10.11.1969
Neðri deild: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í D-deild Alþingistíðinda. (3169)

45. mál, rannsóknarnefnd vegna Búrfellsvirkjunar

Landbrh. ( Ingólfur Jónsson ):

Herra forseti. Mér þykir vænt um það, að hv. 6. þm. Reykv. virðist vera í nokkurri framför, þar sem hann endaði með að segja það, að hann héldi, að þessar tölur væru réttar, sem hann hefur farið hér með. En það sagði hann ekki í fyrri ræðum sínum. Þá var enginn efi í hans huga um það, að þær væru réttar. Þá fullyrti hann og þá staðhæfði hann. En nú segir hann sig halda þær réttar, og það var líka auðheyrt á hans framsögu hér áðan, að hann er farinn að efast, því að hann er farinn að snúa út úr því, sem ég sagði, og segir, að ég sé farinn að nálgast þær tölur, sem hann nefndi í upphafi. Það vita þó allir, að þær tölur, sem hann nefndi í upphafi, voru allt aðrar en þær, sem hann var að tala um nú. Í upphafi talaði hann um það, að það væri búið að eyða 3 770 millj. í virkjunina. En heildaráætlun er 3 760 millj., þegar búið er að ljúka virkjuninni. Þetta er vitanlega reginmunur. En það er eðlilegt, að menn spyrji, um hvað er deilt. Hv. 6. þm. Reykv. ber alltaf fyrir sig verkfræðifirmað Harza. Það er hans biblía. Og hann birtir í Þjóðviljanum mynd, kápumynd af þessu plaggi. Og vegna þess að hann hefur líklega ekki haft nema aðra áætlunina, ég hef tvær, þá er þessi till. til orðin, og hann fékk sessunaut sinn, hv. 4. þm. Reykv., til þess að flytja þessa till. með sér á þeim forsendum, að fyrirtækið Harza væri með allt aðrar tölur og allt aðra áætlun en þá, sem unnið var eftir, eða þá, sem kæmi fram í bókhaldi Landsvirkjunar. Og þess vegna fullyrti hv. 6. þm. Reykv. og hv. 4. þm. Reykv. líka, að þetta hlyti allt að vera miklu dýrara en það var áætlað. Þeir fundu út, hvað álverksmiðjan fengi rafmagnið keypt langt undir kostnaðarverði, þetta væri baggi á íslenzka ríkinu, þjóðin yrði að borga á innlendum markaði miklu hærra verð fyrir orkuna en hún annars hefði gert, vegna þess að álverksmiðjan fær rafmagnið svo ódýrt. Þannig er málflutningurinn. Þetta eru forsendurnar fyrir tillöguflutningnum. Og það er náttúrlega raunalegt, að tveir hv. ágætir þm. hafa eytt löngum tíma þingsins í að ræða mál á alröngum forsendum. Þegar forsendurnar eru alveg rangar, hlýtur það, sem út af þeim er lagt, að vera það einnig. Af því að hv. 6. þm. Reykv. var að reyna að snúa út úr því áðan, sem ég hafði sagt s.l. þriðjudag, held ég, að rétt sé, að ég rifji nokkuð upp af því í örstuttu máli, en það var, hvaða misræmi væri í áætlunum Harza og því, sem kemur fram í bókhaldi Landsvirkjunar. Ég tel rétt að rifja það aftur upp vegna þess, sem ég mun síðar minnast á í þessari ræðu. Ég sagði:

