29.01.1970
Efri deild: 42. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

126. mál, söluskattur

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., felur í sér tvö meginatriði. Í fyrsta lagi er það sú stefna, sem það gerir ráð fyrir að fylgt verði í skattamálum og í öðru lagi eru ákvæði frv. um söluskattshækkunina, hinar auknu álögur, sem af henni mun leiða. Ég vil nú við þessa 1. umr. fara nokkrum orðum um þessi meginatriði málsins.

Til þess að gera sér rétta grein fyrir þeirri stefnubreytingu í skattamálum, sem í frv. þessu felst og er þó raunar framhald af þeirri stefnu, sem áður hefur verið tekin upp í þessum efnum af núv. ríkisstj. og stuðningsflokkum hennar, þá er rétt að líta til baka og skoða breytinguna í ljósi þess, sem liðið er. Söluskatturinn á sér nokkuð langa sögu og hann á sér fyrirrennara eða fyrirmynd, en það er veltuskatturinn, sem lagður var á 1945 fyrir forgöngu og að tilhlutan nýsköpunarstjórnarinnar. En sá skattur var þannig úr garði gerður, að þáv. fjmrh., sem beitti sér fyrir málinu, lýsti yfir því við umr. um málið, að hann teldi ógerlegt að hafa uppi slíka skattheimtu nema í eitt skipti, enda var þessi skattur ekki frádráttarbær til skatts og ekki mátti hækka vöruverð hans vegna, þannig að hann gat í reynd komið fram sem eignarskattur á fyrirtæki, sem raunverulega var rekið með halla. Nýsköpunarstjórnin, sem gaf sjálfri sér það nafn, sýndi mikla röggsemi við að ráðstafa stríðsgróðanum á stuttum tíma og ég skal taka það fram, að vissulega fór allmikið af þeim verðmætum til þarflegra hluta, þó mikill misbrestur væri í því efni. En þegar nýsköpunarstjórnin lét af völdum í árslokin 1946, þá var fjárþröng og fjárþörf ríkissjóðs mikil og þá voru útflutningsatvinnuvegirnir komnir í það horf, að Alþ. taldi óhjákvæmilegt að taka ríkisábyrgð á framleiðslu vélbátaflotans. Til þess að standa straum af þessum skuldbindingum ríkisins var stofnaður sjóður, hinn svonefndi dýrtíðarsjóður, með l. 1947. Í þennan sjóð varð að afla mikils fjár og þá var gripið til ýmissa ráða og m.a. lagður á nokkur söluskattur. En það var ekki eina skattheimtan, sem þá var lögboðin, heldur var það þáttur af stærra máli, því þá var lagður á svonefndur eignaraukaskattur og aðflutningsgjöld nokkuð hækkuð í sama skyni. Söluskatturinn stóð svo lítt breyttur nokkur ár og hann var með mun rýmri undanþágum heldur en verið hefur síðan 1960 og þessi tiltölulega lági og takmarkaði söluskattur var lagður á í því sérstaka augnamiði að standa straum af dýrtíðarráðstöfunum, sem óhjákvæmilegar þóttu, en ekki lagður á sem gjaldstofn fyrir ríkissjóð sjálfan.

Þetta er mönnum kunnugt og að þessu hefur verið vikið greinilega, þ.á.m. af einum þeirra hæstv. ráðh., sem standa að flutningi þessa frv. Í þingtíðindum eru skráð svo hljóðandi ummæli núv. formanns Alþfl., Gylfa Þ. Gíslasonar, um söluskattinn, sem ég vil nú lesa, með leyfi hæstv. forseta:

