27.01.1970
Neðri deild: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 360 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
126. mál, söluskattur
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Þessar umr. eru nú orðnar ærið langar, bæði við 2. umr. málsins og nú aftur við 3. umr. og þó hér hafi að vísu margar ræður verið fluttar, hefur efni þeirra ekki verið eftir því fjölbreytt. Það liggur nokkurn veginn í augum uppi, hver tilgangurinn muni vera, og ég veit það, að minn ágæti vinur, ritstjóri Tímans, mun fá núna næstu daga mjög mikið efni í blað sitt, fyrst ræðurnar eru samdar með það í huga að fylla síður Tímans og er ekkert nema gott eitt um það að segja, en hins vegar hversu gagnleg sú lesning er, það er annað mál.
Ég ætla ekki að fara almennt út í orðræður um þessi mál og tel alveg þarflaust að vera að endurtaka sífellt aftur og aftur það, sem sagt hefur verið. En það eru nokkur atriði, sem ég vildi þó minnast á, vegna þess að þau hafa ýmist verið orðuð í fsp: formi eða beinlínis hefur verið um hreinar missagnir að ræða, sem ég er ekki að halda fram að hafi verið vísvitandi, heldur vegna þess, að menn hafa ekki athugað eðli og efni málsins og í hita dagsins hefur þetta flotið með.
Það hefur mikið verið um það talað og það hljómar auðvitað ósköp vel, að það sé hér verið að taka upp nýja skattlagningu, sem eigi að byggjast á því, að það eigi að ofsækja þá, sem miður eru settir í þjóðfélaginu og hlynna að þeim, sem betur eru settir. Nú er þetta auðvitað ákaflega mikill misskilningur. Menn ganga fram hjá margvíslegum atriðum í þessu efni, sem nauðsynlegt er að hafa í huga. Það er alveg rétt, að hér er verið að breyta um innheimtukerfi, þ.e.a.s. það er horfið frá einni tegund óbeinna skatta yfir í aðra tegund óbeinna skatta, þ.e.a.s. frá verðtolli, sem er sá hæsti hér, sem þekkist og ég held að öllum hafi verið ljóst, að yrði óumflýjanlegt að gera breytingar á, – enda hefur á undanförnum árum smám saman verið frá þessu horfið og engin þjóð, sem ég þekki til hér nálægt okkur, hefur aðflutningsgjöld með neitt svipuðum hætti, eins og við, – það er sem sagt horfið frá þessum gjöldum yfir til söluskatts í töluvert stóru stökki nú. Þó er þetta auðvitað ekki nýtt mál, þetta er fyrir löngu komið á dagskrá og söluskatturinn er ekki nýtt fyrirbrigði, þó hann sé hækkaður nú sem þessu nemur, en vitanlega er það rétt, að hann leggst á meginhluta af öllum vörum. Hitt er annað mál, að það er auðvitað ekki rétt og ekki heiðarlega frá sagt, að það sé ekki hirt um að létta byrðar þeirra, sem lakar eru settir. Ég gat þess í ræðu minni hér áðan og sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það allt. Menn segja, að það séu engar hliðarráðstafanir gerðar. Þær hafa þegar verið ákveðnar í allstórum stíl og frá þeim hefur verið skýrt í sambandi við fjárlög og frv. um það efni eru væntanleg fyrir þingið nú á næstunni, bæði um hækkun fjölskyldubóta, um hækkun á ellilífeyri og það hefur verið ákveðið að greiða niður hækkun á söluskatti á vissum vörum, sem hefur verið skýrt frá og mun það taka gildi frá 1. marz, þannig að þær vörur hækka ekki í verði og svo hefur verið ákveðið að fella alveg niður söluskatt á fiski. Það er því síður en svo, að það hafi ekki verið hugsað fyrir því að undanþiggja hér ýmsar nauðsynjar. Og að segja svo, að það sé hér beinlínis verið að stuðla að því að breyta neyzluvenjum fólks, það er gersamlega út í hött. Það er ekkert verið að hækka þessar vörur. Hvort þessar vörur kunna eitthvað að hækka síðar af einhverjum ástæðum, um það skal ég ekkert segja, en þær hafa sífellt verið að hækka, búvörur t.d., ekki vegna söluskatts, heldur af ýmsum öðrum ástæðum.
