætla, að tekjur ríkissjóðs verði háðar minni sveiflum, eftir því sem á líður þessa þróun. Miklar og óvæntar tekjur vegna mikilla kaupa á hátolluðum vörum á velgengnistímum verða þá ekki eins tilfinnanlegar. Þannig má ætla, að afkoma ríkissjóðs fylgi nánar eftir almennri afkomu þegnanna en hún hefur gert og magnist ekki til hins betra eða verra, eins og gerzt hefur hér á liðnum árum.“
M.ö.o.: það er fyrst og fremst verið að skattleggja óhjákvæmilegar lífsnauðsynjar, sem menn verða að veita sér, komast ekki hjá að veita sér, en sleppa ýmsum varningi, sem verulegur hluti þjóðarinnar veitir sér ekki nema að takmörkuðu leyti. Í þessu er fólgið mikið þjóðfélagslegt ranglæti, og áframhald á þessari þróun breytir mjög raunverulegri tekjuskiptingu á Íslandi.
Það var næsta furðulegt að heyra báða þm. hinna nýju samtaka frjálslyndra og vinstri manna lýsa því yfir hér á Alþ., að þeir væru mjög fylgjandi EFTA-aðild, en á móti söluskattinum. Þeir eru sem sé með orsökinni, en á móti afleiðingunni, eins og maður, sem sver fyrir barn fyrir rétti. Það stoðar ekki að koma hingað og segja, að maður sé andvígur þessari söluskattshækkun, því að þá verða að koma einhverjar aðrar till. á móti. Með aðild að EFTA er ákveðið að fella niður tekjur í ríkissjóð, sem nema á næsta ári á 5. hundrað millj., en mun á tímabilinu öllu nema nærri tveimur milljörðum kr. Þeir menn, sem samþykkja þessa breytingu, verða að koma með einhverjar till. á móti um það, hvernig á þá að taka þessar tekjur. Hvar á að taka þær? Um það nægja ekki almenn orð. Og það stoðar ekki að benda á aðferðir, sem bannaðar eru samkv. þeim EFTA-samningi, sem þeir sjálfir fylgja. Þeir verða að leggja það á sig að gera sér grein fyrir því, hvað í EFTA-samningnum felst. Við eigum heimtingu á því, að þessir tveir hv. þm. geri grein fyrir því, hvernig þeir vilji láta innheimta þessa upphæð, og flytji um það alveg tilteknar till. (HV: Er bannað að leggja söluskatt á nauðsynjavörur?) Er það bannað að leggja söluskatt á — (Gripið fram í: Það má undanþiggja þær.) Að sjálfsögðu má undanþiggja þær. En þessir hv. þm. verða að gera grein fyrir því, hvernig á að taka upphæð, sem nemur nærri tveimur milljörðum kr., ekki með almennum orðum, heldur tilteknum tillögum.
Það er raunar annað mál, sem er komið fram hér á þingi, sem einnig er í tengslum við EFTA-aðild. Það er frv., sem var dreift hér í gær um verðgæzlu og samkeppnishömlur. Á bls. 5 í grg. fyrir EFTA-till. segir svo:
„Í 15. gr. er ákvæði um samkeppnishömlur. Ákvæði frv, um verðgæzlu og samkeppnishömlur, sem lagt verður fyrir þetta þing, eru í fullu samræmi við ákvæði þessarar gr.“
Frv. um verðgæzlu og samkeppnishömlur er þannig einn angi þessa EFTA-máls. Og í þessu frv. felst það, að raunverulegt verðlagseftirlit er fellt niður. Í staðinn er búið til sýndarkerfi, sem auðsjáanlega hefur ekki nein raunveruleg áhrif á verðlagsþróunina í landinu. Ég vil hér vitna í nokkur orð, sem einn nm., Þröstur Ólafsson hagfræðingur, viðhefur um þetta mál, með leyfi hæstv. forseta:
„Frv. felur í sér afnám verðlagseftirlits, en það þýðir óbundnar hendur verzlunarstéttarinnar til að ákveða álagningu á vörur sínar. Þetta þýðir auðvitað hærra vöruverð í bráð og lengd auk verðbólgunnar. Í staðinn fá launþegar ekkert til að rétta hlut sinn nema ónothæf vilyrði um samkeppniseftirlit. Burtséð frá því félagslega óréttlæti, sem þetta hefur í för með sér, eru tímarnir sízt til þess fallnir að framkvæma slíka ráðstöfun nú.“
Í þeirri n., sem undirbjó þetta frv., voru borin fram mótmæli af fulltrúum Alþýðusambands Íslands, af fulltrúum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, af verðlagsstjóranum, af fulltrúa Alþb. og fulltrúa Alþfl. Engu að síður virðist vera ætlunin, að þetta frv. verði einnig látið ná fram að ganga á þessu þingi. En við skulum gera okkur það ljóst, að í þessu frv. felst það, að miklar líkur eru á því, að tollalækkanirnar komi ekki nema að mjög takmörkuðu leyti til framkvæmda í lækkuðu verðlagi. Raunverulegt afnám verðlagseftirlits felur það í sér, að auðvelt verður fyrir kaupsýslumenn að hagnýta í sína þágu þær tollalækkanir sem gerðar verða. Og þetta eru raunar engar almennar getsakir af minni hálfu. Það hefur verið framkvæmd könnun á því, hvaða áhrif þessi ákvæði höfðu innan EFTA-landanna, og kom í ljós, að sú tollalækkun, sem framkvæmd var í EFTA-löndunum, hafði sáralítil áhrif á almennt verðlag. Hún var fyrst og fremst til hagsbóta kaupsýslumönnum og atvinnurekendum. Þeir gátu hirt hana. Almenningur naut hennar ekki, og það er full ástæða til þess að ætla, að þróunin hér verði sú sama. A.m.k. er hæstv. ríkisstj. að opna fyrir það með þessu nýja frv. sínu.
