18.12.1969
Sameinað þing: 26. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í D-deild Alþingistíðinda. (2952)
117. mál, aðild Íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu
Menntmrh. ( Gylfi Þ. Gíslason ):
Herra forseti. Ég skal nú fara nokkrum orðum um þau helztu andmæli, sem fram hafa komið gegn þessari till., gegn aðild Íslands að Fríverzlunarsamtökum Evrópu, við fyrri umr. málsins og það sem af er þessari umr., og víkja líka að staðhæfingum, sem fram hafa komið, í nefndarálitum hinna tveggja minni hluta. Ég skal víkja að andmælunum efnislega, hverjum á eftir öðrum, án þess að gera greinarmun í einstökum atriðum, og málflutningi andstæðinga EFTA-aðildar, — mér er raunar ekki alveg ljóst, hvort ég á að telja hv. fulltrúa Framsfl. til andstæðinga EFTA-aðildar eða fylgjenda EFTA-aðildar í heild.
Höfuðatriðið, sem lögð hefur verið áherzla á sem ókost eða galla við EFTA-aðild, er það, að verndaður iðnaður á Íslandi muni ekki standast þá samkeppni, sem EFTA-aðild hafi í för með sér. Á það hefur verið bent, að í vernduðum iðnaði á Íslandi hafi unnið 35004000 manns og að þetta fólk muni missa atvinnu sína. Samt hafa fulltrúar Framsfl. yfirleitt, þótt í mismunandi ríkum mæli sé, lagt á það áherzlu, að þeir væru fylgjandi fríverzlun í sjálfu sér. Og mér til nokkurrar undrunar sagði hv. þm. Magnús Kjartansson í ræðu sinni áðan, að hann væri líka í grundvallaratriðum fylgjandi fríverzlun. Nú hljóta þessir aðilar allir að gera sér grein fyrir því, að fríverzlun annars vegar og tollvernd iðnaðar hins vegar fara ekki saman. Þetta útilokar hvort annað. Fríverzlunarhugmyndin er einmitt sú, grundvöllur hennar er einmitt sá, markmið hennar er einmitt það að stunda ekki tollverndaðar atvinnugreinar og þá sérstaklega ekki tollverndaðan iðnað, sem hvarvetna hefur fyrst og fremst notið tollverndar. Það er því í grundvallaratriðum nokkurt ósamræmi í þessari almennu stefnuyfirlýsingu um hollustu við fríverzlun annars vegar og hins vegar að vera síðan logandi hræddur við að stíga sérhvert spor burt frá tollvernd, eins og hér er um að ræða. Þó verða sporin, sem hér er gert ráð fyrir að stíga, mun hægari en dæmi þekkjast um annars staðar í þeim löndum, sem gerzt hafa aðilar að líku viðskiptasamstarfi og EFTA- samstarfið er og tíðkazt hefur í öllum heimsálfum á undanförnum árum.
Hitt er svo sjálfsagt að viðurkenna, að afnám tollverndar hefur alltaf viss vandamál í för með sér, og engan veginn alltaf auðleyst. Auðvitað mun sú mikla tollvernd, sem hér hefur verið um áratugaskeið, hafa veruleg vandamál í för með sér. Þetta hefur okkur í ríkisstj. og þeim öllum, sem að þessu hafa unnið, verið ljóst frá byrjun. Þess vegna höfum við einmitt lagt á það sérstaka áherzlu að kanna annars vegar, hve langan tíma íslenzkur iðnaður þyrfti til þess að hægt væri að fylgja hollustunni við fríverzlunarsjðnarmiðið, hversu langan tíma hann þyrfti til þess að geta búið sig undir það að búa við fríverzlun, þ.e.a.s. að missa sína tollvernd. Um þetta hafa farið fram ýtarlegar, langar umræður við iðnrekendur. Hvorki meira né minna en 18 viðræðunefndir hafa starfað að þessu verkefni alveg sérstaklega mánuðum saman. Og einmitt þess vegna var próf. Guðmundi Magnússyni falið að gera eins nákvæma úttekt á íslenzkum iðnaði og samkeppnishæfni og aðlögunarhæfni hans og frekast væri unnt. Sú skýrsla liggur hér fyrir. Það er algjör misskilningur, að Guðmundi Magnússyni prófessor hafi verið falið að athuga um möguleika á nýjum útflutningsiðnaði. Honum var aldrei falið það. Honum var falið að gera athugun á samkeppnishæfni, á aðlögunargetu þess iðnaðar, sem nú starfar í landinu, og það gerði hann og gerði það með mikilli prýði. Niðurstaða hans var sú, að staða íslenzks iðnaðar væri miklu sterkari en menn höfðu áður þorað að gera sér vonir um. Og þetta var ekki einungis skoðun próf. Guðmundar Magnússonar, sem vann hlutlaust að verkefninu, þetta reyndist einnig vera skoðun mikils meiri hluta íslenzkra iðnrekenda. Ef tilteknum skilyrðum yrði fullnægt, gætu þeir staðizt þá samkeppni, sem EFTA-aðild hefði í för með sér. Ef einhver snefill af sannleika væri í því, að iðngreinar, þar sem 3500–4000 manns vinna, mundu leggjast í rúst vegna EFTA-aðildar og þessi fjöldi fólks bókstaflega verða atvinnulaus á tiltölulega skömmum tíma, hvernig geta menn þá búizt við því, að EFTA-aðild eigi jafnmikið fylgi meðal íslenzkra iðnrekenda og raun ber vitni? Skyldu íslenzkir iðnrekendur vera þeir glópar að fylgja beinlínis stefnu, sem ætti að leggja atvinnurekstur þeirra í rúst á örskömmum tíma? Hver ætlar nokkrum atvinnurekanda jafnheimskuleg sjónarmið, jafnmikla fávizku og þetta?
Nei, niðurstaða vísindamannsins er ótvíræð. Hann segir: Íslenzkur iðnaður, — með þeim skilyrðum, sem hann vissi að á var völ, — hann mun standast þá raun, sem hann lendir í. Auðvitað lendir hann í vissum vanda. Aukin samkeppni færir alltaf nýjan vanda. En vandinn er ekkí meiri en svo, og styrkur íslenzka iðnaðarins er svo mikill, að iðnaðurinn mun standast þennan vanda. — Þetta var dómur fræðimannsins. Skoðanir og afstaða iðnrekendanna sjálfra, sem eiga við vandann að etja, eru á sömu leið. Þeir segja: Við munum standast þennan vanda, ef vissum skilyrðum verður fullnægt. Þau skilyrði hafa verið sett skilmerkilega fram, og til þeirra hefur verið tekið tillit í samningaviðræðunum og í viðræðum við þá hér heima um ráðstafanir, sem stendur til að gera í íslenzkum innanlandsmálum.
Þessi niðurstaða fræðimannsins og afstaða iðnrekendanna er í fullu samræmi við reynslu annarra núverandi EFTA-ríkja í þessum efnum. Norðmenn fengu að heyra alveg sama sóninn heima hjá sér frá bölsýnismönnum, frá mönnum, sem hvorki treystu sjálfum sér né öðrum og höfðu alveg sama sóninn um það, að norski heimaiðnaðurinn mundi leggjast í rúst. Það er enginn vandi að lesa upp heilar blaðagreinar, jafnvel eftir merkustu menn, sem nú dauðskammast sín fyrir allt það, sem þeir sögðu fyrir 10 árum um þetta efni og vildu aldrei hafa sagt. Reynslan hefur orðið þveröfug. Ekki hvað sízt hefur hinn veiki og verndaði norski heimaiðnaður eflzt á undanförnum 10 árum í stað þess að lognast út af eða hverfa úr sögunni, — að ég tali ekki um ýmsan annan iðnað Norðmanna. Meira að segja hefur iðnaðurinn, sem sérstaklega var spáð að mundi hverfa úr sögunni, eflzt við EFTA-aðildina, af því að aukin samkeppni færði mönnum nýjan styrk, nýjar hugmyndir og nýja dirfsku.
Við þurfum raunar alls ekki að fara til Noregs eða til nokkurs annars lands til þess að átta okkur á því, að aukin samkeppni hefur holl áhrif, ekki sízt á atvinnurekstur, sem lengi hefur notið verndar í einu eða öðru formi, hvort sem er tolla eða hafta. Það eru ekki nema 10 ár síðan svo að segja allur íslenzkur iðnaður var verndaður með höftum. Þegar sú stefna var tekin upp fyrir tæpum 10 árum að afnema þessi höft, og þau hafa nú verið afnumin að langmestu leyti, var hafinn þessi sami söngur, — og ekki minni en núna, ég held ennþá háværari en hann er sunginn núna, um það, að afnám haftanna muni smám saman drepa íslenzkan iðnað. Það er afar vandalítið fyrir mig að lesa upp hverja ræðuna á fætur annarri eftir hv. framsóknarmenn og eftir hv. Alþb.-menn hér á hinu hv. Alþ. og hverja forustugreinina á fætur annarri eftir þá tvo ritstjóra, sem hér hafa talað, um það í byrjun áratugsins, að í þessari stefnu — afnámi haftanna — fælist dauðadómur yfir íslenzkum iðnaði fyrir innanlandsmarkaðinn. Hver hefur reynslan verið? Ég þarf ekki að lýsa henni, hv. þm. er hún jafnkunnug og mér.
Auðvitað kunna einstök fyrirtæki að hafa farið halloka á undanförnum árum. Slíkt er alltaf að gerast hvort sem verið er að afnema höft eða auka höft. Og auðvitað hefur afkoma einstakra iðngreina verið eitthvað misjöfn, slíkt gerist líka alltaf, hvort sem verið er að afnema höft eða auka höft, það er undir ótal atriðum komið. Og ég er ekki heldur fjarri því, að afnám haftanna hafi haft einhver áhrif á samsetningu íslenzks iðnaðar, á uppbyggingu íslenzks iðnaðar. En ég fullyrði, og það er mergurinn málsins, að þau áhrif hafa verið heilbrigð. Þau fyrirtæki, þar sem framleiðslan hefur dregizt saman vegna afnáms haftanna, var gott fyrir íslenzkan þjóðarbúskap að drægjust saman, og þau, sem hafa eflzt og risið upp vegna afnáms haftanna, það eru fyrirtæki, sem við þurfum á að halda, heilbrigðari fyrirtæki en hin. Sé litið á iðnaðinn í heild, taka opinberar tölur af allan vafa um, að hann er öflugri í dag en hann var fyrir 10 árum, þegar hann naut ekki aðeins tollverndar, heldur líka fullkominnar haftaverndar.
Þessu getur enginn maður, sem ber nokkra virðingu fyrir sannleikanum og sjálfum sér, andmælt, því þetta er óræk staðreynd, svo alkunn, að ég hirði ekki um að finna henni stað með því að vitna í tölur. Það hefur verið gert oft áður. Ég er sannfærður um, að eins muni fara að þessu sinni, að þrátt fyrir alla bölsýni svartsýnismanna muni afnám verndartolla á þeim tíma, sem það er fyrirhugað, hafa ekki minni áhrif til hagsauka fyrir íslenzkan iðnað en afnám haftanna hefur haft á liðnum áratug.
Það er algjört öfugmæli, að aðild að EFTA muni leiða af sér aukið atvinnuleysi á Íslandi. Ég segi: Þvert á móti, EFTA-aðild er stærsta sporið, sem nú er hægt að stíga til þess að auka atvinnu á Íslandi, til að skapa nýja atvinnumöguleika í nýjum atvinnugreinum og í nýjum fyrirtækjum. Þess vegna er það vægast sagt furðuleg blekking að veifa hættunni á auknu atvinnuleysi framan í vinnandi fólk í sambandi við EFTA-aðild. Í EFTA-aðildinni felst von um að geta unnið bug á atvinnuleysi og aukið atvinnu, vegna þess að EFTA-aðild skapar miklu, miklu fleiri nýja möguleika en þá, sem hverfa úr sögunni vegna EFTA-aðildar.
