29.04.1970
Sameinað þing: 49. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í D-deild Alþingistíðinda. (3147)

221. mál, bygging þjóðarbókhlöðu

Gils Guðmundsson Herra forseti. Ég fagna því eindregið, að þessi þáltill. er fram komin frá hæstv. ríkisstj., og vonir standa til, að hún geti fengið afgreiðslu áður en þingi lýkur, enda þótt hún sé seint fram komin.

Þegar nefnd sú, sem á að gera till. um það, hvernig minnast skal ellefu alda Íslandsbyggðar 1974, fór að ræða um það, hvert ætti að vera hið sameiginlega átak íslenzku þjóðarinnar allrar, eins konar afmælisgjöf hennar til sjálfrar sín, þá komu óneitanlega ýmsar hugmyndir fram, og fleira en eitt kom mjög til greina. Töluvert var í þeirri nefnd rætt um nýtt alþingishús og ýmsir litu svo á, að það væri að sjálfsögðu mjög verðugt verkefni fyrir þjóðina að reisa það í tilefni af ellefu alda afmælinu. Niðurstaðan varð samt sú, að það mál, bygging nýs alþingishúss, væri svo sérstakt viðfangsefni Alþ. sjálfs, ef svo mætti segja, að það væri eðlilegast, að það glímdi við það verkefni og tæki ákvarðanir þar um. Og fljótlega eftir að sú niðurstaða var fengin, varð algert samkomulag í nefndinni um að leggja til, að þjóðargjöfin eða gjöfin, sem þjóðin gæfi sjálfri sér, yrði það safnahús yfir aðalbókasöfn landsins, sem þessi þáltill. fjallar um. Og eins og bæði hæstv. menntmrh. sagði í ræðu sinni hér áðan og þegar er fram komið í ræðum tveggja alþm., þá virðist þessi hugmynd njóta mjög mikils stuðnings, og ég tel, að það sé vel. Það er enginn efi á því, að undirbúningur að byggingu þjóðarbókhlöðu er mjög vandasamur, og þetta verður tvímælalaust eitthvert hið allra vandasamasta verk, einhver hin vandasamasta bygging, sem ráðizt er í um þessar mundir, og kemur margt til. Hér þurfa vafalaust að vinna saman hinir færustu arkitektar og þeir menn, sem þekkja vel til starfa bókasafna og vita, hvað þar hentar bezt.

Ég hef ekki gert mér grein fyrir því, hvort um það gæti verið að ræða að efna til samkeppni um teikningu að slíkri þjóðarbókhlöðu, en sé það talið fært tæknilega séð, þá teldi ég það mjög koma til greina og ætti að athuga sérstaklega, því að ég legg á það áherzlu, að það ber að vanda mjög allan undirbúning þessa verks og gera þennan hlut sem myndarlegastan og veglegastan og þó fyrst og fremst á þann veg, að hann þjóni á sem beztan hátt sínum tilgangi, sem er vitanlega sá að hýsa hin vísindalegu bókasöfn þjóðarinnar um ókominn aldur.

Ég vænti þess og treysti því, að að þessu máli verði unnið á myndarlegan hátt og það komist farsællega í höfn, enda þótt ég geri mér ljóst, að verkið er stærra en svo, að þjóðarbókhlaðan verði fullbúin 1974, en ef vel er að málum unnið, ætti þó ákveðinn og myndarlegur áfangi að hafa náðst á því ári.