Þessi verða sem sé næsta tafarlítið áhrif aðildar að EFTA, þ.e. mun ranglátari skattheimta en verið hefur — skattheimta, sem leggst mun þyngra á þá, sem erfiðasta hafa afkomu í þjóðfélaginu. En hvernig verða áhrifin á annað vandamál, sem ætti, ef vel ætti að vera, að vera daglega í huga hv. alþm.? Þar á ég við atvinnuástandið. Nú hefur verið svo ástatt á Íslandi í meira en ár, að hér hefur verið samfellt atvinnuleysi. Trúlega eru skráðir fleiri atvinnuleysingjar nú en nokkru sinni áður í sögu landsins. Á ýmsum stöðum úti um land er um raunverulegt neyðarástand að ræða. Þar er hreinlega ekki neina atvinnu að fá. Þetta ástand hefur leitt til þess, að menn hafa flúið land, bæði til skemmri dvalar og hreinlega búferlum. Flutzt hafa búferlum til útlanda um 1000 Íslendingar á þessu ári, og um 500 verkamenn vinna úti í Svíþjóð, verkamenn og iðnaðarmenn, að tímabundnum verkefnum. Þetta mál er svo alvarlegt, að ég tel það ósæmilegt með öllu, að alþm. taki nokkra ákvörðun, sem getur veikt atvinnuástandið frá því, sem það er núna. Engu að siður er það augljóst mál, að í EFTA-aðild felst það, að ákveðinn hluti atvinnulífs okkar lendir í sívaxandi erfiðleikum. Það er viðurkennt mjög greinilega í sjálfri grg. fyrir þáltill. Það dylst ekki, að Guðmundur Magnússon prófessor reiknar með, að ýmis vernduð fyrirtæki hætti starfsemi sinni að verulegu leyti. Hann reynir að vísu að viðhafa hreystiyrði hér og þar í því sambandi, en engu að siður kemur það greinilega í ljós, að þetta er mat hans, sérstaklega í almennum hugleiðingum, sem hann hefur um þau mál.
Á bls. 12 í hinni sérstöku ritgerð hans kemst hann m.a. svo að orði, að konur séu 65–70% af vinnuafli í vernduðum iðngreinum, og heldur þannig áfram, með leyfi hæstv. forseta:
„Þessi hái kvenstuðull bendir til þess, að verndaðar iðngreinar hafi yfirleitt ósérhæfðu fólki á að skipa, og eigi því tiltölulega hægt um vik að aðlaga mannaflann breyttum aðstæðum.“ Og enn fremur segir svo á sömu síðu: „Ljóst er, að miðað við fjölda starfandi fólks í vernduðum iðngreinum, er fjárbinding í þeim lítil. Bendir þetta einnig til þess, að ekki geti orðið verulegt umrót í íslenzku efnahagslífi, jafnvel þótt illa tækist til við aðild að EFTA.“
Sem sé, þetta gerir ekki sérlega mikið til. Þetta eru aðallega konur, og þarna er tiltölulega litið fjármagn. Sama atriði kemur fram hjá Guðmundi Magnússyni prófessor á bls. 52, en þar er komizt svo að orði:
„Verði verulegt umrót í verndaðri iðngrein, t.d. vegna EFTA-aðildar, má ætla, að verkafólk, sem yrði fyrir barðinu á slíku, ætti tiltölulega auðvelt með að aðhæfast breyttum aðstæðum. Mikill fjöldi kvenna meðal starfsfólks bendir einkum til þess. Fjárbinding í vernduðum iðngreinum er og minni en ætla mætti að óreyndu. Mjög athyglisvert er í þessu sambandi, að 40% alls starfsfólks í vernduðum iðnaði starfar í tveimur iðngreinum, fatnaði og húsgögnum, 20% í hvorri. Áföll í einungis tveimur eða þremur fólksfrekustu iðngreinunum gætu því svipt mikinn fjölda fólks í tollvernduðum iðnaði atvinnunni. Allar líkur eru á því, að þá yrðu konur verst úti, en þar yrði mikil aðlögunarhæfni til bjargar, ef önnur vinna byðist.“
Þarna er sama hugsunin. Þetta eru aðallega konur, ósérhæft vinnuafl, og skiptir ekki ýkjamiklu máli frá þjóðhagslegu sjónarmiði, hvað um þær verður.
