03.11.1969
Neðri deild: 9. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í D-deild Alþingistíðinda. (3159)
45. mál, rannsóknarnefnd vegna Búrfellsvirkjunar
Landbrh. ( Ingólfur Jónsson ):
Herra forseti. Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að ég hefði ekki getið um það, hver afstaða mín væri til rannsóknarnefndarinnar, og það væri ekki ljóst, hvort ég vildi, að Alþ. fengi allar nauðsynlegar upplýsingar í þessu máli. Ég tel alveg sjálfsagt, að hv. alþm. fái allar upplýsingar. Ég sagði: Ef málið fer til nefndar, þá reynir á það, hvort hún getur fengið þær upplýsingar, sem hv. 6. þm. Reykv. telur sig vanta og kannske fleiri hv. þm., og er ekki rétt að reyna á það, hvað hv. þm. telja sig vanta af upplýsingum, eftir að þeir hafa fengið tækifæri til þess að spyrja alla, sem bezt ættu að þekkja til þessa máls? En að sjálfsögðu eiga alþm. að fá allar nauðsynlegar upplýsingar. Hér getur ekki verið neitt, sem á að dylja fyrir hv. Alþ. eða landsmönnum öðrum.
Hv. 6. þm. Reykv. talaði hér áðan um Harzaskýrsluna, sem er vitanlega á borði Landsvirkjunarstjórnar, hefur komið á mitt borð, og ég hygg, að það stangist ekkert á í Harzaskýrslunni við það, sem ég hef hér sagt í dag, og við það, sem framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Landsvirkjunar létu frá sér fara um daginn. Hv. 6. þm. Reykv. les upp úr skýrslunni og túlkar hana á ýmsa vegu, en þegar málin eru lögð saman og grundvölluð á sama stigi, hygg ég, að þar beri ekkert á milli. En þegar hv. þm. er að tala um áætlun og það, sem vantar á áætlunina, hafa framkvæmdastjórinn og stjórnarformaðurinn talað um áætlunina í heild, og það er ekki rétt, sem hv. 6. þm. sagði áðan, að það vantaði til viðbótar við þessar 42.7 millj. dollara svo margt, sem hann taldi upp. Það, sem vantar, eru vatnsréttindin, og gasstöðin var aldrei með í þessari upphæð, hvorki í byrjun né nú. Að gasstöðin eigi að reiknast álbræðslunni einni til kostnaðar, það er nú það. Það mætti náttúrlega gera. En álbræðslan notar ekki nema 60% af orkunni, og þessi stöð á að vera toppstöð og varastöð fyrir allt Landsvirkjunarkerfið. Og hvernig væri það, ef línan frá Búrfelli slitnaði einn góðan veðurdag? Ætli það kæmi ekki við hinn almenna notanda eins og álverksmiðjuna, en hv. 6. þm. var svo sanngjarn, að hann reiknaði kostnaðinn, að hann sagði, á alla heildina. Og það var held ég of mikil sanngirni frá hans hendi, miðað við málflutning hans í heild.
Hv. þm. talar enn um það, að rafmagnið verði selt undir kostnaðarverði til álverksmiðjunnar þrátt fyrir alla þá útreikninga, tölur og rök, sem ég hef fært fram fyrir hinu gagnstæða. Hv. þm. segir, að það sé rangt, að rafmagnið sé selt á 26.4 aura kwst., þótt það sé staðreynd, sem segir í samningnum. Hann segir, að álverksmiðjan borgi bara lægri skatta fyrstu árin. En skattarnir af álverksmiðjunni hækka ekki bara fyrstu árin. Þeir eru að smáhækka, stighækka, og af hverju er það? Þeir, sem sömdu fyrir álverksmiðjuna, báru það fyrir sig, að fyrstu árin væru erfiðust, meðan væri verið að koma þessu á fót og afskrifa fyrirtækið, og þess vegna gætu þeir ekki borgað eins háan skatt í byrjun eins og seinna. En rökin fyrir því, að álverksmiðjan greiddi hærra orkuverð fyrstu árin en seinni árin, eru þau, að afkoma Landsvirkjunar er miklu lakari fyrstu árin, á meðan verið er að fullnýta þá orku, sem framleidd er, og komast yfir byrjunarörðugleikana. Þetta voru gagnkvæm rök, sem tekin voru til greina, þegar samið var um orkuverð og skattgjald. Og þetta eru náttúrlega tölur, sem við þurfum ekki að vera að deila um, hv. 6. þm. Reykv. og ég, af því að þær eru skjalfastar í samningnum.
