29.01.1970
Efri deild: 42. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (309)
126. mál, söluskattur
Kristján Thorlacius:
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir til umr., gerir ráð fyrir hækkun á söluskatti úr 71/2 í 11 %. Að nokkru leyti er þetta afleiðing af þeim tollalækkunum, sem frv. til l. um tollskrá o.fl., sem nú liggur fyrir hv. Alþ., gerir ráð fyrir. Þær tollalækkanir eru að nokkru afleiðing af inngöngu Íslands í EFTA. Í leiðinni á svo að innheimta nokkur hundruð millj. með söluskatti; sem ganga eiga til að vega á móti tollalækkuninni og meira til.
Í aths. við frv. til 1. um tollskrá o.fl., sem einnig liggur hér fyrir hv. Alþ., er boðuð ný stefna í skatta– og tollamálum. Þar segir, að sú tilfærsla, sem þetta frv. og tollskrárfrv. gera ráð fyrir, frá aðflutningsgjöldum yfir í söluskatt, sé fyrsta stóra skrefið til þess að hverfa frá aðflutningsgjöldum sem aðaltekjulind ríkissjóðs. Í ljósi þessarar yfirlýsingar verður að líta á þetta frv., sem hér er til umr., sem miklu meira stórmál en annars hefði verið. Og þó er það sannarlega nógu mikið stórmál fyrir almenning, að söluskattur skuli eiga að hækka um 3 1/2%, því væntanlega þýðir það hækkun á söluskatti upp undir 800 millj. kr. miðað við heilt ár. Tollalækkanir munu væntanlega nema um 440 millj. kr. og hreinar viðbótarálögur eru því um 360 millj. kr. En sagan er ekki öll sögð með því. Fyrir almenning verður þessi breyting vafalaust miklu óhagstæðari en sem nemur hinum beinu hækkunum á gjöldunum. Hér hefði sannarlega átt að taka aðra stefnu.
Það er vissulega röng og háskaleg stefna að færa gjaldheimtu ríkisins jafnt og þétt yfir í söluskattsformið, hætta að innheimta skatta og önnur gjöld til þarfa ríkisins með þeim hætti, að hinir tekjuhærri, hinir efnameiri greiði hlutfallslega meira. Það var áður fyrr kallað að leggja byrðarnar á þau bökin sem breiðust eru. Nú er verið að snúa þessu við. Með þessu frv. og þeirri stefnu, sem boðuð er, er horfið að því, að gjaldabyrðarnar leggist þyngst á þá, sem óhjákvæmilega verða að kaupa mest af nauðsynjavörum. Það kemur líka glögglega fram í aths. við tollskrárfrv., að þessi er ætlunin. Þar segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar til lengdar lætur má ætla, að tekjur ríkissjóðs verði háðar minni sveiflum eftir því sem á líður þessa þróun. Miklar og óvæntar tekjur vegna mikilla kaupa á hátolluðum vörum á velgengnistímum mundu hætta að falla til ríkissjóðs. Missir slíkra tekna þegar þrengir að mundi þá ekki verða eins tilfinnanlegur.“
Með öðrum orðum þýðir þetta, að gjöldin á að færa yfir á hinar almennu neyzluvörur manna. Það þýðir, að þegar að þrengir hjá ríkissjóði, á hann tekjurnar samt vísar, því eitt af því, sem við getum nokkurn veginn gengið út frá í þessum heimi, er að í lengstu lög þurfa menn að kaupa sér eitthvað til að borða og klæðast. En þegar þrengir að, þá verða erfiðleikar mismiklir hjá þegnum þjóðfélagsins, þeir verða mestir hjá tekjulágum og fjölmennum fjölskyldum, en jafnvel þó að verulega þrengi að hjá þessu fólki, þá eru til stórir hópar manna, sem hafa góð fjárráð og það er eðlilegt og sjálfsagt, að þeir greiði meiri gjöld til hins opinbera, en hinir efnaminni og tekjuminni. Ástandið er þannig í okkar þjóðfélagi, að tekjuskiptingin er á annan veg en æskilegt væri.
Að mínum dómi er söluskatturinn ein versta tegund skattheimtu fyrir almenning. Það er staðreynd, að við verðum aðilar að EFTA og þá verður ekki hjá því komizt að breyta tollunum, að því er tekur til þeirra vara, sem undir EFTA–samninginn koma. En tekna til þess að mæta þeim lækkunum ætti að mínum dómi að afla með allt öðrum hætti, en hér er gert ráð fyrir. Það á tvímælalaust að miða við þá grundvallarreglu, að gjöld á lífsnauðsynjum séu engin, eða sem allra minnst. Sú stefna, sem boðuð er, að lækka og fella niður aðflutningsgjöld af munaðarvörum og afla í þess stað tekna með söluskatti, hlýtur að koma óeðlilega niður á almenningi, nema jafnframt séu gerðar víðtækar ráðstafanir í launamálum, tryggingarmálum, t.d. með greiðslu hærri fjölskyldubóta, eða á öðrum sviðum, til þess að vega á móti þessari breytingu.
