04.11.1969
Neðri deild: 10. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í D-deild Alþingistíðinda. (3165)

45. mál, rannsóknarnefnd vegna Búrfellsvirkjunar

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég get vel skilið, að sumum hv. þm. finnist sjálfum, að þeir séu nokkuð í sárum og það megi þess vegna ráða nokkuð í, hvers vegna þeir fara að brydda upp á málflutningi sem þessum og hvernig þeir lýsa afstöðu sinni til hans. Þeir voru flestir, sem hér hafa talað, þó að þeir hafi ekki allir átt sæti á Alþ. a.m.k. allan tímann, á mótí álbræðslunni og þeirri stórvirkjun við Búrfell, sem nú er verið að framkvæma. (Gripið fram í: Landsvirkjun var samþ. einróma.) Hv. þm. segir, að Landsvirkjun hafi verið samþ. einróma, en eins og hæstv. raforkumrh. sagði, var það aðeins heimild um virkjun við Búrfell, og þá heimild var ekki hægt að nota í þeirri mynd, sem hér er um að ræða, stórvirkjun, nema með byggingu orkufreks iðnaðar. Þeir voru þess vegna á móti þeirri Búrfellsvirkjun, sem almenningur þekkir nú hér á landi og veit, hvernig er í sköpun.

Sannast að segja er það líka svo, að þeir hv. þm., — fyrir utan þennan, sem gekk út úr salnum núna og hirðir lítið um, hvort hann segir satt eða logið, — þá hefur lítið komið fram í ræðum þeirra hv. þm. annarra, sem hér hafa talað, sáralítið, og þó alveg sérstaklega í ræðu hv. 4. þm. Reykv., sem er meðflm. þessarar till. Hann var mjög mildur í tali, og ég er ekkert viss um, að honum sé sérstaklega kært að hanga barna aftan í hv. 6. þm. Reykv. í þessum tillöguflutningi, þegar á allt reynir. Hann vék aðallega að því, að það skakkaði á áætlunum um Búrfellsvirkjun, annars vegar hjá Harza og hins vegar hjá fyrirsvarsmönnum Landsvirkjunar. Þetta hefur hæstv. raforkumrh. algerlega leiðrétt og sýnt fram á, að hér er ekkert, sem munar. Það var löngu vitað áður og er margsinnis búið að taka fram, a.m.k. þannig, að ekki hefur getað farið fram hjá þm., að virkjunarframkvæmdastigum hefur verið breytt og tekið meira á hið fyrra stig en hið síðara, sem breytir að því leyti áætlunum, sem gerðar voru árin 1964 og 1965 og gerð var grein fyrir þá. En eins og hæstv. raforkumrh. gerði grein fyrir áðan, eru mjög sterkar líkur fyrir því, að það muni sáralitlu ef nokkru skakka á endanlegum kostnaði við Búrfellsvirkjun og þeim áætlunum, sem áður voru lagðar fram.

Að öðru leyti hneig ræða hv. 4. þm. Reykv. að framleiðslugjaldi. Hún átti í raun og veru ekkert erindi hingað, sú ræða, því að hún byrjaði á því að gera hæstv. raforkumrh. það upp, að hann hefði sagt, að framleiðslugjaldið ætti að vera uppbót á rafmagnið. Þetta var alger mistúlkun á ræðu ráðh. í gær, fullkomin mistúlkun. Og eins og hv. 2. þm. Sunnl. sagði, hefur það aldrei verið neitt launungarmál, að það hærra verð fyrir orkuna, sem greitt er fyrstu árin, til 1975, er miðað við annað gjald, annað verð fyrir hvert tonn af áli, sem framleitt er. En það er auðvitað hægt að byrja á því að segja, að menn hafi sagt þetta og þetta og þetta sé allt saman rangt og þetta sé misskilningur o. s. frv. Hæstv. raforkumrh. vék aðeins að því að raforkuverðið væri nokkru hærra, 1/2 milli fyrsta tímann, eins og eldri samningarnir voru og gert er ráð fyrir í þeim viðbótarsamningum, sem væntanlega verða lagðir fyrir þingið innan fárra daga.