Þannig er það algjörlega ljóst, og ég held, að um það verði ekki deilt, að áhrifin af aðild að EFTA geti orðið þau þegar á næsta ári, að ýmis fyrirtæki, sem sjá fram á dauða sinn eftir nokkur ár, dragi saman seglin eða hætti. Af hálfu hæstv. ríkisstj. eru engar ráðstafanir gerðar til þess að tryggja, að ný fyrirtæki geti þá tekið við þessu starfsfólki, auk þeirra, sem skráðir eru atvinnulausir. Engar slíkar ráðstafanir eru gerðar. Og þetta er svo mikið alvörumál, að þó ekki kæmi neitt annað til, teldi ég að aðild að EFTA kæmi ekki til mála undir þessum kringumstæðum. Því ef þetta ástand helzt, að atvinnuleysi verði hér stöðugt allan ársins hring og nái á vissum árstímum til 6–7 þús. manna, leiðir það til þess, að þjóðfélagið molast niður. Sú skriða, sem nú er hafin, að menn flykkist til útlanda, hún mun halda áfram af vaxandi þunga. Og þetta tel ég, að engir eigi frekar að gera sér ljóst en hv. alþm.
En það er fleira í sambandi við kjaramál, sem fram kemur í grg. fyrir þáltill. og í almennum hugleiðingum um þetta mál. Á það er einnig lögð áherzla í grg., að eina von verndaðra iðngreina sé bundin við það, að hér sé kaup nú mun lægra en það er í nágrannalöndum okkar. Um þetta atriði er að finna ýmsar tilvitnanir hjá Guðmundi Magnússyni prófessor. Á bls. 95 segir hann m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Hins vegar skulum við ekki gleyma því, að vefjariðnaður hefur átt í örðugleikum á Norðurlöndum, vegna þess að samkeppni hefur aukizt frá láglaunalöndum. Einnig eru útibúin í Portúgal fræg, sbr. Melka-skyrtur. Við þurfum þó ekki að óttast þetta í augnablikinu, vegna þess að launin hér eru tiltölulega lág. Þess hefur meira að segja orðið vart, að Norðurlandafirmu hafi alvarlegan áhuga á því að hefja hér framleiðslu í vefjariðnaði til útflutnings til þess að hagnýta sér hið lága kaup á Íslandi á sama hátt eins og gert er í Portúgal.“
Á bls. 97 segir svo um fatagerð: „Laun eru tiltölulega lág hér og veitir þetta hlutfallslega yfirburði. Þessir yfirburðir geta auðvitað horfið fyrir of miklum launahækkunum.“
Og á bls. 100 segir svo um húsgagnagerð og innréttingasmiði: „Við höfum hlutfallslega yfirburði í launum.“
M.ö.o.: framtíð þessara iðngreina er talin bundin því, að það ástand haldist, að Ísland sé láglaunasvæði. Og það er ekki aðeins í sambandi við þessar vernduðu iðngreinar, sem um þetta er rætt. Það er einnig talað um, eins og fram kom raunar í tilvitnun, sem ég var með áðan, að fá hingað erlend fyrirtæki á þessum sömu forsendum.