Í þessari afstöðu fulltrúa stjórnarandstöðunnar til verndaða iðnaðarins á Íslandi felst í raun og veru stórkostleg vantrú á íslenzkan iðnað, auk heldur getu hans, hugmyndaauðgi og framfarahug. Það felst líka í þessu vantrú á íslenzkt iðnverkafólk. Ef þeir halda, að íslenzkt iðnverkafólk geti ekki búið til afurðir nema það njóti allt að 90% tollverndar, er það að lýsa yfir algjöru vantrausti á verkkunnáttu íslenzks iðnverkafólks, sem er rangt. Íslenzkt iðnverkafólk er mjög vel verki farið og mjög vel samkeppnishæft við erlent iðnverkafólk. Ef saman fer dugnaður atvinnurekenda og góð verkkunnátta verkafólks, getur fyrirtæki orðið fullkomlega samkeppnishæft á hæfilegum tíma við erlendan aðila. — Þetta vildi ég segja um það, sem sagt hefur verið um verndaðan iðnað og hættuna á atvinnuleysi vegna EFTA-aðildar.
Þá vil ég fara nokkrum orðum um þau ummæli, sem hv. andstæðingar EFTA-aðildar hafa haft um möguleika á nýjum útflutningsiðnaði. Þeir voru allt of óvissir, til þess að nokkuð væri á þeim byggjandi, og því miður hafa sumir þeirra látið sér sæma að fara háðulegum orðum — beinlínis háðulegum orðum um ummæli, sem fræðimenn hafa viðhaft um nýja möguleika í útflutningsiðnaði. Þetta er í hæsta máta ósanngjarnt, því að auðvitað eru miklir nýir möguleikar til, og á það hefur verið bent af skynsemi og hófsemi af hálfu þeirra fræðimanna, sem um þetta hafa ritað og rætt. Hitt er útúrsnúningur, þegar það er lagt þessum mönnum til lasts, að þeir taki hóflega og varfærnislega til orða. Auðvitað er aldrei hægt að fullyrða með vissu um möguleika nýs fyrirtækis, allra sízt nýs útflutningsfyrirtækis, fyrr en farið hefur fram nákvæm könnun á framleiðslumöguleikum og markaðsaðstæðum í greininni. Þegar fræðimenn benda á slíkt með hófsömum orðum, á ekki að leggja þeim það til lasts, heldur þvert á móti að meta það við þá, að þeir séu ekki óeðlilega fullyrðingasamir. Það hafa þeir ungu menn gert, sem um þessi efni hafa ritað. Það er þeim til sóma og á ekki að snúa út úr slíkum ummælum hjá þeim, það er ósanngjarnt.
Það hefur verið sagt, að hér vanti iðnþróunaráætlun, og mikið úr því gert. Meira að segja hefur frestun á aðild að EFTA verið rökstudd með því, að hér hafi engin iðnþróunaráætlun verið gerð. En athugum þetta svolitið nánar. Auðvitað gera allir menn, sem hugsa, allir vitibornir menn, sér ljóst, að það er ekki hægt að gera neina skynsamlega iðnþróunaráætlun á Íslandi nema á grundvelli ákveðinnar meginstefnu í atvinnumálum og viðskiptamálum, — nema hafa gert upp við sig: Eigum við að vera innan EFTA eða eigum við að vera utan EFTA? Iðnþróunaráætlun hlýtur að vera gerólík, eftir því, við hvern möguleikann er miðað. Ef gerð hefði verið iðnþróunaráætlun á undanförnum árum, miðað við það, að við værum fyrir utan EFTA, væri hún ónýt, hver stafur hennar yrði ónýtur, ef við gengjum í EFTA. Og ef við gerðum iðnþróunaráætlun, sem væri við það miðuð, að við gengjum í EFTA, — ef við hefðum unnið að því á undanförnum árum, — og gerum ráð fyrir því sem fræðilegum möguleika, að við gengjum ekki í EFTA, þá eru forsendur enn breyttar. Skilyrði til þess að geta gert iðnþróunaráætlun, eins og hverja aðra áætlun, sérstaklega um utanríkisviðskipti, er auðvitað að hafa forsendur ljósar. Þetta hélt ég að ætti ekki að þurfa að segja nokkrum manni með fullu viti.
Þess vegna verður það auðvitað eitt fyrsta atriðið, þegar búið er að marka meginstefnuna í þessum málum, ef niðurstaðan verður sú, sem ég vona og treysti, að við göngum í EFTA, að gera iðnþróunaráætlun fyrir Ísland. Auðvitað þarf að gera það. En hitt er annað mál; og það vil ég undirstrika, að þó áætlun sé gagnleg sem almenn viðmiðun um framkvæmdir til lengri tíma, er hún samt ekki aðalatriði málsins. Á þetta vildi ég leggja megináherzlu, það skiptir meginmáli. Engin áætlun er gerð um það, í hvaða framkvæmdir skuli ráðizt, heldur hlýtur að byggjast á undirbúningi ákveðinna framkvæmda og rannsókn á ákveðnum markaðsmöguleikum, ákveðnum viðskiptamöguleikum og svo framkvæmdum á því sviði. Heildaráætlun getur verið mjög gagnleg almenn vísbending fyrir þá, sem þurfa að taka slíkar ákvarðanir, atvinnurekendur og útflytjendur, en bindandi getur hún ekki verið og á ekki að vera. Engin skynsamleg áætlanagerð á undanförnum áratugum hefur verið með þeim hætti. Áætlanagerðin hefur verið rammi, almenn ábending, sem framleiðendur og útflytjendur hafa síðan haft til hliðsjónar, almennt yfirlit um þá opinberu aðstoð, sem hægt sé að veita, þannig að menn viti, innan hvaða ramma menn taka þær ákvarðanir, sem úrslitum ráða. Slíka áætlun á auðvitað að gera, þegar það liggur ljóst fyrir, hver markaðsskilyrði okkar verða við inngöngu í EFTA.
Ég hef sagt það oftar en einu sinni, að ég telji aðild að EFTA vera skilyrði fyrir því, að hér sé hægt að byggja upp umtalsverðan útflutningsiðnað. Þessi staðhæfing hefur verið gagnrýnd mjög, og ég mun víkja nánar að henni síðar í ræðu minni í tilefni af ræðu hv. 4. þm. Reykv., Þórarins Þórarinssonar. Á þessu stigi málsins vil ég segja það, að ef við með útflutningsiðnaði eigum við framleiðslu iðnaðarvöru og þó sérstaklega framleiðslu iðnaðarvöru úr erlendum hráefnum, hygg ég, að það þurfi ekki langra skýringa við, að við getum ekki vænzt þess að framleiða á Íslandi úr erlendum hráefnum iðnaðarvöru til flutnings á erlendan markað, ef við þurfum að komast yfir tollmúra. Það er auðvitað á grundvelli þessara staðreynda, sem ég hef sagt hvað eftir annað og mun segja, á meðan um þessi mál er talað, að aðild að tollfrjálsum markaði er skilyrði þess, að hér verði komið upp umtalsverðum nýjum útflutningsiðnaði. Ég hef margsagt líka, að auðvitað ætlum við að halda áfram að efla þann útflutningsiðnað, sem við stundum nú og grundvallast á sjávarútveginum. Ég hef margsagt, og að hafa eitthvað annað eftir mér er beinlínis rangt, beinlínis á móti skrifuðum texta í framsöguræðu minni, þar sem ég lagði sérstaka áherzlu á, að fyrsta markmið okkar í útflutningi ætti auðvitað að vera fullvinnsla íslenzkra sjávarafurða. Ég undirstrikaði mjög rækilega, að það var okkar fyrsta markmið. Auk þess er líka um að ræða nýja möguleika á útflutningi, úr öðrum íslenzkum hráefnum, bæði úr hráefnum í sjávarútvegi, sem ekki eru notuð enn, — það er fyrst og fremst niðursuðan, — og hráefnum í landbúnaði, sem lítið eða ekki eru notuð enn. Þetta á auðvitað . að koma næst. Þetta finnst mér alveg sjálfsagt og enginn ágreiningur við mig og raunar barnaskapur að vera að reyna að snúa út úr orðum mínum, - þetta hef ég sagt hundrað sinnum .og miklu meira en hundrað sinnum; en láta samt eins og ég hafi aldrei sagt þetta, það er vægast sagt skringilegt. En svo hef ég bætt við. Ég geri mér ekki neina von um, að hægt sé að finna á næstu tveim áratugum ný störf fyrir 30–35 þús. manns með því eingöngu að byggja á aukinni fullvinnslu sjávaraflans eða á nýjum atvinnugreinum úr íslenzkum hráefnum í sjávarútvegi eða iðnaði. Þó þetta sé nr. eitt og tvö, þá er nauðsynlegt nr. þrjú að koma hér upp iðnaði, sem vinni úr erlendum hráefnum til útflutnings á erlendan markað. Ég hef fært ýmis rök að því, að þetta muni vera hægt vegna ódýrrar raforku, vegna þess að við eigum vel þjálfað vinnuafl. Það er þetta atriði, sem ég hef sagt, að eigi að koma nr. þrjú. Hinir möguleikarnir fyrst og fremst hafa verið opnir um fjöldamörg ár, en það eru erfiðleikar á að hagnýta þá, sbr. niðursuðuna. Ég held, að ef við fáum aðgang að tollfrjálsum markaði, opnist nýir möguleikar, og það eru þeir, sem ég segi að opnist ekki, nema við eigum aðild að tollfrjálsum markaði. Þetta vona ég, að menn skilji, hafi þeir ekki skilið það fyrr. Það er gersamlega ómögulegt að deila við nokkurn viti borinn mann um það, að engin von er til þess að framleiða úr erlendu hráefni iðnaðarvörur á Íslandi og flytja þær út, ef við þurfum að sæta tollmúrum á þessar vörur við útflutninginn til annars lands.
Aðrar þjóðir hafa litið nákvæmlega eins á þetta. Þess vegna hafa viðskiptabandalögin verið mynduð, tvö í V.-Evrópu og önnur annars staðar. Þau eru skýrasta viðurkenningin á því, að þessi staðhæfing er rétt.
Það er afstaða hv. Framsfl. að bíða í þessu máli einu sinni enn, eins og við höfum beðið undanfarin ár. Um það vildi ég segja, að bið er versti kosturinn í málinu, m.a. af því, að hann gerir okkur ókleift að gera það, sem Framsókn er einmitt að heimta, að gera áætlun um atvinnurekstur okkar í framtíðinni. Með því að bíða enn verður öll áætlunargerð líka að bíða. Að heimta áætlunargerð og líka bið, það er eins og fyrri daginn, það er að segja bæði já og nei við sömu spurningunni. Þessi markmið eru ekki samrýmanleg. Ef við eigum að bíða, getum við enga áætlun gert, sem nokkurt vit er í. Til þess að geta gert áætlun um framtíðina verðum við að marka okkur stefnu. Og stefna okkar í ríkisstj. er sú að gerast aðilar að EFTA. Þá er framtíðarstefnan í þessu máli mörkuð, og við það munum við svo miða áætlanir, almennar áætlanir, og atvinnurekendur og útflytjendur sínar framkvæmdir.