Hv. þm. gerir lítið úr því, að vélarnar framleiði þessa orku, sem verkfræðingar Landsvirkjunar telja sig hafa sannfært sig um, að þær geti gert. Það er búið að prófa þessar þrjár vélar, sem búið er að setja upp. Það er búið að prófa þær betur núna en var fyrir viku eða hálfum mánuði, þegar við töluðum síðast saman, og þetta virðist lofa mjög góðu og von er á, að vélar, sem ekki eru komnar til landsins, skili meiru en áætlað var. Þá er rétt að upplýsa, að það eru alveg sams konar vélar frá sama fyrirtæki og smíðaðar á sama hátt. En ég tók fram áðan, að það væri ekki unnt að fá þessa afkastaaukningu nema með miklu meiri miðlunum en fyrirhuguð var, og það er gert ráð fyrir, að þær þurfi að kosta 500 millj. kr. til þess að auka öryggið, til þess að auka vatnsmagnið, til þess að hægt sé að fá þessa aukningu. En þetta hefur bara farið fram hjá hv. 6. þm. Reykv., vegna þess að hann þurfti að halda dauðahaldi í þessa hugsun sína, að þetta væri aðeins veik von, sem Landsvirkjun gæti ekki byggt á. En það er áreiðanlegt, að verkfræðingar Landsvirkjunar hafa gert sér alveg fulla grein fyrir því, að til þess að geta fengið þessa afkastaaukningu upp í 2 þús. millj. kwst., þarf að leggja 500 millj. í nýjan kostnað til þess að auka vatnsmagnið og miðlunina. Þetta er þess vegna ekki fullyrt út í bláinn.
Hv. 6. þm. Reykv. var að tala um, að það vantaði að reikna gengistap af innlendum kostnaði í stofnkostnaði. Ég tek það fram aftur, að það, sem vantar í kostnaðinn, eru vatnsréttindin og það er gastúrbínustöðin.
Hv. þm. fullyrti, að orkusöluviðskiptin væru óhagkvæm fyrir Íslendinga, og af hverju voru þau óhagkvæm? Vegna þess, eins og hann sagði, að orkan er seld undir kostnaðarverði til álverksmiðjunnar, og af því ætti þá að leiða samkv. hans hugsanaflutningi, samkv. hans rökhyggju, að Íslendingar keyptu dýrara rafmagn, vegna þess að álverksmiðjan er til staðar. En hvað segja verkfræðingar Landsvirkjunar? Hvað segir orkumálastjóri? Hvað segja aðrir þeir verkfræðingar, sem starfa hér að orkumálum? Þeir fullyrða, eftir að hafa reiknað þetta dæmi til enda, að rafmagn úr smávirkjun væri yfir 50% dýrara en landsmenn fá frá Landsvirkjun. Og svo segir hv. 6. þm.
Reykv., að þessi viðskipti við álverksmiðjuna séu Íslendingum óhagkvæm. Skyldu ekki allir alþm. hafa gert sér grein fyrir því, að ef við ætlum að virkja stórt og meira en fyrir hinn venjulega orkumarkað, verður að fá orkufrekan kaupanda, því að það er ekki hægt að virkja stórt og láta svo aflið vera ónotað? Við hefðum ekki getað virkjað í Þjórsá, eins og gert hefur verið, ef við hefðum ekki fengið álverksmiðjuna eða einhvern annan notanda. Við hefðum orðið að sætta okkur við 50% hærra orkuverð til heimilisnota og innlendrar notkunar, ef við hefðum ekki virkjað svona stórt og fengið þennan orkufreka notanda. Ég hefði haldið, að alþm. væru sammála um þetta, þótt einstöku sinnum komi hv. þm. í ræðustólinn og vilji láta svo sem þeir hafi ekki gert sér grein fyrir þessum staðreyndum. Og við tölum oft um fallvötnin á Íslandi. Þau eru falleg, og þau geta verið þjóðinni dýrmæt og mikils virði. En fossarnir okkar og fallvötnin eru okkur ekki beinlínis mikils virði, nema við getum notað orkuna, sem í fallvötnunum er. Og við getum ekki virkjað orkuna að neinu magni, nema við bindum saman orkuvinnslu og orkusölu. Og þegar hv. 6. þm. Reykv. var að tala um stórvirkjun á Austurlandi, þá vita hv. alþm., að ekki verður gerð stórvirkjun á Austurlandi nema einhver orkufrekur kaupandi fáist. Það er kannske langglæsilegasta virkjunin þar, ef hægt væri að virkja 500–600 þús. kw. í einu, það kostar það. En hver getur notað þessa orku? Eigum við að reyna að fá útlendinga til þess að setja hér upp stóriðju og semja við þá og virkja Jökulsá á Dal? Eigum við að reyna að fá fyrirtæki til þess að setjast hér að og kaupa orku frá Sigölduvirkjun og Hrauneyjarfossvirkjun? Hv. þm. hneykslaðist á því, að ég hefði sagt áðan, að það væri ákveðið að halda áfram að virkja. Að sjálfsögðu verður það gert að því tilskildu, að Alþ. fallist á það. En þeir, sem með orkumálin fara, verkfræðingar, rn. og stjórn Landsvirkjunar, verða að mynda sér einhverja stefnu, sem að sjálfsögðu kemst ekki til framkvæmda nema Alþ. samþykki hana. Og þessir aðilar hafa ákveðið þessa stefnu, að leggja hana fyrir, af því að ljóst er, að það skapar íslenzku atvinnulífi aukið öryggi og getur orðið undirstaða að betri lífskjörum fyrir Íslendinga.
