12.01.1970
Sameinað þing: 29. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í D-deild Alþingistíðinda. (2990)
51. mál, kaup lausafjár með afborgunarkjörum
Bragi Sigurjónsson:
Herra forseti. Ég er að vísu óviðbúinn að mæla fyrir till., en þar eð frsm. er fjarverandi og við vorum allir sammála í allshn. að mæla með samþykkt þáltill., sé ég ekki ástæðu til að ræða efni hennar hér. Vil ég aðeins vekja athygli þingheims á því, að þetta er till. flutt af Jóni Skaftasyni og Ólafi Jóhannessyni og fjallar um það, að ríkisstj. láti semja frv. til l. um kaup lausafjár með afborgunarkjörum og leggja það sem frv. síðar fyrir Alþ.
Svo sem allir þekkja til, fer mikið af kaupum lausafjár nú fram með afborgunarkjörum, og var allshn. öll sammála um, að full ástæða væri til að setja nánar í lög, hvernig þau kaup færu fram. Allshn. leggur því til, að þessi till. verði samþykkt.