Hv. 4. þm. Reykv. sagði, að Svisslendingarnir hefðu átt frumkvæði að þessari aðferð að leggja á framleiðslugjald, þ.e. að af hverju tonni framleiddu af áli skyldi greiða svo og svo mikið gjald. Og þá var byrjað að gera því skóna, að þetta væru slyngir fjármálamenn, sem þeir eru, og þeir mundu áreiðanlega hafa verið að óska eftir þessu til þess að borga minna en eftir venjulegum skattalögum. En sannleikurinn er sá, að þeir sérfræðingar, sem kostur var á, færastir á þessu sviði hér, umreiknuðu þetta gjald miðað við þær áætlanir, sem við höfum bezt getað gert okkur grein fyrir í þeirri veru, eins og lesið var upp úr fyrri skýrslum um þetta mál, að hér væri um sambærilega skattlagningu að ræða, en hins vegar mundi á ýmsan hátt vera æskilegra og talið einnig hagkvæmara eða þægilegra, skulum við segja, fyrir Svisslendingana að vita í þessu efni, að hverju þeir gengu, vegna margháttaðrar fjölbreytni í skattakerfi okkar. En um þetta atriði fjölluðu ekki bara íslenzkir sérfræðingar og Svisslendingar og við, sem stóðum að álsamningunum, heldur gerði ég mér sérstaklega það erindi í ferð til Norðurlanda að ræða þetta atriði við Norðmenn, sem höfðu reynslu af þessu máli, bæði nýlega reynslu af byggingunni við Husnes og einnig frá eldri tíma. Og þeir, sem ég átti þar tal við og voru þessum málum mjög kunnugir og reyndir í álframleiðslu, ráðlögðu okkur eindregið, að við skyldum heldur hafa þennan hátt á og sennilega mundi hann reynast okkur drýgri. Nú er ekki hægt að sanna neitt um það, hvort hann reynist okkur í reyndinni drýgri eða ekki. En þetta hefur í sjálfu sér þýðingu með framleiðslugjaldið að því leyti til, að við getum borið okkur saman við Norðmenn, ef við viljum, hvað þar er raunverulega greitt fyrir millið af samanlögðu orkuverði og framleiðslugjaldi, þar samanlögðu orkuverði og sköttum á millið og hjá okkur í samanlögðu orkuverði og framleiðslugjaldi. Og þá getum við að nokkru leyti séð, hvað er hagkvæmara, en ég segi þetta vegna þess, að það hefur sí og æ fyrr og síðar verið talað um, að Norðmenn fengju meira fyrir raforkuna en við og það sýndi það, hvað við hefðum gert lélega samninga. Við drógum enga dul á það, að til þess að fá álbræðsluna hingað urðum við að geta boðið lægra orkuverð en á þeim stöðum, sem liggja nær mörkuðunum. Þetta var aldrei farið í felur með.

Ég man eftir því 1968, þegar Rostoft iðnmrh. var hér í heimsókn, þá barst það í tal við hans ráðherraritara, hvað Husnesverksmiðjan, álverksmiðjan í Husnesi, sem var þá af sömu stærð, — ég held, að þar hafi verið um 60 þús. tonna álframleiðsla, — hvað hún hafi greitt mikið í skatta, í opinber gjöld, sem svaraði til þess, sem við köllum framleiðslugjald hjá okkur. Hann var náttúrlega að hælast yfir því, eins og oft vill verða, að þeir fengju meira fyrir rafmagnið en við, og hann sagði þá, að „praktískt“ talað hefðu þeir ekki fengið neitt. Nú get ég ekki staðfest neitt um, hvort þetta sé rétt, en það getur haft þýðingu að athuga þetta og kanna þetta, þegar menn eru að bera saman þetta atriði, sem snertir ekki þessa till. hér, og ég segi þetta ekki í því sambandi, en það getur haft þýðingu að öðru leyti, þegar verið er að meta heildargildi samninganna. En ég er alveg sammála um það, að það snertir ekki þessa till. Þess vegna sagði ég, að ræðan hefði í raun og veru eða talið um þetta af hálfu 4. þm. Reykv. verið óviðkomandi því, sem hér væri verið að ræða um, því að þáð er annað mál. En það er hægt að gera sér grein fyrir hagkvæmni samninga, sem gerðir hafa verið, með mismunandi hætti, t.d. með því að reikna öll opinber gjöld, sem sveitarfélög og bæjarfélög og aðrir staðir fá af rekstri slíkra verksmiðja, og jafna orkuverðinu og slíkum gjöldum á hverja einingu í orkunni, sem seld er.

