07.04.1970
Sameinað þing: 66. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í D-deild Alþingistíðinda. (3135)

186. mál, hafnargerð í Þjórsárósi

Flm. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Í sambandi við ræðu hv. síðasta ræðumanns, 5. þm. Sunnl., vildi ég aðeins mega gera eina aths. Hún er sú, að þótt hafnamálaráðh. hafi vikið að því í svari við fsp. um annað mál eða önnur mál, að hann mundi biðja hafnamálastjórnina um að líta eftir því í leiðinni, hvort ekki sé hafnarmöguleiki við Þjórsá, um leið og þeir margfölduðu eitthvað betur út tölurnar sínar varðandi hafnargerð í Þykkvabænum, þá vildi ég vekja athygli þessa hv. ræðumanns á því, að hér er um allt annað mál að ræða. Það er mikill misskilningur og grundvallarmisskilningur, að hér sé um framhaldið af sama málinu að ræða, og jafnvel þótt hæstv. ráðh. Ingólfur Jónsson, sem nú fer með hafnamál í landinu, láti að því liggja, að hann muni biðja einhverja stofnun um að líta eftir þessu, þá finnst mér það nokkur lítilþægni og meiri en svo, að ég geti sætt mig við það sem afgreiðslu á stórmáli, að þar með sé afgreitt það mál, sem varðar alla Sunnlendinga og alla Íslendinga jafnmiklu eins og það, hvort möguleiki, sem aldrei hefur verið til áður, er að skapast á næstunni til hafnargerðar á Suðurlandi með allt öðrum hætti en hafnir á Íslandi hafa yfirleitt verið byggðar áður og á ekkert skylt við þær hafnir, sem talað hefur verið um að byggja með því að dengja grjóti, mér liggur við að segja heilum, niðurmuldum fjöllum fram í hafið, því að þetta er alls ekki till. um þess háttar hafnargerð. Þetta er till. um það, hvort ekki sé hægt að nota fljót, sem flestar líkur benda til, að sé að verða stórfljót, til þess að byggja við höfn svipaðs eðlis og byggðar hafa verið hinar stærstu hafnir úti í heimsbyggðinni, ekki út í sjóinn, heldur inn í landið. Þetta mál kann að eiga langt í land, en gjarnan vildi ég samt, að það ætti einhverja aðra möguleika til að verða að raunveruleika heldur en oftrú á hugmyndir manna, sem hreint ekki taka málið alvarlega.

Að svo mæltu vildi ég enn ítreka það, að málið verði afgreitt og ekki bara lagt til hliðar eins og einhver hégómi. Það er mín sannfæring, og ég trúi ekki öðru en það verði sannfæring fleiri þm., þegar þeir hafa hugsað sig ögn betur um, að hér sé á ferðinni þess háttar mál, að Íslendingar, og allra frekast íbúar suðurbyggða landsins, hafi engin efni á því að láta það sem vind um eyrun þjóta eða taka það ekki alvarlega.