Hv. þm. Hannibal Valdimarsson hefur haft uppi þá kenningu, að aðild að EFTA hljóti að verða til þess, að kaupgjald hækki hér á landi, t.d. til samræmis við það, sem er í Svíþjóð eða á Norðurlöndum. En þetta er afar barnaleg og órökstudd staðhæfing. Ekkert slíkt felst í EFTA-kerfinu að sjálfsögðu. Innan EFTA eru bæði hálaunasvæði og láglaunasvæði. Um það eru engar heimildir, að lífskjör almennings hafi t.d. batnað í Portúgal á þessu tímabili eða kaupgjald hafi hækkað þar. Hins vegar held ég, að það væri tilvalið fyrir hv. þm. Hannibal Valdimarsson að reyna kannske að færa rök fyrir þessu sjónarmiði með því að fá bandamenn sína, hæstv. ríkisstj., til þess að lýsa því yfir, að hún vilji stuðla að kauphækkunum á Íslandi í tilefni að inngöngu í EFTA. Það gæti styrkt verkafólk mjög mikið fyrir þá kaupgjaldsbaráttu, sem nú er fram undan, ef hv. þm. Hannibal Valdimarsson fengi t.d. hæstv. forsrh. til að koma hingað í ræðustól og lýsa yfir því, að hæstv. ríkisstj. væri fylgjandi því, að kjör sjómanna væru bætt til mikilla muna og samið yrði um verulega kauphækkun verkafólks í þeim samningum, sem eru fram undan í vor, — einmitt með tilliti til aðildarinnar að EFTA. Ef hv. þm. gæti gert þetta, væri hægt að taka þessar yfirlýsingar hans trúanlegar, en án þeirra naumast. Hins vegar finnst mér, að hv. þm. ætti að geta haft eitthvað upp úr þessu nána sambandi við hæstv. ríkisstj., einnig fyrir það fólk, sem hann á að vera fulltrúi fyrir.
Ég rakti áður í ræðu minni, að af hálfu hæstv. ríkisstj. hefur ekki verið mörkuð nein iðnþróunarstefna, ekki gerð nein áætlun um það, hvernig á að byggja upp nýjan útflutningsiðnað, ekkert rætt um fjármagn, ekkert um skipulag í því sambandi. En hvað um erlend fyrirtæki? Er þar einvörðungu um almennar staðhæfingar að ræða, eða hefur verið unnið öðruvísi að því máli? Þar hefur vissulega verið unnið öðruvísi. Þar er það ekki látið nægja að láta einn ágætan prófessor setjast niður og semja bók, þar hefur starfað mikill fjöldi sérfræðinga, og þar hafa verið lagðir fram tugir milljóna króna til þess að búa í haginn fyrir samninga við erlend fyrirtæki. Þannig var unnið að samningunum við svissneska álhringinn á sínum tíma, og þannig er unnið enn. En það er ákaflega athyglisvert, að í sambandi við þessa tillögu um aðild að EFTA eru ekki neinar skýrslur um þessar athafnir hæstv. ríkisstj. Hæstv. iðnmrh. hefur t.d. enga skýrslu gefið hér á þingi um það, hver urðu málalok í því ferðalagi, sem hann fór í sumar til Norðurlanda til að kanna það, hvort norrænir iðnrekendur væru reiðubúnir til þess að stofna dótturfyrirtæki á Íslandi. Hæstv. ráðh. fór gagngert í slíkt ferðalag. Hann hefur verið nokkuð þögull um málalokin, en ég tel, að alþm. eigi heimtingu á að fá vitneskju um þetta atriði. Varð hæstv. ráðh. vel ágengt? Má eiga von á því, að stofnuð verði mörg slík dótturfyrirtæki hér á Íslandi á næstunni?
Margt fleira af þessu tagi hefur verið undirbúið. Þau tíðindi gerðust fyrr á þessu ári, sem eru einsdæmi í sögu Íslands, að birt var auglýsing í brezku blaði frá Landsvirkjun, þar sem verið var að auglýsa auðlindir okkar til afnota fyrir útlendinga, birt stór auglýsing í brezku blaði. Hafa komið mörg svör, hæstv. ráðh.? Hafa komið mörg tilboð um hagnýtingu á þessum auðlindum? (Dómsmrh.: Því miður ekki.) Því miður ekki, nei. Engu að síður reiknar ríkisstj. auðsjáanlega með því að fá einhver slík tilboð, vegna þess að sú stefna, sem hún boðar í virkjunarmálum, hefur það öll að forsendu, að hún geti náð slíkum samningum. Þegar ríkisstj. hefur rætt um að ráðast næst í Sigölduvirkjun, hefur hún lýst því yfir, að forsendan sé sú, að samningur náist við eitthvert hliðstætt fyrirtæki og álbræðsluna í Straumsvík. Og þegar ríkisstj. er með bolla. leggingar, og leggur þegar talsvert mikið fé í að undirbúa þær, um einhverja stærstu vatnsvirkjun í heimi á Austfjörðum, helgast þau áform af hliðstæðum samningum við erlenda aðila. Það hefur heldur ekki farið neitt dult, að hæstv. iðnmrh. hugsar sér, að það verði erlendir aðilar, sem fyrst og fremst standi að hinni fyrirhuguðu sjóefnaverksmiðju. Og hvað um undirbúninginn að olíuhreinsunarstöðinni? Það er vitað, að hæstv. ráðh. hefur lagt mikla vinnu í það mál, einnig eftir að hann gaf skýrslu sína hér í lok síðasta þings: farið í ferðalag til annarra landa, safnað tilboðum frá mörgum þjóðum. Hvernig stendur það mál? Og er ekki hugsunin, að það verði erlendir aðilar, sem eigi það fyrirtæki? Ég held, að enginn maður, sem fylgist með af einhverju raunsæi, geti komizt hjá þeirri ályktun, að hinar eiginlegu hugmyndir hæstv. ríkisstj, um iðnþróun á Íslandi eru fyrst og fremst þær, að sú iðnþróun verði höndum útlendinga.