„Söluskattur var á sínum tíma lagður á til þess að standa undir alveg ákveðnum gjöldum, sem ríkissjóður þá þurfti að inna af hendi. Söluskatturinn var lagður á til þess að koma í veg fyrir gengislækkun af þeirri stjórn, sem þá sat. Það var höfuðhlutverk hans. Það var eina hlutverkið, en það var svo mikilvægt, að það gat réttlætt slíka skattlagningu sem hér er um að ræða, svo óheyrilega ranglát og ósanngjörn sem hún er. Það þurfti mikið að liggja við, til þess að verjandi væri að leggja tugmilljónir í þessu formi á neyzlu almennings í landinu. Eina markmiðið, sem gat komið til greina að þjóna með slíkri skattlagningu, var að koma í veg fyrir gengisfall krónunnar. Það var gert 1948 og 1949 með því að leggja á þennan mjög svo þungbæra skatt. Almenningur sætti sig við það, að svo miklu leyti sem hann gerði það, einvörðungu vegna þess að hann fann og hann skildi, að það var til þess að koma í veg fyrir það, sem var enn þá verra, gengishrun krónunnar.“

Með viðreisnarstefnunni, sem tekin var upp 1960, var gerð mikil breyting á í þessum efnum. Þá var lagður á almennur söluskattur, sem tekjustofn fyrir ríkissjóð, tekjustofn, sem átti að skila mjög ríflegum fjárhæðum í ríkissjóð. En jafnhliða var gengi krónunnar lækkað að mjög miklum mun, svo að þá og síðan höfum við ekki haft það, sem formaður Alþfl. sagði, að við hefðum búið við 1948 og 1949, þ.e. söluskatt til þess að koma í veg fyrir gengishrun, heldur höfum við síðan 1960 haft hvort tveggja: Stórfellt gengisfall krónunnar og hækkandi söluskatt, sem tekjustofn fyrir ríkissjóð. En þegar fjallað var um hinn almenna söluskatt í febrúar og marz 1960, þá voru m.a. færð fram fyrir því máli þau rök eða þær málsbætur, að hinn takmarkaði söluskattur, sem áður var, mundi hverfa og falla inn í hinn almenna nýja söluskatt og hins vegar, að afnema ætti tekjuskatt á almennar launatekjur.

Nú skal ég víkja að fyrra atriðinu. Auðvitað er það rétt, enda sjálfsagt, að hinn takmarkaði söluskattur, sem áður var lagður á, hann hvarf inn í skattinn, sem ákveðinn var 1960. Þá var hann ákveðinn 3% í smásölu. En það sat ekki lengi við sama hjá hæstv. ríkisstj., því ekki liðu mörg ár, þangað til söluskatturinn var hækkaður úr 3% upp í 51/2%, nokkru síðar var hann enn hækkaður úr 51/2% í 71/2% og nú er hér á ferðinni frv. um að hækka þennan sama skatt upp í 11%, svo það eru stigin með stuttu millibili allstór skref á þessari braut.

Það, sem er kannske alvarlegast og gerir þetta mál enn þá stærra en þessar prósentutölur, sem í frv. standa, segja til um, er það, sem fram kemur í grg. tollskrárfrv., sem nú liggur hér fyrir hv. þd. Þar er það gefið ótvírætt í skyn, að þetta sé aðeins áfangi á leiðinni, áfangi á þeirri braut að auka söluskatta, en draga úr innflutningsgjöldum þar á móti. Hér segir orðrétt: „Sú stefna, sem mörkuð er samhliða ráðagerðum um aðild Íslands að EFTA, er því fyrsta stóra skrefið til að hverfa frá aðflutningsgjöldum sem aðaltekjulind ríkissjóðs. Sú þróun, sem hafin er með þessari stefnubreytingu, hlýtur að gerast hægt á löngum tíma. Tímasetning hennar er ákveðin eingöngu að því marki sem hún tengist aðild að EFTA, en augljóst er, að háum fjáröflunartollum verður ekki haldið til lengdar á vörum, sem eru EFTA óviðkomandi, þegar tollar verndarvara, hráefna og véla, falla smám saman niður.“

Þá vil ég víkja fáum orðum að hinu atriðinu, sem fært var fram til málsbóta fyrir söluskattinum 1960, þ.e. að afnema ætti tekjuskatt á almennar launatekjur. Mér skilst, að þannig hafi nú farið um þetta fyrirheit, að nú sé svo komið, að menn greiði ekki aðeins tekjuskatt af tiltölulega lágum launum, heldur þurfi ekki háar tekjur til þess að komast í hæsta skattþrep. Ég ætla að það sé rétt, að skattvísitalan, sem miðað verður við á þessu ári, sé ákveðin 137 stig. (Gripið fram í: Má ég skjóta fram í? Hún er 140.) Ég hef nú sett hér á blað tölur, miðaðar við 137 stig, og getur vel verið, að skakki ofurlitlu, en það er sjálfsagt að hafa það, sem sannara reynist.