Þó það sé ekki skynsamleg stefna að mínu viti, er það þó stefna, sem Alþb. hefur, að vilja ekki gerast aðili að EFTA. Það er stefna. Ég er á móti henni, en ég ber ekki á móti því, að það er valkostur fólginn í því. Ég skal heldur alls ekki bera á móti því, að það sé hægt að vera utan EFTA. Það hefur aldrei hvarflað að mér að andmæla því. Auðvitað er það hægt. Það er hægt að reka þá stefnu hér í efnahagsmálum, sem gerir okkur kleift að vera utan EFTA. En það er skoðun mín, að slík einangrun frá helztu viðskiptaþjóðum okkar mundi færa okkur lakari lífskjör en við getum náð með því að gerast aðilar að EFTA. Þetta eru að mínu viti sterkustu rökin, grundvallarrökin fyrir því, að við eigum að gerast aðilar að EFTA, EFTA-aðild geri okkur kleift að auka framleiðni og framleiðslu og þar með búa þjóðinni betri kjör. En sú einangrun, sem það er að standa utan EFTA, mundi hafa í för með sér verri lífskjör. En ég ber engan veginn á móti því, að það sé möguleiki á því að standa utan EFTA, ef menn vilja sætta sig við verri lífskjör en kostur er á.
Ég hef sagt það áður, að auðvitað gætu þau rök verið fyrir hendi, að við vildum ekki vinna það til betri lífskjara að fórna verðmætum, sem eru meira virði en góð lífskjör. Ég hef margsagt það áður, m.a. í Þjóðminjasafnsræðunni frægu, sem ég skal víkja svolítið nánar að hér á eftir. Því fer fjarri, að ég telji góð lífskjör vera einu verðmætin, sem keppa eigi að í lífinu. Það eru til mörg önnur verðmæti, sem eru meira virði: sjálfstæði, frelsi, fullveldi. Ég vil ekki kaupa bætt lífskjör á kostnað þessara verðmæta. Þetta hafa auðvitað verið höfuðrökin fyrir því, að ég hef fyrir mitt leyti, og enginn í ríkisstj. hefur nokkurn tíma mælt með því, að við gengjum í Efnahagsbandalag Evrópu. Ég teldi það vera skerðingu á sjálfstæði Íslands að undirskrifa Rómarsáttmálann óbreyttan. Það er ekki heldur borið á móti því af Efnahagsbandalagsríkjunum, að þau hafi skert sjálfstæði sitt með því að undirskrifa sáttmálann. Þetta var bakgrunnur orða Churchills, þeirra sem fræg hafa orðið hér á landi fyrir mitt tilstilli, þó mér hafi venjulega verið eignuð þau persónulega. Þetta var m.a. bakgrunnur þeirra ummæla. Churchill gerði sér ljóst, að Efnahagsbandalagsríkin hafa að nokkrum hluta fórnað sjálfstæði sínu og falið lokayfirráð nokkurra eigin mála sinna yfirstjórn Efnahagsbandalagsins. Það geta stórveldin gert. Það hafa líka lítil ríki eins og Luxemborg talið sér fært að gera. Ég mundi aldrei mæla með því, og því hefur ríkisstj. aldrei nokkurn tíma mælt með. Þetta hefur verið höfuðástæðan fyrir því, að við höfum sagt öll þessi ár: Skilyrðislaus full aðild að efnahagsbandalagi kemur ekki til greina fyrir Ísland að skoðun ríkisstj.
Þá ætla ég að fara nokkrum orðum um þá staðhæfingu, að tollalækkun gagnvart EFTA-löndum einum muni skaða viðskiptahagsmuni okkar í öðrum löndum. Þessi skoðun hefur komið fram hjá fleiri en einum ræðumanni, og hún kemur mjög greinilega fram í nál. hv. framsóknarmanna í utanrmn. En þessi skoðun er byggð á algjörum misskilningi. Eina „hættan“, sem EFTA-aðild gat hugsanlega haft í för með sér fyrir okkur á öðrum mörkuðum, var í viðskiptunum við Sovétríkin, því þau viðskipti, eins og allir vita, fara fram á tvíhliða grundvelli, á grundvelli ríkjasamninga, sem byggðir eru á innflutningsleyfum á báða bóga. Það þarf innflutningsleyfi í Sovétríkjununum fyrir þær vörur, sem við flytjum þangað, og einnig innflutningsleyfi hér. Leyfakerfi er ekki í samræmi við grundvallarsjónarmið Fríverzlunarsamtakanna, eins og öllum er ljóst. En ef við hefðum gefið olíuinnflutning frjálsan, hefði það að öllum líkindum skaðað útflutningsmarkaði okkar í Sovétríkjunum. Þess vegna var það meðal frumatriðanna, sem gerð var grein fyrir af hálfu Íslands í upphafsviðræðunum við Fríverzlunarsamtökin, að þessu fyrirkomulagi yrðum við að geta haldið. Og því höfum við getað haldið. Það er ástæðulaust að draga nokkra dul á það, að hér var um að ræða eitt erfiðasta samningsatriðið í samningunum öllum. Engu að síður fengum við viðurkenningu á því sjónarmiði okkar. Það er því ekki að óttast nein skaðvænleg áhrif á sovézk-íslenzk viðskipti, þó við gerumst aðilar að EFTA.
Hitt er fullkomin fjarstæða, að það geti skaðað útflutningsmöguleika okkar til Bandaríkjanna, þó að tollar á vissum vörum frá Bandaríkjunum verði e.t.v. hærri en tollar á sams konar vörum frá EFTA-ríkjunum. Menn tala alveg eins og það sé að gerast í fyrsta skipti í sögunni, að Ísland gerist aðili að fríverzlunarsamtökum. Slík samtök eru búin að starfa í Evrópu í 10 ár, tvenn slík samtök. Önnur samtökin, Efnahagsbandalagið, eru miklu fastmótaðri og rígskorðaðri en fríverzlunarsamtök eins og EFTA. Efnahagsbandalagið, eins og allir vita, grundvallast á því, að þótt tollar séu felldir niður innbyrðis, eru teknir sameiginlegir tollar af öðrum löndum, þ. á m. Bandaríkjunum. Í mörgum tilfellum hækkaði tollur á bandarískum vörum til Efnahagsbandalagsríkjanna smám saman við stofnun Efnahagsbandalagsins. Það heyrist ekki meðal viti borinna manna í umr. um viðskiptamál í V. Evrópu, að þetta hafi skaðað útflutningsmöguleika Efnahagsbandalagsríkjanna til Bandaríkjanna. Ég hef lesið vikurit og tímarit um viðskiptamálin, ekki bara í þau 10 ár, sem ég hef gegnt þessu starfi, heldur miklu lengur. Ég man ekki eftir neinni grein, þar sem þessu hefur verið haldið fram í alvöru, enda sýnir reynslan allt annað. Útflutningur Efnahagsbandalagsríkjanna til Bandaríkjanna hefur stórvaxið síðan Efnahagsbandalaginu var komið á laggirnar. Og útflutningur EFTA-ríkjanna til Bandaríkjanna hefur líka vaxið á þeim 10 árum, sem liðin eru síðan Fríverzlunarsamtökunum var komið á fót. Samt sem áður þarf maður að hlusta á það hér á hinu háa Alþ., að aðild að fríverzlunarsamtökum, hvað þá efnahagsbandalagi, muni stórkostlega skaða viðskiptamöguleika okkar í Bandaríkjunum t.d., eða í Afríku eða Asíu eða í S.-Ameríku. Reynslan ber vott um allt annað.
Ég man ekki betur en hv. þm. Þórarinn Þórarinsson botnaði svolítið í því, sem hann var raunverulega að segja í sömu ræðunni, á öðrum stað. Það var veigamikill þáttur í röksemdafærslu hans, að útflutningur Dana og Norðmanna til Bandaríkjanna hefði aukizt á undanförnum árum. Ber það vott um, að aðild þeirra að EFTA hafi skaðað markaðsmöguleika þeirra í Bandaríkjunum? Hann sagði það sjálfur, að það gerði það ekki. Hann hefur þá verið búinn að gleyma því. Í ræðunni áðan var hann að segja, að við mundum skaðast stórkostlega í Bandaríkjunum, ef við gengjum í EFTA. Það er ekki heil brú í þessu. Hann hefði betur munað fyrri kafla ræðu sinnar, þegar hann kom að þessum seinni kafla hennar.
Það er augljóst mál, ef við tölum um tollamismunun, sem viðskiptasamningarnir grundvallast á, að slík tollamismunun er sú eina sem viðurkennd er samkvæmt reglum GATT. Ríki má ekki hafa ólíkan toll gagnvart öðru ríki, nema ríkið sé aðili að viðskiptabandalagi, af því að viðskiptabandalög af þeirri tegund, sem EFTA og Efnahagsbandalagið eru, eru viðurkennd af GATT. Slík tollamismunun er leyfð.
Að því er tollana snertir, hefur aðild okkar að EFTA þau áhrif, að verndartollar lækka smám saman í 0 á 10 árum, og þá fá auðvitað EFTA-framleiðendur betri aðstöðu en framleiðendur í Bandaríkjunum eða Sovétríkjunum eða Tékkóslóvakíu á íslenzka markaðnum. EFTA-löndin þurfa líka að fá betri aðstöðu á íslenzka markaðinum, því tollalækkunin er ekki gerð einhliða, það er ekki einhliða ívilnun, sem Ísland veitir eingöngu iðnaðarvöruframleiðendum í þessum löndum. Við fáum annað í staðinn. Við fáum tollalækkun á öðrum vörum og ýmis önnur fríðindi í staðinn. Menn vita, að öll slík viðskiptabandalög eru grundvölluð á reglum um gagnkvæmni. Þetta vita Bandaríkin. Það er enginn að gefa neinum neitt, heldur eru menn að koma sér saman um gagnkvæman hagnað. Af þessum ástaeðum hafa Bandaríkin t.d. alltaf sýnt fullan skilning á því viðskiptasamstarfi, sem orðið hefur með þessum tvennum hætti í V.-Evrópu, og stutt þá stefnu og þær hugmyndir, sem því hafa legið til grundvallar.
Þá ætla ég að fara nokkrum orðum um það, sem sagt hefur verið um 16. gr. Þeir sögðu báðir ræðumenn stjórnarandstöðuflokkanna, áðan, að það hefði átt að gera fyrirvara við 16. gr. Annar ræðumannanna tók þannig til orða, að ríkisstj. hefði gefizt upp á því að hafa fyrirvara við greinina. Sannleikurinn er sá, að ríkisstj. hefur að mjög vandlega athuguðu máli komizt að raun um, að það sé óþarfi að gera fyrirvara við greinina. Því er lýst í nál. meiri hl., hvaða skilning meiri hl. hefur á greininni, og sá hinn sami er skilningur ríkisstj. á henni. Greinin þýðir, að hún veitir engum erlendum aðila rétt til þess að sækja um leyfi til atvinnurekstrar á sviði fiskveiða, framleiðslu um borð í fiskiskipum og fiskvinnslu á því sviði, sem telst til sjávarútvegs, né heldur landbúnaðar, auk þess sem ákvæði greinarinnar taka ekki til gistihúsarekstrar og flutningastarfsemi. Það er því ekki aðeins rangt, heldur hættulegt, að það sjónarmið skuli koma hér fram á hinu háa Alþ., að túlka megi greinina þannig, að hún veiti erlendum aðilum í EFTA-ríkjum rétt til jafns við Íslendinga til fiskiðnaðar, t.d. rekstrar hraðfrystihúsa.