Ég er andvígur því frv. um hækkun söluskatts, sem hér liggur fyrir. Og enn þá andvígari þeirri stefnu, sem fram kemur í aths. við tollskrárfrv., um að hætta að innheimta misháa tolla eftir mikilvægi vörunnar fyrir þegnana. Vafalaust mun sú andstaða, sem vitað er um í hv. þd. gegn þessu frv., þó ekki nægja til þess að fella það. Þess vegna tel ég sjálfsagt að gera tilraun til þess við 2. umr. málsins að flytja við það brtt., til þess að reyna að draga úr þeim byrðum, sem frv. leggur á almenning, eins og unnt er. Kemur þar til greina afnám söluskatts á brýnustu lífsnauðsynjum, hækkun fjölskyldubóta og lagfæringar á skattinum, svo eitthvað sé nefnt. Raunar þarf einnig nauðsynlega að endurskoða allt skattakerfið.
Það er á allra vitorði, að tekjurýrnun hefur orðið gífurleg hjá almenningi að undanförnu, og stórfelld launahækkun er orðin óumflýjanleg nauðsyn, sem ekki verður með nokkurri sanngirni staðið gegn. Þetta frv. um hækkun söluskatts, sem hér liggur fyrir, eykur verulega á þá nauðsyn. Mín skoðun er sú, að skynsamlegra væri fyrir ríkisstj. að koma til móts við brtt., sem leitast við að draga úr áföllum í sambandi við hinar auknu álögur, heldur en að knýja fram stóraukin útgjöld almennings, sem á engan hátt er fær um að standa undir núverandi framfærslukostnaði, hvað þá þeim miklu verðhækkunum, sem verða afleiðing þessa frv., nema til komi stórfelldar launahækkanir.
Ég get fullyrt það, að meðal launamanna er þetta frv. mikið rætt. Og menn hafa miklar áhyggjur af því, að enn á að vega í þann knérunn að rýra tekjur launamanna. Það er óhætt að fullyrða það eftir þær yfirlýsingar, sem ýmsir valdamiklir menn í fjármálalífi þjóðarinnar hafa gefið nú um þessi áramót, um að flest gangi nú í haginn í efnahagsmálum, að menn hafi sízt búizt við því, að nú dyndi yfir enn ein holskefla verðhækkana og kjararýrnunar.
Þetta frv. var af hv. fjhn. Nd. sent til umsagnar þeirra launþegasamtaka, sem ég er formaður í, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og stjórn samtakanna gerði ályktun um þetta mál. Í svari stjórnar BSRB segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Í grg. með frv. til l. um tollskrá o.fl. er frá því greint, að sú breyt. á tekjustofnum ríkissjóðs frá aðflutningsgjöldum yfir í söluskatt, sem þessi frv. gera ráð fyrir, sé fyrsta stóra skrefið til að hverfa frá aðflutningsgjöldum sem aðaltekjulind ríkissjóðs. Sú stefna að lækka og fella niður aðflutningsgjöld af munaðarvörum og afla í þess stað tekna með söluskatti hlýtur að færa gjaldabyrðina óeðlilega yfir á herðar hins almenna launþega, nema jafnframt séu gerðar víðtækar ráðstafanir í launamálum, tryggingamálum eða á annan hátt til að vega á móti þessari breytingu. Þá fylgir þessu sú hætta, að mun erfiðara er að koma í veg fyrir undandrátt á söluskatti en að öllu jöfnu. Stjórn BSRB er af framangreindum ástæðum andvíg þeirri stefnu, sem fram kemur í fyrrgreindum frv., án frekari ráðstafana. Jafnframt ítrekar bandalagsstjórnin ályktanir samtakanna um nauðsyn á auknu eftirliti með skattframtölum og söluskattsskilum.“
Hvernig hugsar hæstv. ríkisstj. sér, að það geti gengið svo til áfram, að launum manna sé þrýst langt niður fyrir það, sem eðlilegt getur talizt og hægt er að bjóða launþegum? Og vissulega eru það margir, sem ekki láta sér þetta lynda. Dæmi um það er sá mikli fjöldi manna, sem hefur flúið til annarra landa, þar sem atvinna er fyrir hendi og launakjör eru lífvænleg.