Ekkert misræmi er á milli talna Harza um stofnkostnað Búrfellsvirkjunar miðað við 30. júní s.l. og talna Landsvirkjunar. Tala Harza er 29.8 millj. dollara eða 2 622 millj. kr. Hins vegar er talan í bókhaldi Landsvirkjunar 3125 millj. kr., enda eru þar meðtaldir vextir á byggingartíma o.fl., eins og sést á eftirfarandi töflu. Kostnaður við framkvæmdir 2 622 millj., vextir á byggingartíma 226 millj., tollar og opinber gjöld 32 millj. Gengistap vegna vaxta og innlends kostnaðar, sem greiddur hefur verið með erlendum lánum, 245 millj. Kostnaður eftir bókhaldi Landsvirkjunar pr. 30. júní 1969 3125 millj. Að undanskildum vatnsréttindum hefur því allt verið tekið hér með, þ. á m. allt gengistap. Rangfærslur eða misskilningur hv. 6. þm. Reykv. felst í því, að hann áttar sig ekki á, að Harza hefur í þessari töflu umreiknað upphaflegu kostnaðaráætlunina á núverandi gengi og þannig lækkað hana úr 31.5 millj. dollurum í 25.8 millj. dollara. Þessi lækkun er hins vegar ekki raunhæf, bæði vegna gengistaps, þar sem mikill innlendur kostnaður hefur verið greiddur með erlendum lánum, auk þess sem innlent verðlag hefur hækkað og allmiklar framkvæmdir verið fluttar úr síðari áfanga í fyrri áfanga. Og það er það, sem hv. 6. þm. Reykv. á afar erfitt með að skilja, að það skuli vera búið að vinna talsvert núna í II. áfanga, á meðan I. áfanga er ekki að fullu lokið. Eini raunhæfi samanburðurinn, sem nú skiptir máli, er samanburður á upphaflegri áætlun ag núv. áætlun, hvort tveggja reiknað í dollurum.

Ég hef hér fyrstu framkvæmdaskýrslu Harza frá október 1966. Þar er áætlaður kostnaður 31.5 millj. dollarar, og er það sú sama áætlun, sem byggt var á, þegar álsamningarnir voru gerðir. Síðasta áætlun Harza, sem hv. 6. þm. Reykv. hefur vitnað til, gefur hins vegar áætlaðan kostnað 32.6 millj. dollara. Hækkunin er því aðeins 1.1 millj. dollara, og hún stafar öll af því, að nú hefur verið framkvæmt meira í þessum fyrri áfanga en hin upphaflega áætlun Harza gerði ráð fyrir. Við áætlun Harza um fyrri áfanga, sem var 31.5 millj. dollara, þarf svo að bæta áætlun þeirra um seinni áfanga, miðlun í Þórisvatni og vexti á byggingartíma. Að öllu þessu meðtöldu var hin upphaflega áætlun, sem stuðzt var við í álsamningnum, 42.8 millj. dollarar. Núgildandi áætlun er sem hér segir: I. áfangi 32.6 millj. dollara, II. áfangi og miðlun 4.1 millj. dollara, vextir, gengistap, tollar o. fl. 6 millj. dollara eða samtals 42.7 millj. dollara, 100 þús. dollurum lægra en upphaflega var áætlað.

Þetta er það, sem ég sagði í aðalatriðum s.l. þriðjudag, og ég rifja það upp, vegna þess að hv. 6. þm. Reykv. var að leggja skakkt út af því áðan. Og nú vil ég í framhaldi af þessu upplýsa það, hvað Harza hefur um þetta að segja, — hvort álit Harza-fyrirtækisins stangast á við það, sem ég sagði s.l. þriðjudag. Og þá sést, hvort hv. 6. þm. Reykv. hefur lagt rétt út af Harza-skýrslunni sem hann hefur byggt alla sína málfærslu á. Ég hef, með leyfi hæstv. forseta, bréf í höndum frá yfirverkfræðingi Harza, og fyrir milligöngu Landsvirkjunar hef ég fengið þetta bréf. Það er í lauslegri þýðingu, en ég mun láta hv. 6. þm. Reykv. fá það á ensku, því að sannarlega veitir honum ekki af að átta sig betur á þessu, eftir að hann er ákveðinn í því að vilja hafa það, sem sannara reynist, eins og hann sagði áðan. Með leyfi hæstv. forseta vil ég lesa þetta bréf:

„Fyrir milligöngu Landsvirkjunar hafið þér farið fram á, að við létum yður í té hina upprunalegu og núv. kostnaðaráætlun okkar fyrir Búrfellsvirkjun fullgerða ásamt áætlun okkar um kostnaðarverð á orkueiningu frá virkjuninni.