Í einni ræðu, ef ekki tveimur, hefur komið fram, að 16. gr. þýði, að ef brezkur aðili sækti um að stofna frystihús í Vestmannaeyjum, mætti ekki neita honum um það, en leyfa samtímis íslenzkum aðila að stofna frystihús í Vestmannaeyjum. Ég vil taka það skýrt fram, og legg á það alveg sérstaka áherzlu, að það hefur ekki aðeins þýðingu hér innanlands, heldur einnig út á við, að þessi skilningur er rangur. Þetta er ekki skilningur íslenzku ríkisstj. Hún lítur þannig á, að 16. gr. veiti engum erlendum aðila rétt til þess að sækja um leyfi til atvinnurekstrar í fiskvinnslu á því sviði, sem telst til sjávarútvegs. En enginn vafi er á því, að rekstur frystiiðnaðarins er þess konar atvinnurekstur. Það er einfaldlega vegna þess, að í sjálfri stofnskrá EFTA-samningsins er gert ráð fyrir því, að ekki þurfi að leyfa atvinnurekstur erlendra fyrirtækja, sem hagnýta sér auðlindir þess lands, sem um er að ræða. Ríkisstj. hefur margsagt, að hún telji að sjálfsögðu fiskinn á Íslandsmiðum til íslenzkra náttúruauðæfa, og vegna þess, að það er ómótmælanleg staðreynd, viðurkennd af þjóðréttarfræðingum, að fiskurinn við strendurnar sé íslenzk náttúruauðlind, mun íslenzka ríkisstj. ekki veita viðtöku erlendum umsóknum um rekstur frystihúsa á Íslandi, svo að ég taki það sem dæmi. Þetta vona ég, að sé nógu ljóst.
Hitt er annað mál, að 16. gr. veitir erlendum aðilum formlegt jafnrétti á við innlenda aðila til að sækja um leyfi til stofnunar nýrra fyrirtækja í öðrum iðnaði til útflutnings en þeim, sem ég nefndi áðan og fellur undir íslenzk náttúruauðæfi, og til heildverzlunar. Einmitt vegna þess að 16. gr. veitir erlendum aðilum formlegt jafnrétti við innlenda aðila á þessu sviði, hefur ríkisstj. lagt fram tvö frv. um breyt. á l. um iðju og iðnað og verzlunaratvinnu, sem gerir íslenzkum stjórnarvöldum kleift að neita um þann atvinnurekstur, sem hún vill ekki leyfa í landinu. Það hefur enginn dregið í efa í nokkru aðildarríki EFTA, að slík lagasetning sé heimil, og þess vegna höfum við lagt þessi frv. fram. Ríkisstj. ætlar að beita því valdi, sem hún vonandi fær með samþykkt þessara tveggja lagafrv., þannig, að hún mun ekki leyfa neina þá starfsemi erlendra fyrirtækja eða erlends fjármagns, sem hún telur skaðlega eða óæskilega. Það er mergurinn málsins, að EFTA-samningurinn skyldar ekki íslenzk stjórnvöld til neins slíks. Við þetta megum við ekki blanda almennum deilum okkar sjálfra innbyrðis um það, í hversu ríkum mæli sé rétt að leyfa erlendum fyrirtækjum með erlendu fjármagni að athafna sig á Íslandi. Um það getum við deilt innbyrðis endalaust. Og ég efast ekki um, að það er rétt mat hjá hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni, að okkur greini innbyrðis á um þetta. Ég er fyrir mitt leyti t.d. miklu minna hræddur við rekstur erlendra fyrirtækja og erlends fjármagns á Íslandi en hann er, þó ég vilji hins vegar, að íslenzk stjórnvöld hafi ávallt úrslitavaldið varðandi þessi mál. Þarna greinir okkur á af ýmsum ástæðum, og ég þarf ekki að fara út í það hér. En fyrir alla muni, blöndum því ekki saman við það, hvernig skilja eigi 16. gr. EFTA-samningsins.
Við lítum þannig á í ríkisstj., og teljum okkur hafa góðar og gildar ástæður til þess, að 16. gr. skyldi okkur ekki til að leyfa hér neina þá starfrækslu, sem við viljum ekki leyfa. Við höfum möguleika til þess að koma í veg fyrir alla þá erlenda starfrækslu hér á landi, sem við viljum banna. Það getur vel verið, að við viljum leyfa meira en Magnús Kjartansson vill eða Þórarinn Þórarinsson vill, en það er allt annað mál. Þá reynir á það, hvor aðilinn hefur meiri hl. á Alþ., ríkisstj. eða stjórnarandstaðan, — ef hún í heild væri á annarri skoðun, sem hún er ekki nú, í þessu máli, að því er ég bezt veit. Mjög verulegur hluti, sérstaklega Framsfl., er á sömu skoðun í þessu efni í stórum dráttum og ég var að lýsa sem minni skoðun, það þori ég að fullyrða og veit raunar. En þetta er EFTA-aðildinni gersamlega óviðkomandi. Ef ríkisstj., sem nú situr, eða einhver önnur ríkisstj. gengur lengra en Alþ. vill í því að veita erlendum aðilum atvinnurekstur eða aðstöðu á Íslandi, getur Alþ. hvenær sem er gripið í taumana. Alþ. hefur auðvitað lokaorðið í þessu máli. Það getur steypt þeirri ríkisstj., sem gengur lengra en Alþ. vill. Sérhver ríkisstj. starfar auðvitað alltaf á ábyrgð meiri hl. Alþ., þar eð lokaráðin eru hjá Alþ. Gangi stjórn lengra en Alþ. vill, fer hún, og þá tekur ný stjórn við, sem er í samræmi við þann vilja, sem á Alþ. ræður. Þetta vænti ég að megi teljast algerlega ljóst. Til viðbótar má geta þess, að ný stjórn á Íslandi, sem hefur aðrar skoðanir á þessum málum öllum en núv. stjórn, getur losnað úr EFTA á 12 mánuðum. Hætturnar, sem verið er að útmála í þessum efnum, eru svo ýktar, að engu tali tekur.
Þá ætla ég að fara nokkrum orðum um þá gagnrýni, sem komið hefur fram um það efni, að með EFTA-aðild sé tollmúrum breytt í söluskatt. Það er tekið fram í grg frv., að tollalækkunin í sambandi við inngöngu í EFTA, bein og óbein, nemi um 500 millj. kr. Og þótt þeim tollum væri breytt yfir í söluskatt, mundi vísitalan haldast óbreytt. Söluskattshækkunin er hins vegar meiri, þ.e.a.s. hún er um 750 millj. kr. í heild. Sú viðbót er EFTA-aðild gersamlega óviðkomandi. Þar er um að ræða tekjuöflun til þess að standast aukin útgjöld á fjárl., sem Alþ. er nýbúið að afgr. Ég hef ekki orðið var við annað en stjórnarandstæðingar hafi greitt atkv. með allri útgjaldaaukningu á fjárl., ekki bara þessari, sem hér er um að ræða, heldur miklu, miklu meiri útgjaldaaukningu. Og þeir eiga því ekki að vera með ólíkindalæti yfir því, að afla þurfi tekna til þess að mæta ekki bara tollalækkuninni vegna EFTA, heldur líka þeim útgjaldaauka, sem átt hefur sér stað á fjárlögum.
Sannleikurinn er sá, að allar nálægar þjóðir hafa á undanförnum árum horfið frá tollum og þá svo að segja undantekningarlaust yfir í eitt eða annað form söluskatts. Tekjuskatta og fasteignaskatta hafa menn á undanförnum árum ekki viljað hækka meir en orðið er. Þetta hefur orðið úrræði í öllum nálægum löndum, hvort sem þar hafa setið ríkisstj. sósíaldemókrata, miðflokka eða hægri flokka. Það er vegna þess, að til þess arna liggja mjög einföld, efnisleg, fjármálaleg rök. Ef breyting vegna tolla í söluskatt hefur orðið óhagstæð fyrir lífskjör eða tekjuskiptingu, sem alls ekki þarf að vera og reynslan virðist sýna hér að vissu leyti að á sér ekki stað, hefur komið til skoðanamunur á milli svokallaðra vinstri manna eða frjálslyndra manna annars vegar og hægri manna hins vegar, hvort gera þurfi ráðstafanir til úrbóta vegna þess arna eða ekki. Hafa t.d. sósíaldemókratar lagt á það megináherzlu, að samfara breytingu tolla í söluskatt séu gerðar ráðstafanir á sviði félagsmála og menntamála, t.d. í tekjujöfnunarátt, sem vegi upp þau áhrif, ef þau eiga sér stað, sem breyting tolla í söluskatt kann að hafa til þess að rýra lífskjör hinna lægst launuðu í landinu. Þetta er stefna, sem ég fyrir mitt leyti tel að eigi að hafa hér. Komi í ljós, að þessi kerfisbreyting, sem er sjálfsögð af fjármálaástæðum og allir aðrir eru búnir að framkvæma nema við, reynist hafa óhagstæð áhrif á afkomu láglaunafólks eða millistétta, á að gera aðrar ráðstafanir. Það á ekki að taka tollana upp aftur, heldur gera aðrar ráðstafanir, fyrst og fremst á sviði félagsmála, til þess að lagfæra það, sem fer aflaga.
Einu stóryrðin eða næstum einu stóryrðin, sem fallið hafa í þessum umr., voru ummæli hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar í ræðu hans áðan í tilefni af því, sem ég sagði um þessi mál, söluskattinn og tollalækkunina, í sjónvarps- og útvarpsumr. um daginn. Hv. þm. sagði, að ég hefði sagt, að tollalækkunin og söluskattshækkunin væru sama talan, m.ö.o. að tollarnir lækkuðu um jafnmörg hundruð millj. kr. og söluskatturinn hækkaði. Ég gat ekki stillt mig um að grípa fram í fyrir honum og leiðrétta þetta þegar á staðnum, því að þetta sagði ég auðvitað aldrei. Ég man vel, hvað ég sagði og hafði það auk þess skrifað hjá mér á blaði, skrifaði það hjá mér um leið og ég heyrði hann segja þetta. Það, sem ég var auðvitað að tala um þarna að gefnu tilefni frá honum, voru áhrif EFTA-aðildarinnar á tollalækkun og söluskattshækkun. Ég skaut því líka fram til hans hér, meðan hann var að tala, en hann sat við sinn keip og staðhæfði enn, að ég hefði sagt hvort tveggja, bæði þetta, að það væri sama talan, sem tollalækkunin næmi og söluskattshækkunin, og að ég hefði ekki bundið þetta við umtal um EFTA-aðildina. Ég gerði mér því lítið fyrir og hringdi í útvarpsstjóra og spurði, hvort þeir ættu ræður okkar enn þá á segulbandi. Hann vissi það ekki, en sagði, að ef hann ætti þær, skyldi hann láta afrita það, sem ég hefði sagt í seinni ræðu minni um þetta. Þetta voru fyrstu orðin í ræðu minni, sem ég hef hér. Ég hef mál mitt með þessari setningu, með leyfi hæstv. forseta:
„Magnús Kjartansson sagði áðan, að við ráðh. hefðum ekki gert áhrif EFTA-aðildar á söluskattinn að umtalsefni. Sannleikurinn er sá, að söluskattshækkunin mun ekki hækka vísitölu framfærslukostnaðar um meira en lækkun tollanna mun lækka hana, þannig að vegna EFTA-aðildar mun framfærslukostnaður á Íslandi ekki hækka.“
Ég er ekki orðsjúkur maður, en ég minni bara á, að hv. þm. sagði í ræðu sinni áðan, tvívegis, að ég hefði farið vísvitandi með rangt mál í þessum orðum mínum. Hann sagði það tvívegis, að hann vítti það úr ræðustóli hér á Alþ., að slíkt skyldi henda. Ég fer ekki fram á, að hv. þm. taki þessi ummæli sín aftur. Maður er ýmsu vanur orðinn. Hitt munar miklu meira, að allir fá að heyra, að það, sem hann sagði um ummæli mín, var rangt. Það, sem segir í ummælum mínum, er rétt. Það var EFTA-aðildin, sem var til umr. í þættinum, og ég var auðvitað að tala um EFTA-aðildina í sambandi við tollalækkun og söluskattshækkun. Það er rétt, að vísitalan hækkar ekki meira vegna þeirrar söluskattshækkunar, sem þarf til að jafna tollalækkun vegna EFTA-aðildar, en niðurfelling EFTA-aðildartollanna lækkar vísitöluna um. Ég mun ekki ræða um þetta frekar, en það væri gott, ef það yrði einhverjum til svolítillar vísbendingar um, að það er yfirleitt hyggilegra að haga orðum sínum hóflega og taka ekki of mikið upp í sig, til þess að þurfa ekki að láta reka slíkt ofan í sig aftur.