En ég vil minna á, að það eru fleiri nauðsynjar hér, sem almenningur notar, heldur en matvörur. Það eru ekki heldur litlar nauðsynjar fatnaðurinn og þær tollabreytingar, sem nú eru gerðar, geta stuðlað að allverulegri lækkun á tilkostnaði í sambandi við fatakaup og það er ekkert lítið atriði fyrir hinn almenna borgara. Það eru vissulega í tollskránni margar vörutegundir, sem eru nauðsynjavörur heimilanna og verða lækkaðar með þeim ráðstöfunum, sem hér er verið að gera. Menn horfa því mjög einhliða og af mikilli óbilgirni á þetta mál, án þess að sýna sanngirni, heldur leggja þeir allt kapp á að reyna að koma því inn hjá fólki, að hér eigi að fara að taka upp einhverja ofsóknarherferð.
Það er sagt, að það hafi engin rök komið fram um það, hvers vegna þessi aðferð er valin fremur en aðrar. Ég hef ekki heyrt nein rök fyrir því, að það sé hugsanlegt að velja neina aðra aðferð. Og ég get alveg fullkomlega lýst því yfir sem minni skoðun, að ég álít, að engin aðferð hafi verið nærtækari og eðlilegri heldur en þessi. Ég hef skýrt frá því, að söluskattur hefur ekki verið hækkaður nú á fimm ára bili, með það í huga, að við mundum þurfa að hækka söluskattinn, þegar kæmi að því að breyta aðflutningsgjöldunum og lækka þau, ef við gerðumst aðilar að einhverjum viðskiptabandalögum eða vegna almennra nauðsynja á því að lækka þessi gjöld. Og að láta sér hugkvæmast að hækka eignarskattinn, um 500 millj., drottinn minn dýri! Heildareignarskatturinn er nú um 150 millj. Halda menn, að það kæmi ekki einhvers staðar við atvinnureksturinn, hver útkoman úr því yrði? Ég held, að menn hafi ekki hugsað málið alvarlega niður í kjölinn með þessum hætti.
Svo er jafnvel talað um af öðrum hv. þm., að það væri nær að leggja þetta á þá, sem breiðu bökin hefðu, mér skildist með því að hækka tekjuskattinn. Ég veit ekki betur en það ágæta blað, Tíminn, hafi nýlega sagt, að í rauninni væru engir hátekjumenn til í landinu, svo ég veit ekki hvar þessi breiðu bök eru. Manni er jafnframt sagt, að það þurfi að hækka skattvísitöluna um 40 stig enn til þess að lækka skattana á þessum mönnum. Hvernig er þá hægt að samrýma það, að greiðara sé að fara þessa leið? Hér er um að ræða svo háar upphæðir, að þær verða auðvitað ekki tíndar til með neinum smágjöldum. En það er sjónarmið út af fyrir sig, að vilja hækka tekjuskattinn. Það yrði þá hér um bil að tvöfalda hann, en ég er hræddur um að það kæmi einhvers staðar hljóð úr horni, ef það yrði gert.
Ég held þess vegna, að ég hafi ekki þurft að benda á nein sérstök rök fyrir því, að það hefur verið valin þessi aðferð með söluskattinn. Ég held, að það hafi hreint og beint allir gert sér grein fyrir því, að sú leið yrði valin. Og það er engin önnur leið fær til að ná þessum tekjum, sem hér er um að ræða.
Því er svo haldið fram, að það sé furðulegt, að ég skuli vitna í Norðurlönd í þessu sambandi, af því að þar sé allt önnur þróun í kaupgjalds– og verðlagsmálum. Það kemur þessu máli ekki nokkurn skapaðan hlut við, hver er þróunin í kaupgjalds– og verðlagsmálum á Norðurlöndum. Það, sem má segja að skipti máli, þegar verið er að ræða um tekjuöflun ríkisins, er t.d. það, sem hv. 4. þm. Reykv. vék hér að og ég álít að sé miklu efnislegra atriði í þessu sambandi, hvort það er rétt, að það hafi verið um að ræða stórkostlegar hækkanir á tekjuöflun ríkissjóðs á undanförnum árum. Og þá er auðvitað ekki nema um eina viðmiðun að ræða, og það er viðmiðunin við þjóðartekjur. Þá kemur það í ljós, að allt frá því 1959 hefur ekki verið um að ræða hlutfallslega hækkun á tekjuöflun ríkissjóðs, miðað við þjóðartekjur, nema núna síðasta ár, en eins og menn vita hafa þjóðartekjur lækkað tvö síðustu ár um nær 14% vegna þeirra stórkostlegu áfalla, sem við urðum fyrir, þannig að það er ekki að undra, að tekjuöflunin hafi nokkuð aukizt hlutfallslega, eða um 2%, af þessum ástæðum. En það sýnir sig, miðað við þessa stórfelldu lækkun þjóðartekna, að það er síður en svo hægt að segja, að þessar álögur hafi raunverulega hækkað, ef allt hefði verið með eðlilegum hætti.