Stofnkostnaður. Búrfellsvirkjun fullgerð tekur til aflstöðvar við Búrfell með sex 35 mw. vélasamstæðum, 220 kw. aðalorkuveitu frá Búrfelli um Írafoss að Geithálsi og Straumsvík og byrjun á miðlun um 500 millj. teningsmetra úr Þórisvatni. Hér á eftir fer samanburður á núverandi áætlun okkar um stofnkostnað Búrfellsvirkjunar við áætlun okkar í Definite Import frá apríl 1965 og þá áætlun, eins og hún var eftir endurskoðun í febr. 1966.

Verkþættir: I. áfangi, 3 vélasamstæður, apríl 1965, 28.37 millj. dollara, febr. 1966 31.5 millj. dollara, nóv. 1969 32.6 millj. dollara.

Framtíðarverk: Viðbót 3 vélasamstæður, 6.88 millj. apríl 1965, 5.1 millj. febr. 1966, 2.6 millj. í nóv. 1969. Byrjunarmiðlun við Þórisvatn, apríl 1965 2 millj., febr. 1966 2 millj., nóv. 1969 1.5 millj. dollara. Niðurstaðan verður þá þessi: Kostnaður miðað við áætlun í apríl 1965 37.25 millj. dollara, febrúar 1966 38.6 millj., nóv. 1989 36.7 millj. dollara.

Stofnkostnaðaráætlun okkar felur ekki í sér vexti á byggingartíma, vatnsréttindi, lántökukostnað, gengistöp eða flutningsgjöld og skatta. Núverandi áætlun felur hins vegar í sér fjárhæð, sem við teljum vera sæmilega ríflega til þess að mæta kröfum frá verktökum, og er þá byggt á fyrri reynslu okkar af sams konar verkum annars staðar í heiminum.

Í framkvæmd hafa verið gerðar ýmsar smávægilegar breytingar, viðbætur og niðurfellingar á heildarverkinu, og er tekið tillit til þessa í áætlunum. Slíkar breytingar eru eðlilegar í þróun verksins frá upphaflegum áætlunum til verkloka. Það er athyglisvert, að stofnkostnaður verksins í heild, sem í dag er þekktur með góðri nákvæmni, kemur mjög vel heim við þá áætlun. sem gerð var fyrir næstum 4 árum og lögð var til grundvallar við ákvörðunina um að ráðast í framkvæmdir við Búrfellsvirkjun og ákvörðunina á rafmagnsverði við álbræðsluna. Okkur er það ánægjuefni að skýra frá því, að ísskolunarmannvirkin í Þjórsá hafa skilað hlutverki sínu næstum fullkomlega í nokkrum meiri háttar ísruðningum, sem átt hafa sér stað þegar á þessum vetri. Það lítur því út fyrir, að þetta vandamál þurfi ekki lengur að valda alvarlegum áhyggjum.

Einingarverð orkunnar. Hinn mikilvægi kostnaður vatnsaflsvirkjunar er framleiðsluverð orkunnar á einingu, sem svo aftur er megingrundvöllur söluverðsins. Þetta einingarverð er áætlað sem hlutfall árlegs kostnaðar og árlegrar orkuframleiðslu. Landsvirkjun hefur látið okkur í té áætlun upp á 6.3 millj. Bandaríkjadollara fyrir þá kostnaðarliði að vatnsréttindum undanskildum, sem vísað er til að framan og ekki eru meðtaldir í stofnkostnaðaráætlun okkar, að fjárhæð 36.7 millj. Bandaríkjadollarar.“ — Með þessari viðbót áætlast heildarvirkjunarkostnaðurinn 43 millj. Bandaríkjadollara, — þ.e. 300 þús. dollurum meira heldur en þær tölur, sem ég var með s.l. þriðjudag, og er það vegna þess, að hann tekur þarna inn í nokkrar tölur, sem ekki voru með í þeirri upphæð, enda segir hann, að þetta sé ríflegt, og hann bendir á, að það sé ríflega áætlað fyrir þeim samningum, sem standa á milli verktakanna og Landsvirkjunar. Hv. 6. þm. Reykv. nefndi 700 millj. kr. um daginn, en sannleikurinn er sá, að það er talið, að þarna sé kannske um nokkra tugi millj. kr. að ræða. Það er ekki vitað, hvað það er. Sambærileg tala í hinni upprunalegu áætlun var 42.8 millj. Bandaríkjadollara, þannig að það munar 200 þús. dollurum frá upphaflegri áætlun.

