22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í D-deild Alþingistíðinda. (3090)
86. mál, samvinna yfirstjórna fræðslumála og sjónvarps
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég bið afsökunar á því, að ég var kallaður í símann, en það tók sem betur fer ekki lengri tíma en svo, að ég get svarað fsp., sem ég heyrði áður en ég fór í símann.
Hv. fyrirspyrjandi spurðist fyrir um það, hvað væri fyrirhugað á vegum sjónvarpsins til þess að þjóna skólum, þ.e. hvers konar framkvæmdir væru fyrirhugaðar hjá skólasjónvarpi. Ég get sagt, að almennt hefur verið hafinn að því nokkur undirbúningur að nýta sjónvarpið í þágu skólastarfsins. Ekki hefur þó verið tekin endanleg ákvörðun um nema eitt atriði í þessu sambandi.
Eins og hv. þm. er e.t.v. kunnugt, hefur staðið yfir undirbúningur að allvíðtækri endurbót á kennslu í eðlisfræði á skyldunámsstiginu. Fram að þessu hefur eðlisfræðikennsla ekki hafizt fyrr en í 2. bekk gagnfræðaskólanna. Tvö undanfarin ár hefur verið unnið að því á vegum skólarannsókna og af hálfu námsstjórans í eðlisfræði, Arnar Helgasonar, með aðstoð sérstakrar nefndar, að undirbúa gagngera breytingu á eðlisfræðikennslunni. Öllum undirbúningi undir þetta er lokið, og hið nýja námsefni og hin nýja námsaðferð í eðlisfræðikennslunni mun verða reynt næsta haust. Það „prógramm“ í eðlisfræðikennslunni, sem undirbúið hefur verið, er þannig, að þegar á næsta hausti mun verða byrjað að kenna 11 ára nemendum eðlisfræði og síðan fram haldið og á næsta vetri 12 ára nemendum og 14 ára nemendum. Þar er bæði um gerbreytt námsefni að ræða, eins og eðlilegt er, þar sem um allt annað aldursskeið er að ræða og auk þess nýjar kennsluaðferðir með nýjum tækjum. En einmitt í sambandi við þennan undirbúning hefur verið ráð fyrir því gert, að sjónvarpið væri notað, og það hafa verið undirbúnir 10–12 sjónvarpsþættir, sem sjónvarpið sýnir frá og með næsta hausti til stuðnings og eflingar þessari kennslu. Efni þáttanna er þannig, að það er ekki bráðnauðsynlegt fyrir nemendur að fylgjast með þeim. Það námsefni, sem þeir munu fá í hendurnar og sú kennsla, sem þeim mun verða búin, mun nægja til þess að gera þeim kleift að tileinka sér það efni, sem ætlazt er til, að þeir tileinki sér og standast síðan prófkröfur. En þessi sjónvarpskennsla á að auðvelda nemendunum að tileinka sér námsefni í eðlisfræðinni í sem ríkustum mæli. Hér verður m.ö.o. um mjög athyglisverða tilraun að ræða og eftir því, hvernig hún tekst, má mikið læra um áframhald á notkun sjónvarpsins í þágu skólastarfsins. Fleiri atriði eru þarna til athugunar og undirbúnings, en þetta er það eina, sem endanleg ákvörðun hefur verið tekin um.