Um þetta atriði er raunar um fleira að ræða en það, sem ég hef þegar minnzt á. Fyrir nokkrum vikum birtist í Morgunblaðinu afar fróðleg ræða, sem framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna, Ottó Schopka, hafði haldið á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfl. í Reykjavík. Þetta er einn af forustumönnum í iðnaðarmálum á Íslandi og einn af þeim mönnum, sem eru í innsta hring Sjálfstfl. Hann komst svo að orði, með leyfi hæstv. forseta:
„Margt bendir til þess, að með aðild Íslands að Fríverzlunarbandalaginu opnist ýmis tækifæri til nánari tengsla og samstarfs við erlend iðnfyrirtæki. Ekki er ólíklegt, að erlend fyrirtæki mundu vilja leggja fram fjármagn til iðnrekstrar á Íslandi í því skyni að notfæra sér þá aðstöðu, sem Ísland gæti boðið. Það hefur færzt mjög í vöxt, eftir að Efnahagsbandalagið og Fríverzlunarbandalagið voru stofnuð, að bandarísk fyrirtæki hafa komið upp eigin verksmiðjum í ríkjum bandalaganna til þess að losna við að greiða innflutningstolla, sem að öðrum kosti hefðu skert samkeppnisaðstöðu þeirra á þessum mörkuðum. Með þetta í huga ásamt þeirri staðreynd, að hér er hægt að fá mikla orku mjög ódýrt og vinnulaun eru hér enn þá tiltölulega lág miðað við það, sem gerist í V.-Evrópu, er ekki ólíklegt, að fyrirtæki vestan hafs mundu hafa áhuga á að koma hér upp verksmiðjum með útflutning til Fríverzlunarbandalagsins í huga. Eins og íslenzkri löggjöf er háttað, þurfa íslenzkir aðilar að eiga meiri hluta hlutafjár í hlutafélögum, sem stofnuð eru hér á landi, og réttur útlendinga til að eiga fasteignir hér á landi er mjög takmarkaður. Þessi lög þarf að endurskoða, og er eðlilegast, að iðnmrh. sé veitt heimild til þess að gefa erlendum fyrirtækjum leyfi til starfrækslu hér á landi að uppfylltum vissum skilyrðum.“ (Gripið fram í.) Það er í frv., sem liggur fyrir Alþ., aukin heimild til hæstv. ráðh. í þessu sambandi. Mér er það algjörlega ljóst. Ég skal ræða um það dálítið frekar, hæstv. ráðh. (Gripið fram í.)
Í þessari tilvitnun frá Ottó Schopka komu fram ákaflega ljós sjónarmið. Við eigum að ganga í EFTA m.a. í þeim tilgangi að geta leppað bandarísk fyrirtæki. Við eigum að láta þeim í té afar ódýra orku og ódýrara vinnuafl en annars staðar er fáanlegt í V.-Evrópu um þessar mundir. Og við eigum að breyta löggjöf okkar í samræmi við óskir og þarfir hinna erlendu fyrirtækja.
Í grg, fyrir frv. sjálfu er raunar á það bent, hvernig staðan er í orkumálunum. Við höfum deilt talsvert um þau hér á þessu þingi í haust. Og í grg. er að finna afar fróðlega vitneskju í því sambandi. Á bls. 192 í grg. er fjallað um hugsanlega framleiðslu á fosfór, og þar er komizt svo að orði, með leyfi hæstv. forseta:
„Hins vegar er talið, að spara megi nálægt 60 dollara á tonn í orkukostnaði, ef verksmiðja er staðsett á Íslandi, orkuverð 2.5 mills á kwst. samanborið við staðsetningu í Bretlandi eða Þýzkalandi, orkuverð 8 mills á kwst.“
Sú orka, sem rætt er um hér á landi sem fala útlendingum og auglýst er í brezkum blöðum, kostar 22 aura á kwst. á sama tíma og hæstv. ríkisstj. greinir frá því, að orkuverð í Bretlandi og Þýzkalandi sé yfir 70 aurar. En mér er spurn: Voru það hugmyndir manna, þegar þeir ræddu um, að við ættum að hagnýta orkulindir okkar og auðlindir, að eftirláta þetta erlendum aðilum, sem hirða af því ágóðann og flytja úr landi, án þess að lyfta því þjóðfélagi, sem hér er?