„Árlegur kostnaður af vatnsaflsstöðvum að frátöldum tryggingum og sköttum, ef einhverjar eru, felur í sér afskriftir og vexti, rekstur, viðhald, stjórnun og almenn útgjöld. Síðarnefndu liðirnir eru venjulega um einn af hundraði af heildarstofnkostnaði. Afskriftir og vexti má áætla á annuitetsgrundvelli. Tímalengd annuitets fyrir vatnsaflsstöð er aldrei minni en 40 ár.“ — Vélarnar við fyrstu Sogsvirkjunina eru orðnar 32 ára. Og eins og ég upplýsti s.l. þriðjudag, sagði verkfræðingurinn mér, að þær væru alveg öruggar næstu 30 árin eða 60 ár. — „6.5% ársvextir, miðað við 40 ára annuitet, samsvara 7.07% á ári í greiðslu, miðað við 7.5% ársvexti eða prósentan 7.94%. Þannig verða árleg útgjöld Búrfellsvirkjunar 3.47 millj. Bandaríkjadollara miðað við 6.5% vexti og 3.85 millj. Bandaríkjadollara miðað við 7.5% vexti. Við höfum áætlað afhenta ársorku Búrfellsvirkjunar í heild 1720 millj. kwst. Þannig verður orkukostnaðurinn á kwst. 2.02 mill miðað við 6.5% vexti og 2.23 mill miðað við 7.5% vexti, en orkusalan er fyrstu árin 3 mill, en síðar 2.5 mill til álverksmiðjunnar. Á genginu 1 dollar = 88 kr. samsvarar þetta 17.8 og 19.6 aurum. Nýlegar prófanir á vélum Búrfellsvirkjunar hafa leitt í ljós, að unnt er að reka þær að staðaldri með 15% meira afli en málraun segir til um og miðað er við að framan í áætlun um orkuframleiðsluna. Þetta varaafl kerfisins, alls 30 mw., getur mætt auknu álagi. Hins vegar er einnig unnt að nota það með viðbótarvatni frá framtíðarmiðlun ofar í ánni til að framleiða orku, sem áætlast um 250 millj. kwst. á ári. Miðað við söluverð 2.5 mill á kwst. yrðu árlegar tekjur 625 þús. dollarar. Gæti þetta nægt til þess að fjármagna fulla Þórisvatnsmiðlun, sem er 2000 millj. teningsmetra.“ — En áðan var talað aðeins um 500 millj. teningsmetra, vegna núverandi Búrfellsvirkjunar.