En þróun kaupgjalds– og verðlagsmála er auðvitað allt annað mál og á ekkert skylt við það, hvort menn geta borgað söluskatt eða eiga að borga beina skatta. Í þeim löndum t.d., þar sem menn segja að hagur fólks hafi batnað, þar er mikið talað um það og hefur verið unnið að því á undanförnum árum að lækka beina skatta. Það hefur verið mikið kvartað í þessum löndum, t.d. Noregi, yfir því, hvað beinir skattar væru háir, og þar eru menn komnir með 20% virðisaukaskatt. Ég álít því, að það sé fullkomlega eðlilegur samanburður, sem ég hef gert hér í sambandi við þetta, því hér er um skattheimtu nákvæmlega sama eðlis að ræða og á hún ekkert skylt við það, hver efnahagsþróunin er að öðru leyti í þessum löndum, nema við gerum upp það dæmi í heild fyrir ríki og sveitarfélög, að þannig sé ástatt hjá okkur, að við verðum að draga saman seglin í heild í kröfum á þjóðfélagsborgarana. Það er mál út af fyrir sig, hvort svo er háttað. En hins vegar vil ég þá einnig upplýsa það, að það er síður en svo, að hér á Íslandi sé tekinn hærri hluti þjóðartekna til opinberra þarfa sveitarfélaga og ríkis heldur en gert er í nálægum löndum. Jafnvel er það mun lægra en í ýmsum löndum, sem eru okkur nálæg. Þetta eru þau almennu atriði, sem sérstaklega var verið að ýta á eftir, að ég léti eitthvað til mín heyra um.
Hv. 5. þm. Austf. spurðist fyrir um það, hvernig stæði á því, að ekki væru afnumdir þeir sérskattar, sem ég gat um í fjárlagaræðu. Það er alveg rétt, að ég orðaði það þar, að ég teldi nauðsynlegt að taka sérskattana til athugunar, því þeir eru mesta ólán, ég skal játa það. En það er bezt að segja hverja sögu eins og hún er. Það hefur ekki rúmazt innan þessarar tekjuöflunar, sem nú er gert ráð fyrir í sambandi við söluskattinn, að afnema þessa sérskatta og þeir eru flestir þess eðlis, að þeir hafa sáralítil áhrif á vísitölu. Aftur á móti hefur söluskatturinn það allverulega. Það þótti því alls ekki fært að hækka söluskattinn meira, til þess að hægt væri að afnema þessa sérskatta.
Hvað ríkisstj. ætlar að gera eftir fjögur ár, veit ég ekki. Það getur vel verið, að við getum slegið því föstu núna, að hún sitji eftir fjögur ár, en við höfum nú ekki gengið alveg út frá því sem gefnu, að við þyrftum að ákveða það núna strax, hvaða skattaaðferðir við hefðum til þess að mæta 10% tollalækkuninni, sem verður eftir 4 ár. Það veit enginn í dag, hvernig ástandið verður þá um tekjuöflun og þróun þjóðartekna og hvort yfirleitt þarf að gera nokkrar sérstakar ráðstafanir eða ekki. A.m.k. verð ég að biðja hv. þm. að afsaka það, að ríkisstj. hefur láðst að gera áætlun fjögur ár fram í tímann um það, hvað hún ætlar þá að gera. En ég hygg, að það verði hægt að mæta þeim vanda.
Þá vil ég aðeins upplýsa það, að það er misskilningur, að það hafi verið hægt að undanþiggja Póst og síma söluskattsgreiðslum, því það er enginn söluskattur greiddur af þjónustu Pósts og síma. Það var aflað heimildar til þess hér fyrir ári, að ég hygg, að hætta að undanþiggja Póst og síma söluskatti, en sú heimild var aldrei notuð.
