29.04.1970
Sameinað þing: 49. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í D-deild Alþingistíðinda. (3146)

221. mál, bygging þjóðarbókhlöðu

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Mig langaði aðeins að lýsa með örfáum orðum stuðningi mínum og sérstakri ánægju með þessa þáltill. um byggingu þjóðarbókhlöðu. Ég hef nokkrum sinnum á þessu þingi og tveimur undanförnum þingum vakið máls á því, hvílík grundvallarnauðsyn það sé að koma upp nýju húsi yfir hin vísindalegu bókasöfn þjóðarinnar og framkvæma þá stefnu, sem Alþ. hafði áður markað, að sameina þau. Það gerðist ekki fyrr en með fjárl. ársins 1968, að tekin var upp fjárveiting til þessara þarfa, og var það raunar nýtt skref í málinu, vegna þess að þar var verið að taka grundvallarákvörðun um framkvæmdir. Hins vegar var sú fjárhæð lítil, en allir vissu, að til þessarar byggingar mundi þurfa mjög mikið fjármagn. Ég bar fram fsp. um þetta mál fyrr í vetur og hæstv. menntmrh. svaraði þá á þann hátt, að hæstv. ríkisstj. væri að athuga málið enn, en hefði jákvæða afstöðu til þess, og nú hefur þessi athugun leitt til þessarar jákvæðu niðurstöðu.

Ég er þeirrar skoðunar, að samþykkt þessarar þáltill. muni á ókomnum árum þykja merkisatburður. Ég mundi jafnvel vilja taka svo djúpt í árinni, að svo kunni að fara síðar meir, að þessa þinghalds okkar hér í vetur kunni sérstaklega að verða minnzt fyrir þessa ákvörðun, vegna þess að sú stofnun, sem þarna er um að ræða, mun verða í mjög nánum tengslum við vísindastarfsemi og fræði á Íslandi á ókomnum áratugum. Ég vil sem sé aðeins lýsa yfir sérstakri ánægju minni og stuðningi við þessa till.