„Í orkukerfi Landsvirkjunar á Suðvestur-Íslandi er gasaflsstöð, sem fyrst og fremst er reist sem varastöð. Heildarstofnkostnaður hennar er 3.2 millj. Bandaríkjadollara. Slík stöð hefur tiltölulega styttri endingartíma en vatnsaflsstöð, en þennan endingartíma má framlengja verulega vegna lítillar notkunar, samanborið við venjulega toppstöð. Venjulegur rekstur og viðhaldskostnaður er hverfandi. Hin nær fullkomna hegðun í ísskolunarmannvirkjunum við Búrfell til þessa bendir til þess, að ekki verði þörf á að nota gasaflsstöðina nema mjög lítið með miklum olíukostnaði á kwst. Árlegur heildarkostnaður, sem nemur 10%, eða 320 þús. Bandaríkjadollurum, virðist hæfilegur. Ef þessi árlegi kostnaður yrði lagður á Búrfellsvirkjun eina, miðað við 1720 millj. kwst. orkuframleiðslu á ári, mundi einingarverðið hækka um 0.19 mill, sem jafngildir 1.7 aurum. Við þetta mundi einingarverðið hækka í 19.5 aura miðað við 6.5% vexti og 21.3 aura miðað við 7.5% vexti. En þess ber að geta, að hér er miðað við 1720 millj. kwst., en ekki 2000 millj. kwst., eins og hugsanlegt er að fá, miðað við það, að vélarnar afkasta 15% meira en áætlað var. Í sambandi við framangreinda útreikninga á einingarverði verður að gæta þess að nota ekki í samanburði hinn upphaflega áætlaða stofnkostnað, sem sýndur er í framvinduskýrslum í Búrfellsvirkjun eftir tvær síðustu gengisbreytingar. Innlendu kostnaðarliðirnir hafa þar verið lækkaðir í þeim tilgangi að endurspegla þessar gengisbreytingar með umreikningi þeirra til jafngildis í Bandaríkjadollurum. Þess vegna eru þeir ekki lengur upphafleg áætlun í réttum skilningi. Breytingar þær, sem gerðar eru með því að beita áhrifum gengisbreytinganna, sýna kostnaðarlækkun, sem að sjálfsögðu er ekki raunhæf. Framangreindar breytingar í síðustu framvinduskýrslum sýna lækkun úr 12 millj. Bandaríkjadollara í 5.86 millj. eða lækkun um jafngildi 6.14 millj. Bandaríkjadollara að öllu leyti á innlendum kostnaðarliðum. Þetta hefði verið upphafleg áætlun, ef núverandi gengi hefði gilt í febr. 1966 og ekkert annað breytzt síðan þá. Efnahagsleg atriði, tengd gengisbreytingunum, sem hækkuðu innlendu kostnaðarliðina, að meðtöldu tapi á erlendum lánum hafa verið notuð til greiðslu á innlendum stofnkostnaði. Sú staðreynd, að framangreindur samanburður á okkar fyrstu og síðustu verkáætlunum sýnir svo litlar breytingar, endurspeglar þá staðreynd, að kostnaðarbreytingarnar, er voru tengdar gengisbreytingum, hafa haft tilhneigingu til að jafnast út.

Virðingarfyllst,

Harza Engineering Company international, C. K. Willey, director.“

Ég minntist á það hér, að ég vildi láta hv. 6. þm. Reykv. fá þetta bréf á ensku, til þess að hann fari ekki að gefa það út, að það sé ekki rétt þýtt, og ég vil gjarnan, að hv. þm. komi og sæki þetta plagg. Það er ekki til of mikils ætlazt, þó að hann láti í té þá fyrirhöfn. (Gripið fram í Það er sjálfsagt. Ég var búinn að hafa fréttir af því, að Harza hefði staðið í útreikningum fyrir hæstv. ráðh.) Mér þykir vænt um að geta haft góð áhrif á hv. þm. Góð áhrif, segi ég, vegna þess að hann sagði áðan, að hann vildi hafa það, sem sannara reyndist, og hann héldi, að það væri rétt, sem hann var að segja, í stað þess að viðhafa þau orð, sem hann áður hafði haft, að fullyrða, að hann stæði með báða fætur fasta á jörðinni. Þá er nú maðurinn öðruvísi en maður hefur látið sér detta í hug, að hann gæti orðið.

