29.04.1970
Efri deild: 85. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í D-deild Alþingistíðinda. (3139)

186. mál, hafnargerð í Þjórsárósi

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu frsm. meiri hl. samgmn., gat samgmn. ekki staðlið að einu nál. um þá þáltill., sem hér liggur fyrir.

Eins og ég gat um fyrr við þessa umr. um þáltill., minnti ég á, hverjar yfirlýsingar hefðu verið gefnar í þessari hv. d. af samgmrh., þegar svarað var fsp. um hafnargerðir. Enn fremur var það vitanlegt, að fyrir lá bréf, sem samgmrh. hafði skrifað hafnamálastjóra varðandi þetta efni, þar sem það er lagt fyrir hafnamálastjóra að láta gera athugun á möguleikum til hafnargerðar við Þjórsárósa. Nokkru eftir að þetta bréf var skrifað, var þessi till. til þál. lögð fram í þessari hv. d. Ég hélt því fram þá, fyrr við þessa umr., að till. þessi væri óþörf, því að þegar hefðu verið gerðar ráðstafanir til að framkvæma þá hluti, sem till. gerði ráð fyrir. Frsm. meiri hl. vildi leggja á það áherzlu, að hér væri um misskilning að ræða. Aðeins væri ráðgert að athuga eina ákveðna gerð hafna við Þjórsárós. Ég vil leggja á það áherzlu, að um það liggur ekkert fyrir og hefur alls ekki verið tekið fram í þeim fyrirmælum, sem ráðh. hefur gefið, að rannsókn skyldi vera hafin á einn eða annan hátt, heldur einungis, að rannsókn skyldi gerð, og rannsókn er ekki gerð, nema fleiri möguleikar séu athugaðir. Því er það niðurstaða okkar, sem stöndum að minni hl. samgmn., að þessi þáltill. sé með öllu óþörf og samþykkt hennar hafi engin áhrif á framgang þessa máls, og við sjáum ekki ástæðu til þess að standa sérstaklega að samþykkt hennar. Hins vegar vil ég taka það fram um mig, að ég mun ekki greiða atkv. Ég sé ekki, að það sé málinu til framdráttar á neinn hátt að samþykkja till. Hins vegar er það vitaskuld vilji minn, að þessi rannsókn fari fram, enda er búið að ákveða, að svo muni verða gert.