Hv. 6. þm. Reykv. var áðan að tala um uppgjafartón í mér og auðmýktartón, sem væri tilkominn vegna þess, að ég og fleiri ráðh. hefðum raunverulega gefizt upp á því að efla íslenzka atvinnuvegi og auka atvinnu í landinu. Það eru náttúrlega ýmiss konar öfugmæli, sem koma frá munni þessa hv. þm., og þess vegna er engin ástæða til að láta sér bregða, þótt svona fullyrðing sé viðhöfð. En núv. ríkisstj. hefur gert sér fulla grein fyrir því, að það er skylt að fá meiri fjölbreytni í íslenzkt atvinnulíf en verið hefur, jafnframt því sem skylt er að efla þá atvinnuvegi, sem þjóðin hefur fram til þessa stuðzt við, sem eru landbúnaður og sjávarútvegur og iðnaður í landinu. En okkur er skylt að skapa trausta undirstöðu, setja fleiri stoðir en verið hafa undir atvinnulífið. Og þegar hv. þm. er að brigzla núv. ríkisstj. fyrir aðgerðaleysi og auðmýktarskap í þessum málum, þá segi ég, að hann ætti að líta sjálfum sér nær, því að sú stefna, sem hefur verið opnuð í virkjunar- og iðnaðarmálum, er sú stefna, sem þessi þjóð hlýtur að halda sig að, jafnvel þótt breytt væri um ríkisstj. Því að við skulum vona, að á Íslandi verði alltaf ábyrgir menn í ríkisstj.
Hv. þm. talar um, að við höfum fjármagn og við höfum vinnuafl. Við höfum vinnuafl og stundum of litla vinnu fyrir þetta vinnuafl, en okkur hefur vantað fjármagn. Og hvernig á annað að vera en okkur vanti fjármagn? Við erum ekki það margir í þessu landi, og það er ekki svo langt síðan við fórum að byggja upp þetta land eða fjármagnsmyndun að eiga sér stað í landi okkar. Það er ekki langt síðan fjármagnsmyndunin og hagnaðurinn af okkar fábreytta atvinnurekstri var fluttur út úr landi. En sem betur fer hefur arðurinn af atvinnurekstrinum stöðvazt í landinu, og þess vegna hefur mikil uppbygging getað átt sér stað. Og þessi uppbygging verður að halda áfram. En hvernig stendur á því, að hv. 6. þm. Reykv. vill halda því fram, að það geti verið einhver skaðsemi fyrir Ísland, fyrir Íslendinga að flytja inn að vissu marki erlent fjármagn til uppbyggingar í landinu? Hvernig er það með nágrannaþjóðir okkar? Hvernig er það með þær þjóðir, sem skapa þegnum sínum bezt lífskjör? Hafa þær ekki keppzt við að koma sem mestri fjölbreytni á í atvinnulífinu? Hvernig er það með Norðmenn, sem eru fámennir, þótt þeir séu fjölmennari en við? Hvernig væri þeirra hagur, ef þeir hefðu ekki flutt inn erlent fjármagn til landsins? Það er langt síðan Norðmenn gerðu sér grein fyrir því, að þá vantaði fjármagn. Það er langt síðan þeir gerðu Trygve Lie út til þess að fá erlenda aðila til að flytja fjármagn til Noregs og leggja þar í fyrirtæki. Þetta vita menn, en vitanlega ber hverju sinni að haga samningagerð þannig, að okkar réttur sé tryggður og okkar öryggi sé ekki á neinn hátt sett í hættu, hvorki fyrir nútíðina né framtíðina. Við Íslendingar höfum sýnt, að við erum færir um að gera samninga við erlendar þjóðir, þótt þær séu fjölmennar. Og sem betur fer er ekki réttur þjóða í alþjóðamæli ákveðinn eða ákvarðaður eftir því, hve þjóðin er fjölmenn, heldur eftir menningu hennar, eftir þroska hennar og eftir getu hennar til þess að sýna, hvað í henni býr. Og þótt við Íslendingar séum fámennastir flestra þjóða, höfum við setzt á bekk með hinum fjölmennu þjóðum og notið þar sama réttar. Ég held, að hv. 6. þm. Reykv. ætti að endurskoða afstöðu sína, því að ekki dettur mér í hug að efast um, að þessi hv. þm. vill, að Íslendingar geti búið við atvinnuöryggi. Hann vill, að Íslendingar búi við góðan efnahag og góð lífskjör. En þá verður hann, um leið og hann vill þetta sem góður Íslendingur, að endurskoða sinn hug og ganga í lið með okkur, sem viljum leggja okkur fram um að tryggja atvinnu fyrir alla í landinu og reka atvinnuleysisvofuna á dyr.