Andstæðingar EFTA-aðildar hafa lagt á það megináherzlu, að það sé ekki tímabært að gerast aðili að EFTA núna. Það er raunar meginforsendan fyrir þeirri dagskrártill., sem hv. fulltrúar Framsfl. flytja. Þeir segja, að það eigi að bíða eftir samningum EFTA-landanna við Efnahagsbandalagsríkin. Um þetta langar mig að fara fáeinum orðum.
Allir, sem til þekkja, munu gera sér ljóst, að þeir samningar, sem nú er talað um í sambandi við hugsanlega aðild nokkurra Fríverzlunarsamtakaríkja að Efnahagsbandalaginu munu taka mörg ár. Jafnvel þó ákvörðun verði tekin um að hefja samningaviðræður við t.d. Breta, mun taka allt að einu ári að taka þá ákvörðun. Þá má geta nærri, hversu langan tíma samningarnir sjálfir taka. Það tók nokkur ár að undirbúa stofnun Efnahagsbandalagsins. Það tók að vísu styttri tíma, en langan tíma þó, að undirbúa stofnun Fríverzlunarsamtakanna. Það átti að taka 10 ár að koma Efnahagsbandalaginu á, og 10 ár að koma Fríverzlunarsamtökunum á. Það tók svolítið lengri tíma, 7–8 ár, að koma þessum samtökum á, hvorum fyrir sig. Allir gera sér auðvitað ljóst, að ef 3–4 ríki Fríverzlunarsamtakanna eiga að sameinast Efnahagsbandalaginu, þarf það að taka langan tíma — og tekur auðvitað langan tíma, — þannig að nýtt, fullmótað Efnahagsbandalag getur með engu móti orðið til fyrr en eftir allverulegan árafjölda. Það er líka algerlega augljóst mál, að slíkt nýtt Efnahagsbandalag verður ekki sama Efnahagsbandalagið og nú starfar. Ef það væri, væru engin vandamál í sambandi við þetta. Vandamálin standa auðvitað í sambandi við það, að núverandi ríki vilja sem minnsta breytingu á Efnahagsbandalaginu. Bretar, Norðmenn og aðrir, sem sóttu um, vilja miklar breytingar á Efnahagsbandalaginu. Svo mikið ber á milli, að það er vonlaust annað en það taki nokkur ár að semja um þetta, og svo mörg ár að framkvæma það.
Að bíða allan þennan tíma, það er stórhættulegt fyrir viðskiptahagsmuni Íslendinga, ekki hvað sízt ef við trúum því, að það verði úr samningum og til verði nýtt, stærra viðskiptabandalag í V.-Evrópu. Þá er auðvitað þeim mun nauðsynlegra fyrir okkur að byrja á því að aðlaga okkur að þessum breytingum, og því fyrr sem við byrjum, þeim mun betra. Ég tel, að hver mánuður, sem við frestum því að gerast aðilar að EFTA, eftir að við vitum, að við getum gert það, sé áþreifanlegt tjón fyrir framtíðarhagsmuni Íslendinga í viðskiptamálum.
Eins og ég sagði áðan, er sú stefna að bíða sú óskynsamlegasta fyrir okkur Íslendinga frá hreinu hagsmunasjónarmiði séð. Hitt geri ég mér fullkomlega ljóst, að ef Bretar, Norðmenn og þeir tveir aðrir, sem sótt hafa um aðild að Efnahagsbandalaginu, fá aðild, — að ég tali ekki um, ef EFTA í heild sameinast Efnahagsbandalaginu og um verður að ræða 13 ríkja viðskiptabandalag í V.-Evrópu, versnar aðstaða okkar Íslendinga. Þá stöndum við frammi fyrir miklu meiri og alvarlegri vandamálum en við gerum í dag. Ég skal vera manna síðastur til þess að segja ekki skýrt og skorinort, að ég geri mér algerlega grein fyrir þessu. Hefðu samningar við Efnahagsbandalagið orðið erfiðastir allra, mundu samningar við nýtt Efnahagsbandalag, við samruna Efnahagsbandalagsins og EFTA, verða miklu, miklu erfiðari fyrir Íslendinga heldur en samningarnir við EFTA hafa reynzt. Ég tel nauðsynlegt að undirstrika, að þjóðin, eða við allir þm. og þjóðin í heild, verði að gera sér grein fyrir þessu. Þess vegna má segja, að út frá þröngu hagsmunasjónarmiði Íslendinga sé ekki æskilegt að Bretland fái aðild að Efnahagsbandalaginu í bráð. Okkar vandi er auðleystastur með þessu móti, að við fáum aðild að EFTA og EFTA standi áfram í nokkur ár, meðan við erum að laga okkur að þeim viðskiptaháttum, sem innan EFTA tíðkast. Þegar við erum búnir að því, erum við færari um það en ella að takast á við þann vanda, sem það mundi hafa í för með sér, ef hin EFTA-ríkin gerðust aðilar að Efnahagsbandalaginu. Ég tel tvímælalaust, að EFTA-aðild mundi auðvelda okkur átök við þennan vanda. Það eru satt að segja ein meginrökin fyrir því að hika ekki, bíða ekki, heldur taka ákvörðun um það sem allra fyrst. Með því móti verður sá tími lengstur, sem við getum fengið til þess að búa okkur undir þann vanda, sem okkar kann að bíða í framtíðinni og siglir í kjölfar aðildar Breta og annarra þjóða að Efnahagsbandalaginu á meginlandinu.
Að vísu er ekki svo að skilja, að okkur sé algerlega ókunnugt um, hvernig Efnahagsbandalagsríkin líta á vandamál okkar. Eins og bent hefur verið á í þessum umr., ákvað ríkisstj., að við Jónas Haralz skyldum heimsækja allar höfuðborgir Efnahagsbandalagsríkjanna 1961, þegar mestar líkur voru taldar á því, að Bretland og fleiri EFTA-ríki gengju í Efnahagsbandalagið. Við gerðum þetta og kynntum sjónarmið okkar og sérstöðu rækilega í höfuðborgum allra landanna með viðtölum við ýmist viðskmrh. eða utanrrh. og þeirra æðstu embættismenn. Við sömdum um þetta ítarlega í skýrslu, sem ég hygg að allir hv.- alþm. hafi fengið, auk þess sem ég flutti um þetta skýrslu hér á hinu háa Alþ. Við gerðum hvarvetna alveg skýra grein fyrir því, að Ísland gæti með engu móti gerzt fullgildur aðili að Efnahagsbandalaginu. Við mættum alls staðar fullkomnum skilningi á þessu sjónarmiði. Við ræddum um það, með hvaða hætti við gætum tengzt slíku stækkuðu viðskiptabandalagi í Evrópu, hvort við mundum geta átt kost á aukaaðild, og þá hvað í henni fælist, hvort við mundum geta átt kost á viðskipta- og tollasamningum og hvað í þeim gæti falizt. Enginn þessara aðila vildi á þessu stigi segja neitt ákveðið um þetta og gat það raunverulega ekki, það skildum við, en gagnkvæm kynning á sjónarmiðum fór fram. Og hún gleymist náttúrlega ekki. Frásögn af þessum viðræðum er skráð hjá þeim, eins og hún er skráð hjá okkur. Sjónarmiðin liggja fyrir, og þann þráð mundum við að sjálfsögðu taka upp aftur á sínum tíma, ef við stöndum frammi fyrir því vandamáli, að miklar líkur séu á því, að Bretland og fleiri lönd gerist aðilar að Efnahagsbandalaginu.
Fleira er raunverulega ekki um þetta að segja, nema hvað ég mun bæta nokkru við síðar út af ummælum Þórarins Þórarinssonar.
Hv.- þm. Magnús Kjartansson gerði Iðnþróunarsjóðinn að umtalsefni. Hann taldi, að þar væri um að ræða annarlega beiðni af hálfu okkar hæstv. forsrh. í þeim viðræðum, sem sagt var frá í nál. með till., og í rauninni niðurlægjandi fyrir ríkisstj. og Íslendinga að hafa farið fram á, að Iðnþróunarsjóðnum yrði komið á fót hér á landi með þeim hætti, sem raun hefur orðið á. Hér er enn um að ræða algeran misskilning á efni málsins. Sannleikurinn er sá, — og fyrir því gerði ég grein í framsöguræðu minni og raunar áður í ræðum hér á hinu háa Alþ., og það hefur komið fram í mörgum skýrslum um þetta mál, — að þegar í upphafi leiddi athugun í ljós, að aðild Íslands að EFTA, þar sem öll hin Norðurlöndin eru, mundi vegna aðstæðna í viðskiptum milli landanna vera þeim til meira hags en okkur. Ef við gengjum í EFTA og ekkert annað gerðist, mundi hagur þeirra augljóslega verða mun meiri en hagur okkar af þeirri einföldu ástæðu, að þeir flytja út iðnaðarvörur, sem við fellum niður tolla á hér á landi á 10 árum. Við flytjum út sjávarútvegsvörur, sem tiltölulega lítill markaður er fyrir á Norðurlöndum og EFTA-samningurinn tekur sumpart alls ekki til. Það er enginn vandi fyrir okkur að sýna fram á, að gagnvart hinum fjórum löndunum er einföld aðild Íslands að EFTA meiri hagur fyrir þau en okkur. Það er grundvallaratriði EFTA-samningsins, að báðir aðilar hagnist jafnmikið. Það á enginn að fórna einhliða. Ef hann fórnar einhverju, á hann að fá annað í staðinn. Þetta er grundvallaratriði EFTA-samningsins og raunar Rómarsamningsins líka. Þetta er þeim sameiginlegt. Það er ekki ætlazt til þess, að aðild sé á kostnað eins og til hagnaðar fyrir annan, né heldur getur nokkur aðili grætt eingöngu á kostnað annarra. Allir aðilar eiga að hagnast og jafnræði að vera í hagnaðinum. Það er þessi gagnkvæmnisáhætta, sem er hornsteinn slíkrar samningagerðar.
Við gerðum Norðurlandaþjóðunum grein fyrir þessu. Þær höfðu sjálfar hugsað málið og rætt, hvernig þær gætu rétt þetta við. Við höfðum ákveðna till. að gera í því, þegar við hittum þær í fyrsta skipti: Þið getið bætt úr því, sem á ykkur hallar, með tvennu móti. Annars vegar getið þið opnað markað ykkar fyrir íslenzkt dilkakjöt. Það er þekkt frá gamalli tíð á Norðurlöndum að öllu góðu, og þeir, sem báðu um verulegt magn af því, fengu það ekki allt saman. Hins vegar getið þið aðstoðað okkur vegna þess skorts á fjármagni, sem við eigum við að búa, ekki hvað sízt í sambandi við aðlögun hins smáa íslenzka heimaiðnaðar að EFTA-markaðinum, og varðandi fjármagn, sem við þurfum á að halda til að koma upp nýjum greinum útflutningsiðnaðar á Íslandi.
