19.12.1969
Sameinað þing: 27. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í D-deild Alþingistíðinda. (2972)
134. mál, frestun á fundum Alþingis
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég þakka þær upplýsingar, sem hæstv. forsrh. hefur gefið, en vil aðeins undirstrika það, að ég tel, að það sé alveg fráleitt að halda þannig á málum æ ofan í æ, að setja þurfi brbl. um efni, sem manni hefur verið kunnugt um í marga mánuði, — setja brbl. nokkrum dögum eftir að þing fer í fundahlé. Þetta tel ég aldeilis fráleitt og það þarf að reyna að koma í veg fyrir þetta.
Að öðru leyti þakka ég þær upplýsingar, sem hér hafa verið veittar.