Það er ljóst af því, sem hér hefur verið sagt, að það er fleipur eitt, sem hv. flm. till. hafa fram borið. Og ég er alveg sannfærður um það, að hvað sem hv. 6. þm. Reykv. líður, mun hv. 4. þm. Reykv. átta sig á þessum staðreyndum, og ég held, að þrátt fyrir það, að hv. 4. þm. Reykv. sé sessunautur hv. 6. þm. Reykv. og geti þar af leiðandi verið í hættu með að truflast, þá geri ég mér vonir um það, að hann átti sig á því, að það, sem hann hefur sagt í þessu máli, hefur ekki við rök að styðjast. En tillöguna hafa þeir flutt og mörg orð hafa verið viðhöfð í þessu máli, sögð algerlega að óþörfu. Báðir þessir hv. þm. hafa fullyrt, að við hæstv. dómsmrh. vildum ekki, að þeir fengju allar upplýsingar í þessu máli. Hvorugur okkar hefur sagt það. Við viljum báðir, að málið sé upplýst, og ég ætla, að málið sé upplýst. Hins vegar mun það fara til n., og ef n. vill spyrja og fá fleiri svör og sannfærast enn þá betur, hlýtur það að vera mögulegt.

Ég tel ekki þörf á því að fara mörgum orðum um þetta að þessu sinni, en ég vil aðeins í tilefni af því, sem þessir tveir hv. þm. sögðu áðan, biðja t.d. hv. 4. þm. Reykv. að minnast þess, að þegar frv. um Landsvirkjun var lagt fram 1965, lá það alltaf fyrir, að rafmagn frá lítilli virkjun yrði mun dýrara en frá stórri virkjun. Það er alveg rétt, að ég sagði um það leyti, að það væri mögulegt að virkja Þjórsá í smærri stíl. Það var mögulegt, en það var alltaf ljóst, að það yrði miklu dýrara, og í fskj. með nefndu frv. eru margar fróðlegar töflur, sem sýna þetta alveg svart á hvítu. Það er t.d. talað um virkjun á Þjórsársvæðinu, Búrfell, fyrsta áfanga, og þá er gert ráð fyrir, að kwst. kosti 10.3 aura, með stóriðju og almennri notkun. En með fyrsta áfanga, ef bara er um almenna notkun að ræða, en ekki stóriðju, þá er verðið miðað við 70 mw. 12.9 aurar. Nú er það vitað, að ekki hefði verið byrjað að virkja með 70 megavöttum, heldur aðeins 35, og þá hefði kwst. kostað minnst 15 aura, ef hún kostaði með áli 10.3 aura. Þetta lá alveg fyrir. Og ef við tökum aðrar smávirkjanir til samanburðar, þá verður samanburðurinn enn óhagstæðari. Þess vegna ættum við ekki að þurfa að eyða löngum tíma í að fullyrða, að íbúar á Landsvirkjunarsvæðinu þurfi að borga hærra verð fyrir orkuna, vegna þess að álverksmiðjan kaupir orku frá Búrfellsvirkjun. Það liggur alveg í augum uppi, að ef álverksmiðjan væri ekki, væri rafmagn til hinnar almennu notkunar miklu dýrara en það er nú. (Gripið fram í.) Nú er spurt að því, hvort hækkun verði um næstu áramót. Það má vel vera. Það hefur verið rætt um það, en hversu mikil hún á að vera hefur ekki verið ákveðið, en einn þátturinn í því, hvort hækkun verður um næstu áramót og kannske sá stærsti, er sá, að ef við flýtum viðbótarvirkjun, er eðlilegt, að eignaraðilar leggi fram fé eða virkjunin sjálf, því að við framhaldsvirkjun við Búrfell verður ekki tekið 100% lán fyrir kostnaðinum. Það hlýtur að verða að leggja fram eitthvert fjármagn hér heima, annaðhvort beint framlag frá eignaraðilum eða þá að vinna eitthvað upp í framlög með hækkuðu orkuverði. Um þetta hefur ekki verið tekin ákvörðun enn þá. En ég geri ráð fyrir því, að eðlilegt sé, sérstaklega ef virkjuninni verður flýtt, að hækka orkuverðið eitthvað.

Þá var hv. 4. þm. Reykv. að tala um tolleftirgjöfina, sem þessi virkjun hefur fengið. Það gildir alveg það sama um þessa virkjun og aðrar vatnsvirkjanir, t.d. Sogið, þegar frá er tekin fyrsta virkjunin. Það hefur ekki þótt fært að taka tolla af þessum virkjunum, og þess vegna er ekki um neina sérstöðu að ræða í sambandi við virkjunina við Búrfell.

