05.11.1969
Sameinað þing: 10. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í D-deild Alþingistíðinda. (3017)
19. mál, vísitala byggingarkostnaðar
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti.
Það er á engan hátt ætlun mín að fara að gagnrýna ræðu hv. 3. landsk. þm., sem hann flutti áðan um byggingarvísitöluna. Það er allt rétt og satt, sem hann sagði um nauðsyn þess, að hún verði endurskoðuð. En ég vildi aðeins upplýsa það, að fyrir nokkru hefur hagstofustjóra verið falið að taka til athugunar grundvöll byggingarvísitölunnar, eins og hann er. Ég er ekki að segja, að þetta þurfi að hafa nein áhrif í þá átt, að hv. Alþ. samþykki ekki þessa till., en ég taldi hins vegar rétt, að þetta kæmi fram, að ríkisstj. hefði haft augun opin fyrir því, að þetta væri atriði, sem nauðsynlegt væri að kanna.
Hitt er svo annað mál, að eins og hv. þm. sagði, er þetta orðið töluvert flókið vandamál við að fást, þessi byggingarvísitala, vegna þess að hún er orðin viðmiðun í sambandi við margt í þjóðfélaginu í dag, sérstaklega á sviði lánamála. Þess vegna gæti vitanlega farið svo, að mikil breyting á byggingarvísitölugrundvelli hefði veruleg áhrif á þá lánasamninga, sem gerðir hafa verið, þar sem byggingarvísitala hefur verið tekin til viðmiðunar, þannig að málið er ekki upplagt að þessu leyti, — hvaða áhrif það kynni að hafa. Hitt er aftur á móti rétt, að nauðsynlegt er, að þessi vísitala sem aðrar viðmiðunarreglur sé á hverjum tíma sem réttust og því er nauðsynlegt, að málið sé a.m.k. kannað til hlítar og menn geri sér grein fyrir því, hvaða breytingar yrðu á vísitölunni við það, að grundvöllur hennar yrði rannsakaður. Af þeim sökum er síður en svo, að ég hafi neina ástæðu til að vera á móti till., en taldi aðeins rétt að láta þetta koma fram og álit æskilegt, að hv. n. ræddi þetta mál við hagstofustjóra, þegar till. verður tekin þar til meðferðar.