Mér skilst, að miðað við þá skattvísitölu, sem ég nefndi, yrði persónufrádráttur einhleyps manns tæpar 110 þús. kr., en til þess að komast í hæsta skattþrep þurfi aðeins 85 þús. kr. skattskyldar tekjur, þ.e.a.s. þá 195 þús. kr. nettótekjur. Ef um hjón er að ræða, þá hef ég ætlað skv. þeirri skattvísitölu, sem ég nefndi, — og hér getur ekki munað miklu, þó hún breytist um 3 stig, — að persónufrádráttur yrði rúml. 153 þús. kr. og til þess að komast í hæsta skattþrep, þá þyrfti aðeins 85 þús. kr. skattskyldar tekjur, þ.e.a.s. að hjón, sem hefðu u.þ.b. 210 þús. kr. nettótekjur, greiddu ekki aðeins tekjuskatt, heldur næðu þau því að lenda í hæsta skattþrepi með hluta af sínu skattgjaldi. Ég fæ ekki betur séð, en að fyrirheitið frá 1960 um afnám tekjuskatts á almennum launatekjum sé í reyndinni á þennan veg.

Það er mjög gömul regla í okkar þjóðfélagi að innheimta gjöld til opinberra þarfa eftir efnum og ástæðum. Þannig var þetta beinlínis orðið í grundvelli til útsvarsálagningar til skamms tíma og í reynd hafa hin margvíslegustu gjöld til almennra þarfa verið við þetta miðuð, að þeir, sem betur stæðu, greiddu hlutfallslega meira en hinir. Við þetta sjónarmið eru lögin um tekju– og eignarskatt miðuð, þar sem skattstigar fara hækkandi eftir því sem tekjurnar verða hærri. Sama gildir um eignarskattinn. Þessi regla er enn í gildi í sambandi við útsvör, bæði samkv. þeim grundvelli, sem áður gilti og samkv. þeim útsvarsstigum, sem nú er farið eftir við álagningu þeirra gjalda.

Tollar eru í eðli sínu grundvallaðir á sama sjónarmiði, þ.e. að gjaldið, sem lagt er á vörurnar, sé misjafnlega hátt eftir því, hvort vörurnar, sem keyptar eru, teljast nauðsynjavörur, miður þarfar eða óþarfar.

Aðstöðugjöldin eru að nokkru leyti miðuð við sama sjónarmið, því það er ekki sama prósentugjald lögboðið á alla starfsemi.