Ég get ekki séð, að það væri meira öryggi fyrir íslenzka framleiðendur að greiða fast framleiðslugjald en skatta. Ég efast um, að t.d. hv. 3. þm. Norðurl. v. geti verið hv. 4. þm. Reykv. sammála um það, að hann hefði staðið betur að vígi, ef hann hefði alltaf átt að greiða ákveðið gjald á hvert tonn af fiski, sem hann framleiddi. Og þannig mundi margur í útgerðinni líka mæla, að hann vildi frekar búa við þau skattalög, sem við höfum, heldur en þurfa að borga ákveðið gjald af hverju framleiddu tonni.

Hv. 2. þm. Sunnl. sagði, að hæstv. raforkumrh. hefði ekki andmælt því í gær, að sú rannsóknarnefnd, sem hér er stungið upp á, væri skipuð. Það er rétt. Ráðh. andmælti því ekki í gær; en það gerði hv. 2. þm. Sunnl. í dag. Hann sagði alveg berum orðum, að það væri hægt að ganga úr skugga um það, sem hér væri verið að deila um, á mjög einfaldan hátt, og þetta er ég honum sammála um. Það er hægt að ganga úr skugga um það á mjög einfaldan hátt. Og ég er líka sammála um, að það er erfitt að vera að deila um það í ræðustól, hvort þetta og þetta verð sé á orkueiningu. En það getur auðvitað þingnefnd hæglega kannað og það á mjög einfaldan hátt, og það er sambærilegt við það, sem hv. 6. þm. Reykv. var að tala um, að gerðist erlendis, að þingnefndir rannsökuðu mál. Auðvitað er það verkefni þingnefnda að rannsaka mál, en það er afbrigðileg meðferð mála hér í þingi að skipa rannsóknarnefnd samkv. sérstakri grein stjórnarskrárinnar, og hún held ég að hafi verið í ákaflega fáum tilfellum notuð. En hún er frá Dönum komin, sú afbrigðilega heimild. Við erfðum hana í stjórnarskránni, og hvort á að halda henni áfram í nýrri stjórnarskrá eða gefa venjulegum þingnefndum almennt, eins og t.d. í Bandaríkjunum, meira rannsóknarvald en þær hafa, það er svo annað mál. En eins og hv. 2. þm. Sunnl. talaði, ætti auðvitað slík rannsóknarnefnd að vera gersamlega óþörf, þegar það er svona einfalt mál að ganga úr skugga um það, sem hér hefur verið deilt um, raunverulegt framleiðslukostnaðarverð á rafmagninu. Ég tel hins vegar rétt, að þessi till. fái þá þinglegu meðferð, að henni verði vísað til nefndar, eins og ég held, að hv. flm. hafi lagt til, að henni yrði vísað til allshn. og við fáum svo meira af henni að heyra, þegar n. hefur haft aðstöðu til þess að kanna málin betur. En ég verð að segja það, að bæði hef ég kunnað illa við það í dag og í gær, og ég held, að aldrei hafi þótt fara vel hér í þingsölunum sá menntahroki, sem fram kom í ræðum hv. 6. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Sunnl. Þeir telja sig, — annar sem verkfræðingur, hinn er held ég ekki með háskólapróf, en mun hafa fengið háa einkunn í reikningi á stúdentsprófi, — geta knésett iðnmrh. og sagt okkur, að hann skilji ekki nokkurn skapaðan hlut í því, sem hann sé að fara með í sambandi við þetta mál. Um það ætla ég ekki að fara fleiri orðum, en ég hygg, að þeir bæti ekkert málstað sinn með því að vera að senda hæstv. ráðh. kveðjur eins og þessar og gera því svo skóna, sennilega af því að hann viti ekkert, hvað hann sé að segja um þetta, að til standi að taka orkumálin úr hans höndum um áramót, en það var samþ. á þinginu í fyrra að breyta lögum um stjórnarráð, og af þeim leiðir óhjákvæmilega nokkrar breytingar. Efnislega breytingin er mest sú að sameina alls staðar í hverju rn. öll þau mál, sem undir það heyra, en skilja þau ekki í sundur og raða þeim þar niður, sem þau eðli málsins samkv. eigi helzt heima, og verður samin um þetta reglugerð, áður en lögin taka gildi, en mig minnir, að gildistaka lagann hafi verið 1. janúar 1970.

