30.04.1970
Sameinað þing: 51. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í D-deild Alþingistíðinda. (3151)

221. mál, bygging þjóðarbókhlöðu

Frsm. (Unnar Stefánsson):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um byggingu þjóðarbókhlöðu á þskj. 601. Till. er flutt af ríkisstj. og er svofelld:

„Alþingi ályktar, að í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974 skuli reist þjóðarbókhlaða, er rúmi Landsbókasafn Íslands og Háskólabókasafn.“

N. varð sammála um að mæla með því, að till. þessi hljóti samþykki Alþ.

Íslenzka þjóðin er meðal hinna fámennustu í samfélagi þjóðanna. Það gefur henni sérstöðu í því samfélagi, að hún er tengd bókmenntum og varðveizlu fornrar menningar. Þetta leggur þjóðinni ríka skyldu á herðar að sýna þessari arfleifð sérstaka ræktarsemi. Fer vel á því, að landsmenn minnist þessara merku tímamóta í sögu sinni með því að sýna þessa ræktarsemi í verki, þótt í litlu sé miðað við þann arf, sem kynslóð vorri hefur áskotnazt frá forfeðrum sínum. Við mundum leggja mikið upp úr því, að Alþ. teldi sér fært að afgreiða þessa þál. samhljóða.