Það var svo augljóst í þeirra augum, að á þá hallaði, að þeir yrðu að gera eitthvað sérstaklega fyrir okkur, að það tók tiltölulega mjög lítinn tíma að fá samþykki stjórna allra hinna Norðurlandanna fyrir þessu hvoru tveggja, annars vegar auknum innflutningsheimildum fyrir dilkakjöt og hins vegar stofnun Iðnþróunarsjóðsins. Það tók svolítið lengri tíma að ganga frá einstökum atriðum, í sambandi við hann, svo sem hvernig hann skyldi starfa. Það er því langt frá því, að hér sé um annarlega beiðni að ræða eða niðurlægjandi fyrir Íslendinga. Hér er um að ræða lið í góðum viðskiptum milli landanna, viðskiptum, sem að vísu reynast sérstaklega góð, vegna þess að almenningssamskipti landanna og vinskapur þeirra í milli er sérstaklega náinn.
Í sambandi við þetta er rétt að víkja fáeinum orðum að því, sem sagt hefur verið um NORDEK. Einn ræðumaður lét í ljós undrun sína yfir því, hve Íslendingar hefðu sýnt NORDEK lítinn áhuga. Að vísu höfum við fylgzt með undirbúningi að NORDEK, fengið allar skýrslur, sem um þetta hafa fjallað, bæði frá fulltrúum íslenzka viðskmrn. og fulltrúum íslenzku sendiráðanna erlendis. Þeir hafa setið fjölmarga fundi varðandi NORDEK, þegar hægt hefur verið að koma því við. Við höfum fylgzt nákvæmlega með því, sem í því máli hefur verið að gerast, og vitum nákvæmlega, hvernig það mál stendur núna. Hitt er svo aftur á móti alger misskilningur, ef menn líta á það sem einhverja valkosti, aðildina að EFTA annars vegar og hugsanlega aðild að NORDEK hins vegar. Sannleikurinn er sá, að hin Norðurlöndin hafa með NORDEK hugsað sér að búa sig undir hugsanlega aðild að Efnahagsbandalaginu. Þess vegna eru gagnkvæmar skuldbindingar í NORDEK miklu meiri en er í EFTA, að vísu ekki eins miklar og þær eru í Efnahagsbandalaginu, heldur mitt á milli. Ef við lítum á þessi þrjú bandalög, tvö staðreynd, eitt hugsað, og berum þau saman, berum saman þær gagnkvæmu skuldbindingar, sem aðildin leggur aðildarríkjunum á herðar, þá er röðin þessi: langminnstar skuldbindingar eru í EFTA, mun meiri skuldbindingar í NORDEK og langmestar skuldbindingar í Efnahagsbandalaginu.
Ég tel, að ýmis atriði í NORDEK-samningnum séu þannig, að þau séu ekki aðgengileg fyrir Ísland, með svipuðum rökum og Rómarsamningurinn er ekki aðgengilegur fyrir Ísland. Atvinnurekstrarákvæði eru miklu frjálslegri í NORDEK-uppkastinu heldur en í EFTA-samningnum. Það er gert ráð fyrir algerlega sameiginlegum vinnumarkaði í NORDEK, sem ég tel Íslendinga ekki skilyrðislaust geta gengið að, þannig að það er á fullkomnum misskilningi byggt, að hér sé um það að ræða að velja á milli EFTA og NORDEK. Miklu frekar mætti segja: ef við viljum ganga í NORDEK, er leiðin inn í NORDEK auðvitað í gegnum EFTA. Það er fyrsta stigið. Síðan verðum við að ákveða, hvort við viljum taka á okkur þær skuldbindingar aðrar, sem NORDEK hefði í för með sér. Ég held að vísu, að vegna tengsla okkar við Norðurlönd væri okkur tiltölulega auðvelt að fá nauðsynlegar undanþágur undan þeim ákvæðum NORDEK-samningsins, sem við vildum ekki skrifa undir. Þeir skilja aðstæður okkar mun betur, — þó að ég kvarti ekki undan skilningsleysi ríkisstj. í Mið-Evrópu eða Vestur-Evrópu. Það er eðlilegt. Ég óttast sem sé ekki, að við gætum ekki gerzt aðilar að NORDEK með nauðsynlegum undanþágum. Ég held, að það væri tiltölulega auðvelt fyrir okkur, og í öllu falli miklu, miklu auðveldara en það mundi vera að gerast aðilar að Efnahagsbandalaginu eins og það er, að ég tali ekki um útvíkkað Efnahagsbandalag. En um þessi efni hefur mér fundizt ríkja alvarlegur misskilningur, sem nauðsynlegt sé að leiðrétta.
Þá hefur verið að því vikið, að undirbúningur málsins hafi ekki verið nægilega góður. Þótt ég hafi átt þátt í undirbúningi þessa máls, leyfi ég mér að segja, að ég held, að fá mál hafi verið rækilegar undirbúin efnislega séð en einmitt þetta mál, eins og hv. þm. hafa fengið það í hendur. Og ég leyfi mér líka að segja, að frá stjórnmálalegu sjónarmiði séð hafi ekki á mörgum málum verið haldið með jafnsjálfsagðri sanngirni eins og ég tel að sýnd hafi verið í þessu máli. Frá byrjun hefur stjórnarandstaðan átt aðgang að öllum gögnum og skjölum málsins og hvenær sem er fengið svör við sérhverri þeirri spurningu, sem borin hefur verið upp. Ég segi þetta ekki til þess að miklast af þessu að einu eða neinu leyti. Ég tel þetta vera sjálfsögð vinnubrögð í málum eins og þeim, sem hér er um að ræða. En með hliðsjón af þessu tel ég hvorki ástæðu til að kvarta yfir því, að undirbúningur hafi verið lélegur, né heldur hinu, að stjórnarandstaðan hafi verið sniðgengin. Um það hefur heldur ekki verið kvartað, heldur hitt, hvað undirbúningur hafi efnislega séð verið lélegur, en þeim staðhæfingum andmæli ég.
Þá var sagt áðan. — það var Magnús Kjartansson, hv. þm., — að ekki hefði verið unnið að nauðsynlegum endurbótum í skólamálum, í menntamálum, sem væri nauðsynlegur undanfari þess, að við gætum tekið þátt í samstarfi eins og EFTA-samstarfinu. Ég skal ekki gera lítið úr nauðsyn þess að gera gagngerar breytingar í íslenzkum skólamálum og sérstaklega íslenzkri tæknimenntun og iðnmenntun, ef við gerumst aðilar að EFTA og eftir því sem lengra líður á EFTA-aðild okkar. Mér er það fullkomlega ljóst. Að því mun líka verða unnið. Að því tel ég sjálfsagða skyldu að vinna. En hinu vil ég andmæla, að ekkert hafi verið gert í þessum efnum. Það eru ekki nema nokkur ár síðan við eignuðumst okkar fyrsta tækniskóla. Með stofnun hans fyrir nokkrum árum var stigið geysilega mikilvægt spor einmitt til þess að gera kleift að verða aðilar að samstarfi eins og EFTA-samstarfinu. Alþ. er líka tiltölulega nýbúið að setja nýja iðnfræðslulöggjöf, sem grundvallast á nútímasjónarmiðum í þessum efnum, þ.e.a.s. á því að flytja verkkennslu iðnrekendanna af verkstæðunum og inn í skólann. Þessa löggjöf er núna smám saman verið að framkvæma. Ég geri mér fyllilega ljóst, að samfara EFTA-aðild verður eflaust að hraða þeim framkvæmdum, sem á döfinni eru í þessum efnum. Það verður að auka á þann breytingarhraða, sem hér hefur verið að eiga sér stað. Breytingarnar verða að vera enn órari í framtíðinni heldur en ella.
Þetta er þeim, sem fara með stjórn íslenzkra skólamála, algerlega ljóst. Og sannleikurinn er sá, — þó að að því hafi verið fundið hér áðan, — að útgjöld til menntamála hér á Íslandi hafa vaxið örar á undanförnum áratugum en í nokkru öðru landi í allri Vestur-Evrópu. Á s.l. ári voru útgjöld Íslendinga til menntamála í hlutfalli við þjóðartekjur með þeim hæstu, sem þekkjast í víðri veröld. Það eru tvö eða þrjú lönd önnur, sem verja jafnháu hlutfalli af þjóðartekjum sínum til menntamála eins og Íslendingar. Það ber vissulega ekki vott um, að ekki hafi verið staðið á verðinum í þessu efni. En hitt skal ég taka fram, að einmitt aðild að EFTA gerir nauðsynlegt að herða hér enn á þeim hraða, sem unnið hefur verið eftir.
Þá kem ég að þeirri staðhæfingu hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar, að EFTA-aðild bindi okkur til þess að fylgja ákveðinni stefnu í efnahagsmálum. Þetta er þegar rangt af þeirri ástæðu, að við getum gengið úr EFTA með 12 mánaða fresti, og það er ekki föst tenging við ákveðna stefnu í efnahagsmálum, sem hægt er að losna við á einu ári. Hann sagði, og vitnaði þar að vísu ekki alveg réttilega í skýrslu Guðmundar Magnússonar prófessors, að ef við gengjum í EFTA, yrði gengisbreyting aðalhagstjórnartækið, gengisbreytingar mundu verða tíðari hér eftir en hingað til, ef við gengjum í EFTA. Sannleikurinn er sá, að gengisbreyting er alls staðar eitt aðalhagstjórnartækið, sem hægt er að beita og er beitt. Ég get ekki farið að ræða það hér, hvernig á því standi, að gengisbreytingar hér hafa verið tíðari og stærri en í öðrum nálægum löndum. Ég skal láta nægja um þetta aðeins örfáar almennar aths.
Þegar gengi er breytt, geta ástæðurnar verið tvennar: Annars vegar sú, að viðskiptakjör hafi versnað mjög verulega, þannig að beita verði aðalhagstjórnartækinu, gengisbreytingu, til þess að leiðrétta viðskiptakjörin. Hins vegar getur gengisbreyting reynzt nauðsyn vegna rangrar stefnu innanlands, vegna þess að fylgt hafi verið rangri stefnu í peningamálum og fjármálum. Þetta er allt önnur orsök. Gengisbreyting getur líka verið eina raunhæfa ráðið til þess að leiðrétta slíka ranga stefnu innanlands. Þess vegna hafa allar stjórnir í öllum löndum Vestur-Evrópu á undanförnum 15–20 áratugum breytt genginu öðru hverju, þó að við séum því miður í hópi þeirra, sem hafa gert það oftast og mest. Síðustu tvær gengisfellingar voru vegna stórfelldra breytinga á viðskiptakjörum okkar til hins verra. En gengisfellingar, sem við höfum gert áður, t.d. gengisbreytingin 1950, voru fyrst og fremst vegna þess, að fylgt hafði verið rangri stefnu innanlands í efnahagsmálum. Sama er að segja um gengisbreytinguna 1939. Þá hafði um langt skeið verið gerð tilraun til þess að koma í veg fyrir neikvæðan viðskiptajöfnuð og skuldasöfnun erlendis með höftum og tollum. Þeirri stefnu hafði verið haldið uppi í heilan áratug, án þess að það tækist, og þá var gripið til aðalhagstjórnartækisins, gengisbreytingarinnar.
Skoðun mín er sú, að EFTA-aðild hafi engin áhrif á það, hvaða hagstjórnartækjum við verðum að beita hér. Eftir sem áður höfum við frjálsræði til þess að beita þeim hagstjórnartækjum, sem við kærum okkur um. Það er rétt, að það er frekar í samræmi við þá meginstefnu, sem EFTA-samtökin eru byggð á, að leiðrétta sem fyrst misræmi, sem verður, með breyttu gengi. Það er auðvitað ekki í samræmi við þá stefnu, sem EFTA byggir á, að beita höftum og verndartollum til úrbóta, ef erfiðleikar steðja að, — þetta er auðvitað alveg rétt, — og ekki heldur útflutningsbótum.