Þetta hefur verið mjög ákveðin og almenn stefna í íslenzkum skattamálum, líklega allt frá fornu fari eða a.m.k. um mjög langan tíma. En söluskatturinn er að þessu leyti annars eðlis heldur en tollar, að það er jafnt prósentugjald á allar vörur, hvort sem það eru nauðsynjavörur, miður þarfar eða óþarfar vörur. Það hefur því oft verið bent á það, hvað þessi tekjustofn væri varhuga verður og kæmi þungt niður á þeim, sem hafa stóra fjölskyldu, litla kaupgetu og úr litlu að spila. Ég vil leggja mjög ríka áherzlu á þetta sjónarmið í sambandi við það mál, sem hér er til umr. Ég vil leyfa mér í því sambandi að benda á, að þeir þm., sem nú eru í stjórnarandstöðu, eru ekki einir um þetta sjónarmið. A.m.k. hafa Alþfl: þm. oft látið uppi mjög ákveðnar skoðanir í þessu efni. Ég fletti hér upp á ummælum, sem þingtíðindin geyma, eftir hinn greinda og reynda þingskörung Harald Guðmundsson, sem hann á sínum tíma viðhafði um þennan tekjustofn, söluskattinn. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég álít og Alþfl. er sömu skoðunar, að mér liggur við að segja, af öllum þeim tollum, sem á eru lagðir hjá okkur, sé söluskatturinn ranglátastur og óskynsamlegastur. Hann er ranglátastur, af því að hann lendir langþyngst á þeim, sem minnsta getu hafa til að greiða til opinberra þarfa. Hann fellur langþyngst á barnmargar fjölskyldur og stór heimili og það þarf ekki orðum að því að eyða, hversu ranglátt slíkt fyrirkomulag er við innheimtu opinberra gjalda. Aðrir tollar ýmsir, ég vil nú ekki segja flestir, eru þó á lagðir með það sjónarmið fyrir augum, að þeir séu mismunandi þungir, eins og t.d. verðtollurinn, eftir því hvaða vörur eiga í hlut og hvort hægt sé að komast af án þeirra eða ekki. En til þessa sjónarmiðs, er engan veginn tekið tillit við álagningu söluskattsins, heldur þvert á móti. Í öðru lagi liggur í augum uppi, að söluskattur hlýtur að hækka verðlag í landinu og þar af leiðandi dýrtíðina a.m.k. sem skattinum nemur og þeirri álagningu, sem óhjákvæmilega hlýtur að koma á hann í öllum viðskiptum. Sú aukna dýrtíð, sem af þessu stafar, kemur svo fram í hækkuðum framleiðslukostnaði. Af því leiðir aftur, að útflutningsvörur okkar, sem framleiddar eru með þessum háa framleiðslukostnaði, verða torseldari og standa þess vegna lakar að vígi í samkeppninni við hliðstæðar vörur á heimsmarkaðinum. Tollur þessi og skattur er því hvort tveggja í senn, ranglátur gagnvart þeim, sem greiða hann, og mjög óskynsamlegur frá sjónarmiði þjóðfélagsheildarinnar.“

Í sama streng tók núv. form. Alþfl., þegar hann hafði aðra afstöðu gagnvart ríkisstj., en hann hefur nú. Hann tók það fram, að við allt annað bættist það, „að söluskatturinn er í eðli sínu ranglátur, það er einhver ranglátasti skattur, sem lagður hefur verið á af íslenzka löggjafanum.“ Það liggur í augum uppi, að því lengra sem gengið er á þeirri braut að innheimta söluskatt og gera hann í æ ríkari mæli, eins og virðist stefnt að, að tekjustofni fyrir ríkissjóð í þeim mun ríkari mæli koma fram þeir annmarkar, þetta ranglæti, sem skatturinn hefur í för með sér.

Þá kem ég að því að fara nokkrum orðum um hitt meginatriði þessa frv., þ.e. skattahækkunina, þær nýju álögur, sem í frv. felast. Sú skýring er gefin á þessu máli, að söluskattshækkunin sé að miklu leyti tilfærsla á tekjum, sem ríkið innheimtir, vegna þess að tollar samkvæmt EFTA–samningnum séu lækkaðir að nokkru leyti á móti þeirri hækkun, sem af þessu frv. leiðir. En þetta frv. gengur þó lengra, en að mæta þessari tilfærslu, því í leiðinni eru teknar allríflegar fjárhæðir til þess að standa straum af útgjöldum ríkissjóðs.

Því er stundum haldið fram, að þessa óbeinu skattheimtu megi milda gagnvart hinum almenna þegni með því að bæta hlut hans á öðrum sviðum, t.d. með því að hækka bætur almannatrygginga. Þetta er að vissu leyti rétt og það er vitanlega góðra gjalda vert að sjá hlut þeirra borgið, sem eru þannig settir, að þeir eiga rétt á stuðningi samkvæmt almannatryggingalögum og þurfa á þeim stuðningi að halda. En þetta er þó ekki aðalatriði málsins. Aðalatriði málsins er það, að atvinnulífið geti borið sig með eðlilegum hætti og að hinn fullvinnandi maður, sem hefur fyrir heimili að sjá, hvort sem er í þéttbýli eða strjálbýli, geti haft sæmilega aðstöðu og að þannig sé búið að honum, að fjárhagur hans geti verið nokkurn veginn tryggur.