Hæstv. ráðh. minntist áðan á lagasetningu í þessu sambandi. Hér liggja fyrir Alþ. tvö frv., annað um iðju og iðnað og hitt um verzlunaratvinnu. Það hefur verið staðhæft í blöðum, að þetta séu frv., sem eigi að koma í veg fyrir, að erlendir aðilar geti stofnað hér fyrirtæki. Að sjálfsögðu felst engin slík trygging í þessum lögum. Þarna er þetta lagt á vald tveggja hæstv. ráðh. Við þekkjum allir þá hæstv. tvo ráðh., sem valdið fá á undan öðrum, hæstv. ráðh. Jóhann Hafstein og hæstv. ráðh. Gylfa Þ. Gíslason, og vitum það afar vel, að það aukna vald, sem þeim er ætlað, munu þeir hagnýta til þess að laða hingað eins mikið af erlendum fyrirtækjum og nokkur kostur er. Í þessu er að sjálfsögðu ekki fólgin nein trygging gegn ágengni á þessu sviði, heldur hið gagnstæða. Í frv. er fólgin sú trygging, að þarna verði gengið eins langt og þessir menn dirfast að gera, og það munu engir aðrir vilja fara lengra.
Raunar er fróðlegt að rifja það upp, að í sambandi við 16. gr. um hin gagnkvæmu réttindi var lengi um það rætt, að Íslendingar yrðu að setja fyrirvara, þó ekki væri til annars en þess að koma í veg fyrir, að erlendir aðilar gætu ruðzt inn í fiskiðnað okkar, vegna þess að þar er um óljós vandamál að ræða. En hæstv. ríkisstj. gafst upp á því að setja slíkan fyrirvara, vegna þess að það var talið illa séð af öðrum EFTA-ríkjum. Álitið var, að þau teldu að þarna væri á sín réttindi gengið og mundu setja einhverja aðra fyrirvara á móti. Og hæstv. ríkisstj. guggnaði fyrir þessu viðhorfi samningsaðilanna í EFTA. Guggnaði, segi ég, ég veit náttúrlega ekki, hvort það er rétt; ég geri ráð fyrir, að hún hafi gert þetta fagnandi. Hún hefur reynt að flíka því í almennu umtali, að hún sé á verði á þessu sviði, en hún er það öldungis ekki.
Ég held, að það sé mikið meginatriði, sem ég minntist á áðan, að menn geri sér grein fyrir því, að aðildin að EFTA er af hálfu hæstv. ríkisstj. fyrst og fremst hugsuð sem einn liður í stjórnarstefnunni, til þess að styrkja þá stjórnarstefnu, sem hér hefur verið í 10 ár og menn hafa af reynslu, sem ég ætla ekki að ræða frekar að þessu sinni.
Hin almennu viðhorf hafa verið ljós mjög lengi, og mér er það raunar undrunarefni, hvað sumir prýðilega greindir menn eiga erfitt með að átta sig á þessu. Ég minntist fyrir nokkrum dögum á fræga setningu, sem hæstv. viðskmrh. hafði yfir uppi í Þjóðminjasafni á 100 ára afmæli þeirrar stofnunar, þegar hann hafði eftir Winston Churchill hin fleygu orð: „Bezta ráðið til að efla sjálfstæði þjóðar er að fórna sjálfstæði hennar.“ Ástæðan til þess, að hæstv. ráðh. hafði þessi orð yfir, var sú, að hann vildi heimfæra þau upp á Íslendinga. Hann lagði áherzlu á það, að þróunin núna væri aukin bandalög, stór ríki, stór átök, það þýddi ekkert fyrir smáaðila að standa utangarðs. Smákænuna yrði að tengja við stóra skipið. Ég ætla, að þeim, sem þarna voru viðstaddir, hafi orðið þessi ræða ákaflega minnisstæð, vegna þess að hún sýndi djúpt inn í hugskot þessa hæstv. ráðh. Hún sýndi lífsviðhorf, einmitt viðhorf af því tagi, sem ráða athöfnum manna um langan tíma. Það er viðhorf núv. ríkisstj., að Ísland sé of lítil efnahagsleg heild, til þess að hægt sé að hafa hér sjálfstæða stjórn á þeim málum, að við verðum að tengjast stærri heild. Ríkisstj. hefur reynslu af því, að þau markaðslögmál, sem áttu að hrífa á viðreisnartímabilinu, dugðu ekki hér á Íslandi, vegna þess að hér er margt mjög frábrugðið því, sem er í stærri þjóðfélögum. M.a. er aðalframleiðsla okkar, útflutningsframleiðslan, gjörsamlega eða svo til óháð innlenda markaðnum. En leiðin út úr þessum vanda er af hálfu hæstv. ríkisstj. sú, að þar sem þessi lögmál hrífa ekki á Íslandi, í þessu litla þjóðfélagi, eigi ekki að breyta um lögmál, heldur eigi að breyta þjóðfélaginu. Það er þetta, sem falizt hefur í stefnu ríkisstj. um langt skeið, og aðildin að EFTA á að vera einn áfangi að þessu marki.
