29.04.1970
Sameinað þing: 49. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í D-deild Alþingistíðinda. (3148)

221. mál, bygging þjóðarbókhlöðu

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Fyrir hönd ríkisstj. vil ég þakka þeim þremur málsvörum stjórnarandstöðuflokka, sem tekið hafa til máls, fyrir jákvæðar undirtektir þeirra við till. þessa og fyrirheit um stuðning við samþykkt hennar nú þegar á þessu þingi. Ég fagna því, og ég er viss um, að þjóðin öll mun fagna því, að jafnvel í kosningamánuði skuli stjórn og stjórnarandstaða sameinast og vilja sameinast til sameiginlegs átaks, þegar um mikilvægt nauðsynjamál er að ræða.

Varðandi fsp. hv. 4. þm. Reykv. um það, hvort Þjóðskjalasafni muni verða ætlaður staður í væntanlegri þjóðarbókhlöðu er þetta að segja: Það mál hefur verið rætt mjög ítarlega, en er ekki útrætt. Um það hafa komið fram ólíkar skoðanir. Sumir eru þeirrar skoðunar, að rétt sé að ætla Þjóðskjalasafni húsnæði í hinni nýju þjóðarbókhlöðu og hafa hana þá þeim mun stærri en hún mundi vera, ef henni væri aðeins ætlað að hýsa Landsbókasafn og Háskólabókasafn. Aðrir eru þeirrar skoðunar, að Þjóðskjalasafn eigi að fá allt núverandi landsbókasafnshús til umráða. Þegar Landsbókasafn getur flutt þaðan. Þetta mál mun verða athugað áfram mjög gaumgæfilega, og endanleg ákvörðun ekki verða tekin fyrr en mjög ítarlegar athuganir og viðræður um málið hafa farið fram.