Nú vil ég í þessu sambandi minna á eina þjóðfélagsstétt, allfjölmenna og það er bændastéttin. Samkvæmt verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða er gert ráð fyrir því, að meðalbúið skili tekjum sem nemi 570 þús. kr. á ári. Tæpur helmingur þessara tekna samkvæmt verðlagsgrundvelli fer til að greiða ýmiss konar gjöld og rekstrarkostnað vegna búskaparins, en rúmur helmingur þessara tekna er ætlaður í verðlagsgrundvelli sem laun handa bóndanum og fjölskyldu hans. Þegar miklum gjöldum er hlaðið á rekstrarvörurnar og allt það, sem fjölskyldan í sveitinni þarf að kaupa til búrekstrarins, þá verður niðurstaðan sú, að sá hlutinn, sem ætlaður er í verðlagsgrundvelli til þess að standa undir þessum kostnaði, hrekkur ekki til þess. En að sama skapi skerðist sá hlutinn, sem í verðlagsgrundvelli er ætlaður að vera hreinar tekjur eða launatekjur bóndans og fjölskyldunnar. Þessi hefur greinilega orðið niðurstaðan á s.l. árum, eftir því sem bezt verður séð. Að þessu vék búnaðarmálastjóri í yfirliti um íslenzkan landbúnað, sem hann flutti í ríkisútvarpið eftir áramótin og birt var í blöðum. Þar segir hann svo: „Efnahagur bænda hefur þrengzt að undanförnu. Samkvæmt niðurstöðum búreikninga reyndust meðaltekjur bænda vera 173 þús. kr. á árinu 1968. Öruggt má telja, að bændur séu tekjulægsta stétt þjóðfélagsins liðið ár, eins og 1968. Þeir bændur, er búreikninga færðu 1968, juku þá skuldir sínar að meðaltali um 40 þús. kr. það ár, og nettótap þeirra var 24 þús. kr. Engar líkur eru á, að árið 1969 sé þeim hagstæðara og útlitið er ískyggilegt.“ Þetta voru orð búnaðarmálastjóra.

Hvernig skyldi nú sú fjölskylda, sem hefur 173 þús. kr. tekjur til þess að fullnægja þörfum sínum, þegar rekstrarkostnaður hefur verið greiddur, standa að vígi til þess að taka á sig stórhækkaðar álögur í formi söluskatts, sem leggst undantekningarlítið á allt það, sem heimilið þarf að kaupa? Ég held, að það séu mjög óhagstæð skipti fyrir sveitaheimilið að fá tollana lækkaða, við skulum segja á byggingarefni og taka svo á sig hækkaðan söluskatt, sem leggst á allar slíkar vörur. Þegar ráðizt er í byggingu peningshúsa t.d., sem er óhjákvæmilegt við og við, þá er með ýmsum sérstökum fjárhagsráðstöfunum, svo sem lántökum, hægt að standa straum af því, en þegar hækkaður söluskattur leggst á allt það, sem keypt er daglega til heimilisins, þá verða það vitanlega miklu þungbærari gjöld ,heldur en tollar, þó þeir leggist á vörur eins og byggingarefni, sem ég nefndi.

En nú er það staðreynd, að hv. Alþ. hefur samþ. samninginn um aðild að EFTA. Og það er vitanlega skiljanlegt og eðlilegt, að þeir, sem að þeirri samþykkt stóðu, sjái sig knúða til að taka afleiðingunum af því, m.a. með flutningi þessa frv. En ég gat þess fyrr í ræðu minni, að málið snýst nú ekki allt um þessa tilfærslu, heldur felst meira í því. Og þá segja menn: Við verðum að sjá fjárhag ríkissjóðs borgið og þetta er óhjákvæmileg ráðstöfun til þess.