Það er ekki ástæða til að fara fleiri orðum um það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði áðan, því að bæði er það, að ljóst er, að allur hans málflutningur er á sandi byggður og svo er hans ræðutími búinn í þessari umferð, og er því rétt að láta staðar numið, hvað hann snertir. En ég vil að lokum aðeins minna á, að það, sem komið hefur fram við þessar umr., er það, að málatilbúnaðurinn er á skökkum forsendum byggður. Það hefur verið hrakið, sem hv. flm. nefndrar till. hafa haft fram að bera. Notendur á svæði Landsvirkjunar fá rafmagnið á mun lægra verði, vegna þess að álbræðslan er með og virkjað var stórt á Suðurlandsundirlendinu. Álbræðslan stendur undir öllum erlendum lánum vegna virkjunarinnar, og er það vitanlega mikið atriði og mikið hagsmunamál fyrir þjóðarheildina. Álbræðslan veitir fjölda manna atvinnu, og er það einnig mikils virði. Álbræðslan veitir þjóðarbúinu mikinn erlendan gjaldeyri og því meiri, sem frá líður, en það er líka mikils virði. Og álbræðslan borgar ríflega kostnaðinn, ríflega kostnaðarverð fyrir orkuna, sem er alveg öfugt við það, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði áðan, því að þrátt fyrir alla viðleitni hans til þess að leita sannleikans, þá fullyrti hann áðan, að álbræðslan fengi rafmagnið langt undir kostnaðarverði. Hv. þm. þarf þess vegna að lesa betur. Álbræðslan borgar ríflegan skatt fyrir hvert tonn, sem er framleitt, og fer skatturinn hækkandi eftir 6 ár og hækkar strax, ef álverð hækkar á heimsmarkaðinum, eins og gerðist í haust. Tekjur vegna skatta álbræðslunnar eru því miklar, og þegar skattar og orkuverð er lagt saman, svarar það til, að rafmagnsverðið væri 4.1 mill. En í Noregi borga álverksmiðjurnar 3.1–3.2 mill fyrir orkuna og skattana í allt öðru formi, og hefur verið fullyrt, að það form sé miklu óhagstæðara fyrir Norðmenn en að hafa ákveðinn skatt af hverju framleiddu tonni eins og er hér. Og það, sem skiptir máli, er, að með þessum skatti getum við byggt upp sterkan sjóð, sem nefnist atvinnujöfnunarsjóður. Meginhluti af þessum skatti rennur í þennan sjóð, og þessi sjóður er og verður notaður til þess að byggja upp margs konar atvinnurekstur um land allt. Þetta er mikið atriði, og þessi sjóður hefði vaxið seinna og orðið síður gildandi í atvinnulífinu, ef við hefðum ekki fengið þennan tekjustofn fyrir sjóðinn. Þess vegna segi ég, að hlutur þeirra, sem voru á móti álbræðslunni, sem voru á móti því að virkja stórt í Þjórsá og fá þessar tekjur, hlutur þeirra verður verri með því að halda áfram að berja höfðinu við steininn í stað þess að viðurkenna staðreyndir og viðurkenna sannleikann, viðurkenna, að Íslendingar hafa gott af álsamningnum og það er eitt mesta framfaraspor, sem við höfum stigið, að byrja stórvirkjun í Þjórsá, og það er nauðsynlegt fyrir okkur að halda áfram virkjunum í fallvötnum landsins. Það urðu mér vonbrigði, þegar tiltölulega góðir menn vilja ekki taka staðreyndum og halda áfram að vinna gegn góðum málum, sem þjóðinni eru nauðsynleg.

Herra forseti. Ég tel, að með því, sem fram hefur komið í þessu máli, hafi það verið hrakið, sem hv. flm. hafa sagt, og sé því ekki ástæða til að fara fleiri orðum um málið við þessa umr.