Við höfum lengst af lifað á því að veiða fisk og við höfum lifað á landbúnaði. Við ætlum að halda áfram að stunda sjávarútveg og landbúnað. En eru líkur til þess, að við getum aukið það aflamagn, sem við veiðum úr sjónum, næstu árin? Eru líkur til þess, að sjávarútvegurinn geti tekið við þeirri fólksfjölgun, sem áætlað er, að verði hér á næstu árum? Það er áætlað, að Íslendingar verði 250 þús. árið 1980, eftir 11 ár. Þessum 50 þús. þarf að veita atvinnu. Það er áætlað, að Íslendingar verði 300 þús. árið 1990 og 350 þús. um aldamót. Eru líkur til, að okkar góðu atvinnuvegir, sjávarútvegur og landbúnaður, geti tekið við þessari fólksfjölgun? Eru líkur til, að við getum skaffað þessum fólksfjölda atvinnu, nema við virkjum fallvötnin og fáum þá orku, sem þar er að hafa, og nýtam hana til atvinnuaukningar fyrir allan þann fjölda, sem mun koma á vinnumarkaðinn á næstu árum? Og eru nokkrir möguleikar til þess, að við getum virkjað án þess að fá stóriðju ásamt öðrum iðnaði til þess að taka við fólksfjölguninni? Ég held, að svarið við þessu sé alveg augljóst og allir hv. alþm. séu í huga sínum sammála um þetta atriði. Því er sú stefna að halda áfram að virkja og selja þá orku, sem beizluð er, nauðsyn, hún er grundvöllur að fjölbreyttu atvinnulífi. Hún er grundvöllur að því, að Íslendingar hafi nægilega atvinnu og geti búið við afkomuöryggi. Og sá samningur, sem gerður var við álbræðsluna og gerði það mögulegt að byrja á fyrstu stórvirkjun á Íslandi, verður íslenzku þjóðinni til blessunar. Það er ekki nokkur vafi þar á. Menn geta deilt um þetta og sagt: Það átti að gera samningana öðruvísi. Þeir áttu að vera hagstæðari. En þegar á allt er litið, sjáum við, að þessir samningar eru mjög hagstæðir. Þeir gerðu það mögulegt, alveg öfugt við það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði áðan, að Íslendingar fái ódýrari raforku en þeir annars hefðu fengið. Og þeir gera það mögulegt, að við fáum árlega miklar gjaldeyristekjur af álverksmiðjunni vegna orkusölunnar. Þeir gera það mögulegt, að álverksmiðjan greiði á 15 árum allar erlendar skuldir, sem hvíla á Búrfellsvirkjun, þannig að gjaldeyrislega séð er þetta enginn baggi á Íslendingum. Og eftir 25 ár eiga Íslendingar orkuverið. Þá hefur álbræðslan borgað það að fullu. En hv. 6. þm. Reykv. segir, að þetta sé óhagstætt. Hann segir, að þetta sé næstum því glæpsamlegt. Eru aðrir hv. þm. honum sammála? Gæti það verið? Ég held ekki. Og ég held, að hv. 6. þm. Reykv. sé það skynsamur, að hann hætti þessum fullyrðingum og staðhæfingum, sem hann hefur viðhaft og ekki hafa við neitt að styðjast.