Ég var að nokkru leyti áheyrandi að þeim umr., sem fóru fram um þessi mál í Nd. og ég heyrði að einn þm., sem þar talaði, setti fram þá skoðun, að hæstv. fjmrh. mundi bara eyða minna, ef hann fengi svolítið minna í ríkissjóð og gá svolítið betur að útgjöldunum, svo það væri ekkert í hættu. Ég held, að ég hafi heyrt það rétt, að hæstv. fjmrh. svaraði þessum ræðumanni þannig, að þetta væri hinn mesti misskilningur, því hann sem ráðh. mundi ekki greiða fé úr ríkissjóði að óþörfu. Ég vefengi þetta út af fyrir sig alls ekki. Ég hef enga ástæðu til þess að ætla annað en hæstv. fjmrh. vilji reynast samvizkusamur embættismaður í því starfi, sem hann gegnir. En með því er ekki öll sagan sögð.

Fyrir 10 árum, í febrúar og marz 1960, var fjallað um söluskattinn, hinn almenna söluskatt, sem þá var lögtekinn og þá hafði nýlega verið gengið frá þeim lögum um efnahagsmál, sem eru grundvöllur að viðreisnarstefnunni, viðreisnarkerfinu. Ef einhver þm. hefði spáð því eða fullyrt það hér í ræðustóli Alþ., að frá því í ársbyrjun 1960 til ársloka 1969, eða á 10 ára tímabili, yrði gengi íslenzku krónunnar fellt fjórum sinnum og það stórkostlega, að fjárl. mundu á einum áratug áttfaldast að krónutölu, miðað við þær krónur vitanlega, sem gengislækkuninni fylgja, og að hækkunin á fjárl. ríkisins frá einu ári til annars á þessu 10 ára tímabili mundi nema í krónutölu svipaðri upphæð og heildarupphæð fjárl. var árlega á áratugnum 1950—1960,— ef einhver hefði spáð þessu hér í ræðustóli á Alþingi fyrir 10 árum, hvað hefði verið sagt um slíka spádóma? Ég held, að þetta hefði ekki þótt trúlegt. Ég held, að sá maður hefði ekki þótt gæddur spámannsgáfu. Ég held, að hann hefði þótt býsna ósanngjarn og orð hans hefðu ekki verið tekin alvarlega. Nú blasir reynslan við.

Þetta hefur allt saman gerzt á s.l. áratug, sem framhald eða fylgifiskur viðreisnarkerfisins. Og þó að ég dragi það ekki í efa, að hæstv. fjmrh. vilji út af fyrir sig veita aðhald í útgjöldum ríkissjóðs, þá er hann ekki eins og laxinn, sem leitar sterklega á móti straumi og stiklar fossa, svo ég vitni í orð skáldsins. Hann flýtur með straumnum, berst með straumnum. Og hann er að vissu leyti í erfiðri aðstöðu, því hann er að nokkru leyti flæktur í viðreisnarnetinu.

En þegar svo er um aðstöðu velviljaðra, glöggra og góðra manna, er þá ekki ástæða til að taka allt kerfið til endurskoðunar? Og í sambandi við það, að endurskoða þá stefnu um skattaálögur til ríkisins, sem þetta frv. er einn þáttur í? Það er vitanlegt, svo ég vitni nú aftur í orð hins reynda og greinda þm., Haralds Guðmundssonar, sem ég las hér áðan, að áhrif söluskattsins ná ekki eingöngu til hvers einstaks heimilis, heldur hækkar söluskatturinn verðlagið í landinu og gerir útflutningsvörur okkar að því leyti ósamkeppnis hæfari á erlendum mörkuðum, þar sem þessi skattur er svo viðtækur og færist út í allt viðskipta– og fjármálakerfið, eins og raun ber vitni um.

Það er því, held ég, alveg augljóst, að það er full ástæða til þess að endurskoða þetta frv. í þessari hv. d. og ég tel víst, að sú hv. þn., sem fær málið til athugunar, leggi sig fram um það, að koma fram breytingum, sem horfa til bóta á þessu frv. og að þessari hv. d. muni að því leyti takast betur en Nd. við afgreiðslu málsins.