29.04.1970
Sameinað þing: 49. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 323 í D-deild Alþingistíðinda. (3129)
84. mál, heyverkunaraðferðir
Frsm. (Jónas Pétursson):
Herra forseti. Þessi till. til þál., sem hér er til framhaldsumr., var flutt af þeim hv. 4. landsk. þm. og 4. þm. Austf. Hún hefur legið fyrir allshn., sem sendi hana til umsagnar bæði Búnaðarfélagi Íslands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Umsagnir bárust frá báðum þessum aðilum og mæltu báðar með, að till. eða till. í þessa átt yrðu samþ. Í umsögn Búnaðarfélagsins er þó jafnframt minnt á, að það eru þegar miklar rannsóknir í gangi. Umsögn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins er frá bútæknideild, sem er innan stofnunarinnar, og gerð af forstöðumanni hennar. Mig langar til, með leyfi hæstv. forseta, að lesa hér örstuttan kafla úr þeirri umsögn til upplýsinga:
„Til geymslu og hagnýtingar grasa til vetrarfóðurs er einkum um tvær leiðir að velja, heyþurrkun og votheysgerð. Um 80% af þunga grass er vatn. Úr hverju tonni af grasi þarf því að þurrka 700–800 kg af vatni til þess að fá geymsluhæft þurrhey. Nýtízku vélþurrkun á heyi, hraðþurrkun, er öruggasta leiðin til þess að útiloka áhrif veðráttu á heyverkunina, en um leið er hér um kostnaðarsama aðferð að ræða. Eigi að nota olíu sem orkugjafa við slíka þurrkun, má gera ráð fyrir því, að einn lítri af olíu eimi um 10 lítra af vatni. Miðað við núverandi heyframleiðslu bænda mundi því mega áætla olíuþörf alls um 100 þús. tonn á ári, ef hraðþurrka setti alla grasframleiðsluna. Í þessu sambandi má geta þess, að á góðum þurrviðrisdegi er vatnsuppgufun úr heyflekk á einum hektara lands miðað við nýslegið hey sambærileg við það magn, sem 700–1000 lítrar af olíu myndu eima úr heyi í góðu hraðþurrkunarkerfi“
Ég finn ástæðu til þess að benda á þetta, til þess að menn geri sér betur grein fyrir því, að það er ósköp eðlilegt, að í búskap hér á landi hafi verið leitazt við að nota þá orku, sólarorkuna, sem fæst, þegar hún gefst án endurgjalds, þegar á það er litið, hversu geysilega verðmæt hún er til þurrkunar á heyinu. En s.l. sumar og reyndar mörg önnur færði okkur heim sanninn um það, að þetta dugar ekki alltaf, og þá þarf að finna önnur úrræði. Eins og ég sagði áðan, bera báðar þessar umsagnir einnig með sér, að það eru þegar í gangi miklar rannsóknir á því, hvernig á að snúast við vandanum, þegar veðráttan er slík sem hún var s.l. sumar. Þetta mál var mikið rætt í n., og menn voru einhuga um það, að hér væri um svo þýðingarmikið mál að ræða, að það væri með öllu eðlilegt og raunar sjálfsagt, að Alþ. léti frá sér fara viljayfirlýsingu í þessu máli. Og þess vegna er n. sammála um að mæla með samþykkt till. með þeirri breytingu, sem birt er á þskj. 692.