Ég er þeirrar skoðunar, að það sé skynsamlegra að heita lítilli gengisbreytingu, ef efnahagskerfið færist alvarlega úr jafnvægi, heldur en að grípa til hafta-, tolla- eða útflutningsbótakerfis. Ef svo færi, að Framsfl. og Alþb. fengju meiri hl. í næstu kosningum og þeir lentu í sérstökum erfiðleikum, annaðhvort vegna rangrar stefnu áður eða vegna versnandi kjara erlendis, og vildu ekki breyta genginu, heldur taka aftur upp gamla kerfið, innflutningsgjöld og útflutningsbætur, gætu þeir það með því að fara úr EFTA. Þeir gætu búið sig undir þetta í eitt ár og þeim væri frjálst að gera það þá. Þetta eru allar kvaðirnar, sem á þá yrðu lagðar. Að telja slíkt til einhverra óbærilegra fjötra nær auðvitað ekki nokkurri átt.
Þá var um það rætt, að ýmsir atvinnurekendur, innlendir og erlendir, hygðust nota EFTA-aðildina til þess að hagnast á lágum launum hér. Vitnað var í ummæli Guðmundar Magnússonar prófessors um það, að hér væri um að ræða hlutfallslega yfirburði í launum. Auðvitað hafa oftsinnis í sögunni, og er enn um það að ræða, einstök lönd haft í ákveðinn tíma hlutfallslega yfirburði á ákveðnum sviðum. Þegar Guðmundur Magnússon prófessor talar hér um, að Íslendingar hafi nú sem stendur hlutfallslega yfirburði í launum, er það án efa rétt, nú sem stendur. En þetta er ekkert einsdæmi. Það veit Guðmundur Magnússon prófessor, og þess vegna tekur hann svona til orða. Honum dettur ekki í hug að gera tilraun til þess að snúa út úr, eins og gert hefur verið í þessum umr. á mjög villandi hátt. Það má segja t.d. um Vestur-Þjóðverja eftir stríðið, að þeir fylgdu vísvitandi ákveðinni stefnu í launamálum, — ekki bara vestur-þýzka stjórnin, heldur vestur-þýzku verkalýðsfélögin, — til þess að Þjóðverjar hefðu í nokkur ár yfirburði í launum umfram samkeppnisþjóðir sínar í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum. Þjóðverjar höfðu um margra ára skeið það, sem kallað er yfirburði í launum. Og þetta hefur án efa verið ein meginskýringin á því, hve þýzkur iðnaður náði sér fljótt á strik eftir styrjöldina.
Um launin hér er það að segja, að í fyrsta lagi er mjög erfitt að bera laun hér saman við laun í nálægum löndum vegna þess, hve launakerfið hér er gerólíkt launakerfi allra nálægra landa. Ég get ekki fjölyrt um þetta á þessu stigi, en bendi aðeins á, að auðvitað er fullkomin fjarstæða, eins og oft er þó gert í dagblöðum, að bera saman launataxta hér og annars staðar: í fyrsta lagi af því, að það tíðkast hér, að í samningum séu launataxtar, sem alls ekki eru notaðir, hafa ekki verið notaðir árum saman og alls ekki er meiningin að nota. Ég þekki ekkert dæmi þess annars staðar, að í samningum á milli atvinnurekenda og launþegasamtaka sé þessi siður, að þar standi árum saman taxtar, sem alls ekki eru notaðir. Auk þess er hér um að ræða miklu meiri launaviðbætur í margs konar formi heldur en tíðkast annars staðar. Tilhögun á greiðslu fyrir kaffitíma og matartíma, eftirvinnu og næturvinnu er gerólík því, sem á sér stað annars staðar, svo að hér er samanburður mjög flókinn og erfiður. Hitt efast ég ekki um, að eins og stendur eru laun hér á landi eitthvað lægri en þau gerast hjá helztu samkeppnisþjóðum okkar. Þetta á auðvitað rót sína að rekja til þeirra gífurlegu erfiðleika, sem Íslendingar urðu fyrir fyrir 2–3 árum og lækkuðu útflutningstekjur okkar um 40% á tveimur árum. Hverjum getur dottið í hug, að þessir erfiðleikar hafi ekki haft áhrif á almenn launakjör í landinu? Þessir erfiðleikar eru auðvitað skýringin á þessu hlutfallslega yfirboði í launum, þessum „lágu launum“, sem talað er um.
Áður fyrr, áður en erfiðleikar dundu yfir, voru Íslendingar án efa í hópi þeirra þjóða Vestur-Evrópu, sem höfðu hæst laun. Þá var ekki talað um þetta. En þá hefði sá hagfræðingur, sem skrifað hefði ritgerð um möguleika nýs iðnaðar á Íslandi, án efa bent á það þá, fyrir 5 árum, að þessi iðnaður hér mundi eiga við víssa erfiðleika að stríða, vegna þess að hér á Íslandi væru ein hæstu laun, sem þekktust í Evrópu. Þetta breyttist á 2–3 árum, og þannig er þetta alltaf að breytast, ekki bara hjá okkur, heldur hjá öðrum þjóðum líka. Hlutfallið á milli launastigsins, hverjir hafi yfirburði í launum og hverjir hafi óhagræði af háum launum, ef samkeppnisaðstaða er metin, er sífellt að breytast og er aldrei eins frá ári til árs. Við erum nú í vissri lægð í þessum efnum, og það þarf enginn að vera hissa á því, þó að fræðimaður, sem um þetta skrifar, bendi á þessa staðreynd.
Ég get ekki komizt hjá því að vekja athygli á því, að i því er auðvitað nokkur mótsögn falin að gera mikið úr þessu atriði, þeim hlutfallslegu yfirburðum, sem ný fyrirtæki geti notið hér í launum, vegna þess að ástæðan til þess arna eru erfiðleikar sjávarútvegsins. Það er skýringin á þessu. Það er skýringin á erfiðleikunum núna. Og samt sem áður er það meginkenning þessara manna, að á sjávarútveginn eigum við einmitt að treysta á komandi árum. Hvernig komum við þessu heim og saman? Sannleikurinn er sá, — og skoðun mín á þessu og margra fleiri mótast einmitt af því, — að þessir erfiðleikar sjávarútvegsins eru svo miklir, að þó að ég vilji allt gera til þess að efla hann eins og hægt er, veit ég, að það dugar ekki til þess að komast upp úr þeirri launalægð, sem við erum nú í. Til þess að komast upp úr henni þurfum við meira en átak í sjávarútveginum. Við þurfum nýjan útflutningsiðnað. Og þetta er auðvitað skýringin á meginstefnunni í málinu.
Hið síðasta, sem ég þarf að nefna varðandi ummæli hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar, er tilvitnun hans, einu sinni enn, í margumtalaða Þjóðminjasafnsræðu mína. Ég gat þess áðan, að Churchill hafði látið sér þessi ummæli um munn fara, eflaust vegna þess að hann var að vekja athygli á því, hvers eðlis Efnahagsbandalagið í raun og veru er. Efnahagsbandalagið þyrfti í raun og veru sjálfsforræðisafsal þeirra ríkja, sem það mynduðu, á tilteknu sviði. En Churchill dró enga dul á það, meðan hann lifði, hvorki í þeirri ræðu, sem þessi ummæli eru úr, né heldur í öðrum ræðum, að hann taldi Efnahagsbandalagið spor fram á við. Hann var mjög hvetjandi að stofnun og aðild Bretlands að EFTA á sínum tíma. En svo oft er búið að rangtúlka orð mín í þessari ræðu, og svo oft er ég búinn að skýra, hvað í henni fólst í raun og veru, að ég var satt að segja alveg hissa, þegar ég heyrði það enn einu sinni í sjónvarpssalnum um daginn, að enn skyldi höfð uppi þessi sama tugga.
Segja má í tveim til þremur setningum það, sem fyrir mér vakti í þessari ræðu, og það, sem fyrir mér vakir í þessum efnum enn. Auðvitað er stefna tímanna sú, að fyrirtækin stækka, markaðir stækka og fyrirtæki tengjast viðskipta- og efnahagstengslum. Það er stefna tímanna, og grundvöllur þess er sú tækniþróun og sú þróun í samgöngum, sem átt hefur sér stað. Engin þjóð, hvorki smá né stór, getur vænzt þess að standa til lengdar utan við þessa þróun. Þessi þróun er að vissu leyti varhugaverð fyrir smáríkin. Samt sem áður verða þau að gera sér ljóst, að ef þau eiga að fylgjast með, verður að vera um einhver slík tengsl að ræða. Það er skoðun mín, að smáríki geti haldið sjálfstæði sínu, geti haldið þjóðerni sínu, geti haldið frelsi sínu, þó að þau séu aðilar að þessari meginstefnu fyrri hluta 20. aldar. Þetta sagði ég í ræðunni, þetta segi ég enn. Að maður skuli svo mörgum árum seinna þurfa enn að hlusta á það, að maður sé að mæla með því, að Íslendingar afsali sér sjálfstæði sínu, að því er í raun og veru ekki eyðandi orðum, þó að ég hafi freistazt til þess nú.
Þm. lýsti eftir afstöðu annarra til till. um þjóðaratkv. um aðild að EFTA. Eins og vikið er að í nál. meiri hl. utanrmn., hefur þjóðaratkv. hér alls ekki tíðkazt um mál eins og þetta. Samkv. íslenzku stjórnarskránni er Alþ. aðilinn, sem á að fjalla um slík mál og taka um þau ákvörðun. Það er sjálfsagt að hlýða orðum og anda stjórnarskrárinnar um þetta efni. Þm. mega ekki víkja þessum vanda frá sér. Þeir eiga að taka þá ákvörðun, sem stjórnarskráin og kjósendur ætlast til af þeim.