Ég hef verið öllu langorðari en ég ætlaði mér að verða og skal nú stytta mál mitt. Þetta er ákaflega margþætt mál og flókið og væri hægt að ræða um það langt mál. Í rauninni væri ástæða til þess að hafa það ekki skemmra mál heldur en skýrslu Guðmundar Magnússonar prófessors. En ég vil í síðasta lagi benda sérstaklega á eitt enn í þessu sambandi. Enda þótt þingflokkarnir hafi getað fylgzt með þróun þessara mála um langt skeið og fengið í sínar hendur þau gögn, sem um var að ræða, voru þessi gögn öll trúnaðarmál í höndum n. þangað til fyrir nokkrum vikum. Almenningur hefur aðeins haft örfáar vikur til þess að kynna sér þetta mál, til þess að ræða um það, til þess að reyna að mynda sér skoðanir á því. Hæstv. ríkisstj. hefur ekki haft neitt samráð við almannasamtök í landinu, hún hefur haft samráð við kaupsýslumenn og atvinnurekendur, en hún hefur ekki haft samráð við hagsmunasamtök almennings. Málið hefur verið tekið til umr. í ýmsum verkalýðsfélögum, og þau hafa öll tekið afstöðu á móti aðild. Sömuleiðis hefur Stéttarsamband bænda fjallað um þetta mál og tekið afstöðu á móti. Og ég tel, að það eigi að vera mönnum ærið umhugsunarefni, að þau almannasamtök, sem hafa fjallað um þetta mál, rætt það og markað stefnu í því, hafa öll tekið afstöðu á móti. Það er aðeins nokkur hluti atvinnurekenda, sem er með, og þá fyrst og fremst stóratvinnurekendur, út frá þeirri alkunnu staðreynd, að fjármagnið á sér ekkert föðurland. Hér er ekki sízt um að ræða atvinnurekendur, sem gera sér vonir um að geta orðið umboðsaðilar fyrir útlendinga og geta byggt frekari starfrækslu sína á slíkri þjónustustarfsemi.
Við heyrðum einn atvinnurekanda, hv. þm. Svein Guðmundsson, flytja hér dálitið sérkennilega ræðu fyrir nokkrum dögum. Þessi atvinnurekandi, þessi hv. þm. hefur lent í vanda með fyrirtæki sitt á undanförnum árum, eins og allir vita; vegna viðreisnarstefnunnar lenti fyrirtæki hans í vanda, og hann varð að loka heilum deildum. Viðbrögð hans urðu þau, að hann gerðist umboðsmaður fyrir erlendar smiðjur, sem framleiddu ýmsa pá hluti, sem hann varð að gefast upp við að framleiða sjálfur. Ég efast ekki um, að þessi hv. alþm. hafi haft hæfilegan hagnað af þessari umboðsstarfsemi. En í þessu fólst það, að vinna, sem áður var unnin á Íslandi, og þar sem hagnýtt var íslenzk sérþekking, íslenzk verkmenning, hún var nú unnin erlendis. Vélarnar stóðu ónotaðar hjá þessum atvinnurekanda, og verkamennirnir höfðu ekki nóg að gera. Það er kannske ekkert sérstakt áhyggjuefni fyrir þennan hv. þm., jafnvel þó að fyrirtæki hans hætti gjörsamlega, ef hann getur tryggt sér umboðsaðstöðu fyrir aðra í staðinn. En það er þetta, sem skilur á milli ýmissa stóratvinnurekanda og hinna smærri, og það er þetta, sem mótaði afstöðu stóratvinnurekendanna í Félagi íslenzkra iðnrekenda, sem réðu úrslitum í afli fjármagns síns og með því að hafa atkvæðisrétt út á það fólk, sem hjá þeim vinnur, án þess að fólkið væri nokkuð spurt. Ég hygg, að þessi hv. þm. sé í Félagi íslenzkra iðnrekenda, — er það ekki rétt? Mér þætti fróðlegt að vita, fyrir hve marga verkamenn hann hafði atkvæði. Og mér þætti fróðlegt að vita, hvaða samband hann hafði við verkamenn sína, áður en hann tók ákvörðun um, hvernig atkvæði þeirra væru notuð.