Ég var að reyna að rifja upp fyrir mér gamlan húsgang frá barnæsku, sem ég mundi eftir að byrjaði svona:.

„Skrattinn fór að skapa mann,

skinnlaus köttur varð úr því.“

Svo man ég ekki alveg endinn, en það voru einhverjir, sem komu og hjálpuðu til við sköpunarverkið, en hér hefur ekki átt að skapa mann, heldur reyna að skapa í hugum almennings, að þeim, sem stóðu að því að reisa hér álbræðsluna og stórvirkjunina við Búrfell, hafi orðið á eitthvert glapræði. Og það er þetta sköpunarverk um það, að öðrum hafi orðið á glapræði, sem ég held, að þessum ágætu mönnum mistakist ekkert síður en þeim gamla á sínum tíma. Og það er næsta furðulegt að heyra það enn, að verkfræðingar og reikningsglöggir menn tali um það og haldi því blákalt fram hér, — það hefur að vísu ekki hv. 2. þm. Sunnl. gert, en hv. 6. þm. Reykv. gerði það, — að Íslendingar yrðu að borga stórum meira verð fyrir rafmagnið vegna álsamningsins. Hv. 6. þm. Reykv. sagði, að það hefði legið fyrir fyrir löngu, að kostnaðurinn væri meiri á rafmagninu en gert væri ráð fyrir í áætlununum. Þetta lá fyrir á þinginu 1964–1965 í grg. með frv. um Landsvirkjun. Ekki man ég þá eftir því, að vefengdir hafi verið þeir útreikningar, sem fylgdu því frv. og voru efnislega í þá átt, að það væri verulega miklu hagkvæmara fyrir Íslendinga varðandi raforkuverð að gera samninga við álbræðslu og geta virkjað stórt en virkja smátt. Og þá var gengið út frá þessari verðeiningu, 2.5 mill, á raforkunni, eins og aðalsamningurinn gerir ráð fyrir, að lengst af verði á tíma raforkusamningsins við álbræðsluna. Þá voru í þeirri grg. samanburðartölur, sem sýndu, hvað munurinn var mikill. Allar þær tölur eru auðvitað aðrar í krónum núna, og ýmislegt hefur breytzt síðan. En þetta var ekki vefengt þá. Það segir m.a. í grg. frá sérfræðingum raforkumálastjórnarinnar, með leyfi hæstv. forseta: „Til ársloka 1975 spara notendur þannig um 100 millj. kr., ef ráðizt er í Búrfellsvirkjun með 60 þús. tonna aluminíumbræðslu í stað smávirkjana eða að meðaltali rúmar 14 millj. kr. á ári, en það er t.d. um 19% af áætluðum gjöldum Sogsvirkjunar 1965.“ Og þegar menn hafa það í huga, var þetta ekki litið, að um væri að ræða sparnað á upphæð, sem svarar til 19% af áætluðum gjöldum Sogsvirkjunar 1965, og þetta er ekki haft eftir sérfræðingum Landsvirkjunar, því að hún var þá ekki til, heldur sérfræðingum raforkumálastjórnarinnar. Og áfram segir: „Á árunum 1976–1953 eru árleg útgjöld 22.5 Mkr. hærri í kosti B 1. Við þann mun ber að bæta verðmæti þeirra 170 + 60 = 230 Gwh, sem Búrfell hefur umfram smávirkjanirnar í árslok 1975, sbr. töflu 4 og 5.“ Og síðan er dregin af þessu niðurstaða, hversu miklu hagfelldara það verði að virkja Búrfellsvirkjun stærra og með álbræðslu, og þar af leiðandi, hversu allur almenningur í landinu muni fá raforkuna ódýrari en ella.

