22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í D-deild Alþingistíðinda. (3091)
86. mál, samvinna yfirstjórna fræðslumála og sjónvarps
Frsm. (Jónas Árnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör við fsp. minni, og ég vænti þess, að þessi byrjun á skólasjónvarpi takist vel og það verði eflt sem frekast er kostur til bættrar aðstöðu fyrir dreifbýlið, skólana í dreifbýlinu, nemendur þar og kennara.