En þessar aðstæður, sem ég var að lýsa, leiða til þess, að það er algjörlega óhjákvæmilegt, að hafður verði annar háttur á meðferð þessa máls en gerð er till. um af hæstv. ríkisstj. Þetta mál er mjög stórfellt, það viðurkenna allir. Það viðurkenna allir, að þetta sé eitthvert stærsta mál, sem borið hefur verið upp hér á þingi seinustu áratugi, og að sú ákvörðun, sem í þessu felst, muni hafa mjög verulegar afleiðingar. Eigi þjóðaratkvæði nokkurn tíma rétt á sér, hlýtur það að vera í sambandi við mál eins og þetta. Ég get ekki séð, að til séu nokkur rök, sem mæla gegn því, að þetta mál verði lagt undir þjóðaratkvæði. Jafnvel áköfustu stuðningsmenn EFTA-aðildar geta ekki haldið því fram, að það skipti nokkru máli, hvort slík aðild væri ákveðin hálfu ári fyrr eða seinna, slíkt getur ekki skipt nokkru máli. Ég held, að það væri tiltölulega mjög auðvelt að leggja þetta mál undir þjóðaratkvæði án nokkurs verulegs tilkostnaðar í sambandi við sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þar gengur verulegur hluti af íslenzkum kjósendum til atkvæða hvort eð er, og það er hægt að hafa sérstaka atkvgr. fyrir þá, sem þar eru ekki með. Þetta væri mjög auðvelt í framkvæmd, og ég get ekki séð, að á móti þessu verði staðið með nokkrum rökum. Ef stuðningsmenn EFTA-aðildar hafa trú á því, að þjóðin fylgi þeim í þessu máli, ætti ekki að vera mikil áhætta fyrir þá að fallast á slíka þjóðaratkvgr. Það mundi styrkja stöðu þeirra til mikilla muna, ef þeir hefðu tryggt sér atfylgi meiri hluta þjóðarinnar. Þá gætu þeir ekki legið undir neinni tortryggni um það, að þeir væru að vinna verk, sem gengi í herhögg við vilja almennings. Ég vil skora mjög alvarlega á menn að hugleiða það, hvort þetta er ekki einmitt leiðin til þess að koma í veg fyrir, að þetta mál valdi mjög alvarlegum úfum meðal þjóðarinnar.
Ég vil að lokum leggja áherzlu á, að þótt ég sé andvígur aðild að EFTA með þeim rökum, sem ég hef hér reynt að gera grein fyrir að nokkru leyti, þá fer því ákaflega fjarri, að ég sé að spá einhverjum dómsdegi, eins og stundum er reynt að halda fram í blöðum, að felist í málflutningi mínum. Ég veit fullvel, að það er hægt að reisa skorður við óeðlilegum EFTA-áhrifum, ef í landinu væri ríkisstj., sem hefði hug á að gera það. Ég veit einnig, að það er hægt að framkvæma þá stefnu að laða hingað sem mest af erlendu fjármagni og erlendum fyrirtækjum án þess að ganga í EFTA. Þess vegna mun barátta um þessi meginatriði halda áfram hvaða ákvörðun sem nú verður tekin. En á því þurfa menn að átta sig, að við getum aldrei komizt að réttri niðurstöðu, hvorki um þetta mál né önnur, nema okkur lærist að meta viðfangsefni okkar af íslenzkum sjónarhóli og gera okkur grein fyrir því, að þjóðfélag okkar er býsna frábrugðið öðrum þjóðfélögum og um það gilda sérstök lögmál.
Það er mikill misskilningur, sem hæstv. forsrh. sagði hér á dögunum, að hann gæti ekki skilið, að ekki ætti að gilda sömu lögmál um okkur eins og aðra. ísland er mjög frábrugðið öðrum þjóðfélögum á margan hátt. Því veldur smæð okkar, og því veldur einnig saga okkar og þróun okkar, efnahagsþróunin. Mál eru hér á allt öðru stigi en þau eru yfirleitt t.d. í EFTA-löndum, og við erum ekki menn til þess að leggja á ráðin um skynsamlega stjórn í þessu þjóðfélagi, nema við lærum að meta viðfangsefnin frá sjónarmiði okkar sem Íslendinga. Við skulum minnast þess, að tilvera þjóðar er ekki aðeins hagfræðireglur. Það kemst engin þjóð áleiðis með útreikningum og hagfræðireglum einum. Það, sem skiptir sköpum, er pólitískur vilji, vilji til þess að leggja eitthvað í sölurnar fyrir það þjóðfélag, sem maður er hluti af, vilji til þess að reyna að reisa þjóðfélagið og ýta því áfram. Þess vegna eiga þau átök, sem þetta mál er hluti af, eftir að standa mjög lengi enn, og ég veit, að þó að menn ímyndi sér sumir, að þeir hafi sterka aðstöðu í þjóðfélaginu, eins og sakir standa, þá á það eftir að breytast.