Svo berja menn höfðinu við steininn enn í dag, — eins og hæstv. ráðh. sagði áðan, — þó að áætlanir þær, sem gerðar voru og lagðar voru til grundvallar Búrfellsvirkjun, muni að lokum algerlega standast. Það skakkar þá aðeins um nokkurn tíma til eða frá, ef lagður hefur verið meiri kostnaður í bili við fyrri áfanga og þar af leiðandi meiri orka afgangs, sem ekki er notuð. En undir þann leka hefur líka verið sett og er sett með þeim viðbótarsamningum, sem gerðir hafa verið, að selja til viðbótar 20 mw. í álbræðslustækkun, sem byrjað er á og á að vera lokið í júlímánuði 1970 og gerir afkomu Landsvirkjunar einmitt hagkvæmari vegna þess, að í fyrri áföngunum var ráðizt í meira en áður hafði verið áætlað. Þessir samningar eru gerðir, eins og sagt hefur verið, með fyrirvara og áskildu samþykki Alþ., og það reynir auðvitað á, hvernig hetjurnar standa sig í atkvgr., þegar þar að kemur, um þann samning, en í þessum gömlu áætlunum úr grg. eða fskj., réttara sagt Landsvirkjunarfrv. frá 1964–65, segir einnig orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:

„Einnig er þess að gæta, að ætla má, að sá hluti Búrfellsvirkjunar, sem aluminiumbræðslan nýtir, verði orðin skuldlaus eign eftir 25 ár, og að samningur um raforkusölu til 60 þús. tonna aluminiumbræðslu mundi standa undir nær öllum þeim erlendu lánum, sem líklegt er, að taka þurfi til Búrfellsvirkjunarinnar allrar. Já, það er satt, að sérfræðingar í þessum málum, bæði innlendir og erlendir, hafa fyrir löngu vakið athygli á því, hve miklu meiri hagkvæmni væri í því að virkja stórt, en það væri hins vegar óframkvæmanlegt öðruvísi en með samningum við orkufrekan iðnað, og þegar þeir segja þessi orð, sem hér er um að ræða, er lagt til grundvallar það verð, sem samið er um fyrir rafmagnið. Samkv. þessum gömlu plöggum og einnig síðar með breyttum tölum, var það útreiknað, og ég gerði grein fyrir því í umr. um álbræðsluna á sínum tíma árið 1966, og það er í samræmi við það, sem hæstv. raforkumrh. sagði í gær, að útreikningar sérfræðinga sýndu þá, að ef ekki er ráðizt í álbræðsluna, þarf heildsöluverðið á viðbótaraflinu, þ.e. aflinu frá hinum nýju virkjunum, sem ella yrðu byggðar án álbræðslu, að vera að meðaltali 54% hærra á árunum 1969–1972, um 66% hærra á árunum 1973–1976 og um 7% hærra á árunum 1977–1985.

Hér hefur verið veifað skýrslu ameríska fyrirtækisins Harza, sem var fengið eftir kröfum Alþjóðabankans til þess að vera ráðgefandi aðili í málefnum þeirra fyrirtækja, sem hér er um að ræða. En það var ekki heldur gerður neinn samningur um Búrfellsvirkjun eða um álbræðsluna né raforkusölusamningur frá Búrfellsvirkjun til álbræðslunnar nema með samþykki Alþjóðabankans, sem fékk Harza til þess að ganga úr skugga um, að hér væri verið að gera rétt.

Mér er alveg ljóst, að þegar borin hefur verið fram till. eins og þessi, eins og reyndar hefur komið oft fyrir áður og ég held oftast, þegar till. hafa verið fluttar um rannsóknarnefndir samkv. stjórnarskránni, þá hefur verið einhver sýndarmennska í því. Þó er það ekki alltaf, og veit ég um undantekningar, og skal ég ekki út í það fara. En tilgangurinn er að mínum dómi fyrst og fremst að kasta ryki í augu fólks og reyna að láta líta svo út, að hér sé eitthvert ógurlegt glapræði á ferðinni og því megi ekki minna vera en skipa slíka rannsóknarnefnd sem þessa.

Ég fagna því, að þessi till. hefur verið fram borin. Mér finnst alveg mátulegt fyrir þessa menn, sem hafa flutt hana, og aðra, sem vilja taka undir hana, að standa í fyrirsvari fyrir hana, og ég vona, að almenningur í landinu taki vel eftir málflutningi þeirra og eftir þeim deilum, sem hér verða um þessa till. Og ég tel alveg sjálfsagt, að hún fái venjulega þinglega meðferð og verði að lokinni fyrri umr. hér, eins og lagt hefur verið til af hv. flm., vísað til allshn.