Ég verð að fara orðum um tvö atriði, sem hv. þm. Þórarinn Þórarinsson gerði að uppistöðu í framsöguræðu sinni áðan. Hið fyrra voru ummæli hæstv. forsrh., — hann svarar að sjálfsögðu fyrir sig á sínum tíma, ef hann telur ástæðu til. Hv. þm. beindi til mín fsp. í tilefni af þeim. Hann dró þá ályktun af ummælum hæstv. forsrh., að um stefnubreytingu væri að ræða nú af Íslands hálfu gagnvart Efnahagsbandalaginu frá því, sem verið hefði, þegar ég gaf skýrslu um málið haustið 1962. Hér er ekki um neina stefnubreytingu að ræða. Og það er ekki hægt með nokkurri skynsemi, ef ummæli mín og ummæli hæstv. forsrh. eru lesin vandlega saman, að finna út úr því breytta afstöðu til meginefnis málsins. Það er skoðun ríkisstj., og hana túlkar hæstv. forsrh. mjög greinilega í ræðu sinni, að EFTA-aðild nú mundi bæta aðstöðu Íslendinga, ef til þess kæmi, að þeir þyrftu að semja á sínum tíma við stækkað Efnahagsbandalag. Þetta fólst í orðum hans og þetta er rétt. Þetta er ég búinn að segja áður í þessari ræðu minni. Munurinn á aðstöðunni nú og 1961–1962 er sá, að þá voru Íslendingar alls ekki reiðubúnir til þess að gerast aðilar að EFTA. Vandi okkar þá var fólginn í því, að þá bjuggum við hér við efnahagskerfi, sem gerði alla þátttöku í efnahagssamstarfi Vestur-Evrópu ákaflega erfiða. Það var þetta, sem gerði okkur Jónasi Haralz einna erfiðast fyrir í öllum þessum viðræðum sumarið 1961, hvernig efnahagskerfi okkar var þá. Að vísu bjuggum við þá við rétt gengi. En enn höfðum við hér víðtækt kerfi innflutningshafta og mjög háa tolla. Við bjuggum enn við nokkrar leifar af þeirri efnahagsstefnu, sem fylgt hafði verið áður í 30 ár, á árunum 1930–1960. Það var ekki við því að búast, að hægt væri að afnema allar afleiðingar slíkrar efnahagsstefnu á 2–3 árum. Það tók áratug, og okkur hefur tekizt það núna. Nú erum við orðnir færir um að taka þátt í efnahagssamstarfi við aðrar þjóðir eins og EFTA gerir ráð fyrir, og standa fullkomlega jafnfætis öðrum þjóðum. Ástæðan til þess, að ég sagði í þeirri ræðu, sem hv. þm. las úr og flutt var haustið 1961, að við teldum þá rétt að bíða, var auðvitað sú, að við værum ekki færir um það þá að taka þátt í neinu þess konar samstarfi, sem við getum nú tekið þátt í. Sannleikurinn er sá, að það var stórkostlegur léttir fyrir ríkisstj. og okkur alla, að samningarnir skyldu stranda. Ef þeir hefðu tekizt þá og Bretland og fleiri lönd hefðu gengið í Efnahagsbandalagið 1961–1962, hefðum við staðið frammi fyrir ægilegum vanda. Ég undirstrika þetta, því að þetta er rétt. Við fundum greinilega, sem áttum í viðræðunum þá, hversu mikill sá vandi okkar hefði orðið. En sem betur fer, samningarnir tókust ekki. Það var áfram þóf í viðskiptamálum Vestur-Evrópu og við gátum haldið áfram hér innanlands að framfylgja þeirri stefnu okkar að búa okkur undir að taka þátt í slíku viðskiptasamstarfi, þ.e.a.s. samstarfi EFTA-landanna, sem við höfum stefnt að þennan tíma. Það var ekki fyrr en fyrir 2–3 árum, sem við vorum tilbúnir til slíkrar aðildar hér heima fyrir. Þess vegna kom málið ekki á dagskrá fyrr en það gerði í raun og veru. Svo komu erfiðleikarnir til viðbótar, sem opnuðu okkur enn frekar fyrir því, að breyta yrði að vissu leyti um grundvallarstefnuna, þ.e.a.s. flýta okkur yfir í að koma hér upp útflutningsiðnaði, sem herti enn í því, að við sinntum EFTA.
Svo var hitt atriðið í ræðu hv. þm. Þórarins Þórarinssonar. Það er furðulegasta atriðið af öllu því, sem komið hefur fram í þessum umr. Þó að ummæli Magnúsar Kjartanssonar og ranghermi hans um ummæli mín í sjónvarpinu og stóryrði hans í því sambandi séu það leiðinlegasta, sem komið hefur fram í umr., eru ummæli hv. þm. Þórarins Þórarinssonar, sem ég ætla nú að fara að greina frá, það skringilegasta, sem hefur komið fram í umr. Hann hefur það eftir mér og byggði á því líklega korterskafla í ræðu sinni, að ég, — sérstaklega ég, sagði hann, það var ekki ríkisstj., — sæi hvergi nokkurs staðar neina markaði fyrir íslenzkar útflutningsvörur nema í EFTA. Þetta sagði hann með alls konar tilbrigðum og með alls konar áherzlum. Hann sagði, að það væri alveg furðulegt um mann, sem hefði verið prófessor í langan tíma og viðskmrh. í 10 ár, að hann skyldi ekki vita um neina útflutningsmarkaði nema í EFTA.
Nú er auðvitað sannleikurinn sá, að ég hef aldrei sagt neitt, sem gefur nokkra ástæðu til þess að hafa þetta eftir mér, þvert á móti. Meira að segja í ræðunni, sem hann hlustaði á fyrir örfáum dögum, framsöguræðu fyrir þessu máli, eins og ég gat um áðan, sagði ég, að það, sem við ættum fyrst að leggja áherzlu á varðandi eflingu útflutningsins, væri fullvinnsla sjávarafurða. Það, sem við ættum að leggja áherzlu á, væri að reyna að leita að nýjum íslenzkum hráefnum í sjávarútvegi og landbúnaði og flytja þær út. Þetta kemur líka greinilega fram í báðum skýrslum sérfræðinganna, sem birtar eru með till., nákvæmlega þetta sama sjónarmið. En ég sagði til viðbótar þessu: Þetta dugar ekki, því miður. Við verðum að leita að enn nýjum möguleikum, og þeir geta ekki verið til aðrir en útflutningur, nýr útflutningur úr erlendum hráefnum, sem nota orkuna og hið góða vinnuafl. Og það segi ég enn, að möguleikar fyrir slíka útflutningsframleiðslu eru fyrst og fremst í EFTA-löndunum. Ef við eigum að keppa yfir tollmúra, er þessi þriðji nýi möguleiki vonlaus. Dettur nokkrum manni með viti í hug, að við höfum von til þess að flytja inn hráefni, vinna úr því hér og selja til Bandaríkjanna? Bandaríkin eru tollaland. Þar eru framleiddar allar þær vörur, sem við getum framleitt með þessum hætti. Dettur nokkrum manni í hug, að við gætum framleitt slíkar vörur og selt til Sovétríkjanna? Það er það, sem ég átti við með fjarlægðinni. Og dettur nokkrum manni í hug, að við getum selt það til EBE-landanna eða EFTA-landanna, yfir háa tollmúra þar? Nei, eina vonin til þess að geta byggt upp slíkan nýjan útflutningsiðnað er auðvitað aðgangur að tollfrjálsum markaði. EFTA-löndin eru eini tollfrjálsi markaðurinn, sem við getum með sæmilegum kostum eignazt aðild að.
Hv. þm. sagði, að það væri blekking, að við þyrftum aðgang að tollfrjálsum markaði. Þá blekkingu taldi hann svo stóra, að ég ætti að segja af mér eða forsrh. að biðja um lausn fyrir mig fyrir að hafa sagt annað eins og þetta. En þetta er engu að síður staðreynd. EFTA-aðild rýrir ekki að neinu leyti útflutningsmöguleika okkar í Bandaríkjunum, í Austur-Evrópu, Asíu eða Afríku eða hvar annars staðar sem er. Þetta er ég búinn að sýna fram á áður. Þeir markaðir eru jafngóðir eða slæmir eftir sem áður þrátt fyrir EFTA-aðildina. En það, sem okkur vantar, er að geta selt þær nýju vörur, sem við vinnum úr erlendu hráefni, tollfrjálst einhvers staðar annars staðar. Hvar getum við það? Getum við það í Bandaríkjunum? Við getum ekki fengið samning við Bandaríkin um sértolla fyrir Ísland. Það er útilokað. Aðild Bandaríkjanna að GATT leyfir það ekki. Við getum ekki gert neinn samning við Sovétríkin eða Vestur-Evrópuríkin, sem gerir okkur slíkt kleift. Það er algerlega útilokað. Það þarf enginn að segja mér neitt um það. Það er gersamlega útilokað. Og auðvitað koma Asíu- og Afríkumarkaðir ekki til greina í þessum efnum. Við getum ekki fengið markað í Efnahagsbandalaginu nema gerast aðili að því með einhverjum hætti. Og það hefði ég talið verri kost en þann, sem við eigum völ á og viljum taka, að fá tollfrjálsan aðgang að EFTA-markaðinum.
Ég segi það enn, ef það kynni ekki að vera alveg nógu ljóst, að þetta á auðvitað við nýjar greinar í útflutningsiðnaði til viðbótar þeim, sem þegar er stundaður, og til viðbótar þeim, sem við getum byggt á nýjum íslenzkum hráefnum. Um það þarf ekki að tala, það er búið að tala um það áður og þyrfti ekki að undirstrika það öllu meir.
Sannleikurinn er sá, að þetta hefur verið skoðun allra þeirra manna, sem staðið hafa að stofnun viðskiptabandalaganna. Fyrst hv. þm. er hissa á því, að ég skuli hafa sagt þetta, ætla ég að segja honum, að þetta hafa t.d. allir brezkir viðskmrh. sagt undanfarinn áratug, bæði þeir, sem eru úr Verkamannaflokknum, og þeir, sem verið hafa úr Íhaldsflokknum. Þeir hafa verið fylgjandi aðild Bretlands að Efnahagsbandalaginu, en fyrst og fremst hafa þeir verið fylgjandi aðild Bretlands að EFTA. Af hverju vildu Bretar verá með í EFTA? Það var af því að þeir sáu, að þeir þurftu stærri markað en jafnvel brezki markaðurinn var. Sú var ástæðan. Það var ekki af því að þeir vanmætu bandaríska markaðinn eða samveldismarkaðinn. Það er auðvitað hlægilegt. Hann er jafngóður eftir sem áður, hvort sem Bretar eru í EFTA eða utan EFTA. Nei, þá vantaði stærri markað en Bretland sjálft, og þess vegna vildu þeir ganga í EFTA. Af hverju hafa brezkir viðskmrh. mælt með aðild Bretlands að Efnahagsbandalaginu? Af því að þá vantar enn stærri tollfrjálsan markað en EFTA-markaðurinn er. Auðvitað eru það röksemdir fyrir þessu. Þetta eru þeir búnir að segja í 10 ár, þó að það kunni að hafa farið fram hjá hv. þm. Þegar ég segi sama hlutinn hér, sama sjálfsagða og einfalda hlutinn, er það einhver ógnarglæpur.
Það er erfitt að koma þessu heim og saman, en þetta er satt að segja svo fáránlegt, svo óendanlega vitlaust, að manni þykir leiðinlegt að þurfa að standa í umr., sem eiga að vera aðalumr. um atriði eins og þessi. Ég get ekki skýrt þessi ummæli hv. þm. öðruvísi en þannig, að hann er á móti og telur ekki þörf á tollfrjálsum markaði fyrir okkur Íslendinga. Hann er á móti EFTA-aðild. Frá þessu sjónarmiði séð eru ummæli hans vel skiljanleg. Ég hef skilið hann og skrif hans á undanförnum mánuðum þannig, að hann sé á móti því, að Ísland gengi í EFTA, m.ö.o. hann telji enga þörf á því, að Ísland fái aðgang að tollfrjálsum markaði, hann sé í raun og veru sammála sessunaut sínum, Magnúsi Kjartanssyni. En þá á hann að segja það, en ekki gera sig að viðundri með því að tala eins og hann talaði. Hann gæti staðhæft þetta, sem hann sagði, ef hann játaði, að hann væri á móti aðild að EFTA, af því að hann teldi enga þörf á nýjum, tollfrjálsum markaði fyrir Íslendinga. Þá er vit í því. En að hafa þessa já, já — nei, nei afstöðu og segja þetta, sem hann sagði núna, í því er ekkert vit. Það er auðvitað kjarni málsins.
Hitt get ég vel skilið, að hv. þm. sé sár yfir því að hafa orðið undir í sínum flokki. Hann var búinn að skrifa í marga mánuði í Tímann þannig, að það var ekkert vit í því fyrir Ísland að gerast aðili að EFTA, og er án efa alger EFTA-andstæðingur, m.ö.o. sammála Magnúsi Kjartanssyni í einu og öllu í því, sem hann sagði. En nú hefur hann orðið að taka það erfiða hlutskipti að sér að verja þessa frá- vísunartill., verja þá já, já — nei, nei stefnu eða stefnuleysi, sem orðið hefur ofan á í Framsfl. Ég get vel skilið, að hann kunni því hlutskipti ekki vel, slíkur baráttumaður, sem hann er. En það á ekki að koma fram í því, að hann tali af fullkominni fávizku.