Hér hefur hvað eftir annað verið talað um, að valdhafarnir— og væntanlega þá átt þar fyrst og fremst við mig— hafi engan áhuga á því að innheimta söluskattinn og sýni kæruleysi í því efni og merkum till., sem fluttar eru hér til að koma í veg fyrir allt undanskot söluskatts. Ég get auðvitað ekkert sagt um það annað en hver verður að halda það, sem honum finnst sennilegt, hvort ég hafi ekki áhuga á því sem fjmrh., að söluskattur innheimtist. Hvað sem líður ostatollinum og bænum mínum fyrir þeim, sem borga þann toll, þá getur nú vel verið, að ég sé ekki sérlega bænheitur í því sambandi, því ég hygg, að ég biðji e.t.v. enn þá sterkari bænir í þá átt, að menn borgi sína tolla og skatta yfirleitt, þannig að ég held, að varla geti nokkur þm. í alvöru látið sér detta í hug, að ég hafi ekki áhuga á því, að þessi gjöld skili sér. Og þó að ég leyfi mér að draga í efa, að menn hafi fundið púðrið, ef ég má orða það svo, þó þeim hafi dottið í hug að setja upp tvöfalda peningakassa, þá er það ekki vegna þess, að ég vilji ekki nota þá aðferð, ef hún er líkleg til þess að bæta ástandið í þessum efnum. Þetta er ekkert nýtt fyrirbrigði og ég gat um það áðan, að þetta er gert sums staðar, en með mjög misjöfnum árangri, vegna þess að það er engin trygging fyrir því, að það verði stimplað í þessa kassa yfirleitt. Hins vegar er hér um að ræða stórfelld aukaútgjöld fyrir lítil fyrirtæki og margir þeir aðilar, sem e.t.v. er mest hætta á að skili ekki söluskatti, hafa hreint og beint engan kassa. Þannig er þetta miklu flóknara mál en svo, að menn megi halda, að þarna sé fundið upp eitthvert þjóðráð til þess að fá inn milljónir króna. Ég get alveg fullvissað menn um það, að ef það verður niðurstaðan af þeim athugunum, sem mínir embættismenn hafa gert, á öllum hugsanlegum úrræðum, til þess að koma í veg fyrir, að undanskot verði á söluskatti, að þetta sé líklegt úrræði, þá verður það notað. En hvað sem þessari samþykkt hér líður, þá verður úrræðið ekki notað bara vegna þess, að mönnum hafi dottið það í hug, ef það sýnir sig, að það skili ekki árangri. Það er það, sem á veltur, en ekki það, að gagnrýni mín á þessari hugmynd bendi í þá átt, að ég hafi engan áhuga á því að innheimta söluskatt.
Það var misskilningur, sem hér kom líka fram hjá einum hv. þm., að það yrði hækkun á vélum til landbúnaðarins vegna söluskattshækkunar. Það er alls ekki rétt. Það má segja, ef hann vill, 1/2% hækkun, því vélarnar eru lækkaðar úr 10% tolli í 7%, og varahlutir eru einnig lækkaðir, þannig að hér er vitanlega um misskilning að ræða.
Þá talar hann einnig um það, að tolltekjurnar muni lækka, vegna þess að innflutningur færðist til EFTA–landa. Það er gert ráð fyrir því, að innflutningur færist til EFTA–landa í stórum stíl og það er einmitt áætlun um það í okkar tolltekjumissi, að innflutningur færist yfir til þeirra landa, þar sem hagstæðara verður að kaupa vörurnar.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri, aðeins að lokum segja hv. samþm. mínum, 5. þm. Norðurl. e., það, að ég mun fara mínar götur fyrir því, þó að hann sé að hræða mig á bændum og mínum kjósendum í Norðurl. e. Ég hef aldrei hingað til orðið var við það, að þeir fordæmdu það, að menn gerðu skyldu sína í þeim störfum, sem þeir eiga að sinna og að þeir sérstaklega verðlaunuðu linkind. Ég held, að það sé ekki mjög líklegt til fylgisauka á Norðurlandi eystra. Get ég svo látið nóg um það sagt.