23.03.1970
Neðri deild: 65. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í D-deild Alþingistíðinda. (3189)
45. mál, rannsóknarnefnd vegna Búrfellsvirkjunar
Menntmrh. ( Gylfi Þ Gíslason ):
Herra forseti. Að gefnu þessu tilefni vil ég taka eftirfarandi fram: Það, að frv. um verðgæzlu og samkeppnishömlur féll með jöfnum atkv. í Ed. nokkru fyrr í dag, mun engin áhrif hafa á störf ríkisstj. eða samstarf stjórnarflokkanna. Það hefur ekki verið neitt leyndarmál í marga mánuði, að innan Alþfl. hafa verið skiptar skoðanir um afstöðu til þess máls, sem hér er um að ræða. Það var undirbúið sumpart í viðskmrn. og sumpart með störfum mjög fjölmennrar nefndar, sem hafði erlendan sérfræðing sér til aðstoðar við samningu frv. Fulltrúi Alþfl. í þessari nefnd, Jón Sigurðsson, formaður Sjómannasambandsins, lagðist gegn og lýsti sig andvígan frv. og hafði áður skýrt framkvæmdastjórn Alþfl. frá því, að hann mundi lýsa sig gegn frv. í nál. Þetta mál var rætt ítarlega í þingflokki Alþfl., áður en það var flutt. Þar reyndist afstaða manna til málsins efnislega sú, að sex þm. Alþfl. voru frv. samþykkir, en þrír frv. andvígir, þ. á m. hæstv. sjútvmrh. Samstarfsflokknum var skýrt frá þessari afstöðu þingflokks Alþfl. til málsins og honum sagt, að Alþfl. mundi ekki styðja málið einhuga, en þingflokkurinn hefði ákveðið, ef frv. yrði flutt, að gera málið ekki að flokksmáli, þannig að atkv. Alþfl.-manna mundu falla þannig, að sex mundu greiða atkv. með frv., en þrír mundu greiða atkv. á móti því. Þessi afstaða þingflokks Alþfl. var staðfest af miðstjórn Alþfl., sú afstaða að gera málið ekki að flokksmáli, heldur að þm. mundu greiða atkv, eins og ég sagði frá. Þessi afstaða var staðfest með miklum meiri hl. í miðstjórn Alþfl., þannig að innan flokksins hefur verið algerlega lýðræðislega að málinu unnið, algerlega lýðræðislega með það farið.
Og þar sem samstarfsflokknum hafði verið gert þetta ljóst, áður en frv. var flutt, hefur engum þurft að koma afstaða hæstv. sjútvmrh. í dag á óvart. Það var vitað, áður en málið var flutt, að ef það yrði flutt, þá mundi hann vera einn þeirra þriggja Alþfl.- manna, sem mundu greiða atkv. á móti því.
Engu að síður varð það niðurstaða í ríkisstj. að flytja frv., og þó að það hefði ekki þann þingmeirihluta með sér, sem stjórnin styðst við, var ástæðan til þess, að frv. var flutt, sú, að við, sem vorum og erum málinu fylgjandi, töldum okkur hafa ríka ástæðu til þess að ætla, að a.m.k. ýmsir þm. Framsfl. væru þess sinnis, að gildandi skipulag á verðgæzlumálum væri mjög ófullkomið og endurbætur í þá átt, sem frv. gerði ráð fyrir, væru til hóta og þeir mundu því ljá málinu lið. Og þessar ályktanir voru ekki dregnar út í bláinn. Það er ekki lengra síðan en í fyrra, að ítarlegar umr. fóru fram einmitt um verðlagsmál í Sþ. í framhaldi af fsp. eða þáltill., sem þá var til umr. Og þá lýstu ýmsir þm. framsóknarmanna því mjög eindregið yfir, að þeir teldu umbætur á skipulagi verðlagsmálanna vera mjög nauðsynlegar og töluðu einmitt þannig, að bæturnar ætti að gera í svipaða átt og þetta frv. gekk eða var ætlað að ganga. Það þótti því sjálfsagt að láta á það reyna, hvort frv, hefði þingfylgi með stuðningi kannske nokkurs hluta af þm. Framsfl. Á þetta hefur nú reynt. Það hefur enginn þeirra þm. í Ed. viljað ljá frv. brautargengi, og þar með er bað úr sögunni og hefur hlotið algerlega lýðræðislega og eðlilega meðferð. En það er í sjálfu sér mjög fróðlegt að fá endanlega vitneskju um það, hver afstaða Framsfl. í þessu máli raunverulega er.
Það er líka rétt að láta það koma fram, fyrst til mín er beint fsp. um þetta, að fulltrúi Framsfl. í þeirri nefnd, sem undirbjó frv., var Tómas Árnason. Ég veit ekki betur, og ég endurtek það og undirstrika, ég veit ekki betur en í öllum störfum nefndarinnar hafi Tómas Arnason verið fylgjandi frv. Þetta eitt með öðru gaf ástæðu til þess að ætla, að a.m.k. væru skiptar skoðanir í liði Framsfl. um afstöðu til málsins. Svo undarlega vildi til, að Tómas Árnason var ekki á landinu, þegar nál. var undirskrifað, hann var staddur í New York. og þess vegna er hans nafn ekki undir nál. En ég er sannfærður um, þó að ég geti ekki um það fullyrt og ekki sé hægt að ætlast til þess að ég fullyrði neitt um bað, en ég segi það samkv. minni beztu samvizku, að það er skoðun mín og er skoðun formanns nefndarinnar, að ef Tómas Árnason, fulltrúi Framsfl., hefði verið á landinu, þegar nál. var undirskrifað, hefði hann mælt með frv. Og þá má náttúrulega hver sem er lá okkur í ríkisstj., þó að við höfum talið rétt, þó að vitað væri, að Alþfl. væri ekki allur fylgjandi frv., að láta á það reyna. hvort einhver hluti Framsfl. kynni að vera fylgjandi því. Það hefur komið í ljós, að svo er ekki. Við því er ekkert að segia. Við tökum því. Í þessu máli hefur góður málstaður beðið ósigur, það hefur víst gerzt fyrr í veraldarsögunni og mun engum stórtíðindum valda.