Ég hef hér undir höndum upplýsingar um launakjör opinberra starfsmanna í Danmörku, en þar voru gerðir nýir samningar við opinbera starfsmenn á síðasta ári, sem síðan voru staðfestir með lögum, eins og tíðkast þar í landi. Ég skal taka það fram, áður en ég vitna í þessar upplýsingar, sem ég hef áður tekið fram opinberlega, að fullkominn samanburð er ekki hægt að gera á launum í öðrum löndum og hér, nema traustar upplýsingar liggi fyrir um verðlag. Þó gefa þessar tölur, sem ég mun hér nefna, áreiðanlega allgóða hugmynd, gefa mynd um þann mismun kjara, sem er hér og í Danmörku.
Ég tek þá fyrst dæmi um bréfbera. Byrjunarlaun bréfbera í Danmörku samkvæmt samningunum, sem gerðir voru þar í fyrra, eru 26.500 kr. á mánuði, en hámarkslaun eftir 12 ára starf 30 þús. Hvernig er þetta svo á Íslandi? Hver eru byrjunarlaun og hámarkslaun bréfbera á Íslandi í dag? Jú, byrjunarlaun eru 11.900 kr. og hámarkslaun eftir 12 ár 14 þús.
Ég tek hér annað dæmi, af ljósmæðrum. Í Danmörku hefur ljósmóðir í byrjunarlaun 35.700 kr. og í hámarkslaun 40 þús. kr. eftir 10 ár. Á Íslandi eru byrjunarlaun ljósmóður 13.814 kr., en hámarkslaun 16.188 kr. eftir 12 ára starf.
Þá vil ég taka hér dæmi um arkitekt. Í Danmörku, samkv. þeim samningum, sem ég nefndi, hefur arkitekt 80 þús. kr. á mánuði, á Íslandi 22.200 kr. og hámarkstaun eftir 8 ára starf 24.400 kr. Allt er þetta miðað við íslenzkar krónur.
Það er staðreynd, að þeir aðilar, sem nógu mikla hörku hafa sýnt, hafa fengið sitt fram, þó að valdhöfunum hafi ennþá tekizt að leyna því, með hvaða hætti hefur verið samið við ýmsar stéttir þjóðfélagsins. Það væri t.d. fróðlegt að fá það upplýst hjá hæstv. ráðh., hvernig samið var við flugmenn á s.l. sumri, eftir að þeir höfðu brotið á bak aftur brbl. um bann við launahækkunum til þeirra, sem ríkisstj. setti. Það er opinbert leyndarmál, að fyrir milligöngu ríkisstj. var samið um mjög verulegar launahækkanir til flugmanna, á sama tíma sem með harðri hendi voru knúðir fram smánarsamningar við verkamenn og aðra launamenn. Og það er einnig staðreynd, að ýmsum öðrum stéttum hefur tekizt að rétta verulega hlut sinn og nýjasta dæmið, sem ég hef frétt um, en hef þó ekki haft aðstöðu til að fá staðfest, er að blaðamönnum muni fyrir fáum dögum hafa tekizt að semja um rösklega 20% launahækkun. Ég þori ekki að fullyrða, að þetta sé rétt, en þetta eru þær fréttir, sem ég hef fengið, en óstaðfestar. Sjálfsagt vita hæstv. ráðh. nánar um þetta.
Stjórnarblaðið Vísir upplýsir það fyrir tveim dögum, að vilji muni vera hjá ríkisstj. til þess að hækka verulega laun ráðuneytisstjóra, dómara og annarra hæst settu embættismanna hjá ríkinu. Ég get fullvissað hv. alþm. um, að samtök opinberra starfsmanna telja óhjákvæmilega nauðsyn, að allir opinberir starfsmenn fái verulega launahækkun eins fljótt og verða má. Ég leyfi mér að vona, að það sé ranghermi hjá dagblaðinu Vísi, að vilji ríkisstj. sé eingöngu til þess að hækka laun „toppanna“, eins og blaðið kemst að orði. Ég vona, að vilji verði fyrir allsherjar kjarabótum til opinberra starfsmanna og allra launþega í landinu.
Enn hefur Bandalag starfsmanna ríkis og bæja ekki tekið ákvörðun um þær launakröfur, sem settar verða fram næsta sumar. En af því, sem er að gerast í landinu, er augljóst, að kröfur verkalýðsfélaganna og BSRB hljóta að verða háar og þær verða áreiðanlega ekki bara fyrir „toppana“, heldur alla starfsmenn. Í þessu efni hlýtur að vera höfð mikil hliðsjón af því, sem er að gerast á hv. Alþ. þessa dagana. Með þeirri stefnu, sem tekin er með hækkun söluskattsins og væntanlegri tilfærslu ríkisteknanna meira og meira yfir í söluskatt er bætt olíu á eld dýrtíðar í landinu